Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991. 9 dv Útlönd Myrti flóra í háskólanum í Iowa 1 Bandaríkjunum: Morðinginn skarpgáf aður og skipulagði verkið vel hýddu og klór- uðusvarta vinnukonu Læknishjón í Lundúnum voru dæmd í fimm ára fangelsi fyrir illa meðferð á svartri vinnukonu sinni. Vinnukonan, Helen Samu- els að naíni, kom til hjónanna frá Nígeriu fyrir fimm árum og bjó hjá þeim eins og ambátt æ síðan. Hún fékk aidrei frídag. Læknishjónin fengu útrás fyrir kvalaiosta sinn með því að hýða Helen með rafmagnssnúrum og klóra hana til bióðs. Þau sveltu hana löngum stundum þannig að hún fékk ekkert að borða annað en það sem hún gat sníkt hjá nágrönnunum. Dómarinn sagði óskiljanlegt hvernig svo vel menntað fólk gæti gerst sekt um athæfi eins og þetta. Veiðistjórar Karlsprins Veiðistjórarnir, sem leiöa uppá- haids refaveiðiflokk Karls Breta- prins, hafa sagt af sér eftir að náttúruverndarsamtök sýndu opinberlega myndband um hörmuleg æviiok refanna. Myndirnar sýna m.a. þar sem greni er stungið upp þannig að veiðihundarnir gátu tætt refinn í sig. Það er brot á veiðireglum þvi hundana má aðeins nota til að elta refinn uppi á víðavangi. Karl prins hefur mikla skemmtun af refaveiðum en talið er að Díana kona hans sé þeim mjög mótfailin. Björguðu tólf mönnumaf norðurpólnum Tólf mönnum var bjargað af norðurpólnum um helgina eftir að þeir höfðu orðið að hírast þar í tvo daga í miklura kulda. Á mið- vikudaginn hrapaði flutningavél frá kanadiska flughernum nærri pólnum. Með henni voru átján menn en sex þeira létu lifið á slys- staðnum. Mjög illa gekk að bjarga mönnum vegna óveöurs og voru margír þeirra sem af liföu illa hraktir þegar þeir loks komust til byggða. Blásaáoliu- elda í Kúveit Slökkvfiiðsmenn frá Ungveija- landi hafa fimdið upp nýja aðferð til aö ráða niöurlögum eldanna í oliulindum Kúveits. Ráöið er að blása á eldana eins og kerti. Til verksins hafa þeir gamlan skriðdreka af sovéskri gerð og setja á hann tvo þotuhreyfla úr Mig-herþotu. Skriðdrekanum er ekið aö eidimun og blásið á hann með hreyflunum auk þess sem vatni er dælt yfir allt saman. Betlurumekið brottfyrirráð- stef nu um fátækt Lögreglan í Colombo á Sri Lanka smalaði saman öllum betl- urum í borginn og ók þeim á brott áður en gestir á ráðstefnu um fátækt komu þar saman. Eitt helsta umræðuefnið á ráðstefh- unni á að vera hvernig unnt sé að bæta kjör fólks í borginni og viðar f þessum heimshluta. Lög- reglan segir að fólkinu hafi verið komið fyrir í endurhæfingarbúð- um. Reuter „Þetta var þrauthugsað hryðju- verk. Maðurinn skipulagði moröá- rásina í smáatriðum áður en hann lét til skarar skríða," sagi J. Patrick White, saksóknari í Iowa í Banda- ríkjunum, um morð á fjórum mönn- um í háskólanum þar í borginni. Tilræðismaðurinn hét Gang Lu og var af kínverskum ættum, stúdent viö háskólann. Hann svipti sig lífi eftir árásina. A laugardaginn kom Lu vopnaður 38 kalíbera skamm- byssu í skólann. Hann skaut fyrst þrjá kennara og síðan einn skóla- bróður sinn frá Kína. Lu skrifaði