Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Síða 36
44 MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. Merming Sumardvöl í sveit Eitt andlausasta ritgerðarefni sem grunn- skólakennarar við sjávarsíðuna geta lagt fyr- ir bömin sín er að segja þeim að skrifa um sumardvöl í sveit. Þannig geta þeir og börnin bjargað sér á flótta undan hugmyndafátækt- inni með því að segja frá dýrunum og öllu því sem þykir við hæfi að böm skrifi um í skóla og taki eftir í kringum sig. Eldri höf- undar hafa líka oft getað hallað sér að þessu efni og sent bömin til uppeldis að læra um gamia tíma í sveitinni í stað þess að mæla vanþroskandi götur kaupstaðanna. Efnið er því eins útþvælt og nokkurt efni getur verið. En þá kemur Guðbergur Bergsson með Svan- inn og allt í einu er eins og enginn hafi dott- ið ofan á þetta söguefni fyrr. Hér er allt nýtt og öðruvísi en áður. Svanurinn segir sögu ungrar stúlku sem er send í sveitina til betrunar og uppgötvar þar konuna í sjálfri sér. Á sveitabænum eru bóndinn og kona hans, forfrömuð heimasæta sem lætur eyða fóstri eftir strák á næsta bæ, og draumlyndur kaupamaður sem hefur áð- ur átt vingott við heimasætuna. Ytri atburð- ir og samskipti persóna eru að vísu ekki í öndvegi heldur fjölbreytileg innri reynsla sem gæðir tilvemna dýpri merkingu þannig að af öllu saman flæðir mikill skáldskapur og rignir niður á lesandann eins og yfir áheyrendur Egils foröum. Stúlkan sem þroskast í sögunni er þó ekki aðalpersóna í þeim skilningi að aliir atburðir hverfist um hana. Hún er miklu fremur áhorfandi að mannlífinu og sér hvað gerist án þess kannski að skilja hvað er á seyði hverju sinni. En það gerum við sem lesum og sjáum allt lifna vegna þess frábæra auga sem sögumaður hefur fyrir fólki, tilfinning- um þess, hreyfingum og smáatriðum sem skjótast fram hjá okkur flestum. En þegar bent er á þau segjum við: „ Já, einmitt svona!“ Eins og þessi eina handarhreyfing kaupa- mannsins þegar hann situr við eldhúsborðið í rigningartíð: „Svo þreyttur var hann eftir erfiði daganna að þegar hann vaknaði eftir hádegisblundinn var hann ennþá sofandi þótt hann staulaðist um eða sæti við borðið og stryki sér í framan.“ (87) Ekkert er sem sýnist í sögunni er leikið með andstæður í hlut- skipti og þroska manna þar sem ekkert er blátt áfram, hvorki gott né vont. Ekkert er einsleitt eða hneykslanlegt, ekki einu sinni kynferðisleg misnotkun á barni (sem svo myndi heita hjá múgamönnum og vera for- takslaust fordæmd) sem er hér fléttuð inn í. önnur undur mannlífsins og verður hluti af þeirri reynslu sem dýpkar skilning stúlk- unnar. Þannig birtist okkur aldrei eitt klárt og kvitt sjónarmið eða lífsviðhorf. Við ótt- umst þetta en finnum um leið og svona er það. Lífið er hvorki einfalt né fagurt þó að við vildum gjarnan að svo væri. Annað dæmi um margræðnina kemur fram í afstöðu til þýskrar tamningastúlku sem kemur í sveitina og kennir bændum loksins að sitja íslenska hestinn af hstrænni reisn. Að vonum þykir slíkt uppátæki undar- legt: „Nú, reiðlistin virðist þá vera í því fólgin að gera venjulegt hross óeðlilegt eða fíflalegt á göngu, sagði húsfreyjan. Nei, þetta er verulega fallegt, sagði dóttirin þurriega. Maður sér að eitthvað venjulegt hefur verið stílfært og gert þannig óvenjulegt með góðri tamningu. Þar er gaidurinn. Jæja, sagði móðir hennar. Hefur maður þá ekki lengur vit á hestum?" (100) Venjulegur hrekklaus lesandi gæti átt von á því að menningarvitalegur höfundur tæki afdráttarlausa afstöðu með markvissri, hst- rænni tjáningu andspænis brjóstviti hins óupplýsta. En tilvitnunin hér að ofan fær mann til að halda að verið sé að hæða upp- skafningshstamenn með því að láta bams- lega einfeldni aíhjúpa þá. Sú kennd varir þó Guðbergur Bergsson. Svanurinn tvímæla- laust I hópu bestu skáldsagna sem komið hafa út aö undanförnu. Bókmenntir Gísli Sigurðsson ekki lengi því að báðum víddum er haldið til haga og þegar bændur telja sig hafa hæðst nóg að iðnrekendareiðlaginu úr Reykjavík finnst þeim að þeir hafi „aldrei haft vit á reiðhestum, heldur á áburðarhrossum, aldr- ei skhið þrá hestsins fyrir flug efnisins í skáldskap og goðheimi. Þeir höfðu aðeins gert hann að þarfasta þjóni sínum en ekki að félaga í öðm en jarðbundnu andríki stö- kunnar, ekki að óhlutbundinni þrá andans eftir fegurð og stílfærðri tign.“ (101) Les- andinn fær þannig hvorki að finna th sam- stöðu né andúðar á hstarleysi alþýðunnar en les háð um fordóma hennar um leið og hann fær skhning á eðhlegri afstöðu náttúm- barnsins til þýskrar reiðlistar í íslenskri sveit. Svanurinn Yfir sögunni vakir svanurinn sem tengist tjölbreytilegum hamskiptasögum og frelsis- þrá í táknheimi okkar. Af honum er líka sagan um litla, ljóta andarungann sem þroskast í thkomumikinn fugl og ekki er laust við að vaxtarlag svansins þegar nær dregur höfðinu veki ýmsar karlkynferðisleg- ar hugmyndir hjá lesandanum. Og þær hug- myndir em glaðvakandi á árlegu héraðsmóti í sveitinni þegar lúðrasveitin Svanirnir leggst ofan á konurnar „til að verja þær þannig gegn skúrinni" (108). Undir lok sög- unnar er svanurinn síðan sýndur í sterku verndara- eða árásarhlutverki sínu hkt og á svansmynd hohenska 17. aldar málarans Jan Assehjn, sem prýðir kápu bókarinnar. Þann- ig er svanurinn jafn fjölbreytilegur og marg- ræður og sagan sjálf, og verður aldrei höndl- aður í eitt skipti fyrir öh. Svanurinn er tvímælalaust í hópi bestu skáldsagna sem komið hafa út að undanf- örnu eftir íslenska höfunda. Á ytra borði fjallar hún um margnotað sthaverkefni skólakerfisins en lyftir því með þeim hætti að það virðist ósnert af öðrum. I henni eru dregnar upp lifandi og dæmigerðar mannlífs- myndir, en um leið einstakar, og lesandinn er sífellt vakinn til umhugsunar um sam- skipti okkar við annað fólk og möguleika til þroska, hömlur jarðneskrar tilveru og frjáls- ræði skáldskaparins. Guðbergur Bergsson: Svanurinn, skáldsaga, 148 bls. Forlagið, 1991. LE EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR liiiillll ‘M‘í‘N»I‘I*M*í*Wss ‘rrrri *•*«•••••• 97900.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.