Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Qupperneq 17
16
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991.
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991.
25
Iþróttir
Iþróttir
Frank Bruno rotar Hollendínginn i 1. lotu I gærkvðldi.
Símamynd/Reuter
Bruno rotaði Hollendinginn
Breski hnefaleikakappinn,
Frank Bruno, keppti í fyrsta skipti
í þungavigt hnefaleikanna í gær-
kvöldi eftir að hann tapaði fyrir
Mike Tyson í slag um heimsmeist-
aratitilinn 1989. Bruno kom vel
undirbúinn til leiks og sigraöi hol-
lenskan andstæðing sinn, John
Emmen, í fyrstu lotu. Bruno haíöi
vart svitnað er slakur andstæðing-
ur hans lá á bakinu í hringnum,
rotaður. -SK
Bikarkeppnin í handknattleik:
Guðmundur Hraíhkelsson,
landsliðsmarkvörður 1 handknatt-
leik, bjargaði liði sinu í gærkvöldi
á síðustu stundu er Valur lék gegn
Haukum í Valsheimilinu. Valur
sigraöi naumlega, 27-26, og varöi
Guðmundur vítakast Hauka þegar
aðeins 10 sekundur voru til leiks-
loka.
Valdimar Grímsson og Brynjar
Harðarson skoruðu 6 mörk hvor
fyrir Val en Ingi Rafn Jónsson 5.
Jón Örn Stefánsson skoraði 7 mörk
fyrir Hauka og Petr Bamrauk 5.
Víkingar komust í hann krappan
gegn Breiðabliki í Víkinni í gær-
kvöldi. Víkingur sigraði, 29-24.
Blikar höfðu yfirhöndina lengst af
í fyrri hálfleik en Víkingar í leik-
hléi, 14-13. Sex mörk Víkinga í röð
eftir hlé gerðu síðan útslagið. Karl
Þráinsson gerði 8 mörk fyrir Vík-
ing og Bjarki Sigurðsson 7. Sigur-
björn Narfason skoraði 6 fyrir
UBK.
ÍR vann b-hð KR með 22 mörkum
gegn 37. Leikjum ÍBV og Stjörn-
unnar og Þórs og Fram var frestað
vegna þoku í Reykjavik. í kvenna-
flokki sigraði FH Stjörnuna, 21-17,
og Grótta vann Hauka, 12-16. Leik
Vals og ÍBV var frestað.
-SK/KG/RR/BÓ
Knattspymuúrslit 1 Evrópu í gærkvöldi:
Liverpool er komið í 4. umferð
enska deildabikarsins í knatt-
spymu eftir stóran útisigur, 1-4,
gegn Port Vale í gærkvöldi. Li-
verpool mætir Peterboro á útivelli
í 4. umferö.
í gærkvöldi sigraði Manchester
City lið QPR á útivelli, 1-3, og City
Ieikur í 4. umferð á heimavelli
Middlesboro. Þásigraði Southamp-
ton lið Sheffield Wednesday, 1-0,
og mætir Nottingham Forest á úti-
velli í 4. umferð.
í 2. deild ensku knattspyrnunnar
voru tveir leikir í gærkvöldi. Leic-
ester og Bristol Rovers gerðu jafn-
tefli, 1-1, og Newcastle vann Sout-
hend, 3-2. í skosku úrvalsdeildinni
urðu úrslit þessi: Aberdeen-
Hearts 0-2, Celtic - Motherwell 2-2,
Falkirk - Dunfermline 0-1 og St.
Johnstone-St Mirren 1-0.
• íitölskuknattspymunnigerðu
AC Milan og Genoa jafntefli, 1-1.
Skuhravy skoraði fyrir Genoa á 12.
mín. en Marco van Basten jáfnaöi
úr víti á 87. mín. Áhorfendur 77
þúsund. Milan hefur tveggja stiga
forskot á Juventus á toppnum.
• í Hollandi vann Ajax lið SW
Dordrecht, 1-0, og PSV Eindhoven
og FC Volendam gerðu jafntefli,
1-1.
