Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 18
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991. Veiðivon Haglabyssa gefin til æfinga fyrir byrjendur Fyrir fáum dögum var Skotfélagi Reykjavíkur afhent að gjöf frá BRNO-umboðinu í íslandi, Mikla- garði, heildsölu, haglabyssa af gerð- inni BRNO-SUPER SKEET sem er sérstaklega útbúin til leirdúfuskot- fimi. Haglabyssa þessi mun vera not- uð sérstaklega fyrir æfinga fyrir byijendur á skotæfingum félagsins. Það var Ólafur Jóhannsson frá Miklagarði hf. - heildsölu - sem af- henti Jóhannesi Jenssyni, formanni Skotfélags Reykjavíkur, byssuna upp á æfingasvæöi Skotfélagsins í Leir- dal. Að því búnu var byssan reynd á léttri æfingu strax á eftir og voru menn sammála um að þarna væri komin mjög góð byssa til æfinga. Mun byssan vera í vörslu stjórnar félagsins og einvörðungu vera notuð á auglýstum æfingatímum. Byssa af þessari gerð kostar um 120. þús. í verslun. Ennfremur er hægt aö fá ódýrari haglabyssur fyrir um það bil 50 þús. en þessar byssur eru framleiddar í tékknesku borg- inni BRNO. Aðrir viðstaddir voru Guðmundur Kr. Gíslason frá Mikla- garði og Helgi Bjömsson frá Skotfé- laginu. -G.Bender Ólafur Jóhannsson frá Miklagarði afhendir Jóhannesi Jenssyni, formanni Skotfélags Reykjavíkur, byssuna sem nota á fyrir byrjendur upp á skotsvæði félagsins. DV-GKG Svipuð ijúpna- veiði og í fyrra Rjúpnaveiðin er svipuð og i fyrra segja fróðir skotveiðimenn. DV-mynd Sigurður Kr. Margir landsmenn eru famir að hugsa gott til glóðarinnar að borða rjúpur í jólamatinn en þær þykja einkar góður matur. „Þetta er svipuð veiði og í fyrra, sýnist mér, best er þetta austur á héraði og vestur á fjörðum," sagði Sverrir Sch. Thorsteinsson skot- veiðimaður í vikunni. , „Ég hef heyrt í skotveiðimönnum víða um land og fyrir skömmu frétti ég af einum rétt hjá Húsavík, hann skaut 40 rjúpur. Sumir skotveiði- menn hafa ekki hátt um sína veiði en þeir fá margir þónokkuð af rjúpu,“ sagði Sverrir ennfremur og ætlaði til rjúpna næstu daga. -G.Bender Þjoðar- spaug DV Kjafta kerlingin Um annálaða kjaftakerlingu í Borgarfiröi var eitt sinn ort: Kristín heitir kona flá, kjafta beitir nöðrum. Sker og reytir mest sem má mannorðsfeiti af öðmm. : Ekki hægt að geymahann lengur Vinnukona í sveit var trúlofuð manni sem fór á vetrarvertíö til Vestmannaeyja. Ekki kom mað- urinn aftur á þeim tíma sem hann hafði lofað og því tók vinnukonan saman við annan mann, Arin- björn að nafni. Er konan sagði upp „vertíðarvininum“ gerðí hún það með þessari vístu Þreytt ég geymdi meydóminn, margur vildi haf ann. Á endanum varð ég uppgefin og Arinbirni því gaf ann, Vissari leggur Tveir stjórnmálamenn voru eitt sinn að hæla sér af því að þeir væru komnir af Finni biskupi. „Minn ættleggur er göfugri því aö ég er kominn af Finni í karl- legg en þú í kvenlegg," sagði arrn- ar stoltur. „Já, en minn er vissari," svar- aði hinn þá sigri hrósandi. aldur en hafði aldrei gifst. Ein vinkona hennar spurði hana einhverju sinni hvort eitt- hvað væri hæft í því að hún ætl- aði að fara að gifta sig. „Nei,“ svaraði Sigurveig ákveð- in, „en ég er þakklát fyrír orð- róminn.“ Ég ætlaöi eiginlega aö smygla einni viskíflösku en ég fékk samviskubit Nafn: á siðustu stundu. Heimilisfang: Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilis- fangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. verðlaun: SHARP stereo ferðaút- varpstæki með kassettu að verð- mæti kr. 6.380 frá Hljómbæ, Hverf- isg. 103. 2. verðlaun: Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.941. Bækumar, sem eru í verðlaun, heita: Á elleftu stundu, Falin markmið, Flugan á veggnum, Leik- reglur, Sporlaust. Bækumar em gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið fneð lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 132 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundrað og þrítugustu getraun reynd- ust vera: 1. Guðmundína Haraldsd. Víkurtúni 15,510 Hólmavík 2. Rúnar Jóhannesson Heiðarbr. 1E, 230 Keflavík Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.