Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Side 63
LAUGARDAGUR 7.'DESEMBER 1991.
75
dv__________________Aímæli
Gestur Ólafsson
Gestur Olafsson, arkitekt og skipu-
lagsfræðingur, eigandi Skipulags-,
arkitekta- og verkfræðistofunnar,
til heimilis að Unuhúsi, Garðastræti
15, verður fimmtugur á morgun.
Gestur fæddist á Mosvöllum í Ön-
undarfirði og ólst þar upp til sex ára
aldurs en flutti þá með foreldrum
sínum til Reykjavíkur.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1961, stundaði nám í arkitektúr í
Leicester í Bretlandi 1961-66, fram-
haldsnám í skipulagsfræðum í
Liverpool 196&-68 og síðar fram-
haldsnám í skipulagsfræðum við
University of Pennsylvania í Fílad-
elflu í Bandaríkjunum 1973.
Gestur rak Teikmstofuna Garða-
stræti 17,1968-80, og skipulagðiþá
marga bæi hér á landi, m.a. Selfoss,
Hveragerði, Hellu og Akureyri, auk
þess sem hann breytti Lækjartorgi
og Austurstræti í göngusvæði.
Hann var stundakennari í skipu-
lagsfræðum við Verkfræðideild HÍ
frá 1974 og síðan hlutadósent til 1988.
Gestur var forstöðumaður Skipu-
lagsstofu höfuðborgarsvæðisins og
framkvæmdastjóri Samtaka sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu
1980-88 en þá vann hann svæðis-
skipulag fyrir höfuðborgarsvæðið.
Hann rekur nú Skipulags-, arki-
tekta- og verkfræðistofuna.
Gestur hefur haldið fyrirlestra um
skipulagsmál og byggingarhst hér á
landi og erlendis. Hann hefur ritað
fjölmargar greinar um þessi mál í
blöð og tímarit. Gestur var ritstjóri
Stefnis um skeið og er nú útgefandi
og ritstjóri tímaritsins Arkitektúr
ogskipulag.
Gestur stofnaði Útimarkaðinn á
Lækjartorgi með Kristni Ragnars-
syni arkitekt og starfræktu þeir
hann þar til Reykjavíkurborg hóf
rekstur útimarkaðar á þessu svæði.
Hann hefur átt sæti í stjórn Arki-
tektafélags íslands, Kvennréttinda-
félags íslands og félagsins Verkefna-
stjórnun. Hann var einn af stofn-
endum Lífs og lands og síðar for-
maður þess. Þá hefur hann setið í
flölda nefnda á vegum Reykjavíkur-
borgarogríkisins.
Fjölskylda
Kona Gests er Guðbjörg Garðars-
dóttir og eiga þau eina dóttur, Guð-
rúnu Sóleyju, f. 4.9.1987.
Synir Gests og fyrri konu hans,
Ernu Ragnarsdóttur, eru Ragnar
Kristján Gestsson, f. 4.8.1964,
menntaskólanemi, og Ólafur Hrólf-
ur, f. 4.12.1969, menntaskólanemi.
Systkini Gests eru Valdimar, yfir-
flugumferðar stj óri í Reykjavík,
kvæntur Helgu Árnadóttur, og Ingi-
leif Steinunn, húsfreyja á Bólstað í
Bárðardal, gift Héðni Höskuldssyni,
bónda þar.
Foreldrar Gests: Ólafur Bergþór
Hjálmarsson, f. 26.8.1903, d. 1987,
bóndi og síðar efnisvörður hjá Olíu-
verslun íslands, og kona hans,
Ragnheiður Guðmundsdóttir, f.
25.10.1902, húsfreyja.
Ætt
Ólafur var sonur Hjálmars, smiðs
á Selabóh og Mosvöllum, Guð-
mundssonar, b. og smiðs þar, Ein-
arssonar á Tannanesi Jónssonar, á
Augnavöllum í Hnífsdal Ólafssonar,
á Breiðabóh Jónssonar, í Þemuvík
Jónssonar, á Hahstöðum á Langa-
dalsströnd Einarssonar, í Reykja-
firði á Ströndum, Jónssonar. Móðir
Guðmundar var Ehn, dóttir Eiríks,
prests á Stað í Súgandafirði, Vigfús-
sonar. Bróðir Elínar var Hahdór, b.
í Grafargili, faðir Ragnheiðar,
langömmu Gunnars Ásgeirssonar
stórkaupmanns. Halldór var fóður-
afi Friðrikku, fóðurömmu Einars
Odds, formanns VSÍ. Systir Frið-
rikku var Bersebe, móðir Guð-
mundar Inga skálds og Halldórs,
skálds frá Kirkjubóli, og Ólafs
skólastjóra, fóður Kristjáns Bersa,
skólameistara í Flensborg, og afa
Ólafs Þ. Harðarsonar stjórnmála-
fræðings.
Ragnheiður er föðursystir Kristín-
ar Ólafsdóttur, söngkonu og fyrrv.
varaformanns Alþýðubandalagsins.
