Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Side 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991.
Útlönd
Krónprinsinn
kaupir nýjan bíl
Friðrik krónprins af Danmörku
sótti Volvo-verksmiðjurnar í
Gautaborg nýlega heim og fékk
við það tækifæri að prufukeyra
hinn nýja Volvo 850 GLT á til-
raunabraut fahrikkunnar.
Prinsinn varð svo yfir sig hrif-
inn af bílnum að hann skipti á
gamla Volvo-inum sínum ogþeim
nýja. Ekki fara sögur af því hvað
hann þurfti að borga mikiö í milli.
Formaðurland-
stjórnarinnar
hótarandstðeð-
ingibrottrekstri
Lars Emil Johansen, formaður
grænlensku landstjómarinnar,
hefur hótað að reka þingmanninn
Josef Motzfeldt úr embætti
stjórnarformanns útgerðarfé-
lagsins Royal Greenland fyrir að
vita ekki hvað er að gerast í fyrir-
tækinu. Motzfeldt er pólitískt
skipaöur í embættið.
Astæða deilunnar milli mann-
anna er sú að Motzfeldt hefur
gagnrýntákvörðun landstjómar-
innar um að auka rækjukvótann
við vesturströnd Grænlands um
3.500 tonn.
Lars Emil Johansen segir að
ákvörðun landstjórnarinnar hafi
mætt fullum skilningi fram-
kvæmdastjórnar Royal Green-
land og það ætti stjórnarformað-
urinn að vita. Johansen álítur að
ef ósamkomulag sé milli fram-
kvæmdastjórnarinnar og stjórn-
arformannsins eigi sá síðar-
nefndi að fara frá.
Norðmenn
þiggjagjafirog
peningaaf KGB
Nokkrir Norðmenn eru enn á
mála hjá sovésku leyniþjón-
ustunni KGB og þiggja að launum
gjafir og reiðufé.
Þetta kemur fram í viðtali sem
norska blaðið Aftenposten birti í
gær við Míkhaíl Bútkov, fyrrum
major í KGB, sem sótti um póii-
tískt hæli á Vesturlöndum í mai.
Bútkov kom til starfa 1 Osló
árið 1989 og átti að heita að hann
værí fréttaritari sovéska dag-
blaðsins Rabotskaja Tribuna.
Hann segir að sér hafi veist auð-
velt að starfa meðai stjórnmála-
manna í Noregi þar sem þeir hafi
vanmetiö virkni útsendara KGB.
Þaö hafi veriö útbreidd skoðun
meðal þeirra að tími kalda stríðs-
ins væri liðinn.
í viðtalinu segir Bútkov enn-
fremur að hinn dæmdi njósnari,
Arne Treholt, hafi verið ákaflega
þýðíngarmikill útsendari og að
hann sé nú orðinn aö þjóðsagna-
persónu innan KGB.
Eyiarskeggjar
borðahunda
vegnahafn-
bannsins
íbúar á eyjunni Bougainville,
800 kílómetra frá ströndum
Papúa Nýju Gíneu, eru svo að-
framkomnir af himgri að þeir
hafa orðið að leggja hunda sér til
munns til að skrimta. Stjómvöld
Nýju Gíneu hafa sett hafnbann á
eyjuna til að kveða niöur upp-
reisn aðskilnaðarsinna.
Þá hefur lyfjaskorlur valdið því
að um þrjú þúsund manns hafa
látist af völdum sjúkdóma sem
alla jafha era læknanlegir.
AöskOnaðarsinnar lýstu yfir
sjáifstæði eyjarinnar í fyrravor
og komu á fót bráöabirgðastjórn
sem ekkert land hefur viöur-
kennt tfi þessa.
Rit/.iiu, NTB og Reuter
Thomas Sutherland var fölur og tekinn þegar hann kom til flugvallarins i Dallas í Texas. Hann er veikur en segist
þó reiðubúinn til að fara aftur til Beirút. Símamynd Reuter
Bandaríski gíslinn Thomas Sutherland loks kominn heim:
Tilbúinn að f ara
aftur til Beirút
Bandaríski háskólakennarinn
Thomas Sutherland komst loks heim
tO Bandaríkjanna í gærkvöld eftir
að hafa dvalið á sjúkrahúsi í Þýska-
landi allt frá því honum var sleppt
úr gíslingu mannræningja í Beirút í
síðustu viku. Hann hefur verið tölu-
vert veikur og virtist fólur og tekinn
við komuna til Dallas þar sem hann
veröur fyrst um sinn.
Sutherland sagði fréttamönnum að
hann væri tObúinn tO að fara aftur
til Beirút og taka upp fyrri störf þar
enda hefði hann verið ráðinn tO
verksins. Sutherland var ráðlagt að
fara frá Beirút skömmu áður en hon-
um var rænt en hann vOdi ekki fara
vegna þess að hann hefði skyldum
að gegna. Þá þegar lá fyrir rökstudd-
ur grunur um að öfgasamtök íslama
hefðu hug á að ræna honum.
Sutherland er magaveikur og sagði
að hann hefði tvívegis veikst aivar-
lega meðan hann var í gíslingunni.
