Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 60
72
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991.
Merming
Fjölskyldan, blekteikning.
Carl Fredrik Hill
Sýnlng sænska listamannsins Carls Fredriks Hill
lýkur nk. sunnudag í Norræna húsinu með fyrirlestri
Görans Christensons, forstööumanns Listasafnsins í
Málmey um hinar sérstæðu teikningar Hilis. Því er
ekki úr vegi að rekja í örfáum orðum feril C.F. Hilis
og vega og meta list hans - og þá sérílagi teikningarn-
ar. Eins og fram kemur í ágætum pistli Görans Christ-
ensons í sýningarskrá var Hill metnaðarfullur og vel
upplýstur listamaður sem reyndi allt hvað hann gat
að slá í gegn í heimsborginni París á árunum upp úr
1870, en metnaðurinn braut hann í þess stað niður.
Christenson ýjar að því að tíðarandinn hafi e.t.v. ver-
ið ófurlítið á nótum sjálfsvorkunnar og lifsflótta -
hugsýkin hafi oft ekki verið annað en hálmstrá við-
kvæms listamanns til að fá frið. Samlandi Hills, Ernst
Josephson var samtíða honum í heimsborginni, en
hvor um sig fetaði einn sína götu. Hið sama má ugg-
laust segja um aðra einræna útlenda listamenn í París
í lok nítjándu aldar, þ. á m. Munch og Van Gogh.
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
Framadraumar í þungbúnu málverki
Margt er þó til að staðfesta alvarlega persónuleika-
truflun í tilviki Hills og nægir þar að líta í það regin-
djúp sem er á milli teikninga hans frá sjúkdómstíma-
bilinu í Lundi og málverkanna frá Parísarárunum.
Málverk voru vel til þess fallin þá, einsog nú, að öðl-
ast viðurkenningu listmangara og sýningarhaldara.
Carl Fredrik Hill felldi málarastíl sinn kirfilega inn í
tískubylgju þess tíma, impressjónismann. Þótt sýn
hans hafi að sjálfsögðu haft á sér persónulegan blæ -
gjaman yfirgefið land í hausthtum - þá er þessi vett-
vangur honum greinilega þvingun. Það var Hill þvílíkt
kappsmál aö öðlast viðurkenningu föður síns á sér sem
trúverðugum listamanni að hann útilokaði sína innri
sýn; túlkun á mannslíkamanum og frelsisþrá manns-
ins. Lát föðurins og áhugaleysi sýningarhaidara í Par-
ís á málverkum Hills hjálpuðust því að við að draga
fram sjúkdómseinkennin. Jafnframt varðaði sjúkdóm-
urinn leið Hills tfl frelsis; hann varð laus undan þeirri
ánauð að þurfa á friðþægingu og viðurkenningu sam-
tíma síns að halda. Þeim mun stærri varð gjáin á milli
mannlausra og þungbúinna olíumálverkanna og
ftjálslegra teikninganna af mannslíkömum.
Viðstöðulaus teikning og litkrítarperlur
Það er því kaldhæðni örlaganna að Carl Fredrik
HiO skyldi eftir dauða sinn öðlast viðurkenningu fyrst
og fremst fyrir teikningar sínar sem hann rissaði oft
á tilfaflandi bleðla. Teiknistíll C.F. HOls er fjölskrúðug-
ur. í einn stað er um að ræða eins konar viðstöðu-
lausa teikningu þar sem pennastönginni er helst aidr-
ei lyft af pappírnum. Þannig eru myndraðimar „Hall-
arsvítan" og „Veraldarsaga Wallis" unnar og hafa
t.a.m. súrrealistar og dadaistar orðið fyrir ómældum
áhrifum af þessum teiknistíl Hills - samanber autom-
atisma og ósjálfráða teikningu. í annan stað eru mjúk-
ar penna- og krítarteikningar af lostafuflum líkömum
sem umfaðma hver annan. Loks eru það litkrítar-
myndir sem eru næsta fáar á þessari sýningu, því
miður. Meöal htkrítarmynda HOls er að finna margar
af helstu perlum norrænnar myndhstar. Það er þó
huggun að í anddyri skuh hggja frammi eftirprentanir
af nokkrum helstu litkrítarmyndum Hills ásamt upp-
lýsingum. Betri yfirsýn yfir hst Hihs eftir að hann
frelsaðist af framadraumunum heföi því verið vel þeg-
in, en hver veit nema Göran Christenson bæti úr því
í fyrirlestrinum í Norræna húsinu á sunnudag kl. 16.
