Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1992. Fréttir Óánægja meðal foreldra sjö ára bama í Foldaskóla: Einn bekkurinn með allt að 7 kennara frá í haust Foreldrar barna í Foldaskóla I Grafarvogi eru óánægðir með kennslu 7 ára barna. Dæmi eru um bekk sem hefur haft 7 kennara frá því i haust. DV-mynd GVA Fæðlngarheimili Reykjavíkur undir Ríkisspítalana: Starf sfólki verður sagt upp bráðlega - enútveguðönnurstörfístaðinn „Barnið mitt, sem er í 7 ára bekk, er búið að hafa allt upp í sjö kennara síðan í haust. Umsjónarkennarinn í bekknum hefur verið mikið flarver- andi vegna veikinda og þá hafa hinir og þessir forfallakennarar gripið inn í,“ sagði foreldri eins bamsins við DV. „Þá fá yngstu krakkarnir enga leikfimi, enga tónmennt, enga hand- mennt og svona mætti áfram telja.“ Annað foreldri sagði við blaðið að ófremdarástand hefði verið í frímín- útum í skólanum. Síðan hefði frímín- útunum verið skipt og þá hefði ástandið lagast mikið. Hins vegar væru kennslumáhn alls ekki í nógu góðu lagi. Umsjónarkennarinn í 7 ára bekknum hefði einnig verið mikið fjarverandi á síðasta skólaári og nú virtist sú saga vera að endurtaka sig. „Þetta er endemis þvæla, að krakki í 7 ára bekk sé búinn að hafa svona marga kennara síðan í haust,“ sagði Amfinnur Jónsson, skólastjóri í Foldaskóla, er DV ræddi viö hann. „Það er einn kennari hér sem hefur Tölvurnarunnu yfirburðasigur Tölvur unnu yfirburðasigur á mönnum á skákmóti sem Skák- skóli íslands og Taflfélag Reykja- víkur stóðu fyrir á laugardaginn í samvinnu við Kjarna hf. Alls náðu tölvurnar 91,5 vinningum gegn mönnum sem urðu að sætta sig við 28,5 vinninga. Alls vom keppendur á mótinu 60, þar af 30 tölvur, 20 nemendur í Skákskóla íslands og 10 manna sveit frá TR. Tefldar vom 4 um- ferðir og náðu aðeins 4 jákvæðu vinningshlutfalli gegn tölvunum. Þeir Þröstur Ámason og Bragi Þorfinnsson hlutu 3 vinninga hvor og þeir Helgi Áss Grétarsson og Hannes Hlifar Stefánsson hlutu 2,5vinningahver. -kaa „Þegar ljóst verður hvernig mál skipast verðum við að segja starfs- fólkinu upp, það er að segja þeim sem fara til Ríkisspítalanna, og bjóða því síðan annað starf. Það verður auðvit- að að rjúfa ráðninguna ef um breyt- ingar verður að ræða. En þetta er bara formsatriði. Það fá aflir laun hjá okkur 1. febrúar," sagði Jóhann- es Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans. Nú er hafinn undirbúningur að yf- irtöku Ríkisspítalanna á Fæðingar- heimifl Reykjavíkur. Það hefur til- heyrt rekstri Borgarspítalans en því verður nú breytt. Stefnt er að því aö þessar breytingar eigi sér stað seinni partinn í næsta mánuði. Þessa dagana standa yfir viðræður við starfsfólkið á Fæðingarheimil- inu. Er fyrirhugað að reyna að út- vega öllum störf, þó svo að það verði á öðrum deildum Borgarspítalans eða hjá Ríkisspítulunum. Við yfir- tökuna munu 7 stöðugildi fylgja Fæð- ingarheimifinu en þar eru nú um 20 stöðugildi. „Það verður reynt að leysa vanda hvers og eins og það stendur yfir þessadagana,“sagðiJóhannes. -JSS verið dáfltið veikur og komið for- fallakennarar þar inn í staðinn. Ég hef í sjálfu sér ekki tölu á hvað þeir era margir, en þeir hafa ekki verið neinir sjö.“ - Þannig að þú segir að foreldrarnir séu að segja þetta ósatt. „Ég er ekki að segja að þeir segi þetta ósatt en ég veit ekki hvemig þeir reikna þetta. Ég átta mig ekki alveg á þvi.“ Amfinnur sagði rétt að umræddur kennari hefði verið talsvert mikið fjarverandi seinni partinn á síðasta skólaári og upphafi þessa skólaárs. „Ég hélt að það væri nú akkur fyr- ir foreldra að börnunum væri kennt þegar um veikindaforfoll er að ræða. Auðvitað má segja að það sé vont fyrir alla ef kennari verður veikur. En það gerist hjá kennurum eins og öðrum að þeir verða veikir. Þá er spuming um að reyna að fá kennara í þau forfóll og það er það sem við höfum reynt.