Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Page 2
2
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991.
Fréttir
Skýrsla Seðlabankans:
Lækkun raunvaxta
er undir ríkinu komin
„Enginn vafi er á því aö tilraunir
til þess af hálfu Seðlabankans að
þrýsta niður vöxtum við slíkar að-
stæður yrðu til þess eins'að auka
peningaútstreymi og magna þannig
viðskiptahalla og jafnvægisleysi í
þjóðarbúskapnum sem fljótlega
leiddi til undanhalds á gengismál-
um.“ Svo segir í skýrslu frá Seðla-
bankanum þar sem hafnaö er kröf-
um aðila vinnumarkaðarins um
vaxtalækkun með „handaili".
Seðlabankinn segir fullum fetum
að það sé undir ríkinu komið hvort
vextir lækki. Seðlabankinn segir að-
stæður vera þær að hallarekstur rík-
issjóðs hafi mikil þensluáhrif og
óhemju fjárstreymi sé til íbúðalána.
Afleiðingarnar hafi komið fram bæði
í vaxandi viðskiptahalla og hækkun
raunvexta á lánsfjármarkaðnum.
Raunvaxtalækkun sé því aðeins
líkleg eða framkvæmanleg hér á
landi á næstunni að verulega takist
að draga úr eftirspum hins opinbera
eftir lánsfé.
Tryggja verði peningalegt jafnvægi
í þjóðarbúskapnum með aðhaldsað-
gerðum á sviði opinberra fjármála
og peningamála.
Seðlabankinn segir að raunvextir
hér á landi séu nokkuð líkir því sem
sé í þinum smærri af grannríkjum
Eiturefnasprenging var sett á svið
í rafstöðinni við Elliðaámar síðdegis
í gær. Vöktu sprengingar með til-
heyrandi eldglæringum og blossum
mikla athygli þeirra sem óku um
okkar. Ekki sé ástæða til sérstakra
aðgerða til að fullnægja ákvæði í lög-
um um Seðlabankann þar sem bank-
anum er heimilt að „takmarka út-
lánsvexti bankastofnana svo að
raunvextir verði hóflegir og eigi
hærri en þeir eru að jafnaði í helstu
viðskiptalöndum íslands."
-HH
Ártúnsbrekkuna. Mikill viðbúnaður
slökkviliðs var á staðnum. Þama var
um að ræða lokaæfingu fyrir tilvon-
andi varðstjóra slökkviliðsins í
Reykjavík. Þótti hún takast vel. -ÓTT
JónBaldvin:
Sáekki
ástæðutilað
biðja Jóhönnu
afsökunar
„Þaö er ranghermi í DV-frétt á
baksíðu á fimmtudag aö ég hafi
séð ástæðu til að biðja vinkonu
mina, Jóhönnu Sigurðardóttur,
afsökunai' á ummælum um hana.
Þau ummæli í tímaritsviðtali
endurspegla, eins og lesendur
geta skynjað sjálfir, einlæga virð-
ingu og væntumþykju. Þau orð
tek ég ekki til baka.
Hins vegar hef ég sagt Jóhönnu
þaö að ef grallarahúmor minn
hefur orðið til þess að særa hana
þá þyki mér það mjög miður því
að ekkert slíkt bjó i mínum
huga," segir Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra.
Athugasemd fréttamanns:
í raun er ekki miklu við þetta
að bæta. Síðari hluti yfirlýsíngar
Jóns Baldvins er afsökun. Hafi
maöur sært einhvern en komi til
hans og segi að manni þyki þaö
miður ef ummælin hafi sært viö-
komandi þá heitir það á íslensku
að biðjast afsökunar. Hitt er svo
annað mál að undirritaður frétta-
maður hefur fengiö það staðfest
hjá tveimur þingmönnum Al-
þýðuflokksins að Jóhanna hafi
ekki tekið þessa afsökun Jóns
Baldvins til greina og þá hafi
hann beðið hana fyrirgefningar.
Því stend ég við hvert orð sem
stóðífréttDV. -S.dór
Útflutningur
minni en
innflutningur
í október voru fluttar út vörur
fyrir um 7,6 milljaröa en inn voru
fluttar vörur fyrir um 8,9 millj-
arða. Vöruskiptajöfhuðurinn var
því óhagstæður um 1,3 milljarða.
