Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Page 32
F R 62 ÉTTASKOTIÐ • 25 • 25
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Rítstjóm - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 21. NÖVEMBER 1991.
Alþýðusambandið:
Fundaðmeð
„ ráðherrum
Fulltrúar Alþýöusambands íslands
gengu á fund ráöherra í morgun til
viöræðna um þau atriöi sem verka-
lýöshreyfmgin vill aö ríkisstjórnin
komi nærri í þeim kjaraviðræðum
aöila vinnumarkaöarins sem nú eru
hafnar.
Davíö Oddsson forsætisráðherra
sagði of snemmt að segja nokkuð til
um hvaö ríkisstjórnin gæti boðið í
viðræöunum.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráöherra sagði að sér litist vel á
þá kröfu verkalýðshreyfingarinnar
að allur þorskur og ýsa yrðu unnin
hér heima. -S.dór
Gyrtiniðurum
sigviðskóla
Maður með gleraugu, sem talinn
er vera 30-35 ára, sýndi ungum stúlk-
um á sér kynfærin við tvo skóla
snemma í gærkvöldi. Talið er líklegt
að sami maður hafi einnig verið á
ferðinni við sömu iðju skammt frá
skautasvellinu í Laugardal á mánu-
dag.
-** Lögreglunni var tilkynnt um mann
við Austurbæjarskóla á sjöunda tím-
anum í gærkvöldi. Diskótek var í
skólanum og voru 11 ára stúlkur á
lóðinni þegar maðurinn birtist þeim
og sýndi á sér kynfærin. Við svo
búið hvarf hann á brott. Nokkru síð-
ar var tilkynnt um mann með svip-
aðri lýsingu við ísaksskóla. Þar gyrti
maðurinn niður um sig á skólalóð-
inni fyrir framan tvær 8 ára stúlkur
og eina 10 ára. Ekki hafðist uppi á
manninum í gærkvöldi.
Lögreglan telur fullvíst að um
sama mann hafi verið að ræða í bæði
skiptin. Hann er talinn vera 30-35
ára, með gleraugu og var í gulbrún-
umjakka. -ÓTT
Lúsafaraldur
Mjög hefur orðiö vart við lús 'í
nokkrum grunnskólum höfuðborg-
arsvæðisins undanfarnar vikur.
Heimir Bjarnason, héraðslæknir í
Reykjavík, segir lús koma upp næst-
um á hverju hausti, þegar skólabörn
koma saman á nýjan leik. Væri mis-
jafnt hve mikið hún breiddist út.
Fólk tengir lús gjarnan óþrifum.
Heimir sagöi lús þrífast prýðilega á
þrifnu fólki en það fyndi hins vegar
fljótt fyrir henni. Hjúkrunarfólk
skólanna leiðbeinir nemendum og
-"■■•foreldram um meðferð við lús og í
apótekum fást viðeigandi vörur til
aðberjaáþessumófögnuði. -hlh
LOKI
Menn eru baraþjóðlegir í
grunnskólunum!
Hlutafélag til að kaupa og reka Ríkisskip:
Ekkert hindrar
stof nun félags
- segir Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður
Eyjólfur Konráð Jónsson alþing-
ismaður segir að svo mikill hugur
hafiveriöímönnumáfundiStarfs-
mannafélags Ríkisskipa á Hótel
Sögu í gær, en ; þar; var : Kyjólftir
framsögumaður, að ekkert ; geti
komiö í veg fyrir að Ríkisskiputn
verði breytt í öflugt almennings-
hlutafélag.
: „Þetta ahuenningsfélag veröur
til. Þegar menn cru svona sam-
hentir þá getur ekkert komiö i veg
fyrir það," segir Eyjólfur.
Urn þaö hvorl hann lelji rými á
markaðanum fyrir Ríkisskip en fé-
lagið hefur veríð rekið með tapi,
segir Eyjólfur að það sé örugglega
rúm fyrir þrjú öflug skipafélög á
íslandi.
