Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991. 15 Tvær hæpnar hugmyndir Föstudaginn 17. október síöast liöinn hélt Viöskipta- og hagfræði- deild Háskóla íslands upp á fimm- tíu ára afmæli sitt á sérstakri hátíð í Háskólabíói, þar sem dr. Jónas H. Haralz, fyrrverandi bankastjóri, flutti aðalræðuna. Erindi Jónasar var hið athyglisverðasta. Hann taldi, að í heimskreppunni hefðu tvær hugmyndir öðlast hér mikið fylgi. Önnur er um sérstöðu íslend- inga með þjóðum heims. Hin hug- myndin er um gildi og nauðsyn opinberra afskipta, og hefði hún verið notuð sem eins konar lausn hinnar fyrri: Opinber afskipti hefðu einmitt verið rökstudd og réttlætt með sérstöðu lands og þjóðar. ísland er sérstakt - eins og öll önnur lönd Báðar hugmyndirnar eru hæpn- ar, eins og Jónas benti á, og hyggst ég hér bæta nokkrum orðum við skarplega greiningu hans. Auðvit- að er það rétt, að íslendingar eru um margt sérstakir. En allar þjóðir eru sérstakar hver á sinn hátt. Enginn maöur er sem betur fer al- veg eins og annar, og engin þjóð er heldur eins og önnur. Tvennt er til dæmis sérstakt við ísland. Ann- að er, hversu fámenn þjóðin er, hitt, hversu samleit hún er. íslend- ingar eru aðeins 255 þúsund tals- ins, og hér skiptir ekki hörundsht- ur, saga eða trú mönnum í tvær eða fleiri fjandsamlegar fylkingar, eins og við sjáum á írlandi og í Króatíu. (Ef til vill bæta íslending- ar sér þetta upp með óvenjulega heiftúðlegum og heimskulegum stjórnmáladeilum.) Lögmál hagfræðinnar gilda á íslandi Þetta merkir þó alls ekki, að þau lögmál, sem hagfræðingar og aðrir KjaUarinn Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson lektor í stjórnmálafræði mannvísindamenn hafa fundið um mannlegt hátterni, eigi ekki við á íslandi. íslendingar eru nákvæm- lega eins og aðrir menn í því, að þeir bregðast við kostnaði af verk- um sínum. Ef verð á vöru eða þjón- ustu lækkar að öðru óbreyttu, þá eykst eftirspurn eftir þessu. Ef verðið hækkar hins vegar, þá minnkar eftirspurnin. íslenskir at- hafnamenn eru vafalaust hvorki betri né verri en athafnamenn ann- ars staðar: Hafi þeir svigrúm og frelsi til athafa, þá munu þeir finna greiðfærustu leiðirnar frá draumi til veruleika. íslenskir stjórnmála- menn eru flestir ekki heldur betri né verri en stjórnmálamenn ann- ars staðar: Fái þeir tækifæri til að eyða almannafé í atkvæðakaup, þá nota þeir það tækifæri. Sömu lausnir og annars staðar Vegna þess að nákvæmlega sömu lögmál gilda um mannlegt samlíf á íslandi og annars staðar, má nota sömu lausnir og annars staðar. Lágir skattar, traustir peningar og skýr fyrirmæli í lögum um réttindi og skyldu borgaranna mynda um- hverfi, þar sem atvinnulífið vex örast og einstaklingarnir ná mest- um þroska. Hverju breytirfámennið og samleitnin? Ef eitthvað er, þá eru minni ríkis- afskipti einmitt nauðsynlegri hér en annars staðar vegna fámennis- ins og samleitninnar. Samleitnin felur það til dæmis í sér, að siðferði- legt taumhald er sterkara en víðast annars staðar. Hér getur enginn horfið í skúmaskot neinnar stór- borgar. Hér þarf þess vegna ekki stranga