Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Page 33
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. 41 Yfirhæð- ina með Rúnari Þór Tónlistarmaðurinn Rúnar Þór hélt útgáfutónleika á Púlsinum á fimmtu- dagskvöldið þar sem hann kynnti nýútkomna plötu sína, Yfir hæðina. Lögin, sem hann flutti, voru auðvit- að fyrst og fremst af nýju plötunni en guilkom af fyrri plötum hans fengu þó einnig að fljóta með. Þetta era einu útgáfutónleikamir sem Rúnar Þór kemur til með að halda fyrir jólin enda voru aðdáend- ur hans mættir til leiks og virtust kunna vel að meta tónlistina. Það er Skífan sem gefur plötuna út. Höfundarnir sitja hér á bekk og hlýöa á kollega sína. F.v., Stefán Jón Haf- stein, Jón Óttar Ragnarsson og Ómar Ragnarson. DV-myndir GVA Kúltúrkvöld með bókakynningu Gestum Café Romance í Lækjar- götu var boöið upp á notalega kvöld- stund síðastliðið fimmtudagskvöld með jólaglögg og piparkökum. Þar lásu ýmsir þekktir rithöfundar upp úr nýútkomnum bókum sínum. Stemningin var rómantísk og höf- undamir fóm á kostum enda kvöld- stund sem þessi tilvalinn vettvangur að kynna nýju bækurnar fyrir jólin. Höfundamir, sem um er að ræða, vom þau Súsanna Svavarsdóttir, Jón Óttar Ragnarsson, Stefán Jón Haf- stein, Steinunn Sigurðardóttir, Þor- grímur Þráinsson, Ómar Ragnarsson og Illugi Jökulsson. Hljóðfæraleikararnir Valdimar Öm Flygenring og Hendes Verden komu einnig fram ásamt þeim Pálma Sigurhjartarsyni og Sigurði Jóns- syni. Kvöldið tókst með eindæmum vel og mætti vel gera meira að þessu. Steinunn Sigurðardóttir las úr bók sinni sem ber þaö einkennilega nafn Kúaskitur og norðurljós. Súsanna Svavarsdóttir las meö til- þrifum upp úr bók sinni, í miðjum draumi, eins og sést á þessari mynd. Sviðsljós Frá útgáfutónleikum á Púlsinum. F.v., Rúnar Þór, Jónas Björnsson, Jón Ólafsson, Tryggvi Hiibner og Þórir Úlfarsson. NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ Ásgeirjabnbssai ---------------------- Ásgeir Jakobsson SÖGUR ÚR TÝNDU LANDI Ásgeir Jakobsson er landskunnur fyrir œvisögur sínar um íslenska athafnamenn. Þessi bók hefur að geyma smásögur eftir hann, sem skrifaðar eru á góðu og kjarnyrtu máli. Þetta eru bráðskemmtilegar sögur, sem eru hvort tveggja í senn gamansamar og með alvar- legum undirtóni. vnapá IÆKJARÆTTV i Pétur Zophoníasson VÍKINGSLÆKJARÆTT V Fimmta bindið af Víkingslœkjarœtt, niðjatali Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar, hreppstjóra á Víkingslœk. í þessu bindi er fyrsti hluti h-liðar œftarinnar, niðjar Stefáns Bjarnasonar, Efninu fram að Guðmundi Brynjólfssyni á Keldum verður skipt í tvö bindi, þetta og sjötta bindi, sem kemur út snemma á nœsta ári (1992). Myndir eru rúmur helmingur þessa bindis, Pétur Eggerz ÁST. MORÐ OG DULRÆNIR HÆFILEIKAR Þessi skáldsaga er sjöunda bók Péturs Eggerz. í henni er meðal annars sagt frá ummœlum fluggáfaðs íslensks lœknis, sem taldi sig fara sálförum að nœturlagi og eiga tal við fram- liðna menn. Þefta er forvitnileg frásögn, sem fjallar um marg- breytilegt eðli mannsins og tiifinningar. M.Scott Peck Leiðin til andlegs jproska Öll þurfum við að takast á við vandamál og erfiðleika. Það er oft sársaukafullt að vinna bug á þessum vandamálum, og flest okkar reyna á einhvern hátt að forðast að horfast í augu við þau. í þessari bók sýnir banda- ríski geðlœknirinn M. Scott Peck hvernig við getum mœtt erfið- leikum og vandamálum og öðlast betri skilning á sjálfum okkur, og um leið öðlast rósemi og aukna lífsfyllingu. Finnbogi Guömundsson GAMANSEMI SNORRA STURLUSONAR 23. september voru liðin 750 ár síðan Árni beiskur veitti Snorra_ Sturlusyni banasárl Reykholti. í þessari bók er minnst gleðimannsins Snorra og rifjaðir upp ýmsir gamanþœttir I verkum hans. Myndir í bókina gerðu Aðalbjörg Þórðardóftir og Gunnar Eyþórsson. Auöunn Bragi Sveinsson SITTHVAÐ KRINGUM PRESTA í þessari bók greinir Auðunn Bragi frá kynnum sínum af rúmlega sextíu íslenskum prestum, sem hann hefur hitt á lífsleiðinni. Prestar þeir, sem Auðunn segir frá, eru bœði lífs og liðnir og kynni han's af hverjum og einum mjög mismikil; við suma löng en aðra vart meira en einn fundur. SKUGGSJÁ Bókabúð Olivers Steins sf NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.