Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. Útlönd glæpamenn ástaðnum í Tælandi „Ég er viss um aö við höfum bara drepiö rétta í'ólkiö," svarar yflrmaöur lögreglumála i Tæ- landi gagnrýni á að lögreglu- menn hafa fengið fyrirmæli um aö taka smáglæpamenn af lífi án dóms og laga þar sem þeir nást. Að sögn yfirvalda leiöir það aðeins til óþarfa snúninga og kostnaöar aö draga mennina fyr- ir dóm ef ijóst er af málsatvikum að þeir eru sekir. í síðasta mán- uöi voru 10 menn skotnir fyrir að stela bilum í höfúðborginni Bangkok. Sleppfeftiraö nauðga fimmtán árastúlku Dómstóll í Manchester á Eng- landi sýknaði tvo skóladrengi af ákæru um að nauðga 15 ára gam- alli skólasystur sinni Dómarinn sagöi aö aöeins heföi verið um hrekkjabragð aö ræða og stúlkan ekki sjáanlega hlotið skaða af. Drengimir voru þó varaðir við að áreíta stúlkur oftar. Dómurinn hefur vákið undrun því sannað þótti að stúlkunni heföi verið nauögaö. Sexmilljónir fyrir helgi með vændiskonu Efnaðir viðskiptavinir vændis- húsa í Paris greiöa allt að sex milljónir íslenskra króna fyrir helgi roeð vændiskonum í hæsta verðflokki þar í borginni. Blöð í Frakklandi hafa gert málið að umtalsefni eftir aö tveir vændis- hringir voru leystir upp í höfuð- borginni. Talsmaöur lögreglunn- ar segjr að um meöalverð sé að ræða þegar dýrustu vændiskon- umar eigi í hlut. Að sögn kunn- ugra eru 20 vændiskonur í París íþessumverðflokki. Beuter BOLHOLTI4 SS“ 681440 Króatar vilja viðurkenn- ingu, andstætt stefnu SÞ - bardagar blossuöu upp á ný í Króatíu í gær Franjo Tudman, forseti Króatíu, biöur Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna að falla frá andstööu sinni við að Króatía og Slóvenía fái alþjóðlega viðurkenningu á sjálfstæði sínu. Hann hét því í orðsendingu til ráðs- ins að fara ekki með ófriði á hendur öðrum lýðveldum Júgóslavíu. Tudman bað einnig Perez de Cuell- ar, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að senda friðargæslulið til Króatíu í þeim tilgangi aö stöðva bardagana þar. De Cueflar hefur ver- ið andvígur for friöargæsliúiðs til Júgóslavíu meðan lýðveldin geta ekki komið sér saman um vopnahlé. Barist var af hörku í Króatíu f gær og vaxandi ótti er um að átökin breið- ist einnig út til Bosníu-Herzegovinu eftir sprengjutilræði þar í gær. Svo virðist sem tilræðin þjóni þeim til- gagni einum að draga landsmenn inn í átökin. Þjóðverjar halda fast við þá fyrir- ætlan sína að viöurkenna Króatíu og Slóveníu fyrir jól og leggja hart að bandalagsþjóðum sínum í Evrópu- Króatar sinna helgihaldi þrátt fyrri ástandiö í landinu. Þessi gamla kona bandalaginu aö gera slíkt hið sama. kom til messu í gær þótt kirkjan hennar standi vart uppi. Símamynd Reuter Reuter SPARNEYTIN 0G HENTAR ÞÍNUM AÐSTÆÐUM ÆUMENIAX ENGRI LÍK Rafbraut Fullvíst að 380 fórust í ferjuslysinu á Rauðahafi en 261 bjargaðist: Fólkið króaðist inni LTHA FRÁBÆPA ÞVOTTAVÉLIN FYRIRÞIG - klukkustundir tól „Nær allir farþegarnir voru neðan þilja. Þeir komust ekki út og guð einn veit hvort nokkur er enn á lífi í skip- inu,“ sagði einn þeirra sem komust lifs af úr ferjuslysinu á Rauðahafi aðfaranótt sunnudagsins. Ömurlegt ástand var um borð eftir að ferjan steytti á rifi og henni hvolfdi því fjöldi fólks lokaðist inni og gat enga björg sér veitt. Þeir sem björguðust komust marg- ir í land af sjálfsdáðum enda ferjan skammt undan landi við höfnina í Safaga á strönd Rauðahafsins. Menn í landi horíðu á ferjuna farast en samt tók margar klukkustundir að kalla út björgunarlið. Slysið varð um miðnætti en björgunarstaf hófst ekki fyrr en um morguninn. Þá voru þeir sem fórust þegar látnir og aðeins eft- ir að telja þá sem komust af. Um borð voru 650 farþegar á leið frá Saudi-Arabíu til Egyptalands. Nú er vitað með vissu að 261 bjargaðist og að 380 fórust. Níu manna er enn saknað. Stjórnendur skipsins áttu ekki von á að þaö sykki strax en að sögn farþega, sem komust lífs af, Mikil skelfing var í hópi farþega af egypsku ferjunni þegar þeir komust lokst i land morguninn eftir slysið. Björgun- arstarf fór allt i handaskolum. Símamynd Reuter varð sprenging um borð skömmu eftir strandið og sökk þá skipið. Farþegarnir sögðu að þeir hefðu horft á hafnarljósin í Safaga alla nóttina og beðið eftir aðstoð. Margir slösuðust í sprengingunni um borð og gátu enga björg sér veitt. Farþeg- amir sögðu að þeir heíöu beöið eftir björgunarmönnum alla nóttina og verið nánast úrkula vonar um að nokkur kæmi. „Það voru gúmmíbjörgunarbátar á floti hjá ferjunni en það vissi enginn hvemig átti að nota þá,“ sagöi einn þeirrasemkomustlífsaf. Reuter SAUDI- ARABÍA LAND Freddie Merc- ury á toppnum eftirandlátið Söngvarinn Freddie Mercury hefur náö nýjum hæðum eftir andlát sinn í síðasta mánuöi. Um ferðir hans í öðrum heimi er þó ekkert vitað en hitt er víst að hann hefur náð efstu sætum vin- sældalistanna á Englandi. Vinsælustu lög hans og hljóm- sveitarinnar Queen hafa veriö gefin út aö nýju og njóta nú engu minni vinsælda en þau gerðu nýútgefin. Eitt frægasta lagið, Bohemian Rhapsody, er í efsta sæti vínsældalistans en áöur stópaði lagið það sæti árið 1975. Norska stjórnin aðfallavegna skattamála Sannkallað upplausnarástand ríkti í norska Stórþinginu i gær- kvöld eftir harðar deilur um skattastefnu minnihlutastjórnar Gro Harlem Brundtland. Þegar þingmenn fóm heim að loknum þingfundi var enn óJjóst hvort stjóminni væri sætt áfram. Formaöur þingflokks jafiiaðar- manna sagði eftir þingfund að sijómarkreppa væri yflrvofandi ef stjómin fengi ekki meirihluta með skattafrumvarpi sínu. Málið verður tekið upp aftur í dag. Að fundum dagsins loknum kemur í ijós hvort Gro tekur þann koshnn að segja af sér. Stjómin þarf hlutieysi eða stuðning sljóniarandstöðuþingmanna til að koma málinu fram. Reuter og NTB OG ÞU EKUR HEIM Áfengisvarnaráð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.