Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1991, Blaðsíða 56
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn * Auglýsingar - Áskrift - Ðreifing: Stmi 27022
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1991.
Vestmannaeyjar:
Vinnslu-
stöðin og
Fiskiðjan
sameinast
Ómar Garöarsson, DV, Vestmaimaeyjuni;
A laugardaginn urðu kaflaskipti í
útgerðarsögu Vestmannaeyja þegar
forráðamenn Vinnslustöðvar Vest-
mannaeyja hf. og Fiskiðjunnar hf.
skrifuðu undir viljayfirlýsingu á
samruna félaganna í eitt fyrirtæki.
Með þessu er risið eitt stærsta fisk-
vinnslu- og útgerðarfyrirtæki lands-
ins með um 12.000 þorskígilda kvóta
auk 6.000 þorskígilda sem útgerðir
tengdar fyrirtækinu eiga.
DV ræddi við Guðmund Karlsson,
framkvæmdastjóra Fiskiðjunnar,
talsmann fyrirtækjanna, í gær-
kvöldi. Sagði hann að í dag yrði gefin
út fréttatilkynning um málið. „Við
höfum verið að vinna í þessu yfir
helgina og það er stefnt að samrunna
Fiskiðjunnar og Vinnslustöðvarinn-
ar en enn á eftir að leggja þetta fyrir
stjórnir fyrirtækjanna," sagði Guð-
mundur.
Að Fiskiðjunni og Vinnslustöðinni
eru tæplega 100 hluthafar. Eignimar
eru miklar; þrír togarar, sjö bátar,
12.000 þorskígilda kvóti, loðnu-
bræðsla FIVE, Lifrarsamlag Vest-
mannaeyja hf. og Tanginn, stærsta
matvöruverslun í Eyjum. Auk þess
eiga útgerðarfyrirtæki, sem eiga sjö
báta og um 6.000 þorskígilda kvóta,
hlut í fyrirtækjunum. /
Ætlunin mun vera að gera nýja
fyrirtækið að almenningshlutafélagi.
LOKI
Þeir verða þá sæmilega
upplýstirájólunum
fyrirnorðan!
Rjúpnasalan hefur breyst verulega:
Þúsunda- riúpna
seidar Deint tra
veiðimonnum
„Það er miklu betra að hafa enga
millihði í rjúpnasölunni heidur
selja ijúpurnar beint til kaup-
enda,“ sagði rjúpnaveiðimaður í
samtali við DV í gærkvöldi. Á
tveimur síðustu árum hefur sala á
ijúpum breyst mikið. Kaupendur
kaupa núna meira beint af rjúpna-
skyttunum en mörgum finnst ijúp-
ur dýrar þegar kaupmaðurinn
kemur hvergi nálægt þessu.
„Ég hef selt allar mínar rjúpur
án þess að kaupmaðurinn komi þar
nálægt og þetta finnst mér gefast
betur. Ætli ég hafi ekki selt á milli
200 og 300 ijúpur þetta árið, héma
í kringum mig hafa flestar ijúpna-
skyttur selt meö þessu hætti,“ sagði
ijúpnaskyttan og salinn.
Á þessum vetri, síðan rjúpna-
veiðin byrjaði 15. október. hafa
rjúpnaskyttur seit einhver þúsund
af: tjúpuni; og næstu daga verða
seldar eimþá fleiri með þessum
hætti.
Verð á rjúpum er hátt þessa dag-
ana finnst mörgum, á milli 700 og
800 krónur fyrir fuglinn. DV heyrði
um 1000 krónur fyrir fuglinn vestur
á flörðum og þeir seldust vel.
Rjúpnalaus jól eru óhugsandi hjá
mörgum.
„Við eigum í okkar pantanir fyrir
þessi jól en það er kominn titringur
í skotveiðimenn núna rétt fyrir jól-
in,“ sagði Pétur Pétursson kaup-
maður í samtali við DV í gærkveldi.
„Það er rétt að þetta hefur breyst
núna hin síðari árin, stærstu búð-
imar seldu hérna áður fyrr á milli
15 og 20 þúsund rjúpur. Núna er
þetta minna. Rjúpnaveiðin hefúr
verið góð og það er töluvert til af
rjúpum hjá skotveiöimönnum enn-
þá,“ sagði Pétur ennfremur.
Rjúpur munu hafa verið boðnar
til sölu fyrir utan Kolaportið um
: helgina.: ■: -G.Bender
Rúða var brotin í sýningarglugga í verslun Japis í Brautarholti á sjöunda tímanum í morgun. Þjófurinn teygði sig
inn um brotna rúðuna og tók myndbandstökuvél og geislaspilara. Við svo búið fór hann á brott. Ekkert hafði spurst
til hans í morgun. DV-mynd S
Veöriðámorgun:
Hitiyfir
frostmarki
Á morgun verður breytileg átt,
víðast kaldi en sennilega strekk-
ingsvindur sums staðar norð-
vestanlands. Slydduél verða um
norðvestanvert landið en skúrir
í öörum landshlutum. Hiti á bil-
inu 1-6 stig.
EES utan A
dagskár? ^
0
0
Hj örleifur Guttormsson hefur farið
fram á umræður utan dagskrár á
Alþingi vegna álitsgerðar Evrópu-
dómstólsins um að EES-samningam-
ir samrýmist ekki Rómarsáttmál-
anum hvað viðvíkur dóms- og eftir-
litsmálum og séu þeir því ógildir. Er
að vænta að umræðan verði í dag eða
á morgun. -hlh
Tíðaskarð í gærkvöldi:
Fjórir slasaðir
eftirbílveltu
Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir
að bifreið fór út af Vesturlandsvegi á
móts við Tíðaskarð á níunda tíman-
um í gærkvöldi. Bílnum var ekið eft-
ir tiltölulega auðum vegarkafla þeg-
ar svellkafli tók við. Um svipað leyti
kom sviptivindur á bílinn og missti
ökumaður stjórn á honum. Fólkið
slasaðist ekki alvarlega, samkvæmt
upplýsingum DV.
Annað slys varð á mótum Miklu-
brautar og Snorrabrautar í gær. Þar
lentu tveir bílar í árekstri. Tveir voru
fluttiráslysadeild. -ÓTT
aðan sjómann
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út vegna slasaðs sjómanns á
laugardag. Tilkynning barst klukkan
6:40 á laugardag frá togaranum Sjóla,
sem staddur var 75 mílur suðvestur
af Reykjanesi, um að sjómaður hefði
fengið slæmt högg á síðuna. Aðstæð-
ur til björgunarstarfa voru erfiðar
vegna vinds og það þurfti tvær til-
raunir áður en heppnaðist að hífa
sjómanninn um borð í þyrluna. Flog-
ið var með hinn slasaða á Borgarspít-
alann. -ÍS
StáluöHum
Ijósaperunum
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Þeir tóku hveija einustu peru,
skildu enga eftir,“ sagði Júlíus Foss-
berg, verslunarmaður í versluninni
Brynju við Aðalstræti á Akureyri,
en hann fékk heimsókn peruþjófa
um helgina.
Tveir menn á bíl námu staðar við
verslun hans og hirtu hveija einustu
ljósaperu af jólatré sem Júlíus hafði
komið upp við verslunina, en per-
umar voru 40 talsins. Til mannanna
sást, kona í næsta húsi varð þeirra
vör og það leiddi síðan til handtöku
þeirra.
BOUQUiT ros
iími: 91-41760