Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Page 35
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991. 47 Fergie telur ráðlegast að farga ástarbréfunum frá eiginmannin- um. Ástarbréfin eyðilögð Fergie, hertogaynjan af York og eiginkona Andrews Breta- prins, ljóstraði því upp í sjón- varpsviðtali fyrir nokkru að hún tæki alltaf tætara með sér í ferða- lög til þess að eyðileggja ástar- bréfin sem Andrew skrifar henni. Hún sagði að hún væri t.d. búin að eyðileggja öll bréfin sem hann skrifaði henni þegar hann var á sjó. Hún geymdi þau um tíma í bankahólfi en óttaðist svo að bankinn yrði rændur og eyðilagði þau. Fergie er líka hætt að halda dagbók af ótta við að hún kæmist í rangar hendur og yrði e.t.v. birt. Sutherland í ástarsorg Leikarinn Kiefer Sutherland hefur nú loks fengist til að opna munninn og tala um ástarsorg sína vegna Júl- íu Roberts. Júlía og Kiefer höfðu verið saman í næstum tvö ár þegar hún bað um- boðsmann sinn um að segja honum að hún vildi slíta trúlofuninni, ein- ungis þremur dögum fyrir brúð- kaupið. Kiefer segir að það hafi verið mjög svo sorglegur endir á sambandi þeirra. Hann segist þó ekki vera al- saklaus í þessu máli frekar en öðrum og viðurkennir að hann geti verið mjög óraunhæfur og missi oft stjórn á skapi sínu. Hann hins vegar harðneitar því að hann hafi ætlað að merkja sér Júlíu eins og margir halda fram með þvi að þvinga hana til þess að láta setja á sig tattó. Hann segist að vísu hafa farið með henni á staðinn, og að það hafi verið yndisleg og rómantísk stund, en þvertekur fyrir að hann hafi neytt Kiefer á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, hann saknar Júliu Roberts óskaplega. hana til eins eða neins. Það fylgir hins vegar ekki sögunni hvernig tattóið er. Barbara Bush á ferð? Halloween, eða hrekkjavakan, stendur nú yfir i henni Ameríku og þeir eru ófáir sem lagt hafa nótt við dag til þess að búa til skemmtilega og frum- lega búninga. Þessi ungi herramaður er hér í gervi forsetafrúarinnar, Bar- böru Bush, og hefur tvo öryggisverði sér til halds og trausts er hann stígur út úr eðalvagninum. Þeir voru kátir þessir enda um það bil að sameinast myndarlegri og lit- ríkri skrúðgöngu i New York. Sviðsljós Frægðin er hvimleið Madonna gerir nú örvænting- arfullar tilraunir til að selja íbúð sína í New York. Hún frétti nefni- lega af því að Don Johnson og eiginkona hans, Melanie Griffith, væru að kaupa sér íbúð í sama húsi. Eins og það séu ekki nógu margir aðdáendur og ferðamenn hangandi fyrir utan nú þegar... Douglas komst ífeitt Breskt dagblað greinir frá því að Michael Douglas hafi tekið ástaratriðin í myndinni Basic Instinct vægast sagt mjög alvar- lega. Þar leikur hann á móti fyrrum opnustúlku Playboy-timaritsins, Sharon Stone, og sum atriðin æfðu þau í allt aö tólf tíma á dag i heila viku! Sjálf segist Sharon ekki hafa haft neitt á móti því og leggur áherslu á að Michael hafi mikinn metnaö i starfi. Lái honum hver sem vill! Imelda heldur skó- uppboð Imelda Marcos, eiginkona Ferdinands Marcos, fyrrum for- setaFilippseyja, hefur nú ákveðið að selja íúð fræga skósafn sitt á uppboði til styrktar fórnarlömb- um Pinatubo eldgossins. Núverandi forseti landsins, Corazon Aquino, segist ekkert hafa við þetta að athuga, en eins og allir vita eru þær ekki beint bestu vinkonur. Þegar Imelda og Ferdinand flúðu í útlegð árið 1986 varð hún að skilja skósafnið sitt eftir, en frúin átti yfir 1200 pör af skóm. Síðan þá hafa skórnir verið til sýnis í Malacanang forsetahöll- inni en hún á nú rétt á aö fá þá aftur. Fréttir Strætisvagnasamgöngur á höfuðborgarsvæðinu: Bæjarfélögin greiði helming rekstursins „Tíðni strætisvagnaferðanna mun fara eftir þéttleika byggðar- innar á hverjum stað. Það er stefnt að því að það verði samvinna við