Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Síða 17
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991.
17
Fréttir
Glæsilegt hús eldri borgara í Húnaþingi er nú fullbúið á Biönduósi. Við hlið þess er byrjað á öðru húsi þannig
að næsta haust verða þarna 16 ibúðir. DV-mynd MÓ
Blönduós:
HMBAmTÖM H/F
MEIRIHÁTTAR MICHELIN MARKAÐUR
STÓRKOSTLEGT GRIP FRÁBÆR ENDING
QefcTOPPURINN í DAG, MICHELIN.
f-----
FLESTAR
FYRIRLIGGJANDI.
HUÓÐLÁT OG
RÁSFÚST.
HALLANDI GRIPSKURÐIR.
VEL STAÐSETTIR SNJÓ-
NAGLAR.
MJÚKAR HLIÐAR, MEIRI
SVEIGJA.
ÁKVEÐIN SNÚNINGSÁTT,
OPNARA GRIP.
ÖLL MICHELIN
ERU RADÍAL.
MERKIÐ TRYGGIR GÆÐIN.
MICHELIN.
TVÖFÖLD ENDING.
Skagaströnd:
Fullt út úr dyrum við
vígslu nýju kirkjunnar
ÞórhaJlur Ásmundsson, DV, Norðurl.vestra:
Það var hátíðarsvipur yfir Skaga-
strönd, þegar nýja kirkjan þar var
vígð að viðstöddu fjölmenni 20. októ-
ber. Fullt var út úr dyrum og þurftu
margir að standa en álitið er að um
400 manns hafi verið viöstaddir há-
tíðardagskrána sem stóð í tvær
klukkustundir. Að henni lokinni var
öllum boðið til kaffisamsætis í félags-
heimilinu Fellsborg.
„Það ríkir ánægja og gleði hér á
staðnum meö kirkjuna. Fólki finnst
hafa tekist vel til bæði úti og inni.
Hér hafi tekist að skapa einstakan
helgidóm sem nýtast muni vel í safn-
aðarstarfi í framtíðinni," sagði séra
Egill Hallgrímsson, sóknarprestur á
Skagaströnd.
Það var biskupinn, herra Qlafur
Skúlason, sem vígði kirkjuna og ann-
aðist þjónustu fyrir altari ásamt
sóknarpresti. Allir prestar Húna-
vatnsprófastsdæmis voru viðstaddir
og þrír prestar sem þjónað hafa áöur
á Skagaströnd, - Pétur Þ. Ingjalds-
son, Oddur Einarsson og Ægir Sigur-
geirsson. Þá voru Bolli Gústavsson
vígslubiskup og Sigurður Guö-
mundsson, fyrrverandi vígslubisk-
up, viðstaddir.
Tónlistarflutningur var mikill.
Kirkjukór Hólaneskirkju söng ásamt
félögum úr kirkjukórnum á Blöndu-
ósi við undirleik Julian Hewlett. Eft-
ir hann var frumflutt tónverk til-
einkað kirkjunni. Jóhanna Linnet
söng einsöng og Kristján Hjartarson
flutti hátíðarljóð sem ort var í tilefni
vígslunnar.
Framsóknarmenn á Norðurlandi vestra:
Skattstjórinn áfram formaður
Öm Þóraiinsson, DV, Fljótum:
Bogi Sigurbjörnsson, skattstjóri á
Siglufirði, var endurkjörinn formað-,
ur Kjördæmissambands framsókn-
armanna á Norðurlandi vestra á
þingi sambandsins sem haldið var
nýlega. Ekki urðu miklar breytingar
á stjórn sambandsins á þinginu. Þó
fer hlutur kvenna sífellt vaxandi og
eru konur nú helmingur stjórnar-
manna.
Stjórnina skipa nú: Brynjólfur
Sveinbergsson, Hvammstanga,
Benedikt Ragnarsson, V-Hún„ Björk
Axelsdóttir, Húnavöllum, Kristín
Pálsdóttir, Höllustöðum, Vilhjálmur
Pálmason, Blönduósi, Gunnar Bragi
Sveinsson og Sigurbjörg Guöjóns-
dóttir, Sauðárkróki, Elínborg Hilm-
arsdóttir, Hrauni, Hofshreppi, og
Guðrún Sighvatsdóttir, Siglufirði.
Glæsilegt útlit og góð tæknileg hönnuri á verði sem er ævintýri líkast.
lyrFTT? TU Á TTA T?
lViEjIlvlllr^ 1 lAlv
pakka-tilboð
ELTA-myndbandstæki og 20" Adison litasjónvarpstæki
með fjarstýringu á meiriháttar tilboðsverði
aðeins kr. 58.700,-
stgr.
Gæði á góðu verði
□L '
Greiðslukjör
við allra hæfi
Faxafeni 12, Reykjavík, sími 91-670420
Glerárgötu 30, Akureyri, sími 96-22550
Umdeild naf ngift á nýju húsi
Nýja kirkjan á Skagaströnd.
Magnús Ólafeson, DV, Blönduóá:
Nýju húsi eldri borgara í Austur-
Húnavatnssýslu hefur veriö gefið
nafnið Húnabyggð 1. Þegar er hafin
bygging á öðru sams konar húsi með
öðrum 8 íbúðum í. Sú bygging á að
hljóta nafnið Húnabyggð 2.
Þessar byggingar standa við Flúða-
bakka og eru númer 1 og 3. Nafn
húsanna er þegar mjög umdeilt í
héraðinu, m.a. vegna þess að óum-
deildur héraðssöngur Húnvetninga
er Húnabyggð eftir Pál V.G. Kolka
við lag Guðmanns Hjálmarssonar.
Þessi nafngift var tilkynnt þegar
íbúðirnar 8 voru afhentar fullbúnar
til notkunar um síðustu helgi. Það
er félag eldri borgara í sýslunni sem
staðið hefur fyrir þessari fram-
kvæmd með bakábyrgð héraðs-
nefndar og Blönduósbæjar.
Fjórar af íbúðunum eru 73 m2 að
stærð og eru ætlaðar fyrir hjón en
fjórar 62 mz fyrir einstaklinga. Auk
þess er í húsinu sameiginlegt rými
sem er 180 m2. Stærri íbúðirnar kost-
uðu fullbúnar rúmar 8 milij. kr. en
þær minni tæpar 7 milljónir.
Allir verktakar við framkvæmd-
irnar voru úr héraði en teikningar
voru fengnar hjá Húsnæðismála-
stofnun. Héraösnefnd A.-Hún. gaf
húsgögn í sameiginlega setustofu
nýju íbúðanna og Búnaðarbankinn
gaf sjónvarp.
DV-mynd Þórhallur
MICHELIN
MICHEUN
HMLBAMASTMN H/F
SKEIFUNNI5. SlMAR 687517 OG 689660