Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Qupperneq 32
44 MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991. Meiming___________ Bach í Lang- holtskirkju Kór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar hélt tónleika í gær þar sem fluttar voru tvær Kantötur eftir Jóhann Sebastian Bach. Einsöngvarar voru Harpa Harðardóttir, Þóra Einarsdóttir, Björk Jóns- dóttir, Þorgeir Andrésson og Ragnar Davíðsson. Kammersveit Langholtskirkju annaðist undirleik og konsertmeistari hennar var Júlíana Elín Kjartansdótt- ir. Daði Kolbeinsson óbóleikari og Nora Kornblueh sellóleikari áttu stór einleikshlutverk á tónleikunum sem voru haldnir á vegum Minningarsjóðs Guðlaugar Bjargar Pálsdóttur. Þegar Kantötur Bachs fara að heyrast vita menn að jólin eru í nánd svo nauðsynlegur og sjálfsagður þátt- ur er þessi tónlist í jólahaldi flestra tónlistarunnenda. Menn undrast sífellt hve margar kantötur Bach komst yfir að semja. í raun er meira tilefni til að gera róm að því hve góð þessi tónlist er frá listrænu sjónarmiði og einnig frá trúarlegu. Þá gefur tónlistinni aukna dýpt og styrk sú augljósa og einlæga trúarsannfæring sem hvarvetna svifur yfir vötnum og lætur engan ó- snortinn. Skiptir þar ekki máii hver afstaða manna að öðru leyti er til trúarskoðana Bachs. Kantöturnar, sem þarna voru fluttar, eru nr. 131 og 21 og ekki af lakari endanum. Flutningur þessara verka er mikið fyrirtæki sem mikils krefst af öllum hlutaðeigandi enda þótt Langholtskirkjukórinn og Jón Tóiúist Finnur Torfi Stefánsson Stefánsson séu farin að sjóast í verkefnum af þessu tagi. Flutningurinn tókst að mestu leyti með ágætum. Kórinn kom mjög vel út og einsöngvarar og hljóm- sveit komust yfirleitt vel frá sínu. Harpa Harðardóttir og Þóra Einarsdóttir sungu mjög fallega og hljómuðu best af einsöngvurunum. Þá var óbóleikur Daða Kol- beinssonar mjög góöur. Tónleikarnir voru prýðilega sóttir og undirtektir áheyrenda góðar. Andlát Valborg Bentsdóttir, Ljósheimum 16b, lést á heimili sínu 2. nóvember. Sigurlaug Svanlaugsdóttir andaðist að morgni 31. október. Pétur Andrésson, Miðleiti 5, andaðist 31. október. Friðrikka Kristín Benónýsdóttir, Hvassaleiti 24, lést í Borgarspítalan- um þann 31. október. Óskar Long Jónsson frá Arnarstöð- um, Núpssveit, N-Þingeyjarsýslu, lést að morgni 31. október. Sigurgeir E. Ágústsson, Lyngholti 16, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkra- húsi Akureyrar þann 29. október. Jarðarfarir Björgvin Finnsson læknir verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 5. nóvember kl. 13.30. Karl Hans Björnsson, Engihjalla 19, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag, mánudaginn 4. nóvember, kl. 15.00. Unnur Tryggvadóttir verður jarðsett frá Kópavogskirkju í dag, mánudag- inn 4. nóvember, kl. 13.30. Salvör Jónsdóttir, áður Hvoli Ölfusi, Skúlaskeiði 36, Hafnarfiröi, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 5. nóvemb- er kl. 15.00. Minningarathöfn um Ara Kr. Gunn- arsson, sem lést af slysforum 9. okt- óber sl„ fer fram frá Akureyrar- kirkju þriðjudaginn 5. nóvember kl. 14.00. Námskeið Sálfræði kvenna - nýtt námskeið Sálfræðistöðin ætlar nú í fyrsta sinn hér á landi að halda sérstakt námskeið í sál- arfræði fyrir konur. Markmið nám- skeiðsins er að gefa innsýn í hvemig sál- arlíf kvenna er sérstakt og hvemig þær skynja sjálfar sig út frá fyrri reynslu. Slík þekking getur auöveldað hverri konu að byggja upp innri styrk bæði sem einstaklingur og í samstarfi við aðra. Námskeiöiö fjallar sérstaklega um sam- starf og samskipti á milli kvenna á vinnu- stað. Leiðbeinendur verða sálfræðing- amir Álfheiöur Steinþórsdóttir og Guð- finna Eydal. Ættfræðinámskeið með nýju sniði Ættfræðiþjónustan verður meö nám- skeið fyrir almenning í ættfræði á næstu sjö vikum. Þar er veitt fræðsla og þjálfun í ættarleit og úrvinnslu ættfræðiupplýs- inga og að þessu sinni veröur bætt viö sérstakri tilsögn í tölvuvinnslu á ættar- tölum og niðjatölum. Á það bæði við um sjö vikna grunnnámskeið og fimm vikna framhaldsnámskeið fyrir rannsóknar- hópa. Á grunnnámskeiðunum verða byrjendur fræddir um heimildir í ís- lenskri ættfræði, leiðbeint um fljótvirkar, ömggar leitaraðferðir og gerð ættartölu og niðjatals. Þátttakendur fá svo leiðsögn og aðstöðu til að rekja sjálfir eigin ættir og frændgarð með afnotum af víðtæku gagnasafni, meðai annars kirkjubókum um land allt, manntölum, ættartöluhand- ritum og útgefnum bókum. Námskeiðin heQast eftir mánaðarmótin en leiðbein- andi er Jón Baldur Jensson. Innritun er hafin hjá Ættfræðiþjónustunni, Sólvalla- götu 32a, í síma 27101. Fundir Kvenfélagið Fjallkonurnar Fundur verður þriöjudaginn 5. nóvember kl. 20.30 í safnaðarheimili Fella- og Hóla- kirkju. Snyrtivörukynning, slæðuhnýt- ingar, saumakona kynnir vetrartískuna. Kaffiveitingar. JC Garðar, Garðabæ heldur kynningarfund í Café Garði í kvöld, 4. nóvember, kl. 20.30. Allir vel- komnir. