Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Side 25
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991. 25 Hann skyldi vera á því allajóla- dagana og þann tíma var matur settur fram. Það var gert til þess að gestir „bæru ekki jólin út“ - en sú setning er vel þekkt á okkar dögum. Ekki mátti „hafa rangt við“ með kertin Q)að er að segja, ekki mátti klippa kveikinn) og ekki mátti slökkva á þeim. Það síðastnefnda var afar rrúkilvægt, ekki síst á heimilum efnafólks - þar sem hver heimilismaður átti sitt kerti á aðfangadagskvöld. Væri slökkt á kerti dæi sá fyrstur sem það átti. Oft var sett aukakerti út í glugga. Það átti að vera til leið- sagnar þeim er á ferð kynnu að vera svo þeir færu ekki hjá bæn- um. En það átti einnig að vísa veginn látnum úr fjölskyldunni sem trúað var að kæmu heim þetta kvöld og um nóttina. Á nokkrum heimilum var einnig borinn fram matur fyrir gestina ósýnilegu. Væri það eitthvað sérstakt sem fólk vildi sérstaklega fá svar við mátti á aðfangadagskvöld opna Eiblíuna af handahófi. Það vers, s em þá kom fyrir sjónir manna, var, án nokkurs vafa, svarið við leyndustu spurningum sem leit- i.ðuáfólk. Margir réttir, sem enn eru á borðum á aðfangadagskvöld, eru í rá þeim tíma er sólhvarfahátíðin ' 'ar haldin. En sú hefð að gefa 1 lúálfmum graut er án efa miklu eldri en sólhvarfahátíðin. Á þeim 1 ímum fómuðu menn grauti vel- úljuðum guöum sem áttu sér jústað í nágrenni heimilisins. Grautur hins löngu hðna tíma var venjulegu gerður úr vatni og peim gijónum sem til voru. Að- sins við hátíðleg tækifæri vom gijónin soðin í mjólk og rétt eftir 1800 varð það að almennum sið að sjóða dýr hrísgijón í mjólk. En það var auðvitaö aðeins gert á heimilum þeirra efnameiri. Um 1900 varð til nýtt afbrigði af hrísgijónagraut, hrísgijóna- grautur með möndlum sem ijóma var hrært í. Þetta nýja af- brigði af gamla grautnum er nú borið fram sem eftirréttur. Á gömlum sveitabæjum voru möndlugjafir óþekktar, enda em þær ný „uppfmning“. Svínasteikin á jólunum á sér langa sögu. Hún er frá fómarhá- tíðum fyrir kristinn sið þegar stærsta gelti ársins var fómað fijósemisgyðjunni Freyju svo að hún gæfi „ár og frið“. Áður en „hnífurinn gekk í svín- ið“ var það fært inn í skálann þar sem menn stórhóndans end- umýjuðu tryggðaheit sín með aðra hönd á haki dýrsins. Nýárs- heit okkar em vafahtið leifar af þessum hátíðarsið. Þegar svíninu hafði verið slátr- að og bestu hlutunum fómað Freyju var þaö sem eftir var af dýrinu matreitt og borið fyrir við- stadda. Að snæða gæsir er nýr siður sem breiddist út frá borgarastétt- inni um landsbyggðina í lok nítj- ándu aldar enda var það fyrst þá að menn á stórum sveitabæjum fóru að hafa efni á shkum mun- aði. Á Borgundarhólmi mátti eng- inn sofa einn á jólanótt. Allir sváfu í, jólahálminum“, en miklu af hálmi var sáldrað á stofugólfið og þar svaf aht heimihsfólkið til að minnast fæðingar Jesú í fjár- húsinu. En þessu réð líka annað. Fólk trúði því að þessa nótt dveld- ust þeir látnu heima og þeir áttu aðsofaírúmunum. Þýð.: ÁSG X val SMIÐJUVEGI 30 - KÓPAVOGI SÍMI 72870 SÓFASETT - HÆGIND ASTÓLAR - HORNSÓFAR - FATAHENGI - SPEGLAR - HRÚGÖLD - STANDLAMPAR - SÓFASETT OG MARGT, MARGT FLEIRA HUSGOGN í ÚRVALI LAUSAM0L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.