Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991.
37
pv_______________Merming
Æviferilsskýrsla
„Jæja, þá er karl kominn,“ flaug mér í hug þegar
mér barst í hendur „æviferilsskýrsla" Vflhjálms
Hjálmarssonar á Brekku en eitthvaö á þessa leið
ávarpaði hann samkomu sem ég sótti fyrir fjölmörgum
árum og hóf mál sitt með því að segja gamansögu að
hans hætti.
Bókin heitir: „Hann er sagður bóndi“. Á kápusíðu
er kynnt að hann hafi einnig verið ráðherra, bókavörð-
ur (í 63 ár), blaðamaður, ritstjóri, oddviti, sáttasemj-
ari, vegaruðslumaður, rithöfundur, bóndi, alþingis-
maður og kennari. Er þá ekki allt talið. Nefna má alls
konar félagsstörf, svo sem setu í sýslunefnd, stjóm
Stéttarsambands bænda, framleiðsluráði ög sex-
mannanefnd, skólanefnd húsmæðraskóla, for-
Bókmenntir
Albert Jóhannsson
mennsku í kjördæmasambandi og fleira.
í bókarbyrjun segir höfundur frá bemsku- og upp-
vaxtarámm á Brekku í Mjóafirði, lýsir heimflisfólki
og störfum á þeim árum, þegar þáttaskil verða tfl sjáv-
ar og sveita og nýir tímar ryðja burt mörgu því sem
áöur var.
Síðan er hleypt heimdraganum og haldið til náms,
fyrst tfl Seyðisfjarðar, síðar að Laugarvatni. Þar opn-
ast Vilhjálmi nýr heimur og skólinn hlýtur verðskuld-
að lof. Segja má að starfsævi Vflhjálms Hjálmarssonar
beri skólanum og þeirri menntun og fræðslu, sem þar
var að fá, fegurst vitni.
Bókin rekur síðan störf Vflhjálms heima í héraði og
þar kemur að honum eru falin meiri og erfiðari verk-
efni. Hann verður alþingismaður um skeið og eftir
nokkurt hlé á þingsetu liggur leiðin þangað á ný. Þá
bíða hans ný viðfangsefni. Hann verður menntamála-
ráðherra og gegnir því starfi um árabil.
Síðar tekur hann þá ákvörðun að draga sig í hlé úr
amstri stjómmálanna og þá gerist hann mikilvirkur
rithöfundur.
Ekki sé ég ástæðu tfl að rekja þessa svipríku sögu
nánar en læt lesandanum það eftir. Eitt er víst: Höf-
undur hefur unnið hér þarft verk. Sótt verður tfl fanga
Vilhjálmur Hjálmarsson. Bóndi og stjórnmálamaður.
í þessa bók þegar leitað verður heimflda um sögu
þeirra tíma sem höfundur fjallar um. Það þykist ég
sjá að þær heimfldir verði taldar traustar. Þeim tökum
tekur höfundur á efni sínu, segir hvorki lof né last en
lastur lesandann um að draga sínar ályktanir. Það ligg-
ur við á köflum að manni gleymist að hér sé stjóm-
málamaður að segja sögu sína. Hann verður a.m.k.
ekki sakaður um hlutdrægni.
Athygli vekur að Vilhjálmur talar um bók sína sem
„æviferflsskýrslu“. Það kann að vera ástæðan tfl þess
að sú hugsun ásótti mig við lestur bókarinnar að höf-
undur hefði auðveldlega getað skráð aðra ævisögu þar
sem hann fjallaði um þá þætti sögu sinnar sem hér
eru huldir, það sem gerist bak við tjöldin. Hann er allt
í einu orðinn ráðherra en við fáum ekki að vita hvem-
ig þaö gerðist og af hveiju. Við kynnumst samferöa-
fólld hans en hann segir okkur ekki hvernig fólk þaö
var. Þó þykist ég vita að hann kunni frá fjölmörgu að
segja, alvarlegu sem broslegu sem hér er látið liggja
á mflli hluta, en hann hefur sjálfsagt látið það fara
hjá af þeim sökum að þetta væri bara „skýrsla" sem
hann var að senda frá sér.
Hvað um það. Bókin er eiguleg og fróðleg og ágætar
myndir gefa henni aukiö gfldi.
Hann er sagður bóndi
Höfundur: Vilhjálmur Hjálmarsson
Útgefandi: Æskan
Reykjavik: 1991
I
AÐ ÚTGÁFU SÍMA-
SKRÁRIIUIMAR 1992
ER IUÚ HAFIIUIU
Breytingar og viðbætur, svo sem ný aukanöfn þurfa að hafa
borist eigi síðar en 31. desember n.k.
Breytingar á heimibsfangi þarf ekki að tilkynna sérstaklega.
SÉRSTÖK ATHYGLI ER VAKIN Á ÞVÍ AÐ I*EIR SÍMNOTENDUR SEM
HAFA FARSÍMA, FAX, TELEX EÐA BOÐTÆKI, EIGA KOST Á
AUKASKRÁNINGUM í NAFNA- OG ATVINNUSKRÁ
SÍMASKRÁRINNAR, GEGN GREIÐSLU GJALDS KR. 243 - M/VSK
FYRIR HVERJA LÍNU.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 91-63 66 20
kl. 8-16 virka daga.
PÓSTUR OG SÍMI
SÍMASKRÁ, 150 REYKJAVÍK
✓
" Hann var sko ekki eölilegur". Eg sá það eins og skot..."
(Saxi læknir um Þórhall Sigurösson ungan)
Maðurinn á bak við þúsund andlitin
Fáir hafa kitlaö hláturtaugar landsmanna jafn rækilega og
Þórhallur Sigurösson, sem bregöur sér betur en nokkur annar í
allra kvikinda líki. Nú hefur annar spéfugl, Þráinn Bertelsson,
sem kunnur er af gamansömum kvikmyndum sínum og
útvarpsþáttum, sett saman bók um feril Ladda frá upphafi til
þessa dags.
Þessi bók á eflaust eftir ab koma mörgum í gott skap, en hún á
líka eftir að koma mörgum á óvart. Þráinn gægist nefnilega
undir skelina á listamanninum og Laddi segir hispurslaust frá lífi
sínu, - höröum heimi skemmtanabransans og Ijúfa lífinu í
kringum hann, uppvexti sínum, fjölskyldu, vonum, sigrum og
vonbrigöum.
Hver er maðurinn með þúsund andlitin? Hver er þessi feimni
Hafnfirðingur, sem á svo auðvelt með að koma öllum
landsmönnum til a veltast um af hlátri? Hvernig stóð á því að
upprennandi húsgagnasmiður varð vinsælasti skemmtikraftur
þjóðarinnar? Þráinn skrifar um Ladda á einlægan og opinskáan
hátt og lesendurfá að kynnast Þórhalli Sigurðssyni, manninum
sjálfum bak við öll gervin.
Í
LIF OG SAGA
Suðurlandsbraut 20 sími: 91 -689938