Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991. Spumingin Ferðu með skóna til skó- smiðs? Dagný Hængsdóttir, nemi og húsm.: Já, svona tvisvar í mánuði. Bjarnrún Júlíusdóttir banka- starfsm.: Já, stundum, svona tvisvar til þrisvar á ári. Ragnar Kristinn garðyrkjum.: Stundum, kannski þriðja hvert ár. Katrín Fjeldsted Jónsdóttir skrifstof- um.: Já, þegar þarf að sóla. Axel Karlsson bakari: Já, kannski einu sinni á ári. Sólrún Bjarnadóttir húsm.: Já, svona einu sinni til tvisvar á ári, til að láta sóla. Lesendur Stríðsógnir króat- ísku þjóðarinnar „ ... fjöldi Króata flýr heimili sín og aleigu, aðeins með óvissuna og óttann í farteskinu. A.K.E. skrifar: Ég harma seinagang vestur-evr- ópskra stjórnmálamanna, ríkja og ríkjasambanda í að viðurkenna Króatíu sem sjálfstætt og fullvalda ríki og síðan önnur í kjölfarið sem þess óska. Fólk horfir nú til Vestur- landa vonaraugum og skyldi engan undra því að fólkið hefur heyrt svo ljúflega talað um réttlæti lýðræðis, mikilvægi skilnings og ákveðna sam- stöðu almennings í vestrænum lýð- ræðislöndum gegn hvers konar kúg- un og óréttlæti. Ætli okkur væri ekki hollt að leiða hugann að því hvernig fólkið, sem þarna býr, hugsar til okk- ar sem höfum básúnað allt þetta en höfum svo upp á eintóma sýndar- mennsku og kjaftæði að bjóða þegar til okkar er leitað. Sérstaklega nú, þegar málum er svo komið að fjöldi Króata flýr heimili sín og aleigu, að- eins með óvissuna og óttann í far- teskinu. En heldur enn í þá trú að sagan góða um Davíð og Golíat geti endurtekið sig. Ég er ennþá að bíða eftir að sjá til- kynningu um útifund tii að mótmæla þessum ódæöisverkum sem þarna eru framin með trúarhatur, valda- græðgi og grimmd að leiðarljósi. Að sjálfsögðu allt hvítþvegið með af- söknum um meint áformað misrétti gagnvart minnihluta Serba, búsettra innan Króatíu. Allt þetta leiðir hug- ann að því fólki sem þarna verst, illa vopnum húið en með góðan málstað og treystir á stuðning þeirra sem halda uppi merki lýðræðis, frelsis og mannúðar. Siðferðilegur stuðningur kostar okkur svo lítið en skiptir fólk- ið þarna svo óendanlega miklu. íslenskir stjómmálamenn léðu máls á góðu málefni Eystrasaltsland- anna og þjóðin stóð óskipt að baki þeim. Því er það von min að þeir ræski sig og veiti Króötum sama lið- sinni þó málefnið sé ekki nákvæm- lega það sama. Ég þykist viss um góðan vilja alls þorra fólks hér til hjálpar bágstöddmn vegna neyöar- hjálpar þegar söfnun hefst. Ég læt öðrum það eftir að útskýra og skrifa um tilefni og þann djúp- stæða ágreining sem ríkir á milli þeirra þjóða og þjóðarbrota sem áður hétu Júgóslavía. Það er tilgangur minn ög von að þetta pár mitt veki einhverja til umhugsunar um ná- ungakærleikinn og jafnvel hvetji fólk til aö stinga niður penna og tjá sig um máhð. EES-samningurinn og ókostir sem fylgja K.S. eldri borgari: Ýmislegt gott og slæmt má segja um samninginn um hið evrópska efnahagssvæði, til dæmis er hætt við að alls kyns fólk, sem ekki nennir að vinna, hasli sér völl í miðbæ Reykjavíkur með alls konar drasl til sölu (oft eru eiturlyf með). Ég hef séð slíkt erlendis og mér fmnst hörmulegt að þetta fólk skuli ekki rekið frá ýmsum stöðum, til dæmis kirkju í miðri Berlín. Eg get ekki horft upp á það að slíkt fólk hasli sér völl við gamla Útvegsbank- ann eða aðalpósthúsið í Reykjavík. Önnur hætta, sem fylgir EES- samningnum, er að til dæmis ÍSAL léti flesta íslendinga fara og inn kæmu til dæmis Tyrkir fyrir helm- ingi lægri laun. Gæti þetta ekki gerst þegar nýja álverið rís? Við höfum þegar séð mjög ljót brot hjá atvinnurekendumm hvað þetta varðar, til dæmis hjá Nesskipi sem rak íslensku sjómennina í land og réð Pólverja í staðinn á lægra kaupi. Ég spyr: Er þetta það sem EES-samning- urinn býöur upp á? Ég skora á ráðherra að svara þessu strax. Þjóðaratkvæði, tafarlaust, það er rétta aðferðin til að kveða dóm um þetta viðkvæma mál. Við hvaða réttarf ar búum við? annað um friðhelgi þína. Þú, íbúi góður, skalt bara breyta lífsvenjum fjölskyldunnar, til að þóknast alræðisvaldinu. Til að fá notið ákvarðana þess borgar þú jú skatta. Hlutfall þeirra, til þessa mála- flokks, hlýtur að vera mjög stórt. Næsta skref þitt er væntanlega að setja eigu þína á sölulista. Þá kemstu að því að enginn, sem veit við hvað er að búa, vill kaupa. Þú ert ekki lengur bara réttlaus, þú er líka orð- inn eignarlaus. Slíkt er alræðisvaldið og var svo einhver að tala um Aust- ur-Evrópu. ... þó lög þessa lands segi allt annað um friðhelgi þína.