fimm bréf stíluð á ýms- ar fréttastofur og bað skólafélaga sína að póstleggja þau á tilteknum tímum síðar. í bréfunum kemur fram reiði Lus vegna þess að hann fékk ekki stöðu við háskólann að loknu doktorsprófi í eðlisfræði. Skólabróð- irinn sem féll fékk stöðuna. Menn kunnugir Lu segja að hann hafi verið hæglátur maður og skarp- greindur. Ekki er vitað til að hann hafi áður gerst sekur um ofbeldi. Samt hggur fyrir að hann skipulagði morðin vel og myrti mennina með köldublóði. Reuter Glæpaflokkur hefur ráðið 18 mönnum bana Glæpaflokkur í Suður-Pakistan myrti í síðasta mánuði 18 menn af ýmsum ástæðum. Um helgina voru fjórir drepnir og þá fundust einnig lík 14 manna illa útleikin. Mönnunum hafði veriö rænt fyrr í mánuðinum. Talið er að glæpamennimir hafi ætlaö að fá lausnargjald fyrir fólkið sem þeir rændu en flöl- skyldur þeirra ekki getað reitt féö af hendi. Lögreglan segir að hún hafi drepið um 400 glæpamenn í héraðinuásíðastaári. Reuter DA NSKIR DAGAR ÞÉR í HAG Hátt í 200 danskar vörur á kynningarverði Sumar vörurnar eru meira að seaia á Kaupmannanafnarverði! Danska eldhúsið Kynning á sérlöguðum dönskum kjötvinnsíuvörum fer fram í öllum verslunum Miklagarðs og í Kaupstað. Par býðst gestum að smakka ekta danskan heimilismat, svo sem spægipylsu, svínasultu, danskunna jvlsu og svo auðvitað Janskar "frikadeller". Algjört nammi. ÞERIHAG Allt hráefni í bennan prýðisgóða mat býðst á kynninaarverði - jgfnvel Kaupmannanafnarverði! A Dönskum Dögum er megináhersla íogð á mikið og ott úrval afdanskri vöru á agstæðu verði í samræmi við kjörorð daganna: Pér í hag! I Donskir kjöthöggsmenn sýna það í Miklagarði v/Sund og i Kaupsiað bvernig Danir hluta kjöt. Jafnframl rabba þeir á "íslensku" við viðskiplavini um kjötskurð, kjötvinnslu og danska matreiðslu. Radio Danmark "Radio Danmark" (sérrás Danskra Daga) flytur danska slagara, slúður, tilkynningar, lög og létt rabb í öllum verslunum Miklagarðs og í Kaupstað alla dagana. Daglegir vinningar á Bylgjunni Gestagetraun verður í gangi og dregið daglega um vinninga á útvarpsstöðinni Bylgjan, í fyrsta dagskrárþætti eftir hádegi. Meðal daglegra vinninga má nefna: Innkaupakörfufylli afdönskum vörum, stórir LEGOkassar og danskar kvikmyndir á myndböndum. Aðalvinningur er Frigor frystikista að verðmæti kr. 34.500. Hún verður dregin út síðasta daginn í Miklagarði v/Sund. H.C Andersen söguhorn í sjónvarpsherbergjum Miklagarðs v/Sund og Kaupstaðar verða fóstrunemar sem lesa ævintýri H.C. Andersen fyrir börnin öll síðdegi og báða laugardagana. LEGO kynning I Miklagarði v/Sund komast börnin ísnertingu við ævintýraheim LEGO í risastórri LEGO uppstillingu. Danskir dagar standa yfir í öllum verslunum Miklagarðs og í Kaupstað. Þeim lýkur laugardaginn 9.nóvember kl. 16.00. JXL AIIKLIG9RÐUR DA NSK/R^DA GA R Einkennismerki Danskra Daga eru eins oa vördur vitt og breilt um allar verslanir Miklagorls og Kaupstaðar og benda á bvar aanskar vörur á kynningarverÖi sé aö finna. KAUPSTAÐUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.