löggjöf í siðferðilegum efn- um: Almenningsálitið tekur af lög- gjafanum ómakið. Annað dæmi er, að vinnumarkaöurinn er hér til- tölulega gagnsær. Menn hafa sæmilega yfirsýn, éiga auðveldara með að flnna vinnu við sitt hæfi en gerist víða erlendis. (Þetta orða hagfræðingar svo, að leitarkostn- aður sé hér lægri en annars stað- ar.) Þriðja dæmið er, að menn geta hér frekar en annars staðar treyst á sjálfvalda samhjálp, ef svo má segja. Ejölskyldan og ýmis áhuga- mannasamtök sinna hér verkefn- um, sem ríkið tekur að sér annars staðar. Dr. Stefán Ólafsson dósent orðar þetta svo, að íslendingar hafi valið velferðarþjóðfélag frekar en velferðarríki. Átökin um evrópskt efnahagssvæði Við þurfum að hafna afdráttar- laust þeirri hugmynd, að sérstaða íslands kreíjist víðtækari ríkisaf- skipta en annars staðar. Við meg- um ekki leyfa dalakofasósíalistum, sem nú hafa sem hæst vegna samn- ingsins um evrópskt efnahags- svæði, að breyta íslandi í byggða- safn, sem framtakssömustu ein- staklingarnir hafa horfið úr. Við verðum óhrædd að ganga til sam- starfs við aðrar þjóðir um alþjóð- legan markað, þar sem hver sinnir því, sem hann getur gert betur en annar, og alhr græða á öllum í krafti verkaskiptingar og frjálsra viðskipta. Átökin um evrópskt efnahagssvæði eru, eins og Jónas Haralz benti á í erindi sínu, öðrum þræði uppgjör við úreltar hug- myndir heimskreppunnar. Hannes Hólmsteinn Gissurarson „Ef eitthvað er, þá eru minni ríkisaf- skipti einmitt nauðsynlegri hér en ann- ars staðar vegna fámennisins og sam- leitninnar.“ „Atökin um evrópskt efnahagssvæði eru, eins og Jónas Haralz benti á i erindi sinu, öðrum þræði uppgjör við úreltar hugmyndir heimskrepp- unnar.“ Það var ódýrt að kynda sumarið 1991 - öll aukning niðurgreiðslna er fokin út í veður og vind „Iðnaðarráðherra Alþýðufiokksins hafði ekki tryggt neina fjármuni í þessu skyni.“ Síðastliðið vor lagði iðnaðarráð- herra fram tillögu til þingsályktun- ar um lækkun húshitunarkostnað- ar. Þar var gert ráð fyrir jöfnun í húshitunarkostnaði milli heitra og kaldra svæða í þremur áföngum. Iðnaðarráðherra Alþýðuflokksins hafði ekki tryggt néina fjármuni í þessu skyni. Hér var því bersýni- lega um kosningaplagg að ræða, innistæðulaust. Þegar núverandi ríkisstjóm var mynduð var til- kynnt að tekið yrði fyrsta skrefið í þá átt að lækka húshitunarkostn- aðinn á köldu svæðunum - fyrsta skrefið af þremur. Það var gert. í fréttatilkynningu iðnaðarráðu- neytisins var gert ráð fyrir því að reikningurinn fyrir ársupphitun færi úr 90.000 kr. í 80.000 kr. Ekki kom fram í þeim tilkynningum hver ætti að borga brúsann en fuh- yrt að það yrði gert af niður- greiðslufé. Nú er fjárlagafrum- varpið komið fram. Þar kemur í ljós að ekki á að bæta neinu við í niðurgreiðslu húshitunar. Og það sem hefur gerst síðan er ekki síður merkilegt: Með gjaldskrárhækkun- um 1. júlí og 1. október er öll niður- greiðslan horfin út í veður og vind. Kosningatjaldið er fallið - eftir stendur opið sviðiö og keisarinn er ekki í neinu. Keisarinn heitir Jón Sigurðsson. Yfirtaka skulda lækkaði orkuverð verulega