“ -JSS Mannanafnanefnd bætirvið nöfnum Blíða, Brimdís, Kassandra, Gunnófl, Sær og Ingimagn era meðal þeirra eiginnafna sem mannanafnanefnd hefur sam- þykkt frá 1. nóvember síðastliðn- um. Þeir sem ekki hafa getað fundið neitt við hæfi meðal þeirra sem þegar vora heimiluð hafa nú úr meira að vejja. Samþykkt stúlknanöfh era auk fyrrgreindra Hallý, Jara, Lif, Mirra, Ninna, Péturína og Ró- berta. Samþykkt drengjanöfn era Dan, Dór, Hliðar og Kalmann, auk þeirra sem þegar hafa verið nefnd. Þess má svo geta að vilji menn gefa eitthvert annað nafn en sam- þykkt hefur verið af mannanafna- nefnd er hægt að sækja sérstak- legaumþað. -IBS í dag mælir Dagfari Sameinaðir verktakar þurfa aö ganga í gegnum miklar hremming- ar þessa dagana. Ekki er nóg með að fyrirtækið hafi neyðst til að borga eigendum arð af eign sinni, heldur hafa fjölmiðlar og almenn- ingur gengið hart fram í því að spyrja hvaðan þessir peningar komi og hver eigi þá. Fólk er jafn- vel svo óforskammað að heimta að borgaður sé skattur af útgreiðslun- rnn! Morgunblaðið hefur ítarlegt viö- tal við forstjóra Sameinaðra verk- taka á sunnudaginn. Sá heitir Thor Ó. Thors og hefur verið forstjóri frá upphafi. Fram kemur í þessu við- tali að forstjórinn var alvarlega búinn að vara eigendur við því að þeir fengju útborgað. Það hefur raunar verið hans stefna allt frá upphafi að fela þennan fjársjóð og neita að borga hann út, vegna þess að hann hefur lengi gert sér grein fyrir því að bæði fyrirtækið og eig- endur þess mundu verða fyrir miklu aökasti ef og þegar það kæmi í ljós hvers virði fyrirtækið væri. Hann hefur statt og stöðugt ásamt með Halldóri H. Jónssyni stjómar- formanni lagt á það áherslu að pen- ingamir væra varðveittir og geymdir og faldir á bak við lás og Aumingja maðurinn slá, svo enginn færi að amast við gróðanum. En forgöngumennirnir era marg- ir hverjir fallnir frá og í stað þeirra situr fyrirtækið uppi með ekkjur og aðra erfingja sem hafa látið illa og heimtað sinn hlut borgaðan út og þessir aðilar eru margir hveijir búnir að fara á hausinn og hafa ekki vit á peningamálum og höfðu núna betur. Þeir fengu'það sam- þykkt í stjórninni að borgað yrði út. Þetta finnst forstjóranum slæm- ur kostur og vekur athygli á því að ekkjumar og erfingjamir hafa kallað yfir sig reiði og fúkyrði og jafnvel rannsókn á gróðanum og nú verður ekki lengur neinn friður með allan þann gróða sem fyrir- tækið á og nú vita allir hvað eigend- ur Sameinaðra verktaka era ríkir. Þetta eru hræðileg örlög og for- stjórinn þvær hendur sínar af þess- um mistökum og kvartar undan því að hann ráði ekki lengur ferð- inni hjá Sameinuðum verktökum og sú stefna hafi orðið undir að fela gróðann og leyfa honum að ráðskast með peningana. Dagfari hefur mikla samúð með forstjóranum. Aumingjans maður- inn hefur orðið fyrir barðinu á rík- um ekkjum, sem halda því fram að þær eigi rétt á því að fá hlutdeild í sínum eigin gróða. Sameinaðir verktakar era búnir að plata Kan- ann í fjöratíu ár. Sámeinaðir verk- takar hafa graett og auðgast og safnað eignum í skjóli einkaréttar- ins á Vellinum. Sameinaðir verk- takar hafa getað stungið dúsum upp í ríkisstjómir og stjómmála- flokka og lokað sig á bak við þögn- ina og leyndardómsfulla þoku gagnvart almenningi. Sameinaöir verktakar hafa jafnvel átt eigend- ur, sem hafa haft vit á því að halda kjafti og upplýsa engan mann um eignir sínar, og þessir eigendur hafa haft vit á því að láta forstjór- ann og Halldór mala gulflð. Allt hefur þetta tekist með ágæt- um og þjóðin hefur látið sig hafa það að Sameinaðir verktakar hafi grætt á hermanginu og svo koma allt í einu einhverjar ekkjur og heimta sitt. Er nema von að bless- aður maðurinn sé sár! Forstjórinn tók nauðugur þátt í þessum leik. Hann lá á auðæfunum eins og ormur á gulli og neitaði öllum um arðgreiðslur þangað til Sambandið gekk í lið með ekkjun- um og erfingjunum og vildi fá pen- ing. Og nú er það að koma í ljós hvaða áhrif það hefur að láta þjóð- ina vita hver gróðinn hefur verið af hermanginu. Nú er það að koma í ljós hvað menn hafa uþp úr því að láta aðra vita hvaö þeir era rík- ir. Þeim var nær, þessum bannsett- um ekkjum að rífa sig og heimta sitt. Þessi frásögn forstjórans og reynsla hans af földum fjársjóðum er sú að fjársjóðimir þoli ekki dags- birtu. Það átti ekki að láta neinn vita um gróðann. Það átti að fela hann í bönkunum og til ráðstöfun- ar fyrir forstjórann og formanninn og það átti aldrei að borga gróðann út, vegna þess að nú er ekki neinn friður með það að vera ríkur. Það er hættulegt að láta aðra vita hvað maður er ríkur. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.