-SK
NBA-deiIdin í nótt:
Meistarar Chicago Bulls unnu
góöan útisigur á Golden State
Warriors, 108-112, í bandarisku
NBA-deildinni í körfuknattleik í
nótt. Þessi lið era efst í sínum riðl-
um og Chicago hefur nú unniö
flesta leiki í deildinni, 8 af 10.
Miamí Heat, sem var mjög óvænt
í efsta sæti Atlantshafsríðilsins,
tapaöi fyrir Philadelphia 76ers,
114-107, og liöin höfðu þar með
sætaskipti. Úrslitin í nótt urðu ann-
ars þessi:
Atlanta - Sacramento.......116-104
Detroit-Seattle........... 86-91
Dallas - NY Knícks........ 89-92
Boston - Indiana..........116-101
Orlando - Utah Jazz..... 102-107
SA Spurs -Mimiesota.......113-106
Charlotte - Cleveland.....109-108
76ers - Miami Heat........114-107
Phoenix -Denver...........113-97
Golden State - Chicago....108-112
Seattle komst að hlið Golden
State á toppi Kyrrahafsriðilsins
meö góðum útisigri í DetroiL
-VS
Enski landsliðsmaðurinn í knatt-
spyrnu, Gary Lineker, sem leikur
með Tottenham, staðfesti í gær að
hann hefði gert samning við jap-
anska knattspymuliöið Crampus
Eight í Japan og myndi hætta aö
leika með Tottenham eftir yfir-
standandi keppnistímabil.
Áformaö er að stofna atvinnu-
mannadeild í Japan 1993 og fær
Lineker litlar 320 milljónir króna
fyrir samninginn. Lineker, sem er
31 árs, raun letka sína síðustu lands-
leiki fyrir England í úrslitum EM í
Svíþjóð.
• Don Howe var í gærkvöldi ráð-
inn þjálfari hjá enska l. deildar lið-
inu Coventry og tekur við starfmu
af Mick Mills sem látimi var fara frá
félaginu á dögunum.
• Bruno Pasquale, varnarmaður
Torino, var í gær dæmdur í 8 leikja
bann í ítalska boltanum. Hann fékk
rauða spjaldið gegn Juventus um
síðustu helgi. Félagi hans, Roberto
Policano, sem einnig fékk rautt
spjald fékk fjögurra leikja bann.
. -SK
Undankeppni Evrópukeppni landsliða í knattspymu í gærkvöldi:
Birkir hélt liðinu á
floti gegn Frökkum
- Frakkar unnu íslendinga, 3-1, og fara fyrstir með fuilt hús 1 úrslit
Guðmundur Hilmarsson, DV, Paxis:
íslenska landsliðið 1 knattspyrnu var
engin hindran á vegi franska lands-
liðsins í landsleik þjóðanna í París í
gærkvöldi. Frakkar léku mjög vel og
litlu munaði að íslensk knattspyrna
yrði fyrir miklu áfalli. Lokatölurnar,
1-3, voru í sjálfu sér ekki svo slæmar
en verri hefðu þær getað orðiö. Frakkar
voru nær einráðir á vellinum allan leik-
tímann og sóknir þeirra geysilega harð-
ar. Sköpuðu þeir sér fjölmörg færi og
það var aðeins snilldarmarkvarsla
Birkis Kristinssonar sem bjargaði ís-
lenska liðinu frá mjög stóru tapi.
Það var strax ljóst í hvað stefndi.
Frakkar byrjuðu af miklum krafti og
hver sóknin á fætur annarri buldi á
íslensku vörninni. Það var þó ekki fyrr
en á 43. mínútu sem Frakkar komust
yfir með marki frá Simba. Staðan 1-0 í
leikhléi og okkar menn gátu þakkað
fyrir að staöan var ekki enn verri í leik-
hléi. Sigurður Grétarsson fékk eina
umtalsverða tækifæri íslendinga í fyrri
hálfleik. Eftir hornspyrnu nikkaði Pét-
ur Ormslev knettinum inn á markteig-
inn en laus skalli Sigurðar fór yfir
mark Frakka.
