Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991. Milljónir fylgjastmeð íslenskri leikkonu í Bandaríkjunum: Furðulegt að vera orðin opinber persóna Jóhanna Jónasdóttir eóa Yohanna Yonas, eins og hún kallar sig i Bandaríkjunum, fékk hlutverk í þáttaröö hjá ABC-sjónvarpsstöðinni um leið og hún útskrifaðist úr leiklistarskóla í Boston. Jóhanna i hlutverki sínu í myndaflokknum Skálkar á skólabekk sem sýndur var hér á landi síðastliðið sumar. í myndaflokknum leikur Jó- hanna, sem er 27 ára, átján ára gamla kærustu eins aöalgæjans. „Það veldur ekki beinlínis ótta en manni þykir það furðulegt þegar maður er orðin hálfgerð opinber persóna." Þetta segir Jóhanna Jón- asdóttir, ung íslensk leikkona sem milljónir Bandaríkjamanna hafa fylgst með í sjónvarpsþáttaröðinni Loving þar sem hún leikur kaldrifj- aða mafíósu. Aðdáendabréf streymdu til henn- ar og hún var stöðvuð úti á götu af áhorfendum myndaflokksins sem vildu ræða gang mála í þáttun- um. En það var ekki Jóhanna Jón- asdóttir sem menn voru að snúa sér til, heldur Yohanna Yonas. „Ég var orðin þreytt á að heyra nafnið mitt alltaf borið fram sem Djóhanna og svo er oröið dóttir stirt í munni Bandaríkjamanna þannig að ég ákvað að breyta nafn- inu. Það hefði líka veriö hætta á að ég yrði afskrifuð sem útlending- ur sem kynni ekki orð í ensku," segir leikkonan fræga. Hún vill nú ekki alveg kannast við að hún sé orðin fræg leikkona en hún stefnir aö því. Og til að ná markmiði sínu var hún fjögur ár í leiklistarnámi í Boston. „Ég fór fyrst í leikhús- og sjónvarpsfræði í Suður-Illinois, í litlum bæ sem var eiginlega úti á miðjum akri. Þetta var 1985. Áhugi minn á leiklist var mikill og ég taldi smám saman í mig kjark til að hella mér út í leik- hstarnámið.“ Fékk strax hlutverk Það þarf einnig kjark til að hella sér út í samkeppnina að námi loknu þvi að mikið atvinnuleysi ríkir með- al leikara í Bandaríkjunum. „Rétt fyrir útskrift fór ég með bekknum mínum til New York þar sem við kynntum okkur með uppfærslu fyr- ir umboðsmönnum og þeim sem skipa í hlutverk. Þar á meðal voru fulltrúar ABC-sjónvarpsstöðvar- innar og ég var ráöin. Ég þurfti ekki einu sinni að lesa fyrir þá. Þetta var heljarinnar stökk.“ Jóhanna kveðst hafa flutt til New York til að leika í Loving í sömu viku og hún útskrifaðist. Aðspurð um hvort hún hafi ekki fundið fyr- ir öfund bekkjarfélaga játar hún því. „Mér var óskað til hamingju með brosi en í sömu andrá var sagt helvítis tíkin. En ég held að þetta hafi nú allt verið í góðu.“ Brennd og skotin Jóhanna lék samfleytt í Loving í sex mánuöi. Teknir voru upp fimm þættir í viku en misjafnt var hversu oft hún kom fram í viku hverri. „Ég var eiginlega fegin þeg- ar mafiósunni Stevie Lindström var stungið í fangelsi í nóvember í fyrra. Þetta er nefnilega ekki það sem ég vil helst gera. Ég notaði tækifærið og flutti til Los Angeles, að sumu leyti til að ekki yrði alltof auðvelt að ná í mig. Það var kom- inn tími til aö halda áfram." Það sem Jóhanna vill helst gera er að leika í kvikmyndum og leik- húsum. En Stevie var sleppt úr fangelsi og Jóhanna þurfti þvi að fara aftur til New York í júní síð- astliðnum. Þar var endanlega gert út af viö Stevie og var hún bæði brennd og skotin. „Ég er því laus nema þeir vilji koma með hana sem draug. Það er svo sem ekkert ólík- legt,“ segir Jóhanna hlæjandi. Átta ára í enskunámi Aðspurð hvernig henni takist með framburðinn segir Jóhanna að reyndar hafi hún frá átta ára aldri verið send í heimarvistar- skóla til Englands í fjögur sumur. „Þar var ég í þrjá mánuði á hverju sumri, mállaus í fyrstu, og varð að bjarga mér.