Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 9
LAÚGARDAGUK 7. DESKMBF.R 1991. Nú tippa allir á þrettán: Reynt að krækja í 40 milljónir Eftir aö Islenskar getraunir hófu samstarf við sænsku getraunirnar hefur aldeilis komið kippur í tippara um allt land. Vinningsupphæðirnar eru mun hærri en íslenskir tipparar hafa átt að venjast en heildarupphæð vinninga um síðustu helgi var um 140 milljónir króna. í pottinum fyrir fyrsta vinning voru heilar 40 milljón- ir. Það er því ekki nema von að glampi sé í augum tippara þar sem þeir grúfa sig yfir getraunaseðilinn og pæla í einum, x eða tveimur. Fjöldi klúhba er starfandi þar sem kunningjar eða vinnufélagar slá saman í stór kerfi. Við bætast allir einstaklingarnir sem annað hvort tippa eftir sínum eigin kerfum eða láta bara vaða niður seðilinn, l-x-2 í belg og biðu. Loks eru það þeir sem ekki vilja liggja lengi yfir seðlinum og láta tölvuna um að tippa fyrir sig. Laugardagar eru miklir tippdagar, enda liggja úrshtin þá fyrir. Fyrir hádegi á laugardögiun eru flestar sjoppur með getraunakassa fullar af fólki en getraunir loka á tippara klukkan tólf á hádegi. En það er víð- ar en í sjoppunum sem tippað er. I félagsheimilum íþróttafélaganna er mjög lífleg tippstarfsemi eins og með- fylgjandi myndir bera greinilega með sér. Þar er spáð og spekúlerað-og oftar en ekki eru einhveijir gamal- reyndir sérfræðingar í ensku knatt- spymunni á næstu grösum til að hjálpa til við að setja merkin. Pen- ingaglampinn skín úr augum allra viðstaddra, enda margar milljónim- ar í húfi. -hlh Ekki er nú víst að hún Lilja Rut vinni nokkuð á kerfið sitt en henni virðist standa alveg á sama. Það er svo gaman að strika í rúðurnar. í Fram-heimilinu sat friður hópur kvenna við borð á laugardaginn fyrir viku og tippaði af lífi og sál. Þær.virtust ekki spá minna í leikina en karlarnir og ekki að vita nema að einhver þeirra hafi orðið ríkari seinna um daginn. DV-myndir S Það voru miklar spekúlasjónir i gangi í Fylkis-heimilinu og af svipnum á mönnum að ráða virtust þeir þegar vera komnir á slóð þess stóra. Þarna hafa menn tippað saman í langan tima og oft mikil stemmning þegar stórleikir - og stórir pottar - eru í gangi. Það var ös í miðstöð íslenskra getrauna i Laugardal þar sem fólk grúfði sig yfir seðlana i básunum sínum. Klara litla hafði engan áhuga á að grúfa sig yfir seðlana en vildi vera við öllu búin - með getraunaseðil og blýant í hendi. Jólatilboð! Stórafsláttur á fataskápum úr beyki. Verðdæmi: Skápur, 100x210x60 cm Áður: 29.146 kr. Jólatilboð: 22.151 kr. stgr. Stakir skápar Skápur 300x248x60cm Aður: 13C Jólatllboö; 96 ■5C .105 kr, .880 kr, Stgr. A\ Skápar milli veggja Axis húsgögn hf. AXIS Smiðjuvegi 9, Kópavogi # v\i ^ $ímj 4350Q 50m2 qf LASSIK bKiFAN hefur nú opnað sérstaka 50 fermetra klassíska deild að Laugavegi 26, þar $em á boðstólnum er eitt besta og mesta úrval af klassiskri tónlist sem völ er 4,á ísiandi. ViS viljum af þessu tilefni benda sérstaklega á geisladisk ®dé Erlendsdóttur sem er einn fremsti píanóleikari Islands. Edda leikur hér sónötur, fantasíur og randó eftir C.P.E.Bach. Eigulegur diskur fyrir unnendur klassískrar tónlistar. 0PIÐ SUNNUDAG FRÁ KL.12-17.00 PÓSTKRÖFUSÍMI 680685 SmK' 1‘F'A'N KLASSÍSK VERSLUN ■ LAUGAVEGI26

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.