Betra í síðari hálfleik
Strax á 8. mínútu síðari hálfleiks komst
Amór Guðjohnsen einn inn fyrir
frönsku vörnina en Bruno Martin varði
skot hans vel. Ekki er gott að segja
hvemig leikurinn hefði þróast ef Arnór
hefði náð að skora. Þó voru Frakkar
með leikinn í hendi sér og brátt fóru
hlutirnir að gerast. Simba átti skalla í
stöng á 13. mínútu síðari hálfleiks og
fjórum mínútum síðar kom annað mark
Frakka. Eric Cantona skoraði það eftir
aukaspyrnu með skalla, óverjandi fyrir
Birki. Og nokkrum mínútum síðar kom
þriöja markið og aftur var Cantona á
ferðinni eftir laglegt samspil Frakka í
vítateig íslendinga. Þegar hér var kom-
ið sögu hafði Eyjólfur Sverrisson komið
inn á fyrir Guðmund Torfason og það
var eins og við manninn mælt. Strax
skapaðist hætta við mark Frakka og
Eyjólfur skoraði glæsilegt mark á 26.
mínútu síðari hálfleiks með nákvæmu
skoti úr utanverðum vítateignum í
stöng og inn. Stuttu síðar var Eyjólfur
nálægt því að skora aftur en Martin
markvörður varði laust skot hans af
markteig.
Yfirburðir Frakka og
glæsilegur árangur
Yfirburðir Frakka voru algerir í leikn-
um og hefðu hæglega getað skorað 6-8
mörk í leiknum. Stórgóð markvarsla
Birkis bjargaði íslenska liðinu alger-
lega. Frakkar léku mjög vel, snöggir og
leiknir með knöttinn, og íslenska hðið
var ofurliði borið. Reyndar er það ekk-
ert grín að leika á heimavelli franska
landsliðsins í dag og þar fer án efa eitt
besta landslið heims um þessar mund-
ir. Frakkar unnu þarna áttunda sigur
sinn í röð í Evrópukeppninni og fóru í
gegnum undankeppnina án þess að tapa
stigi. Ekkert lið hefur áður náð þeim
glæsilega árangri í Evrópukeppni
landsliða.
Ekkerttil að
skammast sín fyrir
Úrslitin, 1-3, eru ekkert til að skamm-
ast sín fyrir og í raun ágæt úrslit þegar
styrkleikamunur liðanna er hafður í
huga. Eins og áður sagði var Birkir yfir-
burðamaður í íslenska liðinu og án efa
er þetta hans besti landsleikur til þessa.
Eyjólfur var hress þegar hann kom inn
á og auðvitað átti hann að hefja leikinn
í gærkvöldi. En þjálfarinn ræður upp-
stillingu liðsins hverju sinni og við því
er ekkert að segja. Varnarleikur ís-
lenska liðsins var slakur ef þáttur Birk-
is er undanskilinn en þó átti Kristján
Jónsson góðan kaíla í upphafi leiksins.
Frakkar voru nær einráðir í íslenska
vítateignum og höföu ótrúlega yfirburöi
í skallaeinvígjum. Þá voru miðjumenn
slakir og töpuðu knettinum oft á slæm-
um svæðum.
Lið íslands: Birkir Kristinsson, Kristj-
án Jónsson, Guðni Bergsson (Sævar
Jónsson, 81. mín.), Pétur Ormslev,
Kristinn R. Jónsson, Þorvaldur Örlygs-
son, Arnór Guðjohnsen, Valur Valsson,
Baldur Bjarnason, Guðmundur Torfa-
son (Eyjólfur Sverrisson, 56. mín), Sig-
urður Grétarsson, Sigurður fékk gult
spjald hjá dómara leiksins, Svíanum
Erik Fredriksson.
Áhorfendur voru 35 þúsund.
