Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Blaðsíða 68
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Hlýnar eftir helgi
Á sunnudag eru horfur á suðvestan- og vestanátt. Snjókoma eða éljagangur verður um landið en þurrt og nokkuð bjart veður eystra.
Víðast verður vægt frost. Á mánudag eru horfur á sunnanátt og hlýnandi veðri. Rigning eða slydda verður um landið sunnan- og vestanvert
en sennilega þurrt norðaustanlands.
LOKI
' Þorsteinn fær hvorki
handafl né handleiöslu
heldur bara handjárn!
F R ETTAS KOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
[Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,6haö dagblaö
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991.
Tveirslösuðust
þegaráæHunar-
bíll fauk út af
Aætlunarbíll fauk á hliðina út af
þjóðveginum við bæinn Kljá í Helga-
fellssveit á Snæfellsnesi í gær. Tveir
af þremur farþegum slösuðust. Bíll-
inn var á leiðinni frá Stykkishólmi
til Grundarfjarðar. BUstjórinn kall-
aði á hjálp í farsíma og kom lögreglan
í Stykkishólmi nokkru síðar og
bjargaði fólkinu út um þaklúgu á
bílnum. Þeir sem slösuðust voru
fluttir til læknis.
Að sögn lögreglunnar var snarvit-
laust veður á norðanverðu SnæfeUs-
nesi og ekki ferðafært undir kvöld í
gær - síst á þjóðvegum. Þak fauk í
heilu lagi af fjárhúsi á bænum Bú-
landshöfða í Eyrarsveit. Féð stóð
undirberuloftiítóftunum. -ÓTT
Sviðsetti innbrot til
að svíkja út peninga
Rannsóknarlögregla ríkisins
kom upp um tUraun tíl tæplega
einnar mUljón króna trygginga-
svika og rangan uppljóstur í vik-
unni. Tveir menn, sem tengjast
raftækjaverslun í Faxafeni, hafa
gengist við að hafa átt aðild að brot-
unum.
A mánudagsmorgun var tilkynnt
um mikið tjón í innbroti í raftækja-
verslun í Faxafeni. Menn frá RLR
fóru á staðinn. Annar tveggja eig-
enda verslunarinnnar var á staðn-
um ásamt fleirum. Sagði hann að
myndbandstækjum, sjónvörpum,
lUjómflutnmgssamstæðum og
fleiru hefði verið stolið. Ljóst var
að fariö haföi verið inn með lykli
Síðar um daginn sendi meðeigand-
inn lista til RLR þar sem nákvæm-
lega var upp talið hvetju hefði ver-
ið stolið í innbrotinu. Verðmæti
þýfisins taldi eigandinn vera 835
þúsund krónur á útsöluverði.
Á þriðjudeginum kom krafa til
tryggingafélags verslunarínnar
upp á sömu upphæð. Siödegis sama
dag fór rannsóknarlögregluna að
gruna að innbrotið hefði verið sett
á svið. Upplýsingar bárust um að
meðeigandinn ásamt öðrum aðila
ætlaði á ákveöinn stað í Keflavík
með hluta af þýflnu til aö selja það.
Um kvöldið stöðvaði lögreglan í
Hafnarfirði mennina. Þeir voru þá
á leið til Keflavíkur. Meðeigandinn
og hinn maðurinn voru í bílnum -
og hluti af „þýfinu“. Hinn hluti
þess sem átti að hafa verið stolið
fannst í húsi í vesturbænum 1
Reykjavík. Um kvöldið lágu síöan
fyrir játningar hjá mönnunum.
Eigandinn sagði að svikin hefðu
verið rædd nokkrum vikum áður -
þetta hefði átt að vera einföld leið
til að bjarga peningamálunum.
Hann neitaði aö hafa tekið þátt í
innbrotinu en gekkst við að hafa
tekið þátt í að reyna að svíkja fé
út út tryggingafélaginu með þess-
um hætti. í ljós kom að andvirði
„þýfisins", sem fannst í mnrædd-
um bíl og í húsinu í vesturbænum,
var ekki 835 þúsund króna virði -
heldur um 300 þúsund krónur. Hér
var því í raun um margföld svik
að ræða. Málið er nánast fullupp-
lýst og verður bráðlega sent rikis-
saksóknara.
-ÓTT
II
Laugardaga 10-17
Sunnudaga 14-17
TM'HUSGÖGN
SIÐUMÚLA 30 SIMÍ 686822
Davíð Oddsson:
Hafnar vaxta-
lækkun með
handleiðslu
Nei, þetta eru ekki Grýla og Leppalúði þó ófrýnileg séu en þessi heljarmiklu tröll tóku að sér aö ýta vélsleða
jólasveinsins til byggða. Förinni er heitið til Akureyrar þar sem landsmót vélsleðamanna verður haldið um helgina.
DV-mynd GK, Akureyri
sjá nánar bls. 4
I ræðu sinni á Alþingi í gær hafn-
aði Davíð Oddsson því að lækka vexti
með handafli eða handleiðslu sem er
nýjasta orðið yfir þá vaxtalækkunar-
aðferð. Einar Oddur, formaður
Vinnuveitendasambandsins, hefur
krafist vaxtalækkunar með handafli
ef ekki vil betur til. Verkalýðshreyf-
ingin fór formlega fram á það við
viðskiptabankana á dögimum og
Þorsteinn Pálsson sagði í viðtali á
dögunum að lækka þyrfti vexti með
handleiðslu.
Davíð Oddsson sagði að minnkandi
lánsfjárþörf ríkissjóðs væri mikil-
vægasta aðferðin til að lækka raun-
vexti og að því væri stefnt.
„Menn geta talað um nauösyn þess
að lækka þurfi vextina, eins og fyrr-
verandi forsætisráðherra gerir í sí-
fellu, en hér er með raunhæfum
hætti verið að stuðla að því að svig-
rúm skapist fyrir vaxtalækkun,"
sagðiDavíð. -S.dór