„Það gladdi mig að fá að tala á
fundinum. Þetta hefur verið mér
hugsjónamál í þrjátiu ár. Ég hef
garnan af að sjá hugsjónir rætast.“
Á fundinum í gær var stofnuð níu
manna undirbúningsnefnd til að
undirbúa stofnun hlutafélags um
Rikisskip.
Eigið fé, eignir umfram skuldir,
Rikisskipa var; á milli 400 og 500
millj ónir króna um síðustu áramót.
-JGH
Liklega telja svanirnir á Tjörninni sig hafna yfir gæsirnar, frænkur sínar. I það minnsta hafa þeir
lengi notið forréttinda hjá skáldunum, sem lofað hafa svanasöng á heiði, og í byggðum vilja þeir
fá bestu bitana af brauði barnanna. DV-mynd GVA
Veðriðámorgun:
Hitiyfir
frostmarki
Á morgun verður hæg, austlæg
átt. Rigning eða súld öðru hverju
um mikinn hluta landsins en síst
þó í innsveitum norðanlands. Hiti
yfirleitt yfir frostmarki, hlýjast
suðaustanlands.
Frekari rannsókn:
ÁTVRmálið
afturtil RLR
Ríkissaksóknari hefur farið fram á
að Rannsóknarlögregla ríkisins
rannsaki frekar fjárdráttarmáliö
sem tengist ÁTVR við Lindargötu.
RLR sendi málið til ríkissaksókn-
ara eftir að aðstoðarverslunarstjóri
ÁTVR hafði setið 6 daga í gæsluvarð-
haldi en hefur nú fengið máliö aftur
eftir umsögn ríkissaksóknara.
Maðurinn játaði íjárdrátt á hluta
af um 20 milljón króna rýrnun. Eng-
ir fjármunir eða eignir tengdar flár-
drættinum komu fram við rannsókn
málsins. -ÓTT
Örlítil
vaxtalækkun
Landsbanki, íslandsbanki og
Sparisjóðirnir lækka vexti örlítið í
dag. Landsbankinn og íslandsbanki
um 1 prósent að jafnaði en Sparisjóð-
irnir um 0,5 prósent.
Þess skal tekið fram að íslands-
banki lækkar ekki í dag vexti á al-
mehnum skuldabréfalánum sem eru
hvaö algengasta útlánaformið hjá
bönkunum. Hann lækkar hins vegar
1. desember.
Meðalvextir almennra skulda-
bréfalána hjá bönkunum er núna um
17,9 prósent. Á sama tíma er verð-
bólgan mjög lítil og í kringum núllið.
-JGH
Mjólkurdeilan:
Máliðáhreyfingu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er hugsanlegt að þetta sé upp-
hafið að lausn þessarar deilu,“ sagði
Hjörtur Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Vinnumálasambands sam-
vinnufélaga, í gærkvöldi en þá sátu
atvinnurekendur yfir hugmyndum
sem þeir höfðu fengið frá viðsemj-
endum sínum í mjólkurdeilunni fyrir
norðan. Sáttafundur hófst að nýju í
morgun og þá ætluðu vinnuveitend-
ur að lýsa áliti sínu á tillögunum.
Iðjufélagar, sem starfa hjá mjólk-
ursamlögunum á Akureyri og Húsa-
vík, vilja fá starfsnámskeið metin til
launa og að sögn Ármanns Helgason-
ar er verið að tala um rúmlega 3.000
krónur eða 6% meðaltalshækkun.
Loðnuveiðin í nótt:
Sáralítil veiði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Loðnuskipin níu sem voru á mið-
unum norður af Sléttu í nótt fengu
ekki mikinn afla og sem fyrr er loðn-
an erfið, er dreifð, liggur djúpt.
Laugardaga 10-17
Sunnudaga 14-17
TM-HÚSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822
TVOFALDUR1. vinningur