Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991. 7 i>v Sandkom Ekkert fjör Hjalti„Orsus“ Aniason lyil- ingatröll og : meðreiðar- svcinarhans ern komnir heimlrá heimsmeist- arantótinu i kraftiyftingum íSvíþjóðmeö tvö gull og eitt brons í farteskinu. Enn lá loið Jóns Baldvins utanrikisráö- herra til Leifsstöðvar til ræðuhalda en nú var Davíð ekki með í lör. Þótti endamörgum móttökuathöfnin hálf„litlaus“ þrátt fyrir ágæt tilþrif Jóns Baldvins. Þar mætti einnig Reynir Karlsson, iþróttafulltrúi rik- isins, fyrir hönd Ólafs G. Einarssonar „íþróttamálaráðherra“. Kom þaö ýmsum á óvart, því kraftlyftinga- menn hafa ekki viljað vera innan vébanda í þróttasambands í slands. Buna eftir l'aöaö kraíf- lyftingamenn iTiukkiinnan yébanda íþróttasam- bands íslands márekjatil, ■ ágréinings varöamii lyfja- prófsemóþarfi _ eraðfaranán- ar út í hér. Hjalti „Úrsus“ var hins vegar ekki með neitt múður þegar kom aö því að taka hjá honum þvag- sýni eftir heimsmeistaramótið í Svi- þjóð.Enbunan vildi ekki koma átakalaust hjáHjalta sem þá var færður vænn skammtur af bjór. Eins og nærri má geta var Hjalti ekki í vandræðum með að svolgra í sig bjór- inn en enn kom engin buna. Þegar bjórarnir voru hins vegar orðnir 10 talsins bunaði loks úr tröilinu og all- irvoruánægðir. Konfekt á úfsölu Ivireruorðnir nærárvissir, brandararnir umversliuuu- ferðiríslend- inga rétt fyrir ' jólin, enda gengurýmis- legtá.Ekkier nógmeðað sumarstór- verslanir í þeim borgiun sem aðallega er farið til séu farnar að senda bif- reiðar eftir landanum á flugveliina heldur er einnig farið að hafaopið lengur á kvöldin sérstáklega fyrir okkar fólk s vo það geti geti verslað óhindrað í ró og næði, eins og tíðkast hefur að leyfa oliufurstunum frá arabalöndunum. - En að öðru. Kona nokkur að norðan lenti heldur betur í veislu í einni búöinni í Edinborg á dögunum. Hún sáþetta fína konfekt á hlægilegu verði, enda var ura út- sölu að ræða. Hún ákvað þ ví að kaupa svona 15 dósir til að „setja meö" í alla jólapakkana. Síðan var dröslast með þetta heim en þegar þangað kom kom heldur betur babb í bátinn. Konfektið góða og ódýra reyndist nefnilega vera hundakonf- ekt og ættingjamir fara væntanlega í, jólakonfektköttinn"! Flugvélin talsvert þyngri Svoerauövitað verslaðvið heimkomuna líka. Farþegar, scmkomntil - Akureyrará mánudags- kvöldúrdags- ferðtilDublin, keypruvaniing áflugvelhnum þar fyrir 800 þusund krónur. Sumir slepptu alveg fríhafnarversluninni þar eða versluðumjög Mtið en þeir sem stórtækastir voru versluöufyrir um 20 þúsund krónur og var um aö ræða áfengi, tóbak, ílmvötn, sælgæti og fleira. Þetta bættist því í farangur ferðalanganna sem voru þó með eitt og annaö fyrir i farteskinu. Flugvélin, sem flutti þá, var nefnilega þremur rónnum þyngri á heimleiðinni en þegar hún hélt utan um morguninn. Umsjón; GyHi Kristjánsson • ----------------------------------- 10 bjóra _______________________________________________Fréttir Þrotabú Vátryggingafélagsins hf.: 20 ára gjaldþrotamál loks til lykta leitt „Helstu ástæður þess hversu lang- an tíma tók að ganga frá skiptum í þrotabúi Vátryggingafélagsins hf. voru þær að ég var að bíða eftir að hlutabréf, sem þrotabúið átti veð í en voru lítils virði, hækkuðu í verði. Þau gerðu það lítils háttar með tím- anum. Kröfuhafar fengu því greidd- an höfðustól og mikið upp í vexti en ekki fulla dráttarvexti," segir Unn- steinn Beck lögmaður, sem fyrir um tuttugu árum var skipaður skipta- ráðandi í gjaldþrotamáli Vátrygg- ingafélagsins hf., en máliö hefur nú nýlega verið til lykta leitt. Þegar Vátryggingafélagið var tekið til gjaldþrotaskipta námu samþykkt- ar kröfur í búið 269.505 krónum. Og voru kröfuhafar rúmlega 100 talsins. Þeirra stærstir voru íslensk endur- trygging með 71 þúsund krónur og Samábyrgð á fiskiskipum með 60.600 krónur. Þegar til endanlega skipta kom námu eignir búsins 1.809 þúsund krónum og fékk stærsti kröfuhafinn í sinn hlut 478 