Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
Kvikmyndir
Homo Faber eru latnesk orð sem geta
þýtt margt en meiningin er samt mann-
eskja sem afkastar óg gerir hlutina og trú-
ir á það. Aðalpersónan í nýjustu kvik-
mynd Volker Schlöndorff, sem gerð er eft-
ir skáldsögu Max Frisch, Walter Faber,
er Bandaríkjamaður á fimmtugsaldri,
verkfræðingur sem gengur vel í starfi.
Hann lærði í Ziirich og vinnur nú á vegum
Sameinuðu þjóðanna og ferðast vítt og
breitt um heiminn. Þegar flugvél, sem
gerðist, af hveiju það gerðist og hvemig
hann eigi að taka því sem geröist. Voru
það örlög eða tilviljun að þeir dramatísku
atburðir, sem við fáum að sjá, gerðust?
Gat ekki haldið mig
frábókinni
„Engin kvikmynda minna hefur náð
eins sterkum tökum á mér, ef undanskilin
ar, við óskum að svo sé ekki, en enginn
getur séð við örlögum sínum og Faber er
jafn einmana í lokin og við sáum hann í
byijun, enn ein ferðin að hefjast." Þannig
lýsir Schlöndorff Walter Faber, persón-
unni sem hann hefur hugsað um í mörg ár.
Volker Schlöndorff er einn af þekktustu
leikstjórum seinni tíma í Þýskalandi, var
einn af þeim sem náðu að reisa þýska
kvikmyndagerð úr þeirri lægð sem hún
lenti í eftir seinni heimsstyijöldina. Hann
..•••. •• •»>>•>
•: c x > 4 •> **
Sam Shepard
leikuraðal-
hlutverkið i
Homo Faber.
Hann er hér
meðBarböru
Sukowa.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
hann er farþegi í, neyðist til að lenda í
Sierra Madre eyðimörkinni í Mexíkó byija
hlutir að gerast sem eiga eftir að hafa af-
drifaríkar afleiðingar á líf hans.
Myndin byijar nokkrum vikum síðar á
flugvelli þar sem Faber bíður flugs. Hann
fer í huganum aftur í tímann og reynir
að koma einhverri skynsemi á þaö sem
gerðist. Og við fylgjumst síðan með Faber
þar sem hann fer nákvæmlega yfir hvað
er Tintromman," segir þýski leikstjórinn
Volker Schlöndorff. „í tólf ár var ég með
söguna á heilanum og það var ekki fyrr
en nú að ég þorði aö leggja í hana. Homo
Faber er eitt af meistaraverkum evrópsks
skáldskapar á þessari öld. Aðalpersónan
er maður sem hefur alla stjóm á lífi sínu,
hann byggir stíflur sem veita fólki öryggi
og hann trúir á það sem hann er að gera,
þar til snögglega, þegar hann nálgast
fimmtugsaldurinn, að lífi hans er skyndi-
lega snúið við og honum sýnt fram á að
það eru takmörk fyrir því hvað hægt er
að stjóma eigin lífi. Hann er þannig per-
sóna að áhorfandinn tekur við honum
umyrðalaust og við fyllumst þeirri von að
kannski sé það ekki rétt sem okkur grun-
hefur samt oft verið ásakaöur um að reyna
að gleyma því aö hann sé þýskur. Sjálfur
viðurkennir hann að hann hafl alist upp
við bandarísk áhrif og ávallt liðið best
þegar hann hlustaði á bandaríska tónlist.
Schlöndorff nam kvikmyndafræði í
Frakklandi og var staðráðinn í að festa sig
þar í sessi sem kvikmyndagerðarmaður.
Hann vann sem aðstoðarmaöur hjá Louis
Malle, Jean Pierre Melville og Alain
Resnais og horfði að jafnaði á þijár kvik-
myndir á dag. Hann segir að aö lokum
hafi hann komist að þeirri niðurstöðu
gegn vilja sínum aö hann væri ekki
franskur og það væri í raun hlægilegt að
reyna að vera þýskur leikstjórl í Frakk-
landi og hélt heim.
Kvikmyndar helst
gæðabókmenntir
Volker Schlöndorff sneri heim árið 1965
og leikstýrði fyrstu kvikmynd sinni, Der
junge Törless sem byggð er á skáldsögu
Robert Musil, og evrópskar bókmenntir
áttu eftir að vera honum sá heimur sem
hann sótti í.
