Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 39
íiÁÚGARtíAtíÚR 7. bÚSEMBER 1991.
51
Trimm
Kennir listdans á skautum:
Þetta er svo
skemmtilegt
- segir Þórunn Ósk Rafnsdóttir
Einbeiting og jafnvægisskyn eru
mikilvæg atriði i iistdansinum.
„Ég byrjaði að kenna í september
og þetta er einu sinni í viku, á
sunnudagsmorgnum. Þetta eru
þrír hópar og hver þeirra er í fimm-'
tíu mínútur í senn. Það er ísknatt-
leiksfélagið ísbjörninn sem stendur
fyrir þessu en það hafði samband
við mig og bað mig um að sjá um
þetta. Viðtökumar hafa verið mjög
góðar og það rná segja að það sé
fullbókað. Þetta hefur verið voða-
lega lítið auglýst enda virðist ekki
hafa verið þörf á því,“ sagði Þórunn
Ósk Rafnsdóttir í samtali við DV.
Líka fyrir
stífa og stirða
Á skautasvellinu í Laugardal er
nú boðið upp á kennslu í hstdansi
á skautum og það er einmitt Þór-
uim sem sér um kennsluna en áður
en lengra er haldið er réttast að
fræðast um það hvað listdans á
skautum er. „Þetta er mikill sjálfs-
agi og krefst þess að viðkomandi
hugsi mikið um það sem hann er
að gera. Nákvæmnin verður að
vera til staðar og í raun er þetta
líka nokkurs konar listræn tjáning.
Einbeitingin verður að vera í lagi
og sömuleiðis er jafnvægisskynið
mikið atriði. Það má segja að list-
dans sé rosalega mikil nákvæmni
og það skiptir miklu máli hvemig
líkamanum er beitt.“
Listdans, eins og nafnið reyndar
gefur til kynna, má túlka sem dans
á skautum og líkt og í venjulegum
dansi spilar tónlistin stórt hlut-
verk, enda erfitt að ímynda sér
þetta án hennar. Þeir sem em stífir
og stirðir þurfa þó ekki að hafa
neinar áhyggjur því að Þórunn seg-
ir að það geti allir lært að renna
sér á skautum. Munurinn á því að
renna sér á skautum, eins og flestir
gera, og svo að vera í listdansi er
töluverður. Því síðarnefnda fylgir
að viðkomandi reyni ýmsar kúnst-
ir, eins og hopp og stökk, og það
er nokkuð sem er aðeins komið inn
á hjá Þórunni.
Stelpur í listdansi
og strákar í íshokkíi
„Það þarf mikla nákvæmni í það
að stökkva og þá verður að beita
líkamanum á réttan hátt. Þetta er
erfitt. Þú kannski stekkur sama
stökkið 1 mánuð áður en þú nærð
því og maður er marga mánuði að
æfa hringina."
Fólk á öllum aldri rennir sér á
skautasvellinu og t.d. er einn um
áttrætt sem mætir reglulega. Hann
mætti í fyrsta skiptið með barna-
börnin í fyrra og hefur ekki látið
deigan síga síðan. í hópunum hjá
Þórunni em mestmegnis stelpur.
Þegar á hana er gengið kemur í ljós
að aðeins einn strákur er í hst-
dansi og hann þykir nokkuð góður
sem sýnir kannski að þetta er alveg
eins fyrir þá eins og stelpumar.
Þátttakendurnir em ahir byrjend-
ur en námskeiðið, sem nú stendur
yfir, er einmitt ætlað slíkum. Sú
yngsta er þriggja ára en sú elsta
sextán eða sautján ára. Ekki veit
Þórunn skýringuna á því hvers
vegna strákamir em svona feimnir
við þetta en eitthvað er þetta e.t.v.
Þórunn Ósk með nokkrum nemenda sinna.
DV-myndir Brynjar Gauti
Yngstu nemendunum í listdansinum þykir gott að fá stuðning Þórunnar
Óskar.
að snúast við eins og þróunin í al-
mennum dansi sýnir glögglega.
Þegar htið er á íshokkíið kemur
hins vegar í ljós að þar er kynja-
skipting svipuð og í hstdansi nema
hvað hlutfalhð er algjörlega öfugt,
þ.e.a.s. nær eingöngu strákar eru í
þeirri grein. Ekki er gott að finna
neina einhhta skýringu á þessu en
Þórunn hahast að því að strákarnir
sæki í það vegna spennunnar og
hraðans.
