Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991.
LAUFABRAUÐSJÁRN
KLEINUJARN
Vönduð og handsmiðuð
laufabrauðsjárn og kleinujárn
úr kopar til sölu.
Sendi í póstkröfu.
Sími 98-21730.
Björn Jensen, rennismiður, Selfossi
I vinnurými með tveimur eða fleiri starfsmönnum
eru tóbaksreykingar lögum samkvæmt óheimilar
nema eftir samkomulagi starfsmanna
og vinnuveitenda!
TÓBAKSVARNANEFND
og annað frábært
barnaefni á Stöð 2
í jólamánuðinum
Jólasveinninn og tannálfurinn, Vesalingarnir,
Koddafólkið. Besta jólagjöfin, Tinna,
Snædrottningin, Doppa íHollywood, Öskubuska,
Jólatréð, Vetur konungur, Babar og jólasveinninn,
Hvíti úlfaldinn, Kærleiksbirnirnir, Jólin allra barna,
Hans og Gráta, Jólastrákurinn, Tannálfurinn,
Svanirnir, Jólaboð hjá Afa, Lóa og leyndarmálið,
Bugsy Malone, Kalli kanína og félagar, Tindátinn,
Pee Wee fer í sirkus...
Ert þú ekki örugglega með myndlykil?
Matgæðingur vikuiiiiar_dv
Svínarif
Regína Sveinsdóttir lyfjatæknir skorar á starfssystur sína, Valgerði
Magnúsdóttur, að vera matgæðingur næstu viku.
„Það má segja að svínarif séu
uppáhaldsmaturinn á mínu heimili
enda eru þau oft á borðum. Það er
gaman að borða þennan mat og
getur gengið svolítið á á meðan.
Það er gott að hafa nóg af þurrkum
við höndina," segir Regína Sveins-
dóttir lyfjatæknir en hún er mat-
gæðingur vikunnar að þessu sinni.
Regína býður okkur upp á svína-
rif í kryddlegi. Uppskriftin hijóðar
þannig:
1 Vi-2 kíló svínarifjasteik án puru
Kryddlögur
2 msk. smjör
'A bolli saxaður laukur
1 bolli vatn
1 bolli tómatsósa
2 msk. edik (helst rauðvínsedik)
2 msk. sítrónusafi
2 msk. Worcestershire-sósa
2 msk. púðursykur
1 tsk. sinnepsduft
1 msk. sinnep
1 tsk. salt og pipar
Takið mestu fituna ofan af steik-
inni. Skerið hana í hæfilega bita
og steikið bitana á þurri pönnu við
mikinn hita, nokkrar mínútu á
hvorri hlið. Setjið bitana í eldfast
mót.
Blandið öllu því sem fara á í
kryddlöginn í pott eða á pönnu og
látið malla í nokkrar mínútur.
Hellið kryddleginum síðan yfir
kjötið. Ekki er verra að láta kjötið
liggja í kryddleginum í nokkrar
klukkustundir en það er þó ekki
nauðsynlegt. Setjið álpappír yflr
mótið og bakið við 180 gráður í um
1 'A klukkustund. Takið pappírinn
af síðustu 15-20 mínútumar. Veiðið
fituna ofan af leginum áður en rétt-
urinn er borinn fram. Gott er aö
borða soðin hrísgrjón eða salat með
svínarifjum í kryddlegi.
Regína var ekki lengi að hugsa
sig um þegar skora átti á einhvern
til að vera matgæðing næstu viku.
Regína valdi Valgerði Magnúsdótt-
ur lyflatækni sem hún sagði vera
mjög góðan kokk.
-hlh
Hinhliðin______________
Edda Björgvinsdóttir
uppáhaldsleikkonan
Bryndís Guðmundsdóttir, sem
kjörin hefur veriö fimleikamaður
ársins 1991 af Fimleikasambandi
íslands, sýnir á sér hina hliðina að
þessu sinni. Bryndís varö íslands-
meistari í fimleikum á þessu ári í
flölþraut en áður hefur hún hlotið
Islandsmeistaratitla í einstökum
greinum.
Bryndís, sem er sautján ára göm-
ul verslunarskólamær, hefur æft
fimleika í átta ár og alltaf í Ár-
manni. Hún er nú hætt keppni en
æfir og sýnir enn fimleika. Bryndís
þjálfar einnig stelpur í yngri flokk-
um í fimleikadeild Ármanns.
Fullt nafn: Bryndís Guðmunds-
dóttir.
Fæðingardagur og ár: 22. apríl 1974.
Maki: Enginn.
Börn: Engin.
Bifreið: Fiat Uno, árgerð ’88.
Starf: Nemi í Verslunarskóla ís-
lands og þjálfari hjá Ármanni.
Laun: Lítil.
Áhugamál: Fimleikar, skíðaferðir
og önnur ferðalög.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég hef ekki fengið
neina rétta.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að ferðast.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Aö lesa undir próf.
Uppáhaldsmatur: Piparsteik.
Uppáhaldsdrykkur: Islenskt vatn.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Sovéska
fimleikastúlkan Svetlana Bag-
inskaya.
Uppáhaldstímarit: Vikan.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð? Tom Cruise.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Hlynnt.
Hvaða persónu langar þig mest að
Bryndís Guðmundsdóttir.
hitta? George Bush.
Uppáhaldsleikari: Siggi Siguijóns-
son.
Uppáhaldsleikkona: Edda Björg-
vinsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Daníel í Ný
danskri.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Bart Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Góðar
bíómyndir.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Hlynnt.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Anna
Björk á FM.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig-
mundur Emir Rúnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Epliö.
Uppáhaldsfélag í iþróttum: Ár-
mann.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að verða hamingju-
söm.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór í sýningarferð með Ármanni til
Amsterdam.
-IBS