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur fund mánudaginn 4. nóvember kl. 20.30i í félagsheimili Dómkirkjunnar. Rætt veröur um basarinn. Kaffiveitingar. ITC-deildin Ýr Fundur í kvöld kl. 20.30 að Síðumúla 17. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar hjá Elsu í síma 71507 og Kristínu í síma 34159. Tilkynningar Félag eldri borgara Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17, bridge og frjáls spilamennska. Námskeið í kín- verskri leikfimi í Risinu. Upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma 28812. Jólakort Amnesty jnternational íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International er nú að hefja sölu á jólakortum ársins 1991. Að þessu sinni er á jólakortinu mynd eftir Karl Kvaran (1924-1989) sem listamaðurinn nefndi „Fljótt, fljótt...“ og er hún frá árinu 1981. Hægt er að fá jólakortin meö jólakveðju á íslensku eða ensku og einnig án kveðju. Tekiö er á móti pöntunum í síma skrifstofunnar alla virka daga milli kl. 13-18. Kortin kosta 80 kr. stykkiö, umslög innifalin. Jólakort kvenfélagsins Hringsins Út eru komin árleg jólakórt kvénfélags- ins Hringsins. Kortin eru hönnuð af Guðnýju Haröardóttur og prentuð 1 prentsmiðju Odda. Kortin eru í tveimur litrnn, blá og rauö. Aðallega selja Hrings- konur kortin sjáífar en einnig eru þau til sölu á ýmsum stöðum í bænum, bóka-, blóma- og stórmörkuðum. Þau kosta beint frá félaginu 600 kr., 10 stk. í pakka. Allur ágóði af kortasölunni fer til styrkt- ar Bamaspítala Hringsins. Hljómplatan Hönd í hönd seld á höfuðborgarsvæðinu Hljómplatan Hönd í hönd - uppáhaldslög- in hans pabba, sem gefrn var út til styrkt- ar Slysavarnafélagi íslands, verður seld á höfuðborgarsvæðinu í dag. Platan er gefm út af sjö systkinum frá Bolungarvík til minningar um fóður þeirra, Vagn t Faðirokkar, tengdafaðir, afioglangafi Björgvin Finnsson læknir verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 5. nóvember kl. 13.30. Anna Fríða Björgvinsdóttir Ólafur Björgvinsson Emmi Krámmer Finnur Björgvinsson Anna Jóhanna Alfreðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Myndgáta Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn. Lausngátunr. 171: Viðkvæmt mál Margeir Hrólfsson, og mág, Gunnar Öm Svavarsson, en þeir fómst í sjóslysi á ísafjarðardjúpi 18. desember sl. Fram til þessa hefur platan skilaö u.þ.b. 14 millj- ónum til handa slysavarnafélögum og mun helmingurinn, eða 7 milljónir, hafa farið til björgunarsveitanna umhverfis landið. Þeim peningum veröur variö til að betmmbæta aðstæður til björgunar- mála eftir allri strandlengju íslands. Hin- um helmingnum, þ.e. 7 milljónum, hefur verið komið fyrir í sjóði sem mun verða ráðstafað úr í hin ýmsu verkefni. Nú þegar hefur verið veitt úr sjóönum 1 milljón króna til styrktar slysavarnaá- takinu „Vöm fyrir börn“. Á hljómplöt- unni er að fmna sjómannalög, slagara, létt rokk og margt fleira. Þess má að lok- um geta að sölu plötunnar Hönd í hönd telst lokið frá og með þessu átaki og er því síðasti sjens að næla í eintak nú um helgina. Sveinspróf í kjólasaum og klæðskurði Sl. vor luku átta stúlkur sveinsprófi í kjólasaum og klæðskurði frá Iðnskólan- um í Reykjavík. Að því tilefni bauð félag meistara og sveina í fataiðn (F.M.S.F) þeim til hófs í sal Landssambands iönað- armanna aö Hallveigarstíg þar sem af- hent voru sveinsbréfin. Þær sem luku prófi að þessu sinni voru: Ásdís Lúðvíks- dóttir, Ásta Vilhjálmsdóttir, Helga Guð- mundsdóttir, Hulda Guðrún Pálsdóttir, Lára Elísdóttir, Þórdís Thorlacius og Jóna Sveinsdóttir. Á myndina vantar Sig- ríði Sigurjónsdóttur. Tombóla Nýlega héldu þessir krakkar tombólu til styrktar Hjálparsjóði Rauða kross ís- lands. Alls söfnuðu þau 1.994 krónum. Krakkarnir heita Fjóla Björk Karlsdóttir, Bryndís Sigurðardóttir, Samúel Kristj- ánsson, Ólafur Fannar Ólafsson og Jó- hanna Ásgerður Einarsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.