Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÚLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SÍMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ' PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Framkvæmdasjóður Framkvæmdasjóður hefur verið fremst í sjóðasukk- inu. Opinberir „gjafasjóðir“ af því tagi hafa leitt illt af sér. Ekki er nóg með, að milljörðum hafi verið sólundað af almannafé, heldur hafa gjafir úr slíkum sjóði lengt dauðastríð vonlausra fyrirtækja. Uppgjör, sem nú fer fram um Framkvæmdasjóð, sýnir, að þar hafa farið í vaskinn íjármunir, sem hefðu getað skipt miklu fyrir atvinnulífið, fyrirtæki 1 arðbærum rekstri, hefðu slík fyrirtæki getað fengið þá íjármuni að láni. Þess í stað hefur fénu verið eytt í fiskeldi og Álafoss. Nú leggur ríkisstjórnin til, að Framkvæmdasjóður verði lagður niður. Vonandi verður þessi reynsla til þess, að horfið verði frá þeirri stefnu, sem sjóðurinn hefur verið dæmi um. Stjórnmálamenn í ýmsum flokkum hafa að sjálfsögðu verið með fmgurna í úthlutunum Framkvæmdasjóðs. Þetta gildir til dæmis bæði um Steingrím Hermannsson og Þorstein Pálsson. Svokölluð fortíðarvandanefnd rík- isstjórnarinnar bendir í skýrslu á bréf Steingríms, í tíð hans sem forsætisráðherra, þar sem hann mæltist til þess, að Álafoss hf. fengi „fyrirgreiðslu“. Stjórn sjóðsins taldi sjóðinn ekki ráða við þá fyrirgreiðslu, en þó var hún samþykkt. Þetta er vafalaust aðeins eitt dæmi af mörgum um, hvernig stjórnendur Framkvæmdasjóðs létu undan pólitískum þrýstingi. Þorsteinn Pálsson hafði afskipti af málefnum sjóðsins, þegar hann óskaði eftir hundruðum milljóna til fiskeldis. Fortíðarvandanefnd segir nú um stjórn sjóðsins: „Að mati nefndarinnar bar sjórninni naumast skylda til að fara að „eindregnum tilmælum“ stjórnvalda í þeim til- fellum, sem þau fólu í sér, að hagsmuna sjóðsins sjálfs var ekki gætt sem skyldi“. Nefndin telur, að „afskipti stjórnvalda af útlánum Framkvæmdasjóðs hafi orðið til þess, að afkoma hans varð verri en ella hefði orðið“. Nefndin bendir á, að það sé hlutverk stjórnvalda að hafa eftirlit með því, að sjóð- ir og stofnanir hins opinbera starfi í samræmi við hlut- verk þeirra. Þetta hafi farið forgörðum. Þetta er í rauninni tiltölulega vægt orðalag um Fram- kvæmdasjóð, með tilliti til þess, sem gerzt hefur, en að baki þessum ummælum öllum liggur ferill sjóðasukks og spillingar. Afkoma sjóðsins sýnir, hvað gerðist. Eigið fé sjóðsins rýrnaði um 2,7 milljarða króna síðan í byrjun árs 1986. Eigið fé Framkvæmdasjóðs er nú „neikvætt“ sem nemur 1,3 milljörðum króna, sem munu falla á skattgreiðendur í landinu. Fyrirsjáanlegt er, að árin 1993-97 verði greiðsluhalli sjóðsins um 4 milljarðar króna. í ljósi þessa er fagnáðarefni, að stefnt er að því að leggja sjóðinn niður. Ríkisstjórnin hefur lagt frumvarp þess efnis fyrir þingflokka stjórnarliðsins í samræmi við tillögur fyrrgreindrar nefndar. Skipa skal yfirtöku- nefnd með fulltrúum frá forsætisráðuneytinu, íjármála- ráðuneytinu og Ríkisendurskoðun, og taki hún við eign- um og skuldum sjóðsins. Sjóðurinn verður þá aflagður sem slíkur og gerður að deild við Lánasýslu ríkisins. Einhverjir landsfeðra okkar munu vonandi hér eftir forðast að leggja að nýju inn á shka braut. Sporin hljóta að hræða, Skattgreiðendur munu á næstu árum borga brúsann. Þeir munu fá reikningana fyrir þetta sukk með öðrum reikningum sínum, meðan stjórnmálamennirnir bera sakir hver á annan. Haukur Helgason ,Greinilega eru skiptar skoðanir um til hvers biðleikur Atlantal-hópsins muni leiða, Endurmat eftir álstrandið Atlantal-hópurinn ákvað á fundi í Kaupmannahöfn 8. nóvember sl. að slá á frest um óákveðinn tíma ákvörðun um fjárfestingu í ál- bræðslu á Keilisnesi. Iðnaðarráð- herra fékk leyfi til aö koma þessum skilaboðum á framfæri og það gerði hann á sinn hátt á blaðamanna- fundi þremur dögum síðar. Viðbrögð fjölmiðla, stjórnmála- manna og almennings við þessum tíðindum hafa verið ólík eftir því frá hvaða sjónarhóli menn hafa lit- ið á málið til þessa. Áfall er algeng- asta upphrópunin en aðrir lýsa yfir fognuði með niðurstöðuna. Aðeiga alltundir útlendingum Staðan í álmáhnu minnir okkur óþyrmilega á hversu illt það er þeg- ar menn eiga úrslit í stórmálum algjörlega undir fjarlægum og framandi hagsmunum. Sá sem þetta ritar hefur lengi haldið því fram að rangt sé að haga hér at- vinnuuppbyggingu þannig að út- lendir hagsmunir séu þar allsráð- andi. Deilur um þetta hafa einkum tengst fjárfestingum í orkufrekum iðnaði þar sem spurningin hefur m.a. staðið um það hvort Islending- ar ættu aðeins að framleiða og