Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991. 5 Fréttir Dagsbrún boöar félagsfund og blæs til sóknar: Ekkert miðar í sérkjaraviðræðum - léitum eftir verkfallsheimild 1 dag, segir Guðmundur J. Guðmundsson „Þetta er félagsfundur haldinn á alvörustundu. Við höfum verið með sérkjaraviðræður fyrir Dagsbrún í gangi að undanfómu og það hefur nákvæmlega ekkert hreyfst. Þess vegna er fundurinn boðaður í dag. Við munum þar leita eftir verkfalls- heimild til handa stjórn félagsins og við erum í raun að leita eftir harðri afstöðu félagsmanna,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, í samtali við DV. Guðmundur var spurður hvort búast mætti við verkfallsboðun ef verkfallsheimild fengist á fundinum: „Menn leika sér nú ef til vill ekki að því að fara í verkfall í desember. Desemberverkfall er desemberverk- fall, það muna þeir sem tóku þátt í einu slíku 1953. Það er hins vegar gott að hafa verkfallsheimildina því að það getur þurft að grípa til hennar á ákveðnu augnabliki," sagði Guð- mundur J. í dag er boðaður félagsfundur hjá Dagsbrún. Þar verður staðan í kjara- samningunum rædd og óskað veröur eftir verkfallsheimild. Guðmundur J. sagði að vissulega væri þungt fyrir fæti varðandi aðal- kjarasamninga. Dagsbrún hefði að- eins verið í sérkjaraviðræðum og þar hefði ekkert miðað. Hann sagðist gera sér grein fyrir því að hjá mörg- um fyrirtækjum væri starfsemin að hrynja og ef ekkert væri að gert stefndi í fjöldaatvinnuleysi hér á landi í vetur. Verkalýöshreyfmgin stæði því frammi fyrir mjög miklum erfiðleikum hvað varðaði gerð að- alkjarasamninga. -S.dór Samþykkt Heilbrigðisnefndar Kjósarsvæöis: Sorpa fái að urða óbaggað Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis hefur samþykkt aö mæla með því að Sorpa fái tímabundið leyfi til að urða óbaggað sorp í Álfsnesi. Ekki er þó ákveðið hvort eða hvenær urðun af því tagi hefst því fyrst þarf hrepps- nefnd Kjalarneshrepps að leggja blessun sína yfir leyfið. Að sögn Halldórs Runólfssonar, heilbrigðisfulltrúa Kjósarsvæðis, er samþykkt nefndarinnar á þann veg að margoft hafi komið fram á fund- um með forystumönnum urðunar í Álfsnesi að þar eigi einungis að urða baggað sorp. Hins vegar gerði nefnd- in sér ljóst að mikið vökvainnihald sorps breytti nokkru þeim áætlunum sem gerðar hafi verið um urðunar- svæðið í Álfsnesi. Þess vegna leggi nefndin til við hreppsnefnd Kjalar- neshrepps að Sorpu verði veitt leyfi til urðunar á óbögguðu sorpi. Leyfið verði veitt til bráðabirgða til eins árs. Innan þass tíma verði þaö endur- skoðað, meðal annars með tilliti til mæhnga sem þá skulu hafa farið fram á svæðinu. Halldór sagði að leyfið væri veitt með þeim skilyrðum að haft yrði náið samráð við heilbrigðisfulltrúa um fyrirkomulag á urðuninni. Þær tegundir sorps sem urðaðar yrðu þarna væru aðallega úrgangur hús- dýra, ósöluhæf matvæli, dýrahræ, sag, það sem félh th við niðuirif húsa ogfleiraíþeimdúr. -JSS UMBUÐAPAPPIR GJAFAPAPPIR í 20 cm — 40 cm — 57 cm rúllum fyrirliggjandi A L M A N O K 1992 Borð — Vegg KRAFTPAPPÍR í 100 cm rúllum Félagsprentsmiðjan hf. SPÍTALASTÍG 10. SÍMI 11640. FAX 2952^ Anilínprent hf. HOFI, SELTJARNARNESI, SÍMI 611976 1 NÚ ER VETUR GENGINN í GARÐ! STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUN Á ÖLLUM OKKAR JEPPUM FRAM TIL MÁNAÐAMÓTA Greiðslukjör við allra hæfi eða góður staðgreiðsluafsláttur. 92 Að sjálfsögðu eru allir bílarnir skoðaðir. Raðgreiðslur eða allt að 75% lánað til 2ja ára, óverðtryggt. SS*©'; ÁV- ■ Við erum með opið frá kl. 9-18 mánudaga til föstudaga og frá kl. 10-14 laugardaga. 1 JÖFUR HF Nýbýlavegi 2, sími 42600 Skeljabrekku 4, 200Kópavogi, Símar (91)642610 og (91) 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.