Þykktleður
og sterkt stál
Námskeiðið hjá Þómnni stendur
yfir til áramóta en það hófst í sept-
ember eins og áður er komið fram.
Kostnaður á hvern þátttakanda er
kr. 5.000. Það sem til þarf er eitt
par af skautum en engar sérstakar
kröfur em gerðar um klæðaburð.
Þó vih það brenna við að sumir séu
of mikið dúðaðir og þá vill það
hamla hreyfingum. Ekki er þó
hægt að fara fram á að stelpurnar
séu í sokkabuxum, sem væri auð-
vitað mjög hentugt, því yfirbygg-
ingin er ekki til staðar enn sem
komið er. Aðstaðan á skautasveh-
inu í Laugardalnum er samt sem
áður orðin mjög góð. Fyrst var
notað hituveitavatn en nú er notað
kalt vatn sem er hitað upp og það
er víst miklu betra. í hstdansinum
eru notaðir sérstakir skautar en
þá mun ekki vera hægt að kaupa
hérlendis og því brúka flestir
„gömlu“ skautana. Skautar fyrir
listdansinn hafa sérstaklega þykkt
leður og sterkt stál sem þarf sjaldan
að skerpa. Nýir skautar eru eihtið
dýrir en á móti kemur að þeir duga
árum saman og Þórunn nefnir að
hennar eigin séu búnir að endast
henni í meira en áratug.
„Frumraunin í kennslu hjá mér
var á Akureyri í fyrra en munurinn
á þessum tveimur stöðum er fyrst
og fremst sá að aðstaðan er miklu
betri hér í Reykjavík. Þetta hefur
gengið mjög vel og er mjög vinsælt
og ég held að það sé engin spurning
að þetta er framtíðaríþrótt, einfald-
lega vegna þess að þetta er svo
skemmtilegt. Ég sé það líka fyrir
mér að við eigum eftir að keppa í
þessu en það verður þó auðvitaö
ekki fyrst um sinn.“
Áhyggjulaus
á svellinu
Á námskeiðinu hjá Þórunni er
m.a. stílað upp á að þátttakendurn-
ir verði öruggir á sveUinu, læri að
fara fram og aftur og beygja og
einnig einfóldustu stökkin og
skrefin. Einnig eru kenndir hringir
en fyrir þá sem það vilja læra væri
æsldlegast að hver og einn sækti
einkatíma því þar þarf mikla ná-
kvæmni. Þess má geta að í hveijum
hópi eru 10 nemendur en óvíst er
hvort boðið verður upp á fram-
haldsnámskeið.
Þórunn, sem er 26 ára, kynntist
þessu í Lúxemborg en þar hefur
hún búið mikinn hluta ævinnar.
Hún fór lítið á skauta hér heima
sem krakki en í Lúxemborg kvikn-
aði áhuginn og hún fór að stunda
þetta reglulega. Hún keppti htiUega
í þessu og náði ágætum árangri en
kaus frekar að leggja fyrir sig
kennslu og hefur nú tekið fjögur
fyrstu stigin í Ustdansinum. Það er
fer ekkert á mUli mála að skauta-
íþróttin á sterk ítök í Þórunni en
hvað er það sem er svona skemmti-
legt. „Þetta er svo fjölbreytt og t.d.
er mjög gaman að snúa sér í hringi
en í rauninni er maður alltaf að
gera eitthvað nýtt. Á svellinu er ég
líka áhyggjulaus og þá gleymist
allt annað. Kennslan gefur mér Uka
mjög mikið og það er mjög gaman
að fylgjast með krökkunum," ságði
Þórunn. _qrs
S U Z U K I
A E R O B I C
Skráningarstaðir:
Reykjavik: Suzuki bílar hf„ Gym
80, Stúdíó Jónínu og Ágústu,
Ræktin og World Class.
Kópavogur: Alheimskraftur
Hafnarfjöröur: Hress
Keflavik: Líkamsrækt Önnu Leu
og Bróa,
Æfingastúdíó og Perlan
Akureyri: Dansstúdíó Aiice
ísafjöröur: Studio Dan