Sýningunni lýkur þann sama dag.
Andlát
Halldóra Guðmundsdóttir frá
Hnífsdal, Huldubraut 13, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimihnu Sunnu-
hhð, Kópavogi, föstudaginn 6. des-
ember.
Bára Björgvinsdóttir lést á Landa-
kotsspítala 5. desember.
Tilkyimingar
Basar Kvenfélags
Seljasóknar
Sunnudaginn 8. desember verður Kven-
félag Seljasóknar með basar í kirkjumið-
stöð Seljakirkju eftir messu sem hefst kl.
14. Seldar verða kökur og fleira. Um
kvöldið verður kafíisala að lokinni að-
ventudagskrá sem hefst kl. 20.30.
Siifurlínan
sími 616262, er þjónusta við eldri borgara
(t.d. að versla, viðhald og fl.). Símatími
alla virka daga kl. 16-18.
Afríkubasar i Perlunni
Ungmennahreyfing Rauða kross íslands
heldur Afríkubasar í Perlunni alla
sunnudaga fram aö jólum. Á basamum
eru seldar vörur frá þróunarlöndum sem
keyptar eru milliliðalaust af handverks-
mönnum. Allur ágóði af sölunni rennur
til þróunarverkefnis sem ungmenna-
hreyfingin fer af stað með í Gambíu, á
vesturströnd Afríku, í byijun næsta árs.
Margs konar vamingur er á boðstólum
á basamum. Sem dæmi má nefna dúka,
sjöl, töskur, fót, hljóðfæri, skartgripi og
gjafavöm af ýmsu tagi. Verði er stíllt í
hóf- raunar má segja að á sumu sé hálf-
gert „þriðja heims verð“.
Borgarmót í skák
Hið árlega Borgarmót í skák verður hald-
ið í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að
Faxafeni 12 laugardaginn 7. des. kl. 14.
Borgarmótið er firmakeppni og mimu um
40 fyrirtæki taka þátt í keppninni að
þessu sinni. Allir skákmenn em vel-
komnir að tefla, einnig em áhorfendur
velkomnir.
\
FJQLBRAUTASKÓU SUÐURU\NDS
Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi leitar eftir
kennara á vorönn 1992 í efnafræði og stærðfræði.
Einnig er óskað eftir bókasafnsfræðingi í fullt starf.
Umsóknir berist fyrir áramót til skólameistara sem
veitir nánari upplýsingar. Síminn er 98-22111.
Myndgáta dv
Kór Átthagafélags
Strandamanna
heldur jólatónleika í Bústaðakirkju
sunnudaginn 8. desember kl. 16. Kórinn
ásamt bamakór og einsöngvurum flytur
jólalög. Kaffisala í safnaðarheimilinu á
eftir.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
verður með árlegan kökubasar sinn á
morgun, 8. desember, í safnaðarheimili
Áskirkju við Vesturbrún og hefst hann
kl. 15. Þar verður einnig handavinnuhom
með ýmsum góðum munum. Allt verður
selt á hóflegu verði.
afar
intan er gengin í garð fer
undirbúningur jólahátiðarinnar í hönd.
Hjá mörgum okkar er það þáttur í hátið-
arhöldunum að gefa þeim sem okkur
þykir vænt um jólagjafir. Ofbeldi í heim-
inum fer sivaxandi. Viö verður þess líka
vör á íslandi. í fréttum útvarps og sjón-
varps og kvikmyndum heyrum við og
sjáum að ofbeldi meö vopnum og án
þeirra virðist sjálfsagt, hvort heldur sem
er á bömum eða fullorðnum. Ömmur og
afar, við getum vegið á móti áhrifum of-
beldis með þvi að kaupa ekki leikfóng
sem gera ofbeldi að leik og skemmtun.
