Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Qupperneq 6
/7
MíinJUDAGUR 28. JANÚAR/1992. /
Viðskipti
Upphafiö aö stofnun íslenskra aðalverktaka sf.:
Að fyrirbyggja hvimleiða
samkeppni um framkvæmdir
segir í endurminningum Eysteins Jónssonar, fyrrum ráöherra
Engin íslensk fyrirtæki hafa verið
jafnmikið í eldlinunni undanfama
daga og Sameinaðir verktakar hf. og
íslenskir aðalverktakar sf. íslenskir
aðalverktakar voru stofnaðir árið
1954 í framhaldi af samkomulagi ís-
lands og Bandaríkjanna um að ís-
lenskur verktaki tæki við hlutverki
bandaríska verktakans Metcalfe,
Hamilton, Smith & Beck sem samn-
ingsaðili við vamarliðið um fram-
kvæmdir á Keflavíkurflugvelli.
Eysteinn var fjár-
málaráðherra í ríkis-
stjórn Ólafs Thors
I æviminningum Eysteins Jóns-
sonar, fyrrum ráðherra Framsókn-
arflokksins, sem Vilhjálmur Hjálm-
arsson skráði, segir Eysteinn að ís-
lenskir aðalverktakar hafi verið
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
stofnaðir til að koma í veg fyrir hvim-
leiða innbyrðis keppni íslendinga um
framkvæmdir fyrir Bandaríkja-
menn.
Eysteinn var fjármálaráðherra í
ríkisstjóm Ólafs Thors frá 1953 til
1956. Kristján Guðmundsson var
hins vegar utanríkisráðherra í þess-
ari stjóm.
Sambandið fær sinn hlut
Orðrétt segir Eysteinn: „Þannig
hagaði til á áranum fyrir 1953 að
bandarískt fyrirtæki, Hamilton,
hafði með höndum aðalframkvæmd-
ir á Keflavikurflugvelh en sumum
verkum ráðstafaði það síðar til ís-
lenskra aðila. Þetta olli sífelldum
árekstmm og ófriði sem margir töldu
óþolandi með öllu.
Samkvæmt kröfu framsóknar-
manna í samstjóm þeirra og Sjálf-
stæðisflokksins vom gerðir nýir
samningar um tilhögun hervemdar
í ýmsu tilliti, þar á meðal það að ís-
lenskir verktakar leystu bandaríska
félagið af hólmi. Var það áht manna
að þar yrði að koma til einn aðili af
íslenskri hálfu tíl þess meðal annars
að fyrirbyggja óeðhlega og hvimleiða
innbyrðis keppni Islendinga um
framkvæmdimar sem færa myndu
Bandaríkjamönnum aukin áhrif og
sterka aöstöðu til að deila sólóregl-
unni, sem margt viðsjárvert gæti
haft í fór með sér.
í ríkisstjóminni var bent á að Aðal-
verktakafélagið nýja yrði að byggja
á breiðum grunni ef vel ætti að fara
þar sem um var að tefla einkarétt til
mikilla framkvæmda og verulegir
fjármunir gætu komið til.
Bentu framsóknarmenn í ríkis-
stjóm á að óeðhlegt væri að samtök
einkafjármagnsins hefðu þetta verk-
efm ein með höndum og lögðu tU að
ríkið og samvinnuhreyfmgin yrðu
einnig aðilar til að tryggja viðtæk
samráð um framkvæmdir og með-
ferð á fjármunum.
Árið 1954 náðist samkomulag um
að stofna félagið íslenskir aðalverk-
takar sem tækju við af HamUton fé-
laginu og skyldu þá Sameinaðir
verktakar eiga helming, ríkið einn
fjórða og samvinnuhreyfmgin einn
fjórða. Þannig var þá gengið frá til
að stuðla að viðunandi lausn þessa
vandasama máls og draga úr vand-
kvæðunum, þar á meðal tortryggni,
sem af því myndi stafa að hafa þessi
viðskipti á einni hendi.“
Þetta em orð Eysteins Jónssonar
um aðdraganda að stofnun íslenskra
aðalverktaka. Samtök einkafjár-
magnsins, sem Eysteinn minnist á,
em auðvitað hiö margumtalaða félag
Sameinaðir verktakar hf. sem
Upphafið að Islenskum
aðalverktökum
1951
Sameinaðir verktak-
ar stofnaðir að frum-
kvæði Bjarna Bene-
diktssonar.
1954
Islenskir aðalverk-
takar stofnaðir í tíð
ríkisstjórnar Ólafs
Thors.
1954
Eigendur íslenskra
aðalverktaka:
Sameinaðir vt. 50%
Reginn (SÍS) 25%
Ríkið 25%
1991
Ríkið eignast 52%
í íslenskum aðal-
verktökum.