“ H.H. skrifar: Hvort skyldi það vera svæðisstjórn fatlaðra eða félagsmálaráðuneytið, sem ræður búsetu ófatlaðra ef ein- hverjir eru enn eftir í þessu landi? Það kom í ljós við úrskurð dóms- valda varðandi lögbannsbeiðni íbúa í Reykjavík að ófatlaðir eiga sér eng- an friðhelgisrétt lengur. Þú, lesandi góður, getur reynt aö tryggja rólegt og öruggt umhverfi þitt og þinna. En þegar kemur aö tækifærissinnuðum ákvörðunum fé- ! lagsmálaráðuneytis, svæðisstjórnar j fatlaöra eða félagsmálaráða sveitar- félaga þá ertu orðinn réttlaus maður. Alræðisvaldið er í höndum þessara stofnana, þó lög þessa lands segi allt Hringið í síma 27022 milli kl. 14 og 16 -eða skrifið ATH.: Nafn og símanr. verður að fylgja bréfum Boðpáfa Margrét skrifar: Mér finnst Ólafur Skúlason biskup hafa sýnt mikinn kot- ungshátt þegar hann afþakkaði boð páfa til Vatíkansins. Jóhann- es Páll páfi er einn mesti friðar- og mannréttindavinur sem nú er uppi. Það er því skaði að biskup íslands skuli ekki hugsa hærra og þiggja boð hans. Ég var mjög fegin að það var Pétur Sigurgeirsson sem var biskup íslands þegar páfinn heimsótti island fyrir nokkrum árum. Frábærþjónusta Agnar Tryggvason hringdi: Eg og kona mín vorum á Spáni nú fyrir stuttu með Ferðaskrif- stofu Reykjavíkur. Við flugum heim 17. október síðastliðinn með flugfélaginu Atlantsflug. í flug- vélinni fengum við alveg frábæra þjónustu. Starfsfólkið var kurt- eist, almennilegt og vildi allt fyrir okkur gera. Við hjónin viljum skila þakk- læti til Atlantsflugs og starfsfólks þess en þó sérstaklega til einnar flugfreyjunnar, Ágústu, sem hugsaði svo vel um okkur í þess- ari ferð. Rollur eyðileggja Reynir Markússon hringdi: Mig langar að koma því á fram- færi til yfirvalda aö margar rollur ganga lausar og eyðileggja garða og gróður í Kópavogi og Garðabæ. í Leirárdalnum í Fífu- hvammslandi eru nokkrir kofar sem roUur eru í. En girðingarnar í kringum kofann halda ekki þessum skepnum og því eru þær lausar. Eyðileggingarmáttur þeirra er miög mikill. Ég hef séð þessar kindur bryðja aspirnar sem Vigdís Finnbogadóttir forseti setti niður í Smalaholti fyrir norðan Vífilsstaði. Nú eru Kópa- vogsbúar að setja niöur tré á Rjúpnahæð en ef rollumar halda áfram að ganga lausar verður ekki mikið eftir af þeim trjám að vori. Einkennilegt fréttamat I.J. hringdi: Mér finnst nokkuð einkennilegt fréttamat útvarps og sjónvarps. Nú er einn sögulegasti heimsvið- burður að eiga sér stað í Madríd en við íslendingar fáum engar fréttir af því nema í gegnum er- lendar fréttastofur, nema það sem fréttaritari útvarpsins á Spáni kemur með í pistlum sín- um. Ef um væri að ræða heims- viðburð í fótbolta eða handbolta er ömggt að búið væri að senda út heilan hóp manna svo hægt væri að senda þetta hingað í beinni útsendíngu. Það sama átti sér stað þegar heimsmeistara- keppnin í bridge átti sér stað. Þá var ekki einu sinni haft fyrir því aö hafa fréttaritara úti. ísamkeppni vfðhvali Hlynur hringdi: Eg heyrði i fréttum nú nýlega að hvalir og önnur spendýr, ásamt sjófuglum, éti um milljón tonn af fiski hér við land á ári hverju. Mér finnst þessi tala svo ógnvænleg að ég get ekki orða bundist. Nú þegar þorskstofhinn virðist vera smátt og smátt að hrynja er lífsnauðsynlegt að gera eitthvað 1 þessum málum. Eða ætla stjórnvöld að láta hvalina éta okkur út á gaddinn? Það er nauðsynlegt að hefja hér aftur hvalveiðar sem allra fyrst. Einnig þarf að fækka selnum verulega hér viö land.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.