þúsund krónur og annar stærsti kröfuhafinn fékk 407 þúsund krónur. Það er mjög óvenjulegt að gjald- þrotamál taki svo langan tíma en kröfuhafar geröu ekki athugasemdir viö gang mála. Ég held að þeir hafi gert ráð fyrir að fá eitthvað greitt ef þeir hefðu biðlund. Gangur málsins var mjög ílókinn. Það var farið út í málafrerli sem tóku mörg ár vegna þess aö beðið var eft- ir sakadómsrannsókn. Svo var málið sent til endurskoðanda en hann lést áður en hann haföi lokið málinu. Það var því ekkert hægt að gera í málinu í mörg ár. Ég beið alltaf eftir endur- skoðun á því til að ganga úr skugga um hvort það væri eitthvað af kröf- um sem væru ekki á rökum reistar og annað því um líkt. Svo voru þaö þessi hlutabréf sem voru lítils virði. Hluti þeirra var í fyrirtæki sem von var til að myndi rétta úr kútnum. Ég var að bíða eftir því að þau hækk- uðu eitthvað sem raunin varð á. Annárs var um litlar eignir að ræða í þrotabúinu," segir Unnsteinn. -J.Mar steyptur grunnur, nokkru stærri en sá sem var í skíðaskálanum fræga sem brann og nú er byrjað að reisa skálann. Efnið er innflutt frá Noregi - allt í sérhönnuðum trjápörtum sem siðan er raðað saman nánast eins og leg- ókubbum. Byggingameistari hússins er Harry Kjartansson. Eigandinn og veitingamaðurinn, Carl Johansen, reiknar með að skíöaskálinn, sem verð- ur mjög svipaður þeim gamla, verði tilbúinn í marsbyrjun. Myndin að ofan var tekin í gær á Hellisheiði þar sem íslendingar og Norðmenn voru að vinna að skálabyggingunni. . , DV-mynd Sigrun Lovisa, Hveragerði KVIK KLÆÐASKAPAR ÓTRÚLEGA ÓDÝRIR I r Gerö 50-hvítur 50 x 210 x 60 sm m/hattahillu, slá fyrir herðatré og höldum. AÐEINS KR. 9.478,- uu b-H/ Gerð ÍOO tvöfaldur, hvítur ÍOO x 210 x 60 sm m/skilrúmi, hattahillu, 3 hillum, slá fyrir herðatré og höldum. AÐEINSKR. 14.760,- föoöfó BÆJARHRAUNI 8 • HAFNARFIRÐI SÍMI651499 Sala Flekkuvíkur stendur þrátt fyrir frestun álvers: Ríkið kaupir jörðina verði ekkert úr álveri „Jörðin var keypt með ríkis- ábyrgð. Ef ekki verður af neinum álversframkvæmdum kaupir ríkið jörðina af okkur. Frestun byggingar álversins hefur nú komið málinu í biðstöðu en það gefur augaleið að við höfum ekki bolmagn til að standa undir jarðarkaupunum svo ríkið verður að leysa hana til sín dragist framkvæmdir verulega," sagði Jó- hanna Reynisdóttir, sveitarstjóri í Vatnsleysustrandarhreppi, við DV. Vatnsleysustrandarhreppur keypti jörðina Flekkuvík á Keilisnesi í sum- ar vegna fyrirhugaðrar byggingar álvers á jörðinni. Jörðin var keypt ásamt þeim eignum sem á henni eru og vegi sem búið var að leggja. Kaup- verðið var 100 milljónir sem skiptust jafnt milii tveggja eigenda, Péturs O. Nikulássonar og Finns Gíslason- ar. í samningi milli ríkisins og Vatns- leysustrandarhrepps segir að ef ekki veröi af álversframkvæmdum leysi ríkið til sín jörðina. Jóhanna gat ekki nefnt ákveðin tímamörk í því sam- bandi. Salan á Flekkuvík stendur þvi þrátt fyrir frestun álversfram- kvæmda. -hlh Rjúpnaveiðin fyrir norðan: Sumir f á fjörutíu rjúpur á einum degi Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri; „Hljóðið í mönnum er auðvitað misjafnt, sumir hafa lítið fengið en aðrir veitt vel eins og gengur og þeir menn telja að það sé yfir höfuð ekki minna um rjúpu en undanfarin ár,“ segir Einar Long hjá Versluninni Eyfjörð á Akureyri sem selur m.a. skotfæri fyrir rjúpnaskyttur. Einar segist hafa heyrt af mönnum sem hafi fengið allt upp í 200 rjúpur á einum degi en það sé undantekn- ingin. Sumir hafa farið til rjúpna án þess aö sjá fugl en aðrir hafa fengið allt upp undir 40 á einum degi. „Nú hefur ijúpan verið að ryðjast niður af hálendinu og þá er þetta helst spurningin um að finna hana, að menn hafi heppnina með sér. Ég held að á sumum svæðum, t.d. í kjarrlendi, sé síst minna um rjúpu en undanfarin ár,“ sagði Einar. Til afhendingar frá og með 2. nóvember Kringlunni 8-12 - Sími 686062 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.