Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991.
Skák DV
Tölvuforrit varpa nýju
ljósi á einföld endatöfl
Þótt skáklistin í sinni núverandi
mynd hafi veriö iökuð í fimm
hundruð ár er enn verið að upp-
götva ný sannindi. Slíkir eru mögu-
leikar skákarinnar að nærri lætur
að brunnur hennar sé ótæmandi.
Nú hefur skákmeisturum bæst
hðsauki í formi „kísilflögu-
véfrétta“ eins og stórmeistarinn og
stærðfræðidoktorinn John Nunn
kýs að nefna tölvuforrit sem sér-
fróð eru um ákveönar, einfaldar
endataflsstöður. Véfréttir þessar
hafa heldur þrengra svið en var til
foma og ráða t.a.m. ekki við spurn-
ingar um tilgang lífsins og tilveru
Guðs, eins og Nunn kemst að orði.
En um alit sem lýtur að einfóldum
endataflsstöðum má fá skjót og
greið svör.
Nunn athugaði endatafl sem oft
hefur kostaö andvökunætur skák-
meistara - hrók og biskup gegn
hróki - fræðilegt jafntefli sem þó .
getur verið snúið að sanna í tefldri
skák. Til skamms tíma gerðu skák-
reglur FIDE undantekningu frá 50
leikja reglunni (skákin jafntefli ef
peði hefur ekki verið leikið og eng-
inn maður drepinn í 50 leiki) og
leyfði að endatafl þetta mætti tefla
helmingi lengur. Astæða þess er sú
að mögulegt er að stilla upp stöðum
þar sem tékur yfir 50 leiki að máta.
Nú hefur hins vegar verið horfið
frá þessu aftur, mörgum skák-
manninum til mikils léttis.
Meö því að ráðfæra sig við vé-
fréttina komst Nunn að því að
sterkir stórmeistarar gerðu sig
seka um mörg mistök í þessu erfiða
endatafli sem vissulega lætur ekki
mikið yfir sér. Nunn og véfréttin
fundu einnig villur í þekktum
skákþrautum og rannsóknum.
Hér er staða sem ætti að vera
norðlenskum skákáhugamönnum
kunn. Hún er úr skák sem tefld var
fimm morgna í röð á alþjóðamótinu
á Akureyri 1988. Á þessu ári mátti
tefla endataflið í 100 leiki og Mar-
geir Pétursson, sem hafði hrókinn
og biskupinn, nýtti sér þann rétt
til hins ýtrasta gegn Helga Ólafs-
syni. Báðir gjörþekkja þessa stöðu,
enda fór svo að Margeir komst ekk-
ert áleiðis. Þeir sömdu um jafntefli
eftir 163 leiki og mun þetta vera
lengsta skák sem tefld hefur verið
á íslandi!
Nunn mataði tölvuna góðu á
þessu endatafli og viti menn, hún
var fljót að sjá það út að Margeir
- sigrar tölva heimsmeistarann innan árs?
hefði getað unnið taflið á einum
stað - fleiri tækifæri fékk hann
hins vegar ekki. Helgi hafði hvítt
og átti að leika sinn 98. leik í þess-
ari stöðu:
Eini leikurinn í stöðunni er 98.
Hfö! en Helgi lék hins vegar 98.
Kcl? með hugmyndinni að svara
98. - Kc3 með 99. Hc2 + ! Bxc2 patt
og jafntefli. Eftir 98. - Kd4? 99. Hf2
var hvítur aftur kominn á rétta
braut og 65 leikjum síðar var samið
um jafntefli.
Úrskurður „véfréttarinnar" er sá
að skákin sé unnin eftir 98. - Hal +
99. Kb2 Hhl! og áfram 100. Ka3
Kc3, eða 100. Hg2 Hbl+ og næst
101. - Kc3, og hvítur lendir í hinni
frægu Philidor-stöðu og tapar í
fáum leikjum.
