Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Side 48
OTTÞETT UNGLINGABOK
60
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991.
Fii
EFTIR VERÐLAUNAÐAN
OG MARGFALDAN
METSÖLUHÖFUND
EÐVARÐ INGÓLFSSON
Gegnum bernskumúrinn er
spennandi unglingabók sem
fjallar um Birgi 15 ára. Móðir
hans á við drykkjuvandamál
að stríða og hann tekur það
nærri sér. Hann þorir aldrei að
bjóða félögum sínum heim af
ótta við að upp komist.
Inn í söguna fléttast ástamál,
samskipti við skólafélagana—
gleði þeirra og vonbrigði með
tilveruna.
Eðvarð er höfundur metsölu-
bókanna Fimmtán ára á
föstu, Sextán ára í sambúð,
Haltu mér — slepptu mér!
svo að einhverjar séu nefndar.
Eðvarð hlaut verðlaun Skóla-
málaráðs Reykjavíkur fyrir
bestu frumsömdu barna- og
unglingabókina 1988, Meiri-
háttar stefnumót.
GEGNUM BERNSKUMÚRINN
ER POTTÞÉTT UNGLINGABÓK
Sviðsljós
Bilinn til vinstri notaði fjölskyldan sem ísskáp. Ruslið í garðinum fór
ekki fram hjá nágrönnunum sem ekki datt i hug að kanna frekar aðstæð-
ur Darryls litla.
Lokaður frá umheiminum í ellefu ár:
Enginn
þorði
að skipta
sér af
Það var þegar lögreglan í Surrey
var að rannsaka þjófnað fyrir
tveimur vikum sem hún bankaði
upp á hjá Rosemary. Þegar enginn
kom til dyra klifraði lögreglan inn
um glugga og fann þá Rosemary
og ellefu ára gamlan son hennar,
Darryl, sofandi.
Lögreglan fann einnig níutíu dýr
í húsi þeirra og af þeim voru fjöru-
tíu og fjögur dauð. Lögreglan óð í
saur og öðrum skít.
Viö frekari rannsókn kom verra
í ljós. Darryl hafði aldrei verið lát-
inn ganga í skóla og hann átti enga
vini. Og þá vöknuðu spumingar
um hvers vegna enginn hefði gert
neitt í málinu, eins og til dæmis
nágrannar, félagsmálayflrvöld eða
kirkjan. Fæðing Darryls hafði ver-
ið skráð hjá yfirvöldum.
Nágrannar Rosemary, sem
höfðu séð hana og drenginn næst-
um daglega í áratug, urðu skelfingu
lostnir þegar í ljós kom viö hvaða
aðstæður drengurinn hafði ahst
upp. Bömin í hverfinu vissu að
drengurinn gekk ekki í skóla og
töldu hann bara heppinn.
En ruslahaugurinn í garðinum
hjá Rosemary hafði samt ekki farið
fram hjá nágrönnunum. Ná-
grannakonan í næsta húsi hafði
margoft beðið um aðstoð mein-
dýraeyðis vegna rottanna og mús-
anna sem komu úr næsta garði.
Allir vissu af tilvist drengsins en
engum hafði dottið í hug að hanka
upp á til að bjóða aðstoð sína eða
til að athuga að allt væri í lagi með
hann. Allir gerðu ráð fyrir aö fé-
lagsmálayfirvöld myndu láta málið
til sín taka.
Yfirmaöur félagsmálastofnunar-
innar á staðnum brást hins vegar
illur við gagnrýninni. Enginn hafði
tilkynnt um aðstæður Darryls og
hvemig átti þá að vera hægt aö
hjálpa honum? Nágrannarnir veija
sig með því að þeir hafi ekki verið
velkomnir og því hafi þeir ekki
skipt sér af málinu.
Einn nágranninn sagði að dreng-
urinn hefði verið í sæmilegum
holdum og að Rosemary hefði sagt
að hann væri misþroska og gengi
í sérskóla. Þess vegna furðaði ná-
granninn sig ekki á því að mæðgin-
in skyldu sjást úti við þegar önnur
höm voru í sínum venjulega skóla.
Það vakti heldur ekki athygli ná-
grannans að mæðginin, sem alltaf
vom saman, skyldu vera á göngu
seint að kvöldlagi. Það var túlkað
sem svo að móðirin væri að reyna
að þreyta drenginn þar sem hann
væri ofvirkur.
Fjölskylda Rosemary haföi alitaf
verið álitin skrítin og þegar Rose-
mary bauð heim sínum leikfélög-
um komu þeir að húsi sem var fullt
af kanínum. Foreldrar Rosemary
bjuggu hjá henni þar til fyrir fáum
mánuðum. Systir Rosemary, Step-
hanie, virðist hafa verið haldin
sömu áráttu gagnvart dýmm. Ná-
grannar hennar í Hampshire köll-
uðu á heilbrigðisyfirvöld þar sem
garður hennar var fullur af hunda-
skít og innan dyra var aragrúi
dýra, þar af fjörutíu fuglar.
Þrátt fyrir allt sýnir Darryl þess
engin merki að illa hafi verið farið
með hann. Rosemary virðist hafa
kennt honum ýmislegt því dreng-
urinn þykir vel máh farinn og hann
kann bæði að lesa og reikna. Og
honum tekst að ná góðu sambandi
við það fullorðna fólk og þau böm
sem hann hefur talað við síðan lög-
reglan kom að mæöginunum.
Darryl og móðir hans em nú á
sérstakri stofnun þar sem reynt
verður að undirbúa þau undir
venjulegt líf og þann aðskilnað
þeirra sem því fylgir.