Reykjavíkurborg um fargjöld. Þaö kemur til greina að það verði sama fargjald fyrir þá sem búa í Reykja- vík og í nágrannabyggðarlögunum. Við munum sjá til þess að fólk geti notaö þjónustu beggja fyrirtækj- anna með auöveldum hætti. Reikn- að með því að bæjarfélögin greiði reksturkostnaöinn niður um helm- ing og fargjöld standi undir hinum helmingnum," segir Örn Karlsson, framkvæmdastjóri Almennings- vagna hf„ sem er er byggðasamlag sex byggðarlaga: Hafnarfjarðar- bæjar, Garðabæjar, Bessastaða- hrepps, Kópavogskaupstaðar, Mos- fellsbæjar og Kjalarneshrepps. Fyrir skemmstu var ákveðið að taka tilboðum Hagvirkis-Kletts og AUrahanda í fólksflutninga á höf- uðborgarsvæðinu. Tilboð Hagvirkis-Kletts hljóðaði upp á 216 milljónir króna og mun fyrirtækið annast innanbæjarakst- ur í Hafnarfirði, Kópavogi, Garöabæ og Bessastaðahreppi og hraðleiðir milli þessara sveitarfé- laga og Reykjavíkur. Allrahanda bauð í innanbæjar- akstur í Mosfellsbæ og leiðina milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur og hljóðaði tilboðið upp á 38 milljónir króna. Hagvirki-Klettur mun kaupa 18 til 20 nýja Volvovagna til að nota til akstursins en Allrahanda mun ætla að fjárfesta í einum nýjum vagni auk þess sem komið hefur til tals að fyrirtækið kaupi 3-4 gamla vagna af Kópavogsbæ. „Við reiknum með að fyrirtækin fari að keyra á næsta ári. Sérleyfi á þessum akstursleiðum falla úr gildi 1. mars næstkomandi, ef við veröum tilbúnir forum við aö stað þá. Þau fyrirtæki, sem við höfum tekið tilboðum frá, hyggjast bæði nota nýja vagna og þá er hugsan- legt að það verði einhver dráttur á að akstur hefjist þar sem af- greiðslufrestur vagnanna er lengri en fjórir mánuðir," segir Öm. -J.Mar BINGO! Hefst k!. 19.30 í kvöld Aðalvinninqur að verðmæti __________100 bús. kr.________ Heildarverðmæti vinninqa um 300 bús. kr. TEMPLARAHÖLUN Eiríksgötu 5 — S. 20010 fhgefiwtc MARGFELDi 145 PÖNTUNARSÍMI ■ 653900 Veður Fram eftir morgni verður norðankaldi, siðan gola með éljum norðan- og norðaustanlands en bjartviðri fyrir sunnan. Síðdegis og i kvöld verður vestangola eða hæg breytileg átt og skýjað með köflum vestan- lands en norðanlands styttir upp og léttir heldur til. Hiti verður nálægt frostmarki fram eftir degi en fer síðan hækkandi vestanlands. Akureyri snjókoma -2 Keflavíkurflugvöllur hálfskýjað 0 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 0 Raufarhöfn snjóél -1 Reykjavik léttskýjað -1 Bergen rigning 5 Helsinki þokumóða 6 Kaupmannahöfn skýjaö 6 Úsló skýjað 4 Stokkhólmur léttskýjað 5 Þórshöfn rigning 5 Amsterdam skýjað 5 Barcelona skýjað 16 Berlín rigning 8 Chicago snjóél 7 Feneyjar þokumóða 7 Frankfurt rigning 7 Glasgow skýjað 6 Hamborg léttskýjað 5 London skýjað 5 LosAngeles heiðskírt 16 Lúxemborg skýjað 6 Madríd léttskýjað 15 Malaga alskýjað 13 MaUorca hálfskýjað 19 New York léttskýjað 7 Nuuk haglél 1 Orlando alskýjað 16 Paris léttskýjað 6 Róm skýjað 16 Valencia skýjað 20 Vin þokumóða 7 Gengið Gengisskráning nr. 210. - 4. nóv. 1991 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 58,630 58,790 60,450 Pund 103,579 103,861 103,007 Kan. dollar 52,369 52,512 53,712 Dönsk kr. 9,1933 9,2183 9,1432 Norsk kr. 9,0913 9,1161 9,0345 Sænsk kr. 9,7717 9,7983 9,7171 Fi. mark 14,6520 14,6920 14,5750 Fra. franki 10,4189 10,4474 10,3741 Belg. franki 1,7296 1,7343 1,7196 Sviss. franki 40,4680 40,5784 40,4361 Holl. gyllini 31,6141 31,7004 31,4181 Þýskt mark 35,6240 35.7212 35,3923 ít. líra 0,04750 0,04763 0,04738 Aust. sch. 5,0624 5,0762 5,0310 Port. escudo 0,4143 0,4154 0,4120 Spá. peseti 0,5657 0,5672 0.5626 Jap. yen 0,45229 0,45352 0,45721 Irskt pund 95,215 95,475 94,650 SDR 80,8027 81,0232 81,8124 ECU 72,8742 73,0730 72,5007 Símsvari vegna gengisskráningar 623270.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.