Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjóm - Auglýsíngar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991. Slys í Óshlíð: 16og19ára pilta saknað Tveggja Bolvíkinga, 16 og 19 ára, er saknað eftir að bíll fór út af Óshlíð- arvegi við Seljadal skammt norður af Hnífsdal á flmmta tímanum að- faranótt laugardagsins. Bíllinn féll um 10 metra niður og hafnaði í sjón- um. Tæplega tvitugur piltur komst lífs af. Talið er að hann hafi kastast út úr bílnum áður en hann lenti í sjón- um. Leigubílstjóri, sem átti leið um Óshlíðina, tók hann upp í búinn um nóttina. Björgunarsveitarmenn frá ísafirði og Bolungarvík hafa leitað um helgina að þeim sem saknað er. Aðeins hlutir úr bílnum hafa fund- Jst. -ÓTT íþróttahöll í Kópavogi: Endanlega blásin út af „Meirihluti bæjarstjórnar Kópa- vogs, íjármálaráðherra og mennta- jnálaráðherra hafa tekið sameigin- iega ákvörðun um að hætta við bygg- ingu iþróttahallar í Kópavogi. Bygg- ingin þótti allt of dýr,“ sagði Gunnar Birgisson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, við DV í morgun. Jón Hjaltalín Magnússon, formað- ur HSÍ, mætti hjá borgarstjóranum í Reykjavík í morgun ásamt forseta ÍSÍ og formanni ólympíunefndar ís- lands. Þar átti að fá endanlegt svar borgarstjóra varðandi möguleika á byggingu umræddrar hallar í Reykjavík. -hlh Grindavík: Kjöti af heima- slátruðu stolið 125 skrokkum af kjöti var stolið í Grindavík um helgina. Kjötið er af fé sem fjáreigendur í Grindavík höfðu tekið sig saman um að slátra heima fyrr í haust og heilbrigðisyfir- völd höfðu bannað neyslu á. Að sögn lögreglu er ekki vitað ná- kvæmlega hvenær þjófnaðurinn átti sér stað. En það var á laugardags- kvöldið sem lögreglunni var tilkynnt um hann. Kjötið var geymt í frysti- gámi skammt frá þeim stað þar sem kjötinu var slátrað. Rannsóknardeild ■““lögregunnar í Grindavík fær málið til athugunar í dag. -J.Mar LOKI Þetta ersvona nýmóöins sauðaþjófnaður. Þetlavar meiri háttar upplifun „Þetta bar brátt að. Viö náðum í konuna í efra Breiðholtið og flýtt- um okkur niður eftir áleiðis að fæðingardeildinni á bláum Ijósum. En stúlkan var komin svo nálægt fæðingu að við ákváðum að stoppa á leiðinni," sagði Oddur Eiríksson sjúkraflutningamaður í samtali við DV stuttu eftir að hann og félagi hans, Jón Pétursson, tóku á móti barni i sjúkrabíl á Bústaðavegar- brúnni um klukkan tvö aðfaranótt sunnudagsins. Barninu, sem er drengur, og móðurinni, Michelle Árnason, 27 áraReykvíkingi, heils- ast vel. „Um það leyti sem við stöðvuðum bílinn kom kollurinn á barninu í Ijós. Viö tókum á móti og kölluðum á neyðarbílinn. Áður en hann kom var barnið fætt. Síöan var skilið á milli í bílnum," sagði Oddur. Hann sagði að þetta væri fyrsta barnið sem hann tekur á móti í sjúkrabil: „Ég hef áður komið i heimahús aö fæðingu en þá var barníð kom- ið. Við Jón skutum því að í gríni þegar þetta var búið í nótt að það ætti að skíra drenginn Jón Odd,“ sagði Oddur. „Þetta er í fjórða skiptið sem ég lendi í svona. En svona lagað er hreinlega meiri háttar upplifun. Ég held að það sé alveg klárt að dreng- urinn eigi aö heita Jón Oddur," sagði Jón Pétursson félagi Odds hlæjandi. Samningatilboð ríkisins: Sjúkraflutningamennirnir Jón Pétursson og Oddur Eiríksson stuttu eftir að þeir tóku á móti sveinbarni í sjúkrabil á brunni á Bústaðavegi aðfaranótt sunnudagsins. DV-mynd S Algjörlega útíhött „Menn geta gleymt þessu. Því fyrr sem þeir gleyma þessu, þeim mun betra. Þetta plagg er aigjörlega út í hött,“ sagði Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, er DV spurði hann álits á tilboði því sem samninganefnd rík- isins lagði fram fyrir helgina. Ögmundur sagöi að í tilboði ríkis- ins segði að í komandi kjarasamning- um væri ekkert svigrúm til al- mennra launahækkana á næsta ári. Gert væri ráð fyrir 2-3ja ára samn- ingstíma. Þá væri gert ráð fyrir end- urskoðun á launa- og lífeyriskerfi ríkisstarfsmanna. Síðan segði: „Samninganefnd ríkisins bendir á að takist vel að innleiða framleiðni sem hluta af launakerfi samhliða auknu sjálfsforræði stofnana opnast betri möguleikar á útboðum og einkavæð- ingu á ýmissi þjónustu ríkisins." „Þetta þýðir að við eigum að sitja og hanna kerfi sem er líklegt til að opna leið til þess að störf fólksins, sem við erum að semja fyrir, verði seld,“ sagði Ögmundur. „Loks vilja þeir ráðast að fæðingarorlofi og veik- indarétti." -JSS Skákmótið í Tilburg: Kasparov sigurvegari Heimsmeistarinn Kasparov hefur þegar sigrað á skákmótinu mikla í Tilburg þrátt fyrir tap gegn Anand í 12. umferð. Karpov vann Anand í 13. umferð og þá tapaði Indverjinn mjög óvænt biðskák sinni gegn Kamsky úr 11. umferð. Lokaumferðin verður tefld í dag og þá mætast Kasparov og Karpov. Staðan fyrir lokaumferðina er þannig. Kasparov 9 v. Anand, Short og Karpov l'A v. Kamsky 7 v. Tim- man 6'A v. Kortsnoj 4‘A og Bareev 2 'A v. -hsím Fjárhús og hlaðafuku „Það var um morguninn sem við sáum að fjárhúsið og hlaðan voru farin,“ sagði Guðrún Einarsdóttir, húsfreyja á bænum Teigi í Hvamms- hreppi í Dalasýslu. Mikið óveður gekk yfir Dalasýslu aðfaranótt sunnudags og urðu víða skemmdir á mannvirkjum. Bifreið eyðilagðist einnig á á Teigi. Engar kindur voru í fjárhúsunum og lítið hey í hlöðunni. Á bænum Rauð- barðaholti losnaði járn af íbúðar- húsi. Þá brotnuðu á þriðja tug raf- magnsstauraíönundarfirði. -J.Mar Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14—17 TM-HUSGÖGN SIDUMULA 30 SIMI 686822

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.