Hér verða rakin dæmi um þróun orkuverðsins annars vegar hjá Kjallarinn Svavar Gestsson alþingismaður Orkubúi Vestfjarða og hins vegar hjá Rafmagnsveitum ríkisins. En áður en að því kemur er rétt að minna á að fyrri ríkisstjórn yfirtók skuldir af Rarik og Orkubúi Vest- fjarða svo nam geysiháum upp- hæðum. Samkvæmt mati, sem fyr- l,; U/ liLSn ■ : 3.TLÍ í f I I5 (. ~l( - ir liggur, nemur skuldayfirtakan því að taxtarnir eru umtalsvert lægri en án yfirtökunnar. Þannig kemur fram í áhti Hagfræðistofn- unar háskólans að orkuverðið væri 36,5% hærra hjá Rafmagnsveitum ríkisins og 45% hærra frá Orkubúi Vestfjarða ef stofnanirnar hefðu þurft að bera skuldirnar að fullu. í nefndaráliti, sem skilað var th iðnaðarráðherra síðasthðið vor, var miðað við 35.420 kílóvatts- stunda ársnotkun til húshitunar. Ef miöað er við 35 þúsund kíló- vattsstundir á ári hefur ársreikn- ingurinn þróast sem hér segir hjá kaupendum húshitunarorku á Vestfjörðum: 1. Miðað við verð eins og það var á fyrstu fimm mánuðum þessa árs var árskostnaður talinn kr. 83.700. 2. Eftir að ríkisstjómin ákvað nið- urgreiðslur sínar síðasthðið vor og eftir að OV hafði einnig ákveðið hærri afslátt svo og Landsvirkjun var kostnaðurinn á ári kominn niður í 72.800 kr. á r,LíSL>'.h iSDJt'iif.tf ££ ,;t x j.l 7. ári. 3. Ríkisstjórnin féllst á hækkanir á raforku frá Orkubúinu vegna gjaldskrárhækkana Landsvirkj- unar frá 1. október. Þá fór árs- reikningurinn upp í 81.720 kr. og er því í dag aðeins 1.920 kr. lægri en hann var fyrir niður- greiðsluhækkunina. Það gerir fimm krónur og níutíu aura á dag - og munar um minna. Ef hins vegar er miðað við 40 þúsund kílóvattsstunda ársnotkun, sem er algeng, htur reikningurinn þarmig út: 1. Miðað við verðlag til maíloka 94.000 kr. 2. Miðað við verðlag í sumar 87.800 kr. 3. Miðað við verðlag frá 1. október 97.870 kr. Með öðrum orðum verðlag á raf- orku er nú hærra en það var til notenda á Vestfjörðum. Ibúar Vest- íjarða geta að vísu huggað sig við það að það var ódýrt að kynda yfir hásumarið. Og að sjálfsögðu er dæmið svipað hjá Rafmagnsveitum ríkisins: 1. Niðurgreiðslan er uppétin þegar kemur yfir 35 þúsund kílóvatts- stunda ársnotkun til húshitun- ar. 2. Ef miðað er við 40 þúsund kíló- vattsstunda ársnotkun hefur orkuverðið hækkað um liðlega 7% frá síðastiiðnu vori áður en niðurgreiðslurnar voru ákveðn- ar. Aht ber því að sama brunni: Nið- urgreiðsluhækkunin er farin og með óbreyttri krónutölu í niður- greiðslur á næsta ári mun hita- kostnaðurinn aukast hlutfallslega enn frekar. Og þegar Alþýðuflokk- urinn verður spurður um hita- reikningana í framtíðinni mun hann engu geta svarað öðru en því að það hafi verið ódýrara að kynda sumarið 1991. Sýndarmennska er vissulega vægt orð yfir þá blekkingarstarf- semi sem Álþýðuflokkurinn iðkaði fyrir kosningamar 1991 gagnvart Kjósendum á „köldu svæöunum“. Svavar Gestsson „Og þegar Alþýðuflokkurinn verður spurður um hitareikningana í framtíð- inni mun hann engu geta svarað öðru en því að það hafi verið ódýrara að kynda sumarið 1991.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.