Foreldrar Ragnheiðar voru Guð-
mundur, b. á Mosvöhum, Bjarnason
Gestur Ólafsson.
og Guðrún Jóna, dóttir Guðmundar
Jóns, b. á Vöðlum og Kirkjubóli,
Pálssonar, b. á Hóli, Sigurðssonar,
b. þar, Þorlákssonar, b. þar, Sig-
urðssonar. Bróðir Guðrúnar var
Kristján, faðir fyrrnefndra Kirkju-
bólsbræðra. Guðmundur á Mosvöh-
um var sonur Bjarna, hreppstjóra á
Tröð í Álftafirði, Jónssonar, b. í
Reykjarfirði, Sigurðssonar, hús-
manns í Barðsvík, Þorsteinssonar.
Móðir Guðmundar var Guðrún
Jónsdóttir Ólafssonar á Svarfhóli
Ásgrímssonar, b. í Eyrardal. Kona
Jóns var Margrét Pétursdóttir, b. í
Unaðsdal, Jónssonar. Bróðir Guð-
rúnar var Árni, afi Arnfríðar, fóð-
urömmu Svans Kristjánssonar, dós-
ents í stjórnmálafræði við HÍ.
Menning
Saga-bíó - Thelma og Louise: ★★★
Útlagar með stæl
Thelma og Louise eru tvær vinkonur sem búa
í miðríkjum Bandaríkjanna. Louise (Susan Sar-
andon) þjónar th borðs á skyndibitastað og
Thelma (Geena Davis) er húsmóðir. Þær hafa
báðar sætt sig við rislítið hlutskipti sitt í lífmu
og eiginmenn sína sem eru engir draumaprins-
ar. Þær ætla að skreppa út úr bænum og sletta
aðeins úr klaufunum en lenda í klónum á ófyrir-
leitnum kvennabósa sem reynir að nauðga
Thelmu. Loiúse missir stjórn á sér og skýtur
hann til bana og dregur Thelmu með sér á flótta
undan óbilgjamri réttvísinni. Flóttinn gerbreyt-
ir lífi þeirra og frelsar þær á margan hátt undan
því sálræna oki sem þær hafa búið við.
Þrátt fyrir að myndin fjalli um alvarleg mál-
efni er hún bæði fyndin og skemmtheg. Er það
ekki síst að þakka frábærum leik Geenu Davis
og Susan Sarandon. Ég verð fyrir vonbrigðum
ef þær fá ekki báðar óskarsverðlaunatilnefn-
ingu. Sjálfan óskarinn á Geena Davis skihð, hún
hefur aldrei verið betri og hlutverk Thelmu er
bitastæðara.
Handrit Calhe Khouri, sem er kona, er kröft-
ugt og boðskapur þess fer ekki leynt. Til þess
að fmna sjálfa sig þurfa Thelma og Louise að
afneita öhu samfélaginu og gerast útlagar.
Karlar eru í aukahlutverkum og þeir eru flest-
ir með alvarlega skapgerðargalla, aht frá ræn-
ingjum th lögreglumanna. Calhe hnýtir vel í
Thelma og Louise. Susan Sarandon og Geena
Davis.
okkur karlmennina og þótt við getum hlegið að
þeim (því þeir eru uppspretta bestu brandar-
anna) og sagt að við séum ekki nálagt því svona
slæmir og þeir þá sýnir verstu hhðar framkomu
okkar gagnvart konum.
Ég var ekki nógu hress með leikstjóm Ridleys
Scott. Hann er að segja persónulega sögu tveggja
kvenna en hann getur ekki shtið sig frá regn-
votu strætunum (jafnvel þegar það er engin
rigning), ljósadýrðinni, aðdráttarlinsunum og
öllu því sem einkennir sthinn hans sem einu
sinni var frumlegur en hefur nú verið tekinn
upp af ansi mörgum. Myndatökubrellumar
vinna á köflum gegn sögunni, sérstaklega í eyði-
mörkinni þar sem mér leið stundum eins og ég
væri að horfa á sólbakaða Levi’s-auglýsingu.
Aðeins nærgjarnari meðferð á efninu hefði leitt
af sér meistaraverk en árangurinn er samt
meira en nógu góður.
Thelma og Louise er frumsýnd í splunkunýju
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
og glæshegu Saga-bíói og mynd og hljóðgæði
voru eins og best verður á kosið.
Thelma & Louise (Band-1991) 128 min.
Handrit: Callie Khouri.
Leikstjórn: Ridley Scott (Alien, Blade Runner, Legend,
Black Rain).
Leikarar: Geena Davis (Earth Girls Are Easy, Acciden-
tal Tourist), Susan Sarandon (White Palace, Bull Dur-
ham), Harvey Keitel, Michael Madsen (Kill Me again,
Christopher McDonald, Stephen Toblowski, Brad Pitt.
Kalkúnakjöt er
ljúffengt og
bragðmikið.
Heitt eða kalt
- sannkallaður
hátíðarmatur.
MITSUBISHI
Sérstakt jólatilboð:
Mitsubishi FZ-129 D15 farsími ósamt símtóli, tólfestingu, tólleiðslu (5 m), sleða,
rafmagnsleiðslum, handfrjálsum hlióðnemajoftneti og loftnetsleiðslum. Verð áour 115.423,-
Verð nú aðeins 89.900,- eða I
E S S E M M