Á sama tíma í fyrra var hann
óhagstæður um 900 milljónir á
sama gengi.
Fyrstu 10 mánuði þessa árs var
verðmæti vöruútflutningsins
nánast óbreytt á fóstu gengi miö-
að við sama tíma í fyrra. Verð-
mæti innflutningsins var hins
vegar um 8 prósent meira. Á
fyrstu 10 mánuöum ársins var
vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 800 milljónir en á
sama tíma í fyrra var hann hag-
stæður um 5,3 milljarða.
-knu
Jurtaolia
fannst norður
af Horni
Ýmis togveiðiskip hafa síðustu
mánuði fengið stórar tunnur í
botnvörpuna við veiöar á svoköll-
uöu Gildrusvæði - um 50 mílur
noröur af Homi á Vestfjöröum.
Talið er að timnumar séu úr
þýska vöruflutningaskipinu
Wolfsburg sera sökk á þessum
slóðum árið 1940. Við efiaagrein-
ingu hjá Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins hefur komið i Ijós að
innihald tunnanna er jurtaolía.
Islensk yfirvöld hafa ekki fengið
staðfest hver farmur skipsins var
en upplýsingar um hann eru
væntanlegar.
Siglingamálastofnun óskar eftir
að skipstjómarmenn tilkynni
mengunardeild stofnunarinnar
eða Landhelgisgæslunni um alla
torkennilega hluti sem koma í
veiðarfæri á þessum slóöum.
Wolfsburg sökk á staönum 67
gráður 30’59 noröur og 22 gráður
22’28vestur. -ÓTT
Auglýsingafarsi hjá ríkissjónvarpinu:
Bókaauglýsing bönn-
uð vegna bakgrunns
Útvarpsráö hefur bannað bóka-
auglýsingu útgáfunnar ísafoldar í
ríkissjónvarpinu. Að sögn formanns-
útvarpsráðs var auglýsingunni hafn-
að í núverandi gerð vegna þess að
svokallað „þularsett" var notaö sem
bakgrunnur.
Að sögn Leós Löve hjá ísafold er
forsaga þessa máls sú að forráða-
mönnum ísafoldar datt í hug að fá
stúlku, sem leikur í einum bama-
þátta sjónvarpsins, til að koma fram
í auglýsingunni. Stúlkan gengur
undir nafninu ísafold í bamaþættin-
um og því þótti tilvalið að fá hana til
að auglýsa bækur fyrir ísafold.
Skyldi hún nota sama bakgmnn og
þulur sjónvarpsins.-
Áöur en gerð auglýsingarinnar
hófst ræddu Isafoldarmenn við aug-
lýsingastjóra stofnunarinnar og
fleiri. Enginn geröi athugasemdir við
hugmyndina.
Auglýsingin var nú gerð og átti aö
birtast fyrst á föstudag fyrir rúmri
viku. Þann dag skoðaði útvarpsráö
hana og fór fram á að henni yrði
breytt vegna bakgrunnsins.
Auglýsingastjóra var nú falið að
gera umbeðnar breytingar ásamt
auglýsingagerðarmanninum þannig
að ekki yrði um villst að um auglýs-
ingu væri að ræða. Það geröu þeir
með því að merkja hana rækilega.
Átti aö birta hana þannig kvöldið
eftir. Úr því varð hins vegar ekki því
útvarpsstjóri haföi stöðvað birtingu
hennar. Hann vildi fá að sjá hvernig
hún liti út eftir breytinguna. Að því
loknu leyfði hann birtingu.
Auglýsingin var nú birt fimm sinn-
um í vikunni. En í gær tók útvarps-
ráð þá ákvörðun aö banna hana þar
til búið væri að gera bakgrunninn
þannig að ekkert væri líkt með hon-
um og bakgrunni sem notaður er í
þularstofu.
