Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Síða 35
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. 43 Merming Ásta Ólafsdóttir, höfundur Vatnsdropasafnins: Myndlistin og skrifin eigaþaðtilað rekast á hvort annað Ásta Ólafsdóttir, höfundur Vatnsdropasafnsins. Vatnsdropasafniö er skáldsaga sem nýlega kom út og vakið hefur verð- skuldaða athygli. Höfundurinn er Ásta Ólafsdóttir, myndhstarmaður og rithöfundur. Hennar aðalstarf er myndlistin. Á því sviði vinnur hún bæði við eigin verk og hefur kennt. Sem stendur vinnur hún á bókasafni Myndhstarskólans. Vatnsdropasafnið er saga tveggja persóna sem hittast og elskast, sögu- sviðið er skip og eyja. Þetta er ekki fyrsta bók Ástu. í stuttu spjalli var Ásta fyrst beöin að segja frá rithöf- undarferli sínum: „Vatnsdropasafnið er þriðja bókin eftir mig sem kemur út. Þær tvær fyrri gaf ég út sjálf. Sú fyrsta var Þögnin sem stefndi í nýja átt, en seinni bókin var á ensku, enda bjó ég í Hollandi þegar hún kom út, hét hún, I asked myself: Ásta Ólafsdóttir, if this were a dictionary, how would you explain your heart in it. Vatns- dropasafnið er ólík þessum tveimur bókunum aö því leytinu til að hún er meiri saga, hefur til að mynda sögusvið. Hinar tvær bækumar voru eiginlega skrifaðir textar, Vatns- dropasafnið hangir saman með per- sónum og umhverfi. - Þú ert myndhstarmaður auk þess að vera skáld. „Ég er lærður myndlistarmaður og starfa sem myndhstarmaöur, en ég skrifa nokkuð mikið, ekki að ég sé ahtaf að skrifa skáldsögur, aftur á móti þarf ég að losa mig við þaö sem mér dettur í hug. Þetta er þörf og mér finnst það skemmtilegt. Síðan vinn ég úr þessum hugdettum. Að baki Vatnsdropasafninu er langur tími í vinnu sem tekinn er í skorpum, aðallega hef ég unnið við bókina þeg- ar ég hef átt lengri frí. Að mínu mati er ekki hægt að vinna við skriftir í tímaþröng, en ég hef ekkert markmið í sjálfu sér með skrifunum, mér finnst einfaldlega mjög gaman að skrifa.“ - Verður þú ekki fyrir truflun frá myndhstinni þegar þú skrifar. „Jú, það togast á hvort ég á að gera. Þegar tU dæmis koma páskar er ég gersamlega rugluð hvort á ég að mála eða skrifa. Þannig verð ég að ákveða löngu fyrirfram hvað ég ætla að gera i fríinu ef það á að nýtast mér eitthvað. Það er auöveldara að skella sér beint í skriftir. Þaö er öðru- vísi með myndlistina. Oftast er eitt- hvaö í gangi sem togar í mann, undir- búningur fyrir sýningu eða þess hátt- ar meira um að krafan um vinnu komi utanfrá." - Uppbyggin í Vatnsdropasafninu er nokkuð sérstök? „Mér finnst í sjálfu sér sagan sam- svara sér ágætlega innan þess ramma sem yngra fólk er að skrifa. Hún er ekki beinslínis í rökréttu samhengi. Mér skilst að margir haldi að Vatnsdropasafnið sé ljóðabók, en það er hún alls ekki. Það er öðru hvoru í bókinni sem ég breyti form- inu og uppsetningin verður þá eins og ljóð. Én þetta er aðeins uppsetn- ingin, ljóð hef ég aldrei skrifað." - Er sagan að einhverju leyti per- sónuleg? „Nei ahs ekki og til að gera persón- urnar eins fjarlægar mér sjálfri og mögulegt var datt mér í huga að nota nöfn á kóngafólki, fannst það vera fjarlægast mér, fletti því upp í bók um konungaættir og fann nöfn á per- sónurna þar. -HK Sverrir Stormsker með Ijóðabók og geisladisk í fyrra var það Bubbi Morthens sem var bæði með plötu og bók. í ár er það Sverrir Stormsker sem er á báðum vígstöðvum. Hjá Fjölva kem- ur út ljóðabókin Vizkustykki en áður hefur komið út eftir Sverri ljóðabók- in Kveðið í kútinn sem löngu er upp- seld. Sverrir sest gjarnan niður á hljómleikaferðum og skrifar hugleið- ingar sínar á blað og oft verður úr því ijóð. í kveðskap hans kennir margra grasa eins og í textum hans, hann er kaldhæöinn og orðheppinn í orðaleikjum sínum. Greitest (S)hits heitir geisladiskur með Sverri Stormsker sem Skífan gefur út. Inniheldur hann átján lög sem hafa öll komið áður út á plötum hans en þær eru orðnar sex talsins. Flest laganna eru þekkt í dag og nýt- ur hann aðstoðar margra kunnar tónlistarmanna. Á þessum diski er -----J-----------.---1------------------ Sverrir Stormsker, Ijóð og lög á einu bretti. ferill Sverris rakinn í stórum drátt- leg um árabil og voru þar að auki um. aldrei gefin út á geisladiski. Mörg þessara laga hafa verið ófán- -HK HEKLA LAUGAVEGI 174 S. 695500/695550 KENWOOD RAFMAGNSPANNAN HENTAR VEL í MARGSKONAR MATARGERÐ KAUPTU KENWOOD Á KR. 9.474 * í Lóninu á Hótel mLoftleiðum verður fram- reitt glæsilegt jólahlaðborð á aðventunni, frá 29. nóv- ember -23. desember. ■■"■■■■r ■ wv Matreiðslumeistarar | H| hótelsins sjá til þess að SNg I /■ TI hlaðborðið svigni undan Ll I ■ ljúffengum réttum - -■ M.MJ-Xir bæði í hádeginu og á Fk Tk ■'k kvöldin; hvítlauksrist- W I I I ■ I ■ aður smáhumar, síld, WrL I ■ I reyktur lax, reyksoðin S H ■ H ■ B ■ lundabringa, grísasteik, reyksteikt lambalæri, í HÁDECINII I.395 Klt. Á MANN hreindýrabuff, ris á Á KVÖLDIN I.980 KR.Á MANN l'amande, kanelkrydd- uð epli og ótal margt fleira. Allir jólahlaðborðsgestir eru sjálfkrafa þátt- takendur í glæsilegu ferðahappdrætti. Það fer vel um þig í Lóninu og þjónarnir okkar leggja sig alla fram til að stundin verði sem ánægju- legust. Borðapantanir í síma 22321. _; FLUGLEIDIR Þegar matarilmurinn liggur í loftinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.