Kristján Jónsson hefur betur i baráttu við franskan varnarmann í gær-
kvöldi. Birkir við öliu búinn í markinu. Símamynd Reuter
Skotar áfram
- og Þjóöveijar sluppu fyrir hom
Skotar komast í lokaslaginn um
Evrópumeistaratitilinn í knatt-
spyrnu í Svíþjóð á næsta ári eftir
að Rúmenar náðu aöeins jafntefli
gegn Búlgaríu í gær, 1-1. Rúmenar
voru miklir klaufar gegn Búlgöram
og Hagi misnotaði meðal annars
vítaspyrnu og fiölmörg dauðafæri
Rúmena fóru fiandans til.
• Heimsmeistarar Þjóðverja
þurftu í það minnsta jafntefli gegn
Belgum í gærkvöldi í Brussel til að
tryggja sig í úrslitin. Það tókst og
gott betur og eina mark leiksins
skoraði gamla kempan Rudi Völler
á 15. mínútu. Að vísu er enn fræði-
legur möguleiki á því að heims-
meistaramir komist ekki í úrslita-
keppnina en til þess þurfa heims-
meistararnir að tapa á heimavelli
sínum í lokaleik riðilsins gegn Lúx-
emborg. Þýski varnarjaxlinn Gu-
ido Buchwald sagöi þó eftir leikinn
í gærkvöldi gegn Belgum: „Við er-
um öryggir meö að komast í úr-
slitakeppnina í Svíþjóð.11
Hollendingar eru
ekki öryggir ennþá
• í gærkvöldi léku einnig Portúg-
alir og Grikkir og lauk leiknum
með sigri Portúgal, 1-0. Þar með
ætti að vera ljóst að Hollendingar
sleppa inn í úrslitin en þó verða
þeir að ná jafntefli í leik sínum
gegn Grikkjum í Aþenu þann 4.
desember og líkurnar á að það tak-
isterumiklar. -SK
Stúf ar frá París
Guðmundur HUmaisson, DV, Paris:
&
Það gekk ekki þrautalaust fyrir íslenska landsliðið að komast á keppnissta-
að fyrir landsleikinn gegn Frökkum. Tveir lögregluþjónar á bifhjólum
voru í fylgd með íslenska liðinu og liðkuðu til í umferðinni fyrir langferða-
bíl hðsins. Gríðarleg umferð var á hraðbrautinni sem liggur frá hótelinu
að miðborg Parísar, þar sem leikurinn fór fram, og gekk bifreiðinni hálfbrösulega
að brjóta sér leið í kösinni. Svo fór að lokum að íslenska liðið kom til vallarins
aðeins einum klukkutíma fyrir leik sem verður' að teljast frekar knappur tími fyrir
stórleik í Evrópukeppni.
Leika Skotar á Laugardalsvellinum næsta sumar
Stjórnarmenn hjá KSÍ voru ánægðir þegar þeir fréttu að Skotar hefðu tryggt sér
réttinn í lokakeppni Evrópukeppninnar í Svíþjóð á næsta ári. Ástæðan er sú aö
Skotar hafa gefið íslendingum góðar vopnir um að leika á Laugardalsvelli gegn ís-
landi í júní á næsta ári áður en þeir halda i úrshtakeppnina í Svíþjóð.
Guðni vonast eftir að halda sætinu gegn Sheff. Utd
Guðni Bergsson þurfti að fara af leikvelli þegar 10 mínútur voru eftir í gær. Guðni
fann fyrir meiðslum í nára sem hafa verið að angra hann síðustu dagana. Guðni,
sem er orðinn fastamaður í íiði Tottenham, sagði viö DV eftir leikinn að hann vonað-
ist til að verða orðinn góður fyrir laugardaginn en þá mætir Tottenham Sheffield
United í ensku knattspyrnunni.
Platini og hans menn hylltir í leikslok
Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem landslið í knattspyrnu vinnur riðil í undan-
kleppni Evrópukeppninnar með fullu húsi stiga eins og Frakkar gerðu. Eftir leikinn
í gær voru leikmenn franska liðsins hylltir af áhorfendum og Michel Platini var
klappað lof í lófa fyrir frammistöðuna sem er einkar glæsileg.