“ Hún segist enn búa aö því en til aö ná ameríska fram- burðinum hljóðritaði hún það sem hún þurfti að segja í hlutverkum sínum í skólanum. Jóhanna segist hafa farið að taka þátt í leiksýningum tiltölulega seint, ekki fyrr en hún var komin í Verslunarskólann. „Ég held að þátttaka min í Rocky Horror Pict- ure Show hafi gert útslagið. Við þurftum aö halda aukasýningar og fórum einnig út á land. Það var óskaplega gaman.“ Jóhanna segist vel geta hugsað sér að koma heim til íslands og leika hér í kvikmyndum eða í leik- ritum þótt hún sé búsett í Los Angeles. Eftir fyrsta veturinn í Boston lék Jóhanna eitt sumar í Light Nights hér heima. í Los Angeles hefur Jóhanna komið sér vel fyrir ásamt manninum sínum, Illuga Eysteinssyni. í Skálkum á skólabekk Illugi er við nám í arkitektúr og sjálf er Jóhanna búin að fá hlut- verk í annarri sjónvarpsþáttaröö, Parker Lewis Can’t Loose eða Skálkar á skólabekk, sem sýnd var hér á landi síðastliðið sumar. „Ég leik þar átján ára ungling, Eileen Larsson sem er kærasta eins af aðalgæjunum, Larrys Kubiac." Jó- hanna hefur leikið í tveimur þátt- um og frekari þátttaka er á döf- inni. Að sögn Jóhönnu gerir fram- leiðandinn samning til eins árs í einu og lýkur tökum í þetta skipti í vor. í hlutverki Eileen kveðst Jó- hanna nýög ólík sjálfri sér og þvi snýr fólk sér ekki aö henni úti á götu í Los Angeles vegna leiks hennar í Parker Lewis þáttaröð- inni. Það eru þó ýmsir sem muna eftir henni úr Loving. Og hún hefur frétt af fólki sem kom sérstaklega til að horfa á hana leika í leikriti í Los Angeles Theatre Center þar sem það hafði séð hana í Loving. Stórstjömur nálægt Helst vill Jóhanna verða þekkt og fá hlutverk vegna leiks síns en ekki vegna kunningsskapar. „Það var þó freistandi að stökkva á Coppola þar sem hann var aö gera mynd um brúði Frankensteins í kvikmyndaveri Columbia við hlið- ina á því sem upptökumar á Park- er Lewis og félögum fóm fram í. Það er nú einmitt með því að kynna sig fyrir hinum stóru sem flestir fá hlutverk." Jóhanna segist ekki hafa kynnst neinni af stóm stjörnunum en hún segist finna fyrir nálægð þeirra í kvikmyndaborginni Los Angeles. „Það getur verið afskaplega pirr- andi að allt skuh vera hér viö nefið á manni en samt er maður fjarri því. En ég geri mér grein fyrir að ég þarf að fara þá leið sem*ég er á núna. Ég vil svo mikiö en ég get ekki kvartað. Flestir þeirra sem útskrifuðust meö mér hafa haft lít- ið að gera og það er erfitt tímabil í leiklistarheiminum vegna krepp- unnar sem ríkir hér núna. Allra erfiðast er að vera hér og í New York ef maöur ætlar að vekja at- hygh á sér.“ Að sögn Jóhönnu er mikh vinna fólgin í því að kynna sig. Hún hefur eigin umboðsmann en hann sér aðahega um samningahliðina. Sjálf þarf hún að kynna sig fyrir því fólki sem hún vih tala við og fá vinnu hjá. „Ég þarf að vakna snemma á morgnana og fylgjast með því í fjölmiðlum og annars staðar hver sé að gera hvað og hringja síðan og mæla mér mót við fólk. Níutíu prósent af tímanum fer í að leita sér að vinnu og svo leikur maður hin tíu prósentin. Svoleiðis er nú vinna leikarans hér.“ -IBS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.