Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991. * 7 ________________________________________________________Viðskipti Sigurður G. Ringsted, forstjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri: Við getum ekki beðið lengur eftir því að verkef ni aukist - þriðjungi starfsmanna sagt upp störfum Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri: „Við erum þessa dagana að fram- kvæma þær varúðarráðstafanir sem stjórn fyrirtækisins ákvað að grípa tO, að gera ráðstafanir gagnvart iðn- aðar- og verkamönnum og fækka í stjómunarstörfum vegna þess að fyrirtækið er að minnka," segir Sig- urður G. Ringsted, forstjóri Slipp- stöðvarinnar á Akureyri, en fjöl- margir starfsmenn Slippstöðvarinn- ar eru að fá í hendur uppsagnarbréf þessa dagana, eða um 50 manns af 170 starfsmönnum stöðvarinnar. Sigurður sagði að fyrirtækið yrði minna og þyrfti færri menn í stjóm- unarstörfum en verið hefur. „Stefn- an hjá fyrirtækinu hefur verið sú að það væri af ákveðinni stærð, það þyrfti mannskap í samræmi við það og svo hefur verið þraukað dauðu tímabilin. Við höfum ekki viljað Sigurður G. Ringsted, forstjóri Slipp- stöðvarinnar á Akureyri. DV-mynd gk skera niður þekkingu okkar og styrk í stjórnkerfi okkar. Það hefur alltaf verið talað um að við þyrftum að þrauka erfitt tímabil sem tæki senn enda en við sjáum því miður ekki fyrir endann á þessari lægð ennþá og þurfum því að gera varanlegar varúðarráðstafanir.“ Þýðir þetta ekki að þið eruð að glata mikilvægri þékkingu út úr fyrirtæk- inu og eruð í raun og vem að gefa nýsmíðar upp á bátinn? Aðstæður okkur í óhag „Nei, það er langt frá því. Við get- um ekki beðið í mörg ár eftir því aö verkefnin fari að aukast og haft marga og góða menn á góðum laun- um til þess að bíða eftir því. Ef við fáum stórt nýsmíðaverkefni inn á borð til okkar þurfum viö auðvitað að ráða mannskap aftur en við getum að sjálfsögðu ekki gengið að því sem gefnu að þessir menn, sem nú hætta, séu þá tiltækir og tilbúnir. Við emm bara búnir að tapa svo miklu á því að reyna að halda okkar stærð þegar næg verkefni em ekki fyrir hendi að það gengur ekki lengur. Fyrirtækið hefur smíðað skip á lag- er og brúað með því tíma þegar lítið hefur verið um verkefni. Það hefur hins vegar ekki gengið upp, nægt verð hefur ekki fengist fyrir þau skip og ytri aðstæður hafa verið okkur í óhag, minnkandi kvóti og fleira í þeim dúr. Stefnan að smíða skip Stefna okkar hlýtur hins vegar að. vera sú að smíða skip og gera við skip. Ein af okkar röksemdum með að draga það að grípa til þeirra að- gerða sem nú er verið að framkvæma hefur verið sú að það sé svo dýrt að láta þekkinguna frá sér.“ Sigurður tók það þó fram að upp- sagnimar, sem snúa að iðnaðar- og verkamönnum, væru ekki endanleg- ar, nema ef ekki yrðu næg verkefni þegar á reyndi. „Við munum að sjálfsögðu berjast við það áfram að ná til okkar verk- efnum eins og við erum að gera og vonandi mun fyrirtækið vaxa aftur og eflast. Við erum ekki að stefna að því að hætta nýsmíðum og vera hér með lítið fyrirtæki. Þetta fyrirtæki vill og ætlar sér aö vera í fremstu röð þeirra fyrirtækja í landinu sem stunda þessa starfsemi og helst á toppnum. í því hefur styrkur þess legið undanfarin ár.“ >4 Panasonic örbylgjuofn NN5250 Nettur og öflugur, 21 lítra, 800 w, með snúningsdiski, 6 mismunandi hitastillingar, 30 mínútna tímastillir. Panasonic Ef þig vantar dugmikla vinnukrafta á heimilið þá hefur Panasonic lausnina: Panasonic ryksuga og Panasonic örbylgjuofn, sannkallaðir dugnaðarforkar. Panasonic ryksuga MCE89 Öflug og meðfæranleg, með inndraganlegri snúru, stillanlegum sogkrafti og geymslu fyrir fylgihluti i vélinni sjálfri. 10.680.:, JAP1S3 BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI SÍMI 62 52 00 Eigum einnig ódýrari og einfaldari ryksugu Panasonic MCE61 á kr. 7.980.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.