Þrír sigrar - tvö jafntefli -fimm ósigrar
Leikur íslenska landsliðsins í gærkvöldi var sá í 10. í röðinni á þessu ári. Árangur-
inn er þessi: Þrír sigrar, 4-1 gegn Möltu, 5-1 gegn Tyrklandi, 2-0 gegn Spáni. Jafn-
teflin eru tvö; 0-0 gegn Dönum og 1-1 gegn Kýpurbúum. Fimm leikir töpuðust; 0-1
gegn Tékkum, Albönum, Wales, og B-liði Englands og 1-3 ósigurinn gegn Frökkum
í gærkvöldi.
Nýtt landsleikjamet á árinu hjá Knattspyrnusambandinu
Nýtt met var sett hjá KSI í gær en þá var leikinn 41. opinberi landsleikurinn á þessu
ári í knattspyrnu. Eru þá taldir með allir leikir unglingalandsliðanna þriggja og
leikir a-landsliðsins.
Verður Eyjólfur með í toppslagnum í Þýskalandi?
Eyjólfur Sverrisson, sem skoraði mark íslands í gærkvöldi, fékk spark í ristina
undir lok leiksins. í samtah við DV eftír leikinn sagði Eyjólfur að þetta hefði verið
minni háttar meiðsli. Hann sagði ennfremur að hann byggist við að halda stöðu
sinni í byijunarliði Stuttgart en liðið mætir Bayer Leverkusen í toppslag þýsku
úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.
Sagt eftir leik:
Guðmundur Hflmarsson, DV, París:
„Það hefur verið góður stígandi
í liði okkar og ég get ekki verið
annað en ánægður með leik
minna manna hér i kvöld. Sér-
staklega fannst mér Eric Cantona
koma sterkur út en hann hefur
oft fengið ómaklega gagnrýni.
Það er of snemmt að spá í úrshta-
keppnina í Svíþjóð á næsta ári
en vissulega stefnum við á að
verða í einu af efstu sætunum í
keppninni," sagði Platini, þjálfari
Frakka.
„Markvörður íslenska Uðsins
bjargaði ykkar liði frá mjög stóru
tapi með frábærri markvörslu."
Birkir Kristinsson
„Ég fann mig mjög vel í þessum
leik. Ég fékk strax nóg að gera í
markinu og það hjálpar mark-
verði að komast í takt við leikinn.
Frakkar hafa frábæru hði á að
skipa en við getum verið þokka-
lega ánægðir með úrshtin eins og
leikurinn spilaðist."
Sigurður Grétarsson
„Frakkar eru með geysilega heil-
steypt og sterkt lið. Það kom mér
á óvart hve grimmir þeir voru
gegn okkur. Éyrri hálfleikurinn
var ekki nógu góður af okkar
hálfu en þetta batnaði mikið í síð-
ari hálfleik. Það sem helst vant-
aði hjá okkur var að boltinn hélst
ekki nægilega vel innan liðsins
og þá hefur baráttan oft verið
mun meiri í íslenska landshðinu.
Ég veðja á Frakka sem næstu
Evrópumeistara."
Kristján Jonsson
„Auðvitað hefur það sitt að segja
að tæpur helmingur leikmanna
íslenska liðsins hefur ekki leikið
alvöruleik í mjög langan tíma.
Hraðinn og snerpan er því minni
og því eðlilegt að mistökin verði
fleiri en ella. Það var erfitt að eiga
við sóknarmenn Frakkanna, þeir
voru hreifanlegir og skiluðu bolt-
anum fljótt og vel frá sér.“
Arnór Guðjohnsen
„Það verður bara að segjast eins
og er að Frakkar voru miklu betri
en við. Okkur gekk illa að ná upp
spili og mér fannst við bakka of
aftarlega á völlinn. Hvað færið
varðar sem ég fékk, þá missti ég
boltann of langt til hægri þannig
að varnarmaðurinn náði að
truíla mig.“
Eggert Magnússon
„Ég er í heild ánægður með strák-
ana en ég verð að hrósa Birki
Kristinssyni fyrir frábæra
frammistöðu. Eins og leikurinn
spilaðist hefðu úrslitin getað orð-
ið á annan veg. Ég hef fylgst mik-
ið með franska landsliðinu í
knattspyrnu og ég ekki oft séð þá
leika eins vel og gegn okkur,“
sagði formaður KSI.