Nokkur tími getur liðið áður en hann
nær sér af meinum sínum enda við-
urkennir hann að ekki sé tímabært
að snúa til fyrri starfa í bráð.
Sutherland kemur heim rétt í tæka
tíð fyrir þakkargjörðardaginn, sem
er mikill hátíðisdagur í Bandaríkjun-
um. Fjölskyldan ætlar að halda dag-
inn hátíðlegan í San Francisco.
Reuter
Yoko Ono gef ur börnum
fallinna lögregluþjóna
Yoko Ono ætlar að gefa um 500 börnum lögregluþjóna, sem látið hafa lifið
við skyldustörf, gjafir fyrir jólin. Simamynd Reuter
Yoko Ono, ekkja bítilsins Johns
Lennon, hefur ákveðið að gefa börn-
um lögregluþjóna, sem látið hafa lífið
við skyldustörf, gjafir á komandi jól-
um. Um 500 böm verða þessa aðnjót-
andi? Yoko gerir þetta í samráði við
samtök lögregluþjóna í Bandaríkjun-
um.
Fé til gjafanna verður tekið úr sjóð-
um sem Yoko hefur yfir aö ráða. Það
eru bæði fjármunir sem Lennon lét
eftir sig og tekjur hennar sjálfrar af
listaverkasölu.
Yoko segir að Sean, sonur hennar,
hafi verði skilinn eftir fóðurlaus þeg-
ar Lennon var myrtur og því skilji
hún vél hvernig þeim þörnum Oður
sem misst hafa föður sinn,- Þegar
börn fallinna lögreglumanna verða
18 ára fá þau styrki til skólanáms en
fram að þvi fá þau aðeins lífeyri með
móður sinni.
Reuter
Umbæturnar
komaverstnið-
urákonum
Konur í Sovétríkjunum eru
meðal þeirra sem verða hvað
verst fyrir barðinu á atvinnuleysi
og lágum launum nú þegar verið
er að færa hagkerfið í átt til
markaðsbúskapar.
Um 77 prósent atvimiuiausra í
Moskvu eru konur og um helra-
ingm- þeirra sem hafa vinnu þéna
minna en eighimennirnir.
„Það er verið að leysa vanda-
máhn á kostnað kvenna. í
Moskvu er hafinn undirbúningur
að því að banna atvinmirekend-
um að segja upp konum sem eru
einu fyrirvinnur heimöanna,“
sagði ígor Zaslavskíj hjá atvinn-
umiðluninni í Moskvu.
Sovéskir hagíræðingar búast
við aö tíu til tólf mOljónir manna
verðí atvinnulausar í árslok.
Tværflugvélar
í árekstri
á Heathrow
Tvær flugvélar með 271 farþega
innanborðs rákust saman á jörðu
niöri á Heathrowflugvellinum við
London í gærmorgun. Nokkrar
skemmdir urðu á flugvélunum
en enginn farþeganna slasaðist.
Vélamar voru frá British
Airways og Swissair.
„Vélin var rétt byrjuð að bakka
þegar á hana kom hnykkur. Við
fundum sannarlega fyrir honum
en hann var ekki nógu mikiO til
að fella nokkurn mann um koll,“
sagði Mark Thornton, einn 99 far-
þega um borð i vélinni frá Swissa-
ir sem átti að fara til Zúrich.
Um borð í British Airways vél-
inni voru 172 farþegar á leiö til
Milanó,
SexíCindy
gerðbrottræk
fráOsló
Hálfnakin og kynþokkafull ung
kona sem köOuð er Cindy má
ekki lengur trufla ökumenn í
Ósló og skal hún fjarlægjast.
Cindy þessi prýðir íjöldann all-
an af risastóram auglýsinga-
spjöldum þar sem hún dásamar
undirföt af ýmsu tagi. En nú hef-
ur vegamáiastjóri Norðmanna
sagt stopp,
„Auglýsingaspjöldin blasa við
bflstjórum sem hafa að nægu að
hyggja í umferðinni," segir vega-
málastjóri. Og hann ætlar að fá
bæjaryfirvöld til að fjarlægja
spjöldin.
Vegamálastjóri segir bannað að
koma auglýsingaspjöldum fyrir í
minna en 30 metra fjarlægð frá
umferðargötum.
Auglýsingastofan, sem settiupp
spjöldin, hefur að sjálfsögðu mót-
mælt þessu.
„Það hafa ekki verið gerðar
neinar rannsóknir sem sýna að
auglýsingaspjöld við umferðar-
götur séu heettuleg," segir tals-
maður auglýsingastofunnar.
Borgaðistórfé
fyrireittpenny
Maður nokkur greiddi liðlega
2,3 milljónir króna fyrir garaalt
breskt penny á uppboði í London
í gær, mestu fjárhæð sem nokkru
sinni hefur verið reidd af hendi
fyrir þessa smámynt.
Peningurinn er frá árinu 1954
þegar aðeins voru slegin nokkur
eintök til prufu. Ekkert þeirra fór
nokkru sinni i umferð. Kaupand-
inn vildi ekki láta nafns síns get-
ið.
Til stóð að eyðileggja öU eintök-
in en þetta eina komst undan.
Fyrra sölumet á penny vai* 1,5
milljónir króna.
Reutpr og NTB