Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Síða 13
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991.
13
Utlönd
Utanríkisráðherra Rússlands:
Bandaríkin viðurkenni
sjálfstæði lýðveldisins
Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagði við James
Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, í Moskvu í gærkvöldi að stjóm-
völd í Washington ættu aö viður-
kenna sjálfstæði rússneska sam-
bandslýðveldisins og annarra lýð-
velda til að koma í veg fyrir frekari
sundrun. Búist er við að Borís Jeltsín
Rússlandsforseti viðri það mál einnig
við Baker þegar þeir hittast í dag.
Baker svaraði því til að stjóm sín
mundi skoða þær tillögur sem hefðu
verið lagðar fram.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði að hann mundi eiga aukið sam-
starf við Úkraínu eftir að níu af
hveijum tíu kjósendum greiddu
sjálfstæði lýðveldisins atkvæði sitt
þann 1. desember síðastliðinn. Hann
gekk þó ekki svo langt að segjast
mundu viðurkenna sjáifstæði þess.
Bandarískir embættismenn segja
að viðurkenning á sjálfstæði lýðveld-
anna velti að hluta til á því hvaða
tryggingar þau geti veitt um yfirráð
yfir kjarnavopnum sem þau hafa á
landi sínu, mannréttindi og virðingu
fyrir landamærum.
Baker mun einnig hitta Gorbatsjov
Sovétforseta að máli en sá fundur er
meira til málamynda. Staða Gorb-
atsjovs hefur þó veikst mjög síðan
slavnesku lýðveldin þrjú tóku
ákvörðun um að stofna samveldi
sjálfstæðra ríkja.
Gorbatsjov hefur legið undir aukn-
um þrýstingi um að segja af sér emb-
ætti eftir að Rússland, Hvíta-Rúss-
land og Úkraína stofnuðu samveldið
sem búist er við að fimm önnur lýö-
veldi gangi til hðs við.
Búist er við að Kazakhstan lýsi yfir
sjálfstæði sínu síðar í dag og verður
Rússland þá eina lýðveldið sem ekki
hefur gert það frá því að valdarán
harðlínumanna mistókst í ágúst.
Kozyrev taldi ekki útilokað að á
Þessari úkrainsku konu tókst að krækja sér í þrjá brauðhleifa og einn svíns-
haus þegar hún fór út að kaupa i matinn í gær. Búist er við að erlend
matvælaaðstoð fari að berast til Úkraínu sfðar í mðnuöinum. Símamynd Reuter
Skæruliðar IRA:
Eldsprengjur í
verslanir og saf n
Skæruliðar írska lýöveldishersins,
ÍRA, hertu árásir sínar á meginlandi
Bretlands rnn helgina þegar þeir
vörpuðu eldsprengjum á verslanir á
laugardag og á eitt þekktasta Usta-
safn landsins, National Gallery, í
gær. Þá vörðuðu þeir við að fleiri
árásir væru í undirbúningi.
Þetta var þriðja helgin í röð sem
ráðist var til atlögu gegn verslana-
miðstöðvum og hafa eldsprengjumar
valdið miklu IjónL
„Efnahagslegt tjón vegna röskunar
á daglegu lífi á Bretlandi mun halda
áfram að aukast á meðan breska rík-
isstjómin og hersveitir hennar halda
áfram hemámi sínu á hluta írsks
landsvæðis,“ sagði í tilkynningu frá
IRA sem berst gegn yfirráðum Bret-
lands á Norður-írlandi.
Stjómarliðar og stjómarandstæð-
ingar á breska þinginu hafa lagt æ
harðar að Kenneth Baker innanrík-
isráðherra að grípa til aðgerða gegn
þessari ógn.
„Ríkisstjómin verður að gera
miklu meira til að brjóta hryðju-
verkastarfsemina á bak aftur," sagði
íhaldsþingmaðurinn Ivor Stanbrook.
„Það þýðir að þeir verða að leggja
meira fé og mannafla í að finna hina
seku.“
Ekkert mannfall hefur orðið í árás-
um IRA til þessa. Skæruliðamir hafa
einkum beint spjótum sínum að
hemaðarskotmörkum frá því á átt-
unda áratugnum þegar sprengjuá-
rásir á verslanir og krár kostuðu
fiölda mannslífa og vöktu mikinn
viðbjóðmeðallandsmanna. Reuter
fundi Bakers og Jeltsíns mundi miða
nokkuö í áttina að því aö sannfæra
Vesturlönd um að kjamorkuvopna-
búr Sovétríkjanna væri undir styrkri
stjórn.
Baker hefur í hyggju að leggja fram
tillögur um hvemig Bandaríkin geti
aðstoðað Sovétríkin við að eyðileggja
kjamavopn sín.
Reuter
komst til skila
Stálverkamaðurinn Tommy
Klyczek vissi ekki að kærástan
hans, hún Martha, væri skotin í
honum, þ.e. ekki fyrr en bréfið frá
henni barst til hans 44 áram of
seint
Klyczek, sem er 62 ára eftir-
launamaður og hamingjusam-
lega kvæntur í annað sinn, sagði
á föstudag að hann hefði ef til
vill fundiö ástina fyrr hefði bréfiö
borist á réttum tíma. „Hún sendi
mér ljóöog sagði mér að hún elsk-
aði mig,“ sagði hann.
Reuter
GLÆSILEGAR JOLAGJAFIR
Á GÓÐU VERÐI
1 2
Elta — 3630 Ferðaútvarpstæki
Elta — 6080 Mónó útvarps- og
kassettuferðatæki
Jólatilboðsverð kr. 4.900,- stgr.
Elta — 6249 Stereo útvarps- og
kassettuferðatæki
Jólatilboðsverð kr. 5.990,- stgr.
Elta — 6456 Stereo útvarps- og
tvöfalt kassettuferðatæki
Jólatilboðsverð kr. 6.990,- stgr.
r ’ \ f ;<« ' 3«|pFp' *
1PW B
Elta — 6865 Stereo útvarps- og
tvöfalt kassettuferðatæki
Jólatilboðsverð kr. 15.990,- stgr.
Elta — 6891 Stereo ferðaútvarp
með tvöföldu kassettuferðatæki og
geislaspilara
Jólatilboðsverð kr. 28.900,- stgr.
Gæði á góðu verði
m
Faxafeni 12, Reykjavík, sími 91 -670420
Greiðslukjör
við allra hæfi