Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Qupperneq 22
22
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991.
Verðkönnun
- stólar o.fl.
Verkefnisstjórn Ráðhúss Reykjavíkur óskar eftir verði
í stóla fyrir skrifstofur, mötuneyti og fleiri húsgögn
fyrir Ráðhús Reykjavíkur.
Gögn fást afhent á skrifstofu borgarverkfræðings,
Skúlatúni 2, 3. hæð, 105 Reykjavík.
- 10% afsláttur af gjafavöru og leikföngum.
- Allt konfekt á sérstöku jólatilboði.
- Opið alla daga frá 10-10.
- Rennið í Rangá.
RINÆi
• Sjálfvirkur fókus
• Sjálfvirkt flass
• Dagsetning
• Sjálftakari
• Sjálfvirk filmufærsla
8.990 stgr.
MINOLTA
Myndavéla
FOTO
viðgerðir
Skipholti 50B
Sími 39200
- RAFGJAFINN -
Títan rafgjafinn gefur 12 volta straum, t.d. fyrir ljós, útvarp, ísskáp,
kælibox, sjónvarp, myndbandsupptökuvél, bílasíma og margt fleira. Einnig
er skært vinnuljós og blikkandi neyðarljós og þar að auki eru innbyggðir
startkaplar til að gefa bílum start. Tækinu fylgir handhæg taska og
hleðslutæki en hægt er að hlaða tækið í bílnum eða heima við 220 volt.
TITAN hf
TITANhf
j Lágmúla 7 - 108 Reykjavík
Sími 814077 - Fax 813977
Merming
Nadine Gordimer er hér ásamt samlanda sínum Desmond Tutu.
Astarsaga með
pólitísku ívaf i
Nýlega kom út hjá Máli og menningu bókin Saga
sonar míns í ágætri þýðingu Ólafar Eldjárn en þetta
er nýjasta bók suður-afrísku skáldkonunnar Nadine
Gordimer sem nýverið hlaut bókmenntaverðlaun Nó-
bels.
í bókinni segir frá lífi þeldökkrar fjölskyldu í Suður-
Afríku, hjónunum Ailu og Sonna og bömum þeirra
tveimur, Villa og Lillu. Sagan er ýmist sögö í fyrstu
eða þriðju persónu þar sem Villi, sem er sögumaður,
blandar tii skiptis sér og sínum tiifinningum inn í at-
burðarásina ellegar skoðar söguna úr hlutlausri fjar-
lægð og segir frá atvikum sem hann í raun réttri ætti
ekki aö hafa minnstu hugmynd um. Þessi frásagnarað-
ferð gerir það að verkum að lesandinn fær tvenns
konar sýn á sömu atburði. í fyrstu persónu frásögn-
inni brynjar Vilb sig með hæðni og óvægni, dæmir
óragur menn og málefni og á stundum erfitt með að
skoða hlutina í réttu samhengi. Þriðju persónu frá-
sögnin sýnir atburðina í víðari samfellu, aðrar persón-
ur fá tækifæri til að rétta við hlut sinn eftir áfellisdóma
sonarins auk þess sem varpað er skýrara ljósi á margs
konar átök sem eiga sér stað bæði í einkalífi aðalper-
sónanna svo og í stjórnmálum landsins. Á þennan
máta tekst að kalla fram margþætta samúð og skilning
lesandans á háttarlagi hverrar persónu fyrir sig sem
í kjölfar breyttra aðstæðna fara hver í sína áttina.
Veröldin umturnast
Frásögnin hefst á því að Villi kemst að því fyrir ein-
skæra tilviljun að faðir hans er í tygjum við aðra konu,
eEki einungis einhverja konu heldur hvíta konu sem
Villi kannast viö. Við þessa uppgötvun er drengurinn
særður djúpu sári og veröldin umtumast. Fram aö
þessu hefur hann búið við öryggi, skilning, heiðarleika
og sannsögli, þætti sem foreldrar hans hafa alla tíð
reynt að innræta bömum sínum.
Aður en fjölskyldan flytur til Jóhannesarborgar býr
hún í litlu samfélagi kynblendinga þar sem faðirinn
vinnur við kennslu. Lif þeirra er hversdagslegt og afs-
lappað, markað hefðum og venjum sem bindur þau
sterkum þöndum. Foreldramir em samheldnir, hugsa
um hag bama sinna öðra fremur og gæta sín vandlega
á því að ganga hvergi á hin óskrifuðu lög samfélagsins
sem miðast við að vemda hagsmuni hinna hvítu. En
hugmyndin um velferð svartra, frelsiö og jafnréttið,
fer smátt og smátt að bæra á sér í huga kennarans sem
hættir á endanum að sitja hjá og fer að láta til sín taka.