Bjarni Benediktsson, þáverandi utanríkisráðherra, var aðalhvatamaðurinn
að stofnun Sameinaðra verktaka árið 1951. íslenskir aðalverktakar urðu
síðar til árið 1954, í tíð samsteypustjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks, undir forsæti Ólafs Thors.
greiddu hluthöfum sínum út 900
mUljóna króna skattfijálsan hlut í
síðustu viku.
Sameinaðir stofnaðir
aðfrumkvæði Bjarna Ben.
Sameinaðir verktakar vom stofn-
aðir 1951 að tilstuðlan Bjarna Bene-
diktssonar, þáverandi utanríkisráð-
herra. Stofnfélagar voru húsasmíða-
meistarar, múrarameistarar, bygg-
ingarfélög og verktakar í byggingar-
iðnaöi, samtals 43 einstaklingar og
fyrirtæki.
Fyrirtækið var stofnað tU að taka
að sér undirverktöku hjá bandaríska
aðalverktakanum, HamUton, sem
hafði með vamarhðsframkvæmdir
að gera.
í þingskjah 743 í Alþingistíðindum
frá vetrinum 1983 tíl 1984, er skýrsla
sem Geir HaUgrímsson, þáverandi
utanríkisráðherra, lét gera um verk-
takastarfsemi Aðalverktaka og
Keflavíkurverktaka.
í þingskjalinu segir um Sameinaða
verktaka: „Sameinaðir verktakar
vom skipulagðir með þeim hætti, að
sérhver iðngrein, það er að segja
vatnsvirkjar, rafvirkjar, málarar og
jámsmiðir störfuðu í sérstökum
deUdum, er vora félög út af fyrir sig.
Vom þetta opin og frjáls samtök iðn-
aðarmanna og byggingarfélaga.“
Sameinaðir hættu
verktöku árið 1957
Þegar íslenskir aðalverktakar vom
stoftiaðir gerðust Sameinaðir verk-
takar framkvæmdaaðih hjá því fyrir-
tæki á sama hátt og áður fyrir banda-
ríska aðalverktaka, jafnframt því að
ljúka þeim verksamningum, er í gUdi
vora við hinn erlenda verktaka. Árið
1957 varð sú breyting að Sameinaðir
verktakar hættu allri verktöku en
félagið varð upp frá því eignarfélag
og helsta eign félagsins helmings-
hlutur í íslenskum aðalverktökum.
Þess má geta að margir af iðnaðar-
mönnum sem eiga í Sameinuðum
verktökum, eins og Félag vatns-
virkja hf. hafa einnig haft með hönd-
um framkvæmdir fyrir íslenska að-
alverktaka sf. í gegnum tíðina.
íslenskir aðalverktakar hafa ann-
ast alla nýsmíði og nýframkvæmdir
fyrir herinn á KeflavíkurflugvelU.
Félagjð hefur ekki greitt neinn toh
af tækjum, sem það notar á velhnum,
enda miðist starfsemi Aðalverktaka
eingöngu við framkvæmdir innan
vaharins.
Aðalverktakar byggðu
Keflavíkurveginn
MUdU hvellur varð á sjöunda ára-
tugnum þegar íslenskir aöalverktak-
ar fengu það verkefni að leggja Kefla-
víkurveginn svonefnda. Þá risu aðrir
verktakar upp og sögðu að félagið
væri komið út fyrir sitt verksvið.
Eftir það hefur félagið eingöngu
framkvæmt fyrir herinn innan vah-
arins. Aðalverktakar hafa þó einnig
verið með framkvæmdir uppi í Hval-
firði og á öðrum stöðum fyrir herinn.
Keflavíkurverktakar
Ýmsir hafa ekki áttað sig á skipt-
ingunni á milh íslenskra aðalverk-
taka og Keflavíkurverktaka. Síðar-
nefnda fyrirtækið var stofnað árið
1957 fyrir forgöngu Iðnaðarmannafé-
lags Suðumesja, tU að starfa saman
að viðhaldsverkefnum fyrir varnar-
Uðið.
Keflavíkurverktakar annast eftirht
með einstökum framkvæmdum,
bókhald, innkaup á efni og aðra sam-
eiginlega þjónustu.
Islenskir aðalverktakar hafa frá
upphafi haft nær öU sín bankavið-
skipti við Landsbanka íslands en
einnig átt innstæður í öðmm bönk-
um og þá einna helst Samvinnubank-
anum.
Árið 1982 var hlutfaUsleg skipting
innstæðna íslenskra aðalverktaka
þannig að 70 prósent vom í Lands-
bankanum, 9,5 prósent í Samvinnu-
banka, 5,8 prósent í Iðnaðarbanka
og afgangurinn í öðrum bönkum og
sparisjóðum.