Veljum heldur leikföng sem horfa til frið-
ar og þroska.
Ömmur og
Nú þegar aðv(
Heimspeki hvunndagsins
í Gerðubergi
Mánudaginn 9. desember verður heim-
spekikvöld í Gerðubergi og hefst það kl.
20.30. Heimspekikvöld hefur þegar verið
haldið einu sinni í vetur' við góðar undir-
tektir og veröa haldin fleiri eftir þetta. Á
mánudagskvöldið mun Jón Proppé ræða
ýmsar hliðar á vemleikanum eins og
hann kemur okkur fyrir sjónir nú á dög-
um og rekja heimspekilegar skýringar á
ýmsum vandamálum. Allir em velkomn-
ir.
Fundir
Jólafundur Kvenfélags
Kópavogs
verður haldinn miðvikudaginn 11. des-
ember í félagsheimilinu (Seli á 1. hæð).
Fundurinn hefst kl. 20.30. Auður Eir flyt-
ur jólahugvekju. Góðar veitingar.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
Jólafimdur félagsins verður mánudaginn
9. desember kl. 19.30 í safnaðarheimili
Dómkirkjunnar. Hefst með borðhaldi.
Munið jólapakkana.
Félag eldri borgara
Félagsvist spiluð í Risinu sunnudaginn
8. desember kl. 14. Kl. 17 verður kökubas-
ar í Risinu og kl. 20 er dansað í Goðheim-
um. Gestur kvöldsins, Jón Kr. Ólafsson,
tekur lagið.
Skaftfellingafélagið
Síðasti spiladagur á árinu verður á morg-
un, 8. desember, kl. 14 í Skaftfellingabúð,
Laugavegi 178. Heildarverðlaun veitt.
Fjölbreytt dagskrá
í Hlaðvarpanum
Að venju verður fjömgt í Hlaðvarpanum
í desembermánuði. Fjölbreytt dagskrá
verður á laugardögum fram til jóla. Dag-
skrá í dag, 7. des.: Kl. 14 Dómkórinn syng-
ur; kl. 14.30 Söngsveitin Jarþrúður; kl.
15 Grýla flengjr óþekktarorma; kl. 15.30
kvennahljómsveitin „Hver þekkir þær?“.
Listmarkaður Hlaðvarpans hefur fengið
í umboðssölu mikið af nýjum spennandi
vörum, einnig hefur verið opnaður sér-
stakur listmunamarkaður í kjallaranum
þar sem um 20 listamenn selja eigiö hand-
verk. Jaðarbókamarkaður verður opnað-
ur í dag með fjölda titla eftir höfunda sem
gefa út á eigin vegum eða hjá litlum for-
lögum. í Galleríi Hlaðvarpans er þessa
dagana sýning Guðmundar A. Jónssonar
frá Hymingsstöðum, Reykhólasveit.
Veitingastofan Lyst og list býður upp á
gómsæta smárétti, kaffi og meðlæti alla
daga.
Jólafundur Kvenfélags
Hreyfils
verður haldinn sunnudaginn 8. desember
kl. 20 í Hreyfilshúsinu. Munið eftir litlu
jólapökkunum.
Safnaöarfélag Ásprestakalls
Fundur verður í félaginu þriðjudaginn
10. desember kl. 20.45 í safnaðarheimil-
inu. Dagskrá: 1. Jólafóndur fyrir alla fjöl-
skylduna, 2. Veitingar. Ath., organisti og
kirkjukór Áskirkju verða með jólasöngva
f kirkjunni fyrir fundinn og hefjast þeir
stundvíslega kl. 20. Fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
S-------------"“N
•Q ejtit (tolta
Lamut íatnl