Der junge Törless var valin besta kvik-
myndin af gagnrýnendum í Cannes 1966
og vakti athygli á honum. Síðan þá hefur
hann veriö afkastamikill kvikmyndagerð-
armaður og eru allar bestu kvikmyndir
hans gerðar eftir bókmenntaverkum,
meðal annars Tintromman (Die Blech-
trommel) sem gerð er eftir skáldsögu
Gunther Grass. Fyrir þá mynd fékk
Schlöndorff gullpálmann í Cannes.
Aðrar þekktar myndir, sem Schlöndorff
hefur leikstýrt, eru Die verlorene Ehre der
Katharina Blum, sem hann leikstýrði
ásamt Margarethe von Trotta, og Swann
in Love. í Bandaríkjunum hefur Schlön-
dorff leikstýrt Death of a Salesman, A
Gathering of Old Men og nú síðast
Landscape of a Waitress.
Flughræddur
aóalleikari
Aðalhlutverkið í Homo Faber leikur
leikarinn og leikritaskáldið Sam Shepard.
Schlöndorff segir að hann hafi hitt Shep-
ard fyrst rétt eftir að hann hafi lokið við
Tintrommuna og hafi þeim komið vel sam-
an. „Ég hgfði því hugsað mér Shepard í
hlutverk Faber, þar sem ég þurfti á banda-
rískum leikara að halda. Ég sendi honum
handritið og hann sagðist vera meira en
til í að leika hlutverkið, en einn galli var
á gjöf Njarðar, Shepard sagðist vera
hræddur viö að fljúga og færi helst aldrei
upp í flugvél. Þetta kom ftiér spánsk fyrir
sjónir þegar ég hugsað til þess að það var
einmitt Shepard sem lék Chuck Yager í
The Right Stuff, manninn sem fyrstur
braut hljóðmúrinn.
Þessi staðreynd varð þó ekki til þess að
ég hætti viö hann en ákveðin vandamál
komu þó upp. Homo Faber gerist bæði í
Mexíkó og víða í Evrópu og var kvikmynd-
uð á þeim stöðum. Þetta var ekki svo mik-
ið vandamál meðan kvikmyndað var vest-
an hafs en þegar hópurinn hélt til Evrópu
voru fá ráð góð. Lítið er um farþegaflutn-
inga með skipum og ekkert á þeim tíma
sem við vorum á. Shepard skildi vanda-
mál okkar og sagöist mun mundu geta
hugsað sér að fljúga í Concorde. Við urð-
um auðvitað alveg orðlausir en um leið
ánægðir. En eftir að til Evrópu kom neit-
aði hann algjörlega að fljúga meira.“
Homo Faber hefur fengið góðar viðtökur
gagnrýnenda og þykir með betri myndum
Volker Schlöndorff. Er myndin sýnd þessa
dagana í Regnboganum.
Með tilkomu Saga-bíós hafa um-
svif Sam-bíóa aukist verulega og
hafa aðstandendur fyrirtækisins
ákveðið aö í einum sal verði ávallt
sýndar listrænar gæðamyndir og
kemur fyrirtækið þannig til móts
viö stóran hóp kvikmyndaunn-
enda. Fyrsta myndin í þessum
flokki er nýjasta kvikmynd Bem-
ardo Bertolucci, The Sheltering
Sky, og eru þegar hafnar sýningar
á henni.
The Sheltering Sky er mikil og
vönduð kvikmynd sem segir sögu
þriggja Bandaríkjamanna, tveggja
karla og einnar konu, í Tangier.
Aöalhlutverkin leika John
Malcovich, Debra Winger og
Campell Scott. Þess má geta að eitt
hlutverk í myndinni leikur söng-
konan geöþekka, Amina, en hún
heimsótö okkur fyrir stuttu og
söng við mikla hrifiúngu á Hótel
íslandi. The Sheltering Sky hefur
fengið misjafna dóma og misgóðar
Jessica Lange leikur aöalhlutverkið i nýjustu kvikmynd Cosia Cavras,
The Music Box.
eru Debra Winger og John Malcovich í hlutverkum sínum.
viðtökur og er það ekki óvanalegt
þegar um er að ræða myndir Berto-
luccis.
Aðrar kvikmyndir, sem sýndar
verða á næstunni undir heitinu
Gullroolar, eru til dæmis nýjasta
kvikmynd Bruce Beresfonl, Mr.
Johnson, Mountain of the Moon
sem Bob Rafelson leikstýrir,
franslca myndin Romald og Juliet
sem Coline Serreau Ieikstýrir,
Meeting Venus sem Istvan Szabo
leikstýrir, The Music Boxsemleik-
stýrð er afCosta Cavrasog jafnvel
nýjasta kvikmynd Luc Besson, Atl-
antis. Allt eru þetta úrvalsrayndir :
sem ættuaðgleðja alla kvikmynda-
unnendur.
-HK