Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 16
LAÚGARDAGUR 7. DESEMBER 1991. 1B Ég hef komið víóa við í lífinu. Eins og fiestir aðrir. Síöastliðin tíu ár, og rúmlega þó, hef ég gert mér þaó til duhdurs að skrifa pistla í laugardagsblað DV. Viku eftir viku og ár eftir ár og flest af því er sett saman í dags- ins önn og hita augnabliksins. Blaóa- mennska gengur út á nútíðina og atburða- rásina. Dagblaðið frá því í gær er úrelt og úr sér gengið og flest þaö sem í því stendur. Mest af því sem ég hef látió frá mér fara í þessum pistlum er spilað af fingrum fram og ekki miklar bókmenntir. Ég skal meira að segja játa að ég hef aðallega gert þaó fyrir sjálfan mig að skrifa, fremur en fyrir aóra. Aldrei hvarflaði annaö aö mér en aö þessi skrif mundu gleymast og hverfa á gömlum, gulnuóum blööum í tímans rás. Samt er þaó svo aö fólk á förnum vegi, lesendur og viðmælendur, hefur stöku sinnum vitnað til þessara skrifa minna og haft á orði að gaman væri að fá meira aö heyra og þá í bókarformi. Nú hefur orðiö úr þessu. Ég hef tekið sam- an samtals þrjátíu og sex pistla og smásög- ur, sumt nýtt, annað lagfært, endursamió eða fært úr staö og tíma. Aó gefnu tilefni skal tekið fram að þessi bók er hvorki ævisaga né skáldskapur. Ein- hvers staöar mitt á milli þess aó vera blaóa- mennska, endurminningar, hugleiöing eöa ímyndun. Allt í senn og þó ekkert nema augnabliks andartök og tilbrigði úr dagsins önn. Gætu þess vegna verió ýmissa ann- arra hugsanir jafnt sem mínar. Frásagnir í fyrstu persónu eru að mestu leyti byggöar á persónulegri reynslu og færðar í stílinn. Sumt er satt og annað ekki. Þegar ég er spuróur um sannleiksgildió í skrifum mínum svara ég á þá leið aó mörk- in milli sannleikans og skáldskaparins skipti ekki máli ef frásögnin kemst til skila og ein- hverfinnursjálfan sig í þeim sömu sporum. Þaö sem getur hent mig getur líka hent aóra. Og öfugt. Aðalatriðið er aó lesandinn skynji bæói broddinn í textanum og kímn- ina á milli línanna. Og sársaukann þar sem það á vió. Raunar veró ég aó biðjast afsök- unar á þeim tilviljanakennda og óreglulega takti, sem er á milli alvörunnar og gaman- seminnar, sem stafar af því að það liggur misjafnlega á mér og auk þess hafa grein- arnar orðið til sín úr hverri áttinni. Ég bið lesendur um aó taka þessa bók ekki hátíðlega. Hún erekki nóbelsverk. Hún er hvorki gamansaga né lífsreynslusaga. Og þó hvort tveggja. Bókin er brot úr starfi og lífi og leik, sýnishorn af hugmyndaflugi, góólátlegt grín aö grafalvarlegum hlutum. Og hún er alvaran uppmáluð þegaralvaran gerist svo hlægileg aö óhjákvæmilegt er að hæöast aó henni. Þá er best að gera sjálfan sig aö aðhlátursefni, enda meióir maöur þá engan á meðan. Lesendur veróa að taka viljann fyrir verkió og eitt get ég aö minnsta kosti viðurkennt. Þaö sem í bókinni stendur er skrifað frá hjartanu og þaö sem hjartanu er kærast er tungunni tamast. Ætli efni bókarinnar megi ekki skilgreina sem lýsingu á fólki eins og þaö er flest. Af því dregur hún nafn. ÚTGEFANDI FRJÁLS FJÖLMIÐLUN. FÆST í ÖLLUM BÓKAVERSLUNUM. Svidsljós dv Eiizabeth Taylor. Fyrrver- andi tengda- dóttir Liz Taylor með eyðni Elizabeth Taylor hefur nú oröið fyrir enn einu áfallinu. Fyrrum tengdadóttir hennar, Aileen Getty, er veik af eyðni. „Ég komst aö því að ég var smituð fyrir fimm árum en nú hefur sjúkdómurinn brotist út. Læknarnir hafa sagt mér að ég eigi skammt eftir ólif- að,“ segir hún. Skilnaður Aileen við son Tayl- ors, Christopher Wilding, fyrir þremur árum var stormasamur og í kjölfarið fylgdu bitrar deilur um forræðið yfir sonunum Andrew og Caleb. Aileen er ein af þessum ríku stúlkum sem getur veggfóðrað hjá sér með peningaseðlum. Hún er erflngi Paul Getty auðæfanna en hún hefur samt aldrei verið ánægð. Aileen hefur neytt flkni- efna og verið í lausum sambönd- um. Hún þakkar fyrrverandi tengdamóður sinni fyrir góðan stuðning og segir hana hafa séð til þess að hún fengi bestu hugs- anlegu meðferð. „Elizabeth hefur aldrei dæmt mig eins og margir aðrir,“ segir hún. Börnin búa nú hjá Christopher. Hann fékk forræðið yfir þeim eft- ir að barnapían hafði borið vitni í rétti um það sem fram fór í íbúð Aileen á Manhattan. Sjálfur greindi Christopher frá því að Aileen hefðu tvisvar þurft að gangast undir skurðaðgerð á nefi og dvahð nokkrum sinnum á geð- sjúkrahúsi. Elizabeth Taylor hefur enn ekki tjáð sig um veikindi tengdadótt- urinnar fyrrverandi. Aileen Getty.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.