Pétur Ormslev
„Maður er hálffeginn að þétta er
búið. Frakkarnir voru geysilega
sterkir og öflugir og það var erf-
itt að eiga við þá. Það var mikjil
pressa á Frökkunum að klára
dæmið með fullu húsi stiga og því
gáfu þeir allt í þennan leik. Birk-
ir hélt okkur á floti með frábærri
markvörslu."
Ásgeir Elíasson fylgist áhyggjufullur með landsleiknum í gærkvöldi.
Símamynd Reuter
„Þokkalega sáttur við úrslitin"
- sagði Ásgeir Elíasson landsliðsþjáifari eftir 3-1 tapið gegn Frakklandi
Guðmimdur Hilmarsson, DV, París:
„Þetta var erfitt og þá sérstaklega í fyrri hálíleik sem
ég var ekki nógu ánægður með. Okkur gekk illa að halda
boltanum innan liðsins og þegar menn fengu boltann
voru Frakkarnir strax komnir í boltann, einn eða tveir.
Maður er aldrei ánægður með að tapa leik en í heildina
getum við verið þokkalega sáttir við úrslitin," sagði
Ásgeir Ehasson, landsliðsþjálfari eftir Frakkaleikinn.
„I síðari hálfleik breyttist leikur okkar til hins betra
þegar ég gerði þá breytingu að setja Sigurð Grétarsson
á miðjuna og færa Arnór framar. Þá náðum við betri
tökum á leiknum. Ég var ánægður með markið hjá ■
Eyjólfi en að mínu mati var Birkir Kristinsson bestur
og varði stórkostlega," sagði Ásgeir Elíasson.
Pétur tók tilboði Tindastóls
„Eg kem til Islands á laugardag-
inn og spila minn fyrsta leik á tíma-
bilinu með liði Tindastóls gegn
Grindvíkingum í Grindavík 'á
sunnudaginn," sagði körfuknatt-
leiksmaöurinn Pétur Guömunds-
son í samtali við DV 1 gærkvöldi.
Pétur ákvað í gær að taka tilboði
Tindastóls frá Sauðárkróki og leika
með liðinu í úrvalsdeildinni í vet-
ur. DV skýrði frá því í síöustu viku
að Pétur væri með tilboð frá Tinda-
stóli og þá sagði Pétur að helmings-
líkur væm á því að hann færi til
liðsins.
„Ég tel, eftir nokkra umhugsun,
óraunhæft fyrir mig að stefna leng-
ur á NBA-deildina. Ég fann fyrir
miklum áhuga frá Sauðárkrókí að
ég kæmi aftur til liðsins og það
hafði rnikið að segja. Ég kunni mjög
vel við mig á Sauðárkróki i fyrra
og hlakka til að leika aftur með liði
Tindastóls. Liðinu hefur kannski
ekki gengið nægilega vel hingað til
en nú verður stefnan tekin upp á
við. Mér fannst leiðinlegt hvemig.
tímabilið endaði hjá mér í fyrra,
fannst ég ekki skila minu hlutverki
nægilega vel hjá liöinu. Þetta sat í
mér og hafði sín áhrif núna. Ég á
eftir að gera málin upp á Króknum
og að minu mati var þetta besti
kosturinn í stöðunni fyrir mig,“
sagði Pétur i samtali við DV í gær-
kvöldi og er hann þegar hættur að
leika með CBA-liöinu Skyforce.
Hann verður löglegur með UMFT
gegn UMFG á sunnudaginn en
fyrsti heimaleikur Péturs og félaga
verður á Króknum á þriðjudaginn
gegn Þór firá Akureyri.
-SK
• tj