Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Qupperneq 50
I 58 MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991. Fólk í fréttum Sigurður Rúnar Jónsson Sigurður Rúnar Jónsson hlóm- listarmaður, Vatnsendabletti 143, Kópavogi, vakti heldur betur at- hygli, ásamt Ragnhildi Gísladóttur og Sverri Guðjónssyni, með búk- slætti sínum á íslenskri menningar- viku í London á dögunum. Starfsferill Sigurður fæddist í Reykjavík 19.1. 1950 og ólst þar upp. Hann var ellefu ár í tónlistarnámi og spilaði með Sinfóniuhljómsveit íslands á ungl- ingsárunum fram til 1974. Sigurður stundaði tónlistar- kennslu á Selfossi 1969-71, við Leik- hstarskóla íslands, í Vestmannaeyj- um 1972-78, stjórnaði Verslunar- skólakómum 1973 við flutning á Tommy, stjómaði Samkór Vest- mannaeyja ásamt barnakóram í Eyjum, spilaði með hljómsveitinni Náttúra 1969-71 og stjórnaði tónhst- inni í Hárinu. Hann hefur unnið mikið í leikhúsum, samdi tónlist við fjölda leikrita, eins og Öskubusku og Gosa í Þjóðleikhúsinu, stjómaði tónhst og sphaði í Gísl hjá LR og hefur samiö tónhst við sjónvarps- leikrit. Sigurður stofnaði upptökufyrir- tækið Studio Stemmu árið 1980 og hefur síðan starfað við upptökur ásamt því að spha og útsetja. Hann samdi tónlistina við kvikmyndina Magnús eftir Þráin Bertelsson og hefur unnið mikið við útsetningu og flutning íslenskra þjóðlaga. Fjölskylda Sigurður kvæntist 15.9.1972 Ás- gerði Ólafsdóttur, f. 12.2.1950, kenn- ara. Húh er dóttir Ólafs Kjartans Guðjónssonar, verslunarmanns á Akranesi, og Filippíu Jónsdóttur húsmóður. Sonur Sigurðar og Ásgerðar er Ólafur Kjartan, f. 24.9.1968, tölvu- fræðingur. Systkini Sigurðar: Margrét Rannveig, f. 7.2.1951, sjúkraliði í Reykjavík; Ragnar Már, f. 3.8.1953, drukknaði í maí 1975; Hhdur, f. 2.12.1955, fjölmiðlafræð- ingur í Reykjavík; Guðrún Ólöf, f. 22.1.1959, ljósmóðir í Reykjavík; Sigrún, f. 12.8.1960, læknir í Sví- þjóð; Jón Hörður, f. 1.9.1963, deild- arstjóri hjá SKÝRR og flugmaður; Jóhanna Kristín, f. 14.6.1966, viö balletnám í New York. Foreldrar Sigurðar eru Jón Sig- urðsson(Jónbassi), f. 14.3.1932, kontrabassaleikari viö Sinfóníu- hljómsveit íslands, og Jóhanna Unnur Erlingson Gissurardóttir, f. 16.1.1932, þýöandi. Ætt Jón er sonur Sigurðar, prests á Þingeyri, bróður Benedikts frá Hof- teigi, afa Kolbeins Bjarnasonar flautuleikara. Sigurður var sonur Gísla, b. á Egilsstöðum, Helgasonar, b. á Geirúlfsstöðum í Skriðdal, Hah- grímssonar. Móðir Sigurðar var Jónína Hildur, systir Þórarins, fóð- ur Jóns tónskálds. Jónína var dóttir Benedikts, b. á Kollsstöðum á Völl- um, Rafnssonar. Móðir Jóns kontrabassaleikara var Guörún Jónsdóttir, b. í Hvammi á Landi, Gunnarssonar, b. í Hvammi, Árnasonar. Móðir Jóns í Hvammi var Guðrún Brandsdóttir, b. á Felli í Mýrdal, Brandssonar, b. á Víkingslæk, Halldórssonar. Móðir Guðrúnar Jónsdóttur var Ólöf Jóns- dóttir, b. í Lunanshoiti á Landi, Ei- ríkssonar, b. í Tungu, Jónssonar. Móðir Jóns í Lunansholti var Guð- rún, systir Eyjólfs, langalangafa Davíðs forsætisráðherra. Jóhanna, móðir Sigurðar Rúnars, er dóttir Gissurar, fyrrv. umdæmis- stjóra Pósts og síma, bróður Ástu grasalæknis. Gissur var sonur Erl- ings, grasalæknis og búfræðings frá Eiðum, Fihppussonar, silfursmiðs og b. í Kálfafellskoti, Stefánssonar. Móðir Erlings var Grasa-Þórann Gísladóttir, b. í Gröf, bróður Eiríks, afa Gísla Sveinssonar alþingisfor- seta. Systir Gísla var Rannveig, langamma Ragnars í Smára. Móðir Gissurar var Kristín Jónsdóttir frá Ghsárvöhum í Borgarfírði eystra. Móðir Jóhönnu var Mjahhvít Margrét Linnet, dóttir Jóhanns Pét- urs Péturssonar úr Skagafirði en hún var ættleidd af