Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991.
39
Fréttir
Bækur sem skyggnast á
bak vib tjöldin
Erlendar œvisöaur í sérflokki H | GEGM OFUgVALDI
DAGBOK DIÖNU
Prinsessan af Wales í nærmynd
Díana Bretaprinsessa er hyllt um heim allan, en
hvemig skyldi hún vera? Hvað gerir hún í
frístundum sínum? Hverjir eru vinir hennar?
Hverja umgengst hún í einkalífinu? Hvert fer hún að
versla, borða og skemmta sér? Brugðið er upp
lifandi nærmynd af prinsessunni og svipt hulunni af
einkalífi hennar. Frábærar litmyndir, sumar afar
óvenjulegar, sýna okkur konuna á bak við hina
konunglegu ásýnd.
Verð kr. 2.890.-
BARATTUS^GA
BORIS
JELKilNS
SfálfAöevisaga
fram til síbustuHtbur&a
GEGN OFURVALDI
Baráttusaga BORÍS JELTSÍNS
sjálfsævisaga fram til síðustu atburða.
Borís Jeltsín er maðurinn sem valdaklíkan í
Kreml var búin að fella pólitískan dauðadóm
yfir. En Jeltsín sneri vöm í sókn, komst til
æðstu metorða sem forseti Rússlands og varð
skyndilega bjargvættur Gorbatsjovs og
lýðræðisþróunarinnar í Sovétríkjunum í
valdaránstilrauninni í sumar. Jeltsín segir frá
lífshlaupi sínu, byltingunni sem át bömin sín,
forréttindaheimi flokksgæðinga kommúnista
og uppreisn sinni gegn kerfinu. Ótrúleg og
æsispennandi saga.
Verð kr. 2.890.-
ORN OG tóN ORLYGUR
Sföumúli 11, 108 Reykjavík 684866
Krisljánsstofa
opnuð á Dalvík
Helluborð
Keramik yfirborð, svartur
rammi, fjórar hellur,
sjálfvirkur hitastillir og
hitaljós.
Funahöfða 19
sími685680
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur og
grill, fituhreinsun.svart
glerútlit, tölvuklukka
með tímastilli.
Heimir Kiistinsson, DV, Dalvik;
í byggðasafninu að Hvoli á Dalvík
var opnuð stofa 6. desember, Kristj-
ánsstofa, til minningar um dr. Kristj-
án heitinn Eldjám, forseta íslands.
Stofan var opnuð þennan dag í tilefni
þess að þá hefði Kristján orðið 75
ára, hefði hann lifað.
Fjölmenni var við opnunina. For-
maður byggðasafnsnefndar, Gylfi
Björnsson, bauð gesti velkomna en
síðan flutti Trausti Þorsteinsson, for-
seti bæjarstjómar, ávarp. Hann sagði
það mikinn sóma að fá að heiðra
minningu Kristjáns með þessum
hætti. Hann fór nokkrum orðum um
verk og störf Kristjáns Eldjárns og
gat þess að heimabyggðin, Svarfað-
ardalur og nágrenni, hefði alltaf ver-
ið honum afar kær.
Júlíus J. Daníelsson ritstjóri flutti
ræðu, minntist kynna sinna af
Kristjáni frá bamæsku og sagði m.a.:
„Bóndasonurinn úr Svarfaðardal,
sem varð þriðji forseti lýðveldisins,
var sá íslendingur sem einna ástsæl-
astur hefur orðið með þjóðinni í okk-
ar tíð. Kristján Eldjám átti alla tíð
sterkar rætur heima í Tjörn.“
Sonur þeirra hjóna, Kristjáns og
Halidóra, Ingólfur, þakkaði þann
hlýhug og ræktarsemi sem minningu
fóður hans væri sýnd með þessari
minningarstofu í Hvoli. Þá opnaði
eiginkona Kristjáns, frú Halldóra
Eldjám, Kristjánsstofu. í stofunni er
brjóstmynd af dr. Kristjáni, gerð af
Sigurjóni Ólafssyni. Einnig era þar
myndir úr lífi og starfi forsetans,
bæði gamlar myndir og frá seinni
tíma og þar verða til sýnis handrit
Kristjáns og öll útgefin verk, bæði
framsamin og þýdd.
Við opnun Kristjánsstofu. Frú Halldóra við styttu Kristjáns ásamt systkinum hans, Petrínu og Hirti. DV-mynd Heimir