Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Side 16
AUK / SlA k95-68 16 MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. - í sinnepssósu - í tómatsósu - í karrýsósu. Wiflícraoir siiBartntr ob anvritr i «l»08píiflíB. eeik. oscurawa*. jueiti. *l08M*aji!, Waíiilwt NariftgsrBilB! i 100 i if isrltmi: Wt M* H*« u" „Smáfiskur í afla reiknast ekki nema að litlum hluta til kvóta .. Um fullyrðingar háskóladósents Snjólfur Ólafsson heitir maður nokkur sem gegnir stöðu dósents við Háskóla íslands. Snjólfur ritar grein í DV þann 2. desember sl. þar sem hann tekur að sér að túlka þau sjónarmið sjómannasamtakanna að sölu á óveiddum fiski í sjó er hafnað. Þar sem greinin byggist að mínu mati á misskilningi og fordómum ætla ég að fara örfáum orðum um innihald hennar. Varðandi það helsta vandamál kvótakerfisins, að mati Snjólfs, að smáfiski sé hent í stórum stíl, er beinlínis heimskulegt að halda því fram að slík sóun eigi sér stað af þeirri einföldu ástæðu aö smáfisk- ur í afla reiknast ekki nema að htl- um hluta til kvóta ef magn hans er innan ákveðinnar hlutfallstölu af heildarafla. Það er þvi beinn hagur sjómanna og útgerðarmanna að bera þennan fisk að landi. Því miður hafa ein- staklingar úr sjómannastétt séð sér hag í því að halda þeirri fuhyrðingu fram í fiölmiðlum að aðrir en þeir sjálfir hendi miklu magni smáfisks í hafið aftur. Þeir útreikningar, sem þessir menn hafa birt til stuðn- ings upphrópunum sínum, eru sniönir að þeirra eigin málstað eins og sjá má af því að þeir sjálfir telja sig henda 100 kílóum á dag á sama tíma og aðrir hggja undir því ámæh að henda 1100 kílóum daglega. Falsaðar aflaskýrslur Snjólfur tekur aö sér aö túlka fyrir hönd sjómannasamtakanna þá afstöðu samtakanna að hafna því að óveiddur fiskur gangi kaup- um og sölum. Þama er um slíka einfoldun að ræða á afstöðu þeirra sem daglega búa við hvert það veiðistýringarkerfi sem í gildi er aö með endemum er. Helstu ástæð- ur þess að sjómenn innan Far- manna- og fiskimannasambands íslands hafa á öhum þingum símun hafnaö kvótakerfinu sem framtíð- arlausn eru þær að í fyrsta lagi er samkeppnisþátturinn við veiðam- ar drepinn þar sem hluti sj ómanna- stéttarinnar er nánast dæmdur til örbirgðar á meðan aðrir lifa í nokkrum vehystingum. í öðra lagi sjá sjómenn aht í kringum sig þá spilhngu sem þrífst í skjóh þess að veiðiheimildir ganga kaupum og sölum. AUs konar braskarar hafa skotið upp kolhn- um og hafa góða afkomu af því að selja útvegjnum verðmæti sem áð- ur vora ekki til. Grandvöhur þess- ara „verðmæta" er oft á tíðum byggður á fólsuðum aflaskýrslum. Allir þeir sem tengjast útveginum þekkja sögur af krókaleyfisbátum KjaUarLnn Reynir Traustason stýrimaður, Flateyri ur í rogastans. Það gegnir furðu að langskólagenginn maöur skuh fara opinberlega með slíkt fleipur. Það er fyrst til að taka að sjómenn hafa yfirleitt ekkert um það að segja hvort einstök veiðiskip era rekin sem fuUvinnsluskip eöa sem hráefnisöflunartæki fyrir vinnslu í landi. Shkt er alfarið á hendi út- gerðarmanns. Þá er sjómannafrá- drátturinn miklu lægra hlutfaU af tekjum sjómanna á vinnsluskipum heldur en þeirra sem afla hráefnis til vinnslu í landi. Þetta stafar auðvitaö af því að sjómannafrádrátturinn er flöt tala og þeir sjómenn, sem róa á vinnslu- skipum, búa gegnumsneitt við mun hærri laun. Sjómannafrádráttur- inn skiptir því hina lægstlaunuðu meðal sjómanna langmestu máh. „Þá er sjómannafrádrátturinn miklu lægra hlutfall af tekjum sjómanna á vinnsluskipum heldur en þeirra sem afla hráefnis til vinnslu í landi.“ sem landa afla sínum á þeim kíör- um aö sá afli, sem seldur er, eykur þyngd sína á leiðinni úr fisk- vinnslustöðinni inn á opinberar skýrslur sem síðar verða grund- vöhur til kvótaúthlutunar. Að sama skapi þekkja menn þá sögu að sumir þeir sem landa undir afla- marki hafa þann samning að sá afii, sem þeir bera að landi, fær aht aöra og minni vigt þegar fært er inn á opinberar skýrslur. Neðanjarðarhagkerfi í sjávarút- vegi sem bein afleiðing af kvóta- kerfinu er staöreynd sem ekki verður Utið fram hjá. Síðast en ekki síst er með kvótakerfinu búið að setja heilu sjávarþorpin á uppboð þar sem gjaldþrot eins fyrirtækis gerir möguleika fólks til afkomu að engu. Þama er um þaö að ræða aö sægreifamir kaupa upp veiði- heimildimar og íbúamir hafa oft á tíðum ekki fjárhagslegt bolmagn til að keppa við þá. Frambýhsréttur- inn er virtur aö vettugi og eftir standa byggðarlög í rúst. Sjómannafrádrátturinn Snjólfur fer nokkrum orðum um sjómannafrádráttinn. Hann kemst að þeirri fáránlegu niðurstöðu, sem er reyndar eftir öðra í grein hans, að sjómannaafslátturinn sé mið- stýring og stuðh að því að fisk- vinnsla flytjist út á sjó. Þetta er svo bamaleg staðhæfing að mann rek- Eitthvaö virðist það vefjast fyrir Snjólfi hvers vegna sjómenn hafa þennan skattaafslátt umfram aðra þegna þessa lands. Því er til að svara að sjómannaafslátturinn varð til í samningum milli sjó- manna og ríkisvaldsins á sjötta áratugnum og er því hluti af starfs- kjörum stéttarinnar sem ekki verð- m- afnuminn nema með samning- um. Áhætta fylgir starfi sjómannsins en sjómannastéttin býr við hlut- fahslega mesta mannfah íslenskra stétta og mestu slysatíðni. Fjarvist- ir era miklar. Reikna má með að sjómaður í fuhu starfi dvelji að meðaltah heima hjá sér þijú af hveijum tíu árum. Ahættuþáttur- inn og fiarvistaþátturinn era jafn- stórir í lífi sjómanna, hvort sem þeir vinna við að flaka fisk eða slægja. Þeir sem sjá ofsjónum yfir þess- um fríðindum, sem sjómenn njóta, ættu að hugleiða það að ríkisstarfs- menn á borð við Snjólf njóta lífeyr- isréttinda sem sjómenn og ahur almenningur í þessu landi standa undir. Þaö hlýtur samkvæmt kenn- ingu Snjólfs aö heita miðstýring sem leiöa mun til óeðlilegrar fjölg- unur á þéttsetnum kaffistofum Háskólans. Reynir Traustason NIÐURSUÐUVERKSMIÐJAN ORA HF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.