Sigur í 223 leikjum
Áreiðanleiki tölva í stöðum af
þessu tagi gjörbreytir aðstöðu
manna við biðskákarannsóknir.
Biðskákum hefur raunar fækkað
rpjög með breyttum tímamörkum
og líklegt er að innan fárra ára til-
heyri þær liöinni -tíð. Nærtækt
dæmi er 16. einvígisskák Karpovs
og Kasparovs í Lyon. Kasparov
fann ekki vinningsleiðma meö
hrók gegn biskupi, lék hlutlausa
leiki og kom skákinni í bið. Eftir
að hafa skoðað stöðuna heima var
hann fljótur að vinna úr henni og
knýja Karpov til uppgjafar. Ka-
sparov þvertók fyrir að tölva hefði
aðstoðað sig við heimalærdóminn
en heimsmeistarinn hefði þó hæg-
lega getað borið niðurstöður sínar
saman við tölvu - svona til öryggis.
Tölvur hafa þegar lagt sitt að
mörkum við þróun skákhstarinn-
ar. í þessum einfoldu endatöflum
er besta taflmennska að mati tölv-
Enski stórmeistarinn og stærðfræðidoktorinn John Nunn er einn þeirra
sem nýtur aðstoðar tölvu við að rannsaka einföld endatöfl, enda eru
yfirburðir hennar ótvíræðir á því sviði.
Skák
Jón L. Árnason
unnar oft óskiljanleg mannsheilan-
um, rétt eins og einhver grundvall-
arsannindi skákborðsins séu hon-
um enn hulin.
Sjáið þessa stöðu hér þar sem
hvítur hefur hrók og biskup gegn
tveimur riddurum:
8
7
6
5
4
3
2
1
ABCDEFGH
Þetta er óvepjulegt endatafl sem
ætla mætti að sé jafntefli svo fremi
svartur leiki ekki af sér riddara.
Sú var a.m.k. skoðun spekinganna
fyrir tilkomu tölvanna en nú þurfa
þeir að endurskoða hug sinn. í
bandaríska tímaritinu Scientific
American er greint frá því að tölvu-
forrit Lewis B. Stíiler, nemanda við
John Hopkins háskóla í Bandaríkj-
unum, hafi sýnt fram á að hvítur
vinni þvingað í 223 leikjum!
Forrit Stillers er ætlað það verk-
efni að rannsaka allar stöður án
peða þar sem tveir kóngar og fjórir
menn eru einir á borðinu. Forritið
þurftí að fara í gegnum og skrá 100
milljarða mismundandi stöður.
Það byrjar verkið á þeim fáu stöð-
um þar sem hvítur vinnur. Spinnur
síðan leikina aftur á bak. Þannig
er staðan hér að framan fundin og
lokastaðan, 122 leikjum síðar, lítur
þannig út:
Svartur á leik. Hann er í leik-
þröng og kemst ekki hjá því að tapa
öðrum riddaranum er eftirleikur
hvíts verður auðveldur.
Bandaríski básúnuleikarinn og söngvarinn
FRANK LACY
TÓMAS R. EINARSSON bassi
SIGURÐUR FLOSASON saxófónn
KJARTAN VALDEMARSSON píanó
EINAR SCHEVING trommur
■k/erða með tónleika:
Föstudaginn 6/12 kl.2l:30 PÚLSINN v/ Vitastíg
Laugardaginn 7/12 kl.2l:30 PÚLSINN v/ Vitastíg
Sunnudaginn 8/12 kl.2l:30 HÓTEL SELFOSS
Þriðjudaginn 10/12 kl.21:30 PÚLSINN v/ Vitastíg
UMMÆLI GAGNRÝNENDA Á
ÍSLANDSFÖR TÓMASAR R.
EINARSSONAR
“íslendingar eru orðnir gjaldgengir í
djassútflutningi” VemharÖur Linnet,
MorgunblaðiÖ.
