Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Page 32
32 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991. Memiing Kristján Kristjánsson sendir frá sér plötuna Lucky One: Menn verða að passa sig á að brenna ekki upp „Maður getur spilað eins mikið og maður vill hér á landi. Það er þó vissara að fara varlega og brenna ekki upp á skömmum tíma,“ segir Kristján Kristjánsson tónlistarmaður. Hann sendi nú í vikunni frá sér sína fyrstu stóru plötu, Lucky One. „Þetta eru ellefu lög,“ segir Kristján sem alla jafna er aðeins kallaður KK. „Sum eru ný. Önnur hef ég haft með í farteskinu í nokk- ur ár. Svo hafði ég eitt erlent með, svona til gamans. Lagið gamla I Got A Woman.“ Kristján starfaöi um árabO sem tónlistarmaður í Svíþjóð. Hann kom heim í september í fyrra og hefur síðan sett mikinn svip á tón- listarlífið hér á landi, aðallega á höfuðborgarsvæðinu. „Ég er alls ekki á leið úr landi á ný. Eg er kominn til að vera,“ segir hann. „Það er hins vegar hverjum- manni hollt að reyna fyrir sér utan landsteinanna. Þá kann maður fyr- ir vikið miklu betur aö meta landið en áður.“ Með Kristjáni á Lucky One er einvala lið. Mágur hans, Eyþór Gunnarsson, leikur á hljómborð og stjómar útsetningum. Aðrir aöal- menn á plötunni eru Þorleifur Guð- jónsson bassaleikari og Matthías Hemstock sem leikur á trommur. Ýmsir fleiri koma við sögu svo sem Sigtryggur Baldursson, Guðmund- Kristján Kristjánsson tónlistarmaður. Hann hitti einn (ærasta banjóleikara Svía i veislu og réð hann á staðnum til að spila á plötu sinni. ur Pétursson og Magnus Edring, sænskur tónlistarmaður sem leik- ur á fimm strengja banjó. „Þú verður að taka fram að það sé fimm strengja banjó,“ segir Kristján og hlær. „Þaö er allt annað hljóðfæri en heföbundna banjóið. Það eru aðeins virtúósarnir sem ráða við fimm strengja banjóin með einhverjum árangri. Við Þorleifur rákumst á einn færasta banjóleik- ara Svía ytra þegar við vorum þar að spila, hittum hann og félaga hans í partíi og spurðum hreint út hvort hann væri ekki til í að spila með okkur á plötu. Hann hélt nú þaö og við bókuðum okkur snar- lega í stúdíó í Malmö og tókum upp.“ Kristján Kristjánsson fylgir Lucky One eftir þessa dagana með hljómleikahaldi. Hann er til dæmis nú um helgina á Akureyri ásamt hljómsveit sinni. í henni eru Ellen Kristjánsdóttir, sem raddar og syngur, Eyþór Gunnarsson, Þor- leifur Guöjónsson og Sigfús Óttars- son trommuleikari. Hljómsveitin var upphaflega stofnuð til að starfa saman í tvær til þrjár vikur. KK segir hins vegar að allir hafi svo gaman af samstarfinu að óvíst sé hvort hljómsveitin verði lögð niður á fyrirfram ákveðnum tíma. Henni verði allt eins gefið mun lengra líf en örfáar vikur. Plata Rafns Jónssonar selst vel: Viðtökumar langt fram úr björtustu vonum Rafn Jónsson hefur fengið gullplötu fyrir þrjú þúsund seld eintök af Andartaki. Nýlega fékk hann einnig feng- ið platínuplötu fyrir góðan árangur. „Ég vissi ekkert við hverju ég mátti búast. Pantaði þó átta þúsund eintök. Það voru svo að koma fimm þúsund til viðbótar nú í vikunni svo að upplagiö er komið í þrettán þúsund ein- tök,“ segir Rafn Jónsson, trommuleikari og útgefandi plötunnar Andartak. Sala plöt- unnar hingað til hefur gengið ákaflega vel, enda rennur ágóð- inn til styrktar málefnum fatl- aðra. Rafn og söngvararnir, sem koma fram á Andartaki, fengu afhentar platínuplötur fyrir aö hafa náð 7.500 eintaka markinu í beinni útsendingu á Stöð tvö aðfaranótt síðasta sunnudags. Þá var efnt til hljómleika í Perl- unni þar sem Rafn og fjöldi annarra hljómlistarmanna kom fram. Meðan á beinu út- sendingunni stóð birtist nokkr- um sinnum texti þar sem aug- lýst var símanúmer sem þeir máttu hringja í sem vildu kaupa plötuna og styrkja um leið gott málefni. „Símanúmerið var frekar sjaldan sýnt en viðbrögðin voru samt ótrúleg," segir Rafn. „Fólkið sem sat við símana varð að vinna til fjögur um nóttina til að anna öllum pöntunum." Andartak hefur fyrst og fremst verið seld i símasölu. Það fyrirkomulag verður haft áfram fram í miðjan mánuð. Þá fæst platan einnig í nokkrum hljómplötuverslunum, aðallega á höfuðborgarsvæðinu. Bjartmar Guðlaugsson. Fyrstu tvær plöturnar hans koma nú út á einum geisladiski. Geimsteinsútgáfan með fjóra geisladiska: Fimmtán ár frá fyrstu Brimklóarplötimni Geimsteinn, hljómplötuútgáfa Rúnars Júlíussonar í Keflavík, er með í jólaslagnum sem endranær. Þar á bæ eru nýkomnir út fjórir geisladiskar. Aðallega er um endurút- gáfur að ræða. Stefna Rúnars er að gefa sem mest af áður útkomnum plötum Geimsteins- útgáfunnar út á diskum. I ár voru fimmtán ár liðin frá því að hljóm- sveitin Brimkló sendi frá sér sína fyrstu stóru plötu, Rock’n’Roll öll mín bestu ár. Rúnari fannst rétt að minnast þeirra tíma- móta með því að gefa plötuna út á geisla- diski. Þá kemur út hjá Geimsteini diskur með tveimur fyrstu plötum Bjartmars Guð- laugssonar; Ef ég mætti ráða og Venjulegur maður. Þriðji geisladiskurinn frá Geimsteini er Til eru fræ. Þar leika Rúnar Georgsson og Þórir Baldursson nokkur vel þekkt íslensk lög. Er platan kom út áriö 1986 voru á henni tíu lög. Rúnar og Þórir hafa bætt fjórum lögum við á geisladiskinn, lögunum Fallinn, Umsjón Ásgeir Tómasson Sofðu unga ástin mín, Brúðarskórnir og Ég sá ljósiö. Fjórði Geimsteinsdiskurinn er í ævintýra- leik. Þar færir Gylfi Ægisson tvö vel þekkt Ævintýri, Tuma þumal og Jóa og bauna- grasið, í sinn búning með hjálp sögumanna og söngvara. Gylfi vann með þessum hætti nokkur gömul og þekkt ævintýri á árum áður og eru Tumi og Jói þau fyrstu sem koma út á geisladiski.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.