Kristjáni Linn- et, sýslumanni og bæjarfógeta. Móð- Sigurður Rúnar Jónsson. ir Mjallhvítar var Jóhanna Júhus- dóttir frá Ghsfirði á Barðaströnd, systir Játvarðar Jökuls rithöfundar. Mjallhvít er systir Bjama, foður Jóhönnu Linnet söngkonu, Hinriks, föður Vernharðs Linnet, og Ehsa- betar, móður Hlífar Svavarsdóttur, stjómanda íslenska dansflokksins, og Guðrúnar Svövu myndlistar- konu. Afmæli Haraldur Birgir Amgrímsson Haraldur Birgir Amgrímsson kaupmaður, Suðurengi 23, Selfossi, erfertugurídag. Starfsferill Haraldur er fæddur í Reykjavík en ólst upp á Selfossi. Hann var við nám í Gagnfræðaskólanum á Sel- fossi og lærði síðar radíóvirkjun í Reykjavík. Haraldur hlaut meist- araréttindi 1974. Haraldur stofnaði verslunina Blómahomið á Selfossi árið 1977 og hefur rekið hana síðan ásamt eiginkonu sinni. Haraldur hefur gegnt ýmsum trúnaðárstörfum og m.a. á vegum Selfossbæjar. Hann hefur einnig verið formaöur Stangaveiðifélags Selfoss um árabil. Fjölskylda Haraldur kvæntist 8.10.1975 Klöru Sæland, f. 3.4.1951, verslunar- manni. Foreldrar hennar: Eiríkur Á. Sæland og Hulda Gústafsdóttir garðyrkjubændur, Espiflöt í Bisk- upstungum. Sonur Haralds og Klöru er Arn- grímur Fannar, f. 23.4.1976, nemi. Stjúpsonur Haraldar er Einar Þór Bárðarson, f. 18.3.1972, nemí. Systkini Haralds: Guðjón, fyrrv. fréttamaður á Stöð 2, maki Bryn- hhdur Gísladóttir, skrifstofum. hjá Flugleiðum, þau eiga tvo syni; Sól- veig bókasafnsfræðingur, maki ívar Birgisson prentari. Foreldrar Haralds: Arngrímur Guðjónsson skrifstofumaður og Fanney Jónsdóttir starfsstúlka. Þau bjuggu lengst af á Selfossi en búa núíReykjavík. Ætt Amgrímur er sonur Guðjóns A. Sigurðssonar og Þórannar Guð- mundsdóttur, garðyrkjubænda í Gufudal. Fanney er dóttir Jóns Sigurðsson- ar, bónda í Stóra-Fjarðarhorni, og Sólveigar Andrésdóttur, Þrúðardal í Strandasýslu. Haraldur tekur á móti gestum á afmæhsdaginn eftir kl. 19. Haraldur Birgir Arngrímsson. Dé Longhi djúp- steikingarpotturinn er byltingarkennd nýjung Hallandi karfa, sem snýst meöan ó steikingu stendur: • jafnari steiking • notar aðeins 1,2 Itr. af olíu í stað 3ja Itr. í venjulegum" pottum • styttri steikingartíma • 50% orkusparnaður --50%—, (BeLonghi) Dé Longhi erfallegur fy rirf erðarlítill ogfljótur /rQniX HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420 Kristín Vigfúsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Karólína Bjömsdóttir, Hátúni lOb, Reykjavík. Sigrún Daníelsdóttir, Hjallavegi 8, Reyðarfirði. Sigþór Bjarnason, Tunguhaga, Valiahreppi. Sigriður Einarsdóttir, Skipholti28, Reykjavík. Guðjón J. Brynjólfsson, Fannborg 8, Kópavogi. Kirkjuteigi 14, Reykjavík. Helga Þorsteinsdóttir, Laugarnesvegi 92, Reykjavík. 70 ára Ingi Jónsson, Skólageröi 15, Kópavogi. Guðrún Einarsdóttir, Skipholti 32, Reykjavík. 60 ára Sandra Jóhannsdóttir, Lynghaga 10, Reykjavík. Ragnar Benediktsson, Stekkjargötu 7, ísafirði. Haukur Ast valdsson, Hraunteigi 12, Reykjavík. Ingi J. Ármannsson, Tiamarlöndum 17, Egilsstöðum. Árni Guðmundsson, Sjöfn Óskarsdóttir, Nesvegi 51, Reykjavík. Sigurveig Þorsteinsdóttir, Gónhóli 12, Njarðvík. Sigurður Kristinsson, Sunnuhlíð, Vatnsleysustrandar- hreppi. Ingibjörg Erla Jósefsdóttir, Hjallabraut 39, Hafnarfirði. Diðrik Ólafsson, Brekkutúnið, Kópavogi. Bjami Ingvarsson, Kleifarseli 25, Reykjavík. Gunnar Mór Zóphaníasson, Heiðarásí 2, Reykjavík. TAKHI ÞATTI > * .IOI.A- (iKÍIIAI.V Vinningar að verðmæti 270 þúsund krónur. Skilafrestur er til 23. desember. SlihIíi) alla 10 scúlaiia í duu iiiiisla<>i - (ilæ*ilc!»ii* YÍiiuingai* iVádapis oi» KadíúhiiOiiini

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.