Afleiðingamar láta ekki á sér standa. Honum er sagt
upp störfum og fer í framhaldi af því að taka fullan
þátt í alls kyns stjórnmálastarfi og lendir aö lokum í
fangelsi. í fangelsinu situr hann í tvö ár og þar kynn-
ist hann Hönnu sem starfar sem eftirlitsmaður á veg-
um mannréttindasamtaka.
Hanna, það er hvíta konan sem Viili sér með Sonna
daginn sem líf hans, líf þeirra, foreldranna og Lillu,
hættir að vera til. Þegar hann stendur fóður sinn að
því aö vera allt annað en hann gefur sig út fyrir að
vera gjörbreytast tilfinningar hans í garð þessa manns
sem getur ekki sjálfur staðið við þær hugmyndir sem
hann hefur alla tíð haldið að bömum sínum. Afstaða
Vifla til Sonna einkennist af hæðni og kulda, hann
stillir honum upp sem villidýri sem getur ekki haldið
aftur af lítilíjörlegum hvötum sínum og hann hefur
andstyggö á Hönnu:
„Mér finnst hún eins og svín. Forfeöur okkar átu
ekki svínakjöt. Það em fáein hár eins og grafnar gler-
flisar í bleiku húöinni í kringum munninn á henni.
Skelfilegar hugsanir leita á mig. Um hana. Um fóður
minn með henni. Ég ímynda mér þau... gæti ég nokk-
urn tíma hugsað þannig um móður mína! Mér býður
við sjálfum mér. Því sem hann hefur fengið mig til að
hugsa um.“ (Bls. 76)
Villi fyrirlítur föður sinn og hann fyrirlítur sjálfan
sig fyrir aö vera neyddur til að taka þátt í þessu sjónar-
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
spili því hann getur ekki fyrir sitt litla líf fengið sig
til að færa móður sinni þessar fréttir. Hann heldur
áfram að leika sitt hlutverk í nýju lífi gmnlaus um
að þetta er staðreynd sem allir vita af en leiða hjá sér
í þörf sinni til að viðhalda þeirri blekkingu aö allt sé
sem fyrr.
Samband Sonna og Hönnu er viðurstyggilegur hór-
dómur í augum Villa en unaðsleg ástarsaga í augum
elskendanna og lesandans sem gerir sér grein fyrir
að lífið hefur mörg andlit. Sonni svíkur Ailu og glatar
henni vegna Hönnu, þörfin fyrir Hönnu verður öllum
þörfum yfirsterkari:
„Þarfnaöist Hönnu. Og nú var hún komin, haíði
fundiö Sonna fyrir hann sjálfan. Hún var honum sælu-
víma sem var jafn eðlileg og æðasláttur innra með
honum hvert sem leið hans lá...“ (bls. 57).
En ást Sonna og Hönnu er ekki bara fögur heldur
einnig skelfileg því hún meiöir, særir og tvístrar, af-
hjúpar botnlausa eigingirni Sonna sem svíkur ástvini
sína aftur og aftur og veldur sáram sem aldrei gróa.
í logum þessarar ástar brennir Sonni síðustu leifamar
af þeirri samstöðu sem fjölskyldan bjó við en sá bruni
er jafnframt óbein ástæða þess að hans nánustu fara
að taka nýja afstöðu til mála sem þau höfðu engin
afskipti af áður.
Margslungin saga
Saga sonar míns er margslungin saga þar sem sam-
an fléttast flóknar og síbreytilegar mannlegar tilfinn-
ingar og barátta fólks sem leggur allt í sölumar fyrir
þann heim sem það þráir, heim frelsis, jafnréttis og
bræðralags. Frelsisþráin æpir á lesandann af hverri
síðu, frelsi sem sameinar, frelsi sem sundrar. Menn
murka lífið úr meðbræðrum sínum og svíkja þá, allt
fyrir frelsiö, frelsi til að eignast eða frelsi til að halda
réttindum sínum. Frelsisþráin opnar augu söguper-
sóna fyrir nýjum víddum í mannlegu samfélagi og
hefur um leið dapurlegar en óumflýjanlegar afleiðing-
ar.
Bókin er sönn og sterk ekki bara vegna þess að hún
segir frá atburðum sem hafa gerst og em að gerast
heldur vegna þess að hún segir frá lifandi fólki, fólki
sem þroskast og tekur afstöðu, fólki sem lumar á og
býr yfir tilfinningum sem allir ættu að geta kannast
við í sjálfum sér.
Saga sonar míns,
Nadine Gordimer,
Mál og mennlng 1991.