Sameinaðir og Aðalverktakar
verða almenningshlutafélög
Árið 1991 var tímamótaár fyrir
Sameinaða verktaka og íslenska
verktaka. Þá voru gerðar samþykktir
um að breyta bæði báðum félögunum
í almenningshlutafélög, og Samein-
uðum verktökum ekki seinna en á
þessu ári. -JGH
PeningBmarkadur
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
innlAn överðtryggð
Sparisjóðsbækur óbundnar 2,25-3 Landsbanki
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 2,25-4 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 3,25-5 Sparisjóðirnir
Tékkareikningar, almennir 1 Allir
Sértékkareikningar 2,25-3 Landsbanki
VlSrrÖtUBUNONIR REIKNINGAR
6 mánaða uppsögn 3 Allir
15-24 mánaða 6,5-7,75 Sparisjóðirnir
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisbundnir reikningar i SDR 6,25-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 9-9,25 Búnaðarbanki
ÖBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-3,5 Búnb., Landsb.
Óverðtryggð kjör, hreyfðir 5,0-6,5 Islandsbanki
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan timabils)
Vísitölubundnir reikningar 2,25—4 Landsb., islb.
Gengisbundir reikningar 2,25-4 Landsb., Islb.
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki
överðtryggð kjör 7,25-9 Búnaðarbanki
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 2,75-3,25 Islandsbanki
Sterlingspund 8,75-9,3 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 7,75-8,3 Sparisjóðirnir
Danskar krónur 7,75-8,3 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Otlan överðtryggð
Almennir víxlar (forvextir) 14,5-1 5,5 Búnaðarbanki
Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi
Almenn skuldabréf B-flokkur 15,25-16,5 Búnaðarbanki
Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdráttur) 17,75-18,5 Allir nema Landsb.
OtlAn verðtryggð
Almenn skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki
afurðalAn
islenskar krónur 14,75-16,5 Búnaðarbanki
SDR 8,5-9,25 Landsbanki
Bandaríkjadalir 6,25-7 Landsbanki
Sterlingspund 1 2,6-13 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 11,5-11,75 Allir nema Islb.
Húsm»ölslán 4.9
Lifeyrissjóðslón 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf janúar
Verðtryggö lán janúar
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala janúar
Lánskjaravísitala desember
Byggingavísitala desember
Byggingavísitala desember
Framfærsluvísitala janúar
Húsaleiguvísitala
V5R08RÉFASJÓÐIR
Gengi brófa verðbrófasjóöa
16,3
10,0
31 96 stig
31 98 stig
599stig
187,4 stig
160,2stig
1,1% lækkun 1. janúar
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Einingabréf 1 6,084 HÆST LÆGST
Einingabréf 2 3,234 Sjóvá-Almennar hf. - 5,65 L
Einingabréf 3 3,996 Ármannsfell hf. - 2,40 V
Skammtímabréf 2,025 Eimskip 5,05 * 01 00 o < co
Kjarabréf 5,715 Flugleiðir 1,85 K 2,05 K
Markbréf 3,068 Hampiðjan 1,50 K 1,84 K,S
Tekjubréf 2,124 Haraldur Böðvarsson 2,00 K 3,10 K
Skyndibréf 1,772 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 V 1,10 V
Sjóðsbréf 1 2,913 Hlutabréfasjóðurinn •- 1,73 V
Sjóðsbréf 2 1,941 Islandsbanki hf. - 1,73 F
Sjóðsbréf 3 2,015 Eignfél. Alþýðub. 1,25 K 1,70 K
Sjóðsbréf 4 1,727 Eignfél. Iðnaðarb. 1,85 K 2,22 K
Sjóðsbréf 5 1,210 Eignfól. Verslb. 1,15 K 1,48 K
Vaxtarbréf 2,0526 Grandi hf. 2,10 K 2,70 S
Valbréf 1,9240 Olíufélagið hf. 4,50 K 5,00 V
Islandsbréf 1,280 Olís 2,10 L 2,18 F
Fjórðungsbréf 1,142 Skeljungur hf. 4,80 K 5,40 K
Þingbréf 1,276 Skagstrendingur hf. 4,60 F 4.90
öndvegisbréf 1,258 Sæplast 6,80 K 7,20 K
Sýslubréf 1,301 Tollvörugeymslan hf. 1,09 F 1,13 L
Reiðubréf 1,236 Útgerðarfélag Ak. 4,50 K 4,80 L
Launabréf 1,017 Fjárfestingarfélagiö 1,18 F 1,35 F
Heimsbréf 1,079 Almenni hlutabréfasj. 1,10 F 1,1 5 F,S
Auölindarbréf 1,04 K 1,09 K,S
Islenski hlutabréfasj. 1,15 L 1,20 L
Síldarvinnslan, Neskaup. 3,10 L 3,50 L
1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
K= Kaupþing, V = VlB, L= Landsbréf, F = Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam-
vinnubanka
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast i DV á fimmtudögum.