Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Page 25
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. 25 Merming Skemmti- sögurúr skólanum íslendingar hafa löngum taliö sig vera mikla sagna- þjóð. Margt hefur verið skráð og er það efni af ýmsu tagi. Við skoðun á þjóðsagnasafni Jóns Ámasonar er að finna marga flokka sagna, þar á meðal kímnisögur. Er þar meðal annars um að ræða sögur af Bakkabræð- rum sem flestir íslendingar þekkja. En hvað er fyndið? Þetta er spuming sem erfitt er að flnna einhlítt svar við. Þar kemur nefnilega til ein- staklingsbundið mat manna. Það sem einum finnst vera drepfyndið kallar ekki fram brosvipru hjá þeim næsta. Þess vegna er líklega svona erfitt að semja skemmtiefni af ýmsu tagi. Það er mjög misjafnt hvemig brandarar verða til. Oft verða atburðir í samtíðinni kveikja þeirra og stundum verða þeir hreinlega alveg óvart tfi, án þess að nokkur maöur ætli sér að vera fyndinn. Við höfum öll heyrt brandara sem eiga að gerast á sjúkrahúsum, í skólum, af stjórnmálamönnum að ógleymdum Hafn- arfjarðarbröndurunum sem eiga rætur að rekja til Norðurlandanna. Ekki er rík hefð fyrir útgáfu bóka með skopsögum á íslandi. Þó má í þeim efnum nefna bækur Gunnars Sigurðssonar frá Selalæk, íslensk fyndni, sem komu út á sínum tíma í fjölmörgum heftum. Þar gat að finna margar góðar sögur, en aðrar höfðuðu síður til nútíma- manna. Tveir ungir menn, Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Sig- uijónsson hafa tekið saman bókina Miklu meira skóla- skop. Þar er að finna sögur sem tengjast skólum og skólastarfi og byggja eðlilega á hnyttnum tilsvörum nemenda og kemiara og ekki síður á ýmsu kyndugu sem staðið hefur í ritgerðum og prófúrlausnum nem- enda. Gamanið er yfirleitt græskulaust og ætti vart að skaða neinn eða særa. Hins vegar hefur kímnigáfa íslendinga oft á tíðum byggst á því að gera grín að náunganum. Talsvert stór hluti þjóðarinnar starfar í skólum landsins og því er ekki ólíklegt að sitthvað fyndið komi þar fyrir. í þessari bók, sem er sú þriðja frá hendi þeirra félaga, eru 175 sögur. Sumar þeirra eru bráð- smellnar en inni á milli eru aðrar sem ekki liggur al- veg ljóst fyrir hvers vegna eru í bókinni. En kannski lýsir það engu öðru en takmörkuðu skopskyni lesand- ans. Samt held ég að þeir hafi hreinlega ekki haft nógu margar góðar sögur úr að velja þegar farið var af stað til að undirbúa útgáfuna. Hefði meiri alúð verið lögð við valið hefði án efa átt að vera hægt að finna 175 góðar skopsögur. En héma eru gæðin of misjöfn. Sögumar eru yfirleitt vel fram settar og á þokkalegu íslensku máli. Samt vil ég gera eina athugasemd við Bókmermtir Sigurður Helgason málfar. Það er í sögu númer 7. Þar segir að nemendum í skóla einum hafi verið falið að búa til leikrit. Stað- reyndin er sú að leikrit em almennt ekki búin til, heldur skrifuð eða samin. Bækur af þessu tagi geta reynst gagnlegar þegar fólk kemur saman og vill gera sér glaðan dag. Og enginn vafi leikur á að margir eiga effir að lesa hana sér til óblandinnar ánægju. En við höfundana vil ég segja: „Vandið betur vafið næst því af nógu er að taka ef menn leggja sig fram.“ Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Sigurjónsson Miklu meira skóla- skop. Lif og saga. STERN UCM-923 CD Hljómtækjasamstæða meó öllu!! 40 watta magnari • Útvarpstæki • Tónjafnari • 2 kassettutæki • Plötuspilari • Geislaspilari "2 way" hátalarar • Fjarstýring A Ð E I N S kr. 29.000.“ itgr. Einnig á alvöru jólatilboði fjölmörg önnur hljómtæki, sjónvarpstæki, myndbandstæki, sjónvarpsleiktölvur, símar, reiknivélar, útvarpsklukkur og ótal margt fleira. HAGKAUP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.