selja orku en treysta alfarið á útlendinga um sjálfan iðnaðarþáttinn, þ.e. eignarhald á verksmiðjunum. Eftir þessari forskrift var farið þegar samið var við Alusuisse um álbræðsluna í Straumsvík og henni hefur verið fylgt frá 1983 í tilraun- um íslenskra stjómvalda til að fá erlend auðfélög til að fjárfesta hér á landi í orkufrekum iðnaði. Þetta hefur stundum verið kallað orku- sölustefna til aðgreiningar frá orkunýtingarstefnu undir forræði íslendinga. Rökin fyrir orkusölustefnunni hafa einkum verið þau að alltof mikil áhætta sé því samfara fyrir íslendinga að gerast eignaraöilar í stóriðjufyrirtækjum og við séum hvort eð er áhrifalausir um mark- aðsfærslu afurðanna sem sé háð einokun fárra stórra aðila. Þaö vill gleymast í umræðunni að fyrirtæki í orkufrekum iðnaði eru misjöfn að eðh og umfangi og að áhætta er ekki síður tengd orkusölunni og hagnaðarvonin þar að jafnaði langtum minni en í sjálfum iðn- rekstrinum. Niðurstaðan af stóriðjustefnu Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks um átta ára skeið birtist okkur í því að hætt var við að reisa kísilmálm- verksmiðju á Reyðarflrði, ráðgerð stækkun álbræðslu í Straumsvík varð aö engu og draumurinn um álbræðslu á Keilisnesi hefur nú breyst í martröð. 011 hefur þessi viðleitni kostað Kjallaririn Hjörleifur Guttormsson alþingismaður mikla íjármuni og fyrirhöfn og það lakasta er að önnur atvinnupp- bygging hefur fallið í skuggann í nærfellt heilan áratug. Til góðs eða ills? Greinilega eru skiptar skoðanir um til hvers biðleikur Atlantal- hópsins muni leiða. Það er ekki síst undir því komið með hvaða hætti íslensk stjórnvöld bregðast við honum. Halda menn áfram að gæla viö að þessi verksmiðja verði að veruleika eða snúa menn sér fyrir alvöru að öðrum og vænlegri verk- efnum? í því sambandi er rétt að hafa eftirfarandi í huga: * Raforkusamningurinn við Atl- antal felur í sér gífurlega áhættu fyrir Landsvirkjun og aðra viö- skiptavini hennar, miklu meiri en skynsamlegt er að taka. * Staðsetning verksmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu væri byggðapólitískt stórslys á sama tíma og þrengir að í sjávarútvegi og ekkert er gert til að hlúa aö atvinnurekstri úti um land. * Starfsleyfi fyrir álbræðsluna, sem umhverfisráðherra hefur lagt drög að og auglýst, er með shkum endemum að gera verður kröfu um endurskoðun þess frá grunni verði verksmiðjan áfram á dagskrá. * Með ráðgerðum framkvæmdum við verksmiðjuna og í virkjunum sem henni áttu að tengjast var búið að fylla upp í svigrúm til fjárfestinga og binda hér hag- stærðir í efnahagsmálum til margra ára. Vissulega er búið að verja miklum íjármunum til undirbúnings þessa máls, langtum meira en skynsam- legt gat talist á meðan allt var í óvissu um ákvarðanir. Hitt var þó sýnu verra að ætla að ráðast í fram- kvæmdir á þeim veika grunni sem fyrir liggur eftir fiögurra ára samn- ingaviðræður. Notum tækifærið til endurmats Það ráörúm sem frestun ákvarð- ana af hálfu Atlantal gefur ætti að nota til að endurmeta stöðuna varðandi atvinnuþróun í landinu, að orkufrekum iðnaði meðtöldum. Menn hafa ærin víti til að varast frá liðnum áratug, auk erlendu stóriðjudraumanna, m.a. offiár- festingu í fiskeldi og loðdýrarækt. Endurmatið á ekki að snúast um að afskrifa einstakar greinar þótt erfiðlega hafi gengið í þeim fram tíl þessa, ekki heldur virkjun fall- vatna og nýtingu orkunnar í iðnaöi hérlendis. Miklu fremur þurfum við að læra af mistökunum og leit- ast við að skapa hér grundvöh til fiölþættrar atvinnuþróunar sem víðast á landinu að teknu tilliti til verndunar umhverfisins. Ein af forsendunum fyrir farsælh atvinnuþróun er að hlúa sem best að menntun í landinu, ekki aöeins hefðbundinni skólagöngu heldur og endurmenntun og símenntun fólks í atvinnulífinu að stjórnend- um meðtöldum. Annar þáttur teng- ist rannsókna- og þróunarstarfi sem hér hefur verið haldið í svelti með hörmulegum afleiðingum, þar sem iðulega hefur verið byijað á öfugum enda í uppbyggingu heilla atvinnugreina. Smáþjóð eins og ís- lendingar þarf líka að gæta þess að láta útlendinga ekki taka af sér ráðin eins og álmáhð er lýsandi dæmi um og verða mun í langtum ríkara mæh ef við gerumst aðhar að Evrópsku efnahagssvæði. Hjörleifur Guttormsson „Niðurstaðan af stóriðjustefnu Sjálf- stæðis- og Alþýðuflokks um átta ára skeið birtist okkur 1 því að hætt var við að reisa kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, ráðgerð stækkun ál- bræðslu 1 Straumsvík varð að engu og draumurinn um álbræðslu á Keilisnesi hefur nú breyst í martröð.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.