“þetta er áreiöanlega besta djassplata
okkar til þessa” GuÖmundur Andri
Thorsson, Þjóðviljinn.
“er það skoðun margra að þar sé að
fínna bestu djasstónlist sem komið
hefur út eftir íslenskan kómpónista”
Hilmar Karlsson DV.
Samkvæmt tímaritsgreininni
virðast mennirnir dansa stefnu-
laust um borðið fyrstu 200 leikina
eða svo og það er ekki fyrr en und-
ir lokin sem taflið verður mennsk-
um mönnum skiljanlegt.
Þetta leiðir hugann að ýmsum
öðrum endataflsstöðum sem sér-
fræðingar hafa þurft að skoða hug
sinn til. T.a.m. hefur verið sýnt
fram á að endataflið tveir biskupar
gegn riddara er unnið og drottning
vinnur gegn tveimur biskupum
sem talið var jafntefli í virtum,
gömlum endataflsbókum.
Á þessu afmarkaða sviði ein-
faldra endataíla hefur tölvan ótví-
ræða yfirburði. Frá upphafsstöð-
unni hefur heimsmeistarinn Ka-
sparov hins vegar enn vinninginn,
hversu lengi sem það verður. Töl-
van Deep Thought, sem er í eigu
IBM, lagði sitt af mörkum við rann-
sóknir á skákum Karpovs og Ka-
sparovs í New York og Lyon í fyrra
og hafði sitthvað við taflmennsku
meistaranna að athuga. Nú er stór-
lega endurbætt útgáfa hennar í
smíðum sem búist er við að verði
tilbúin eftir ár. Hönnuðir hennar
segja að með tilkomu hennar muni
tölvur endaniega slá mannsheilan-
um við á skáksviðinu.
Lengsta skákþrautin
Úr því 200 leikja skákir eru til
umraeðu er ekki úr vegi að líta á
lengstu tafllok sem samin hafa ver-
ið úr löglegri stööu og án þess að
maður hafi verið vakinn upp. Staö-
an er eftír Hetherington og Morse.
Hvítur á leikinn og á að máta í 226
leikjum!
Fyrstu leikimir eru 1. Bh2+ Kf3
2. De3+ Kg2 3. Dgl+ Kf3 4. Dfl +
Kg4 5. De2+ Hf3 6. De6+ Hf5 og nú
7. Rd7. Svartur leikur best 7. - Kf3
og þá koma sömu drottningarskák-
ir og áður (8. Dxf5+ Kg2 er ekki
eins sterkt), fyrst 8. De3+ - og
þannig endurtekur sagan sig.
Hvítur bætir smám saman stöð-
una með 13. Kb2, 19. Kcl 25. Kdl
og nú neyðist svartur til að leika
25. - a3 (því að 25. - Kf3 26. De2 er
mát). Þá kemur 26. Kcl, 32. Kbl, 38.
Ka2 og 44. Kxa3 - alltaf fimm
drottningaskákir á milli.
Áfram á sama hátt og síðan 62.
Kdl a4 63. Kcl, 69. Kdl a5 70. Kcl,
76. Kdl a6 77. Kcl Kf3, 83. Kdl og
þá verður svartur að leika 83. - a3.
Eftir 102. Kxa3 heldur taflið áfram
sem fyrr þar tíl hvítur vinnur
þriðja a-peðið á a3 í 153. leik.
Hvítur leikur síðan í 178. leik Kdl
og svartur reynir að þæfa taflið:
178. - c4179. Kcl Kf3180. De3 + Kg2
181. Dgl+ Kf3 182. Dfl+ Ke4 183.
Dxc4+ KÍ3 184. Dfl+ Kg4 185.
De2+ Kf3 186. De6+ Hf5 187. Kdl
a3 og síðasta a-peðið fellur loks í
206. leik.
Eftír 224. Kdl er svartur loks
kominn í leikþröng. Lokin eru 224.
- RhfB 225. Rf6 + Kf3 226. De2 mát.
-JLÁ