Halldóra Rafnar, formaður út-
varpsráðs, sagði að umrædd ákvörð-
un heföi verið tekin af því að bak-
grannur þulanna heföi verið notaður
í henni. Þær breytingar, sem gerðar
heföu verið, heföu verið „plástur í
horninuvinstramegin.“ -JSS
Breyting á hlutdeild almennings 1 læknakostnaði:
Aukin gjaldtaka
af sjúklingum
- nýreglugerðlækkarríkisútgjöldum600mílljónir
„Með nýrri reglugerð um hlutdeild
sjúkratryggða í kostnaði vegna heil-
brigðisþjónustu er leitast við að
varðveita velferöina þannig að þeir
sem þjónustunnar njóta greiði í
auknum mæli fyrir hana. Með henni
era hækkuð og samræmd þau gjöld
sem tíðkast hafa fyrir læknisverk,
bæði í heilsugæslu og hjá sérfræð-
ingum, en engin ný tekin upp,“ sagði
Sighvatur Björgvinsson þegar hann
kynnti reglugerðina í gær. Hún mun
taka gildi 15. janúar næstkomandi.
Með reglugerðinni telst ráðuneyt-
inu til að fyrirsjáanlegur kostnaður
vegna heilbrigðisþjónustunnar
lækki um allt að 600 milljónir, eða
um 100 milljónir minna en að var
stefnt við gerð fjárlagaframvarpsins.
Eftir breytinguna mun hlutdeild
sjúklinga verða milli 15 og 17 prósent
af heildarkostnaði við heilbrigðis-
þjónustuna. Breytingin mun sam-
kvæmt útreikningum Hagstofu is-
lands leiða til 0,2 til 0,3 prósenta
hækkunar framfærsluvísitölunnar.
Samkvæmt reglugeröinni þurfa
sjúklingar úndir 67 ára aldri að
greiða 600 krónur fyrir hverja komu
á heilsugæslustöð eða til heimilis-
læknis á daginn en annars 1000 krón-
•*
* * 1
. m *»
» * . * • •
\ *
f ~ ?
♦ - *
Falleg jólaljós skreyta nú verslunargötur borgarinnar.
Jólaverslunin:
DV-mynd GVA
ur. Elli- og örorkulífeyrisþegar verða
hins vegar kraföir um 200 krónur á
daginn en 350 krónur annars. Þá
mun vitjun læknis í heimahús kosta
1000 krónur á daginn en 1500 krónur
um kvöld og helgar. Sé sjúklingur
elli- eða örorkulífeyrisþegi kostar
vitjunin 350 krónur að degi til en 500
krónur annars. Mæðra- og ung-
bamavemd ásamt heilsugæslu í
skólum verður undanþegin gjaldi.
Auk þessara gjalda verða gjöld til
sérfræðinga hækkuð verulega. Sam-
kvæmt reglugerðinni er hins vegar
þak varöandi hámarksgreiðslur
sjúklinga á hveiju almanaksári. Há-
marksgreiðsla fyrir fólk á aldrinum
16 til 67 ára verður 12 þúsund krónur
á ári en fyrir elli- og örorkulífeyris-
þega er hámarkiö miðað við 3000
krónur. Börn undir 16 ára aldri með
sama fjölskyldunúmer teljast sem
einn einstaklingur.
Að sögn Ólafs Ólafssonar land-
læknis er setning reglugerðarinnar
ekki tilefni til hátíðarhalda. Á hinn
bóginn gefi hún möguleika á að veita
íjármagn í brýn verkefni, svo sem
að stytta biðhsta á sjúkrahúsum. Á
biðlistunum deyi fólk núna.
-kaa
Hvar er opið
um helgina?
Verslanir veröa opnar frá klukkan
10-18 í dag, laugardag. Gildir það
bæði um Miðbæinn og Kringluna. í
Borgarkringlunni verður opið á
sama tíma í dag en þar verður einnig
opið á morgun fráJclukkan 13-18.
Frítt verður í bfiastæðahús og
stöðumæla um helgina. Ekki er gert
ráð fyrir að venjulegar umferðargöt-
ur verði lokaðar bílum þessa helgi,
að sögn lögreglu.
Þeim sem ætla að leggja leiö sína í
miðbæinn er bent á bílastæði við
Alþingishúsið, Laugaveg 77, Bakka-
stæði við höfnina, Ingólfsgarð og
Skúlagötu. Einnig era bílastæðahús
við Bergstaðastræti og Vesturgötu 7.
Markaður veröur um helgina í bíla-
stæðahúsinu í Kolaportinu.
-ÓTT
Eldglæringar sáust
frá rafstöðinni