Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Blaðsíða 7
7 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1992. dv Sandkom Milljónir verktakanna Ennhalda mennáframað lcikasérnii’ð miHjónirSam- cinaðra vi-rk- taka, svona í hugamnnað minnstakosti. Einnáhtiga- maöur um milljótiírnar hcfurreiknað útaðmiðaðvið höfðatöluhefðu Sameinaðir vcrklaktu- greittsjálfum sér 900 þúsund milljónir íslenskra króna eða 15 milljarða doilara hefðu þeir vcriö búscttir í Bandaríkjimmn. Sá tölglöggi benti cirrnig áað fyrir- hugaður stuðningurBandarikjanna við Sovétríkin fyrrverandi nemur 5 milljörðum dollara og þy kir rausnar- legur. Það er þó ekki nema þriðjung- ur af „bandarískri" greiðslu verktak- annatilsjálftasín. Selnkar tímanum Dagblaðið Tíminn.scm boöaðhefur ftjálslyndiog framfarirí rúmlcgasjo áratugi, heftiv veriðstaðiöað verki.Ofthafa menngripiðtil ýmissaráðatil aðlengjalifsitt : ogerekkert nemagottum þaðaösegjaen aðferðTima- mannaísíð- ustu viku þótti í djarfara lagi en ef til viil eru menn bara öfundsjúkir. Það geta nefnilega ekki allir seinkaö tímanum eins ogTíminn gerðiá föstudaginn. Þá stóð skýrum stöfrun á forsíðu: Fimmtudagur 23. janúar 1992. Snyrtivöm- strið Strið snyrti- : V vöri i verslana umviðskipta- viniersagt gi-immt.Ogþá : i: erekkiamaiegt aðeigaættingja ífjölmiðla- heiminum sem auglýsir fyrir mannídálkin- umsiniun. Ýmsirtókueft- irþvíaðdálka- höftmdurí ; Pressunni. sem : sagðnrerná- skyldur eiganda einnar snyrtivöru- verslunar, mælti sérstaklega með vörutegund sem nýlega er farið að seþa í viðkoroandi verslun. STASI-sveit Dagura Akui - eyri segirþn akvorðtmrikis- stjórnarinnar að veita ráð- herrum licim- ildtilaðsctja manneða nefndmanna, umtiltekinn tímatöaðvera fjárhaldsmcim rikisstoínana, einnareða fleiriíscnn, hafavakiðtals- verð viðhi i .gð Dagur upplýsir að þessir sérsveitár- menn gangi nú undlr nafninu STASI, samanber ríkislögreglumenn handan járntjaldsins. í islenska tilfeUinuer STASJ skammstöfun fyrin Sjjóm- skijiaðir talsmenn alræðisvalds Stjómarráðsíslands. Umsjón: InglbjörgB. Svelnsdóttlr Fréttir Gyða Traustadóttir í Duus-húsi: Akvað að varnar- liðsmönnum yrði meinaður aðgangur - kannaðist ekkert við „þetta ákveðna atvik“ í DV 6. janúar „Ég ákvað í framhaldi af þessum uppákomum að vamarliðsmönnum, sem að langmestu leyti eru þeldökk- ir, skyldi meinaður aðgangur að hús- inu næsta föstudagskvöld til að minna þá á að haga sér skikkanlega ef þeir heföu áhuga á að sækja hús- ið. Þessi gerð hafði ekkert með litar- hátt viðkomandi að gera heldur hóp manna sem átti að fá sína lexíu.“ Þetta segir Gyða Traustadóttir, sem rekur veitingahúsið Duus-hús, meðal annars í tilkynningu sem barst til DV. Þar segir ennfremur að helgina áður hafi Gyða átt í útistöö- um við vamarliðsmann sem neitaði að greiða fyrir drykk og dyravörður tekiö ólöglegt áfengi aJf öðrum. Drykkurinn var þó greiddur en ólög- lega víninu var hellt niður. Þess vegna hafi verið gripið til þeirra ráð- stafana að meina vamarliðsmönnúm aðgang helgina 3.-4. janúar. Ekki bara varnar- liðsmönnum úthýst Ástæðan fyrir tilkynningu Gyðu er að vamarmáladeild utanríkisráðu- neytisins hefur nú sent ríkissak- sóknara erindi eða kæm á hendur Duus-húsi fyrir að hafa meinað tveimur vamarliðsmönnum aðgang að veitingahúsinu föstudagskvöldið 3. janúar. Erindið er sent að ósk yfir- manns varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli. í kjölfarið hafa fjölmiðlar birt frétt- ir af málarekstrinum. Gyða segir aö þyrlað hafi verið upp íjölmiðlamáli um kynþáttahatur vegna atburða sem urðu umrætt kvöld. Eins og fram kom í DV mánudag- inn 6. janúar var nokkmm blökku- mönnum meinaður aðgangur að Duus-húsi 3. janúar. Þar var viðtal við Moussa Thione sem er blökku- maður búsettur í Reykjavík. Honum var vísað frá Duus-húsi umrætt kvöld ásamt fleiri blökkumönnum, einnig búsettum í Reykjavík. Erindi varnarmáladeildar snýr hins vegar aöeins aö varnarliðsmönnum. Ummæli Gyðu í DV 6. janúar Ofangreind ummæli Gyðu eru tals- vert á skjön viö það sem hún sagði í viðtali við DV sem birtist 6. janúar. Þá sagði hún: „Það er ekki rétt að við höfum sett þá reglu að svertingjar fái ekki inn- göngu á staðinn. Ef mönnunum hef- ur verið meinaður aðgangur að staðnum er það einingis vegna þess að þeir hafa ekki uppfyllt þær reglur sem við setjum um um framkomu og allir verða að gera.“ í sama viðtali sagði Gyða síðan: „Fer útlendingur að hafa samband við blöðin vegna þessa? Það eru margir útlendingar sem fá ekki inn- göngu á staðinn vegna þess aö þeir hafa brotið eitthvað af sér. Ég hef hins vegar ekki hugmynd um þetta ákveðna atvik. Ég veit bara að það hafa aldrei verið settar neinar reglur sem meina svertingjum aðgang að staðnum.“ Grundvöllur fyrir lögreglurannsókn kannaður Hallvarður Einvarðsson ríkissak- sóknari sagði við DV í gær að við blasti hjá embættinu að huga að er- indi varnarmáladeildar og athuga hvort efni eða skilyröi séu til rann- sóknar eða annarrar afgreiðslu sem embættinu ber að kveða á um. „Ég er hins vegar ekki búinn að fara svo rækilega í þetta mál að ég treysti mér til að tíunda hvernig þetta verður gert. En ef efni eru til rannsóknar og rökstuddur grunur er um brot þá eru það lögreglurann- sóknaraðilar sem myndu fjalla um þetta,“ sagði Hallvarður. í 233. grein a í almennum hegning- arlögum segir: „Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á hóp manna vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, kynþáttar eða trúarbragða sæti sekt- um, varðhaldi eða fangelsi allt að 2 árum.“ -ÓTT Sigurður Bergsson, formaður Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar, tekur á móti Ingvari Viktorssyni, bæjarfulltrúa i Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær hefur gefið stangaveiðifélaginu fjórtán hundruð þúsund krónur i nýja félagsheimilið. DV-mynd G. Bender Stangaveiðifélag Hafnarflarðar vígði nýtt félagsheimili: Bæjarstjórnin gaf 1400 þúsund Það var fullt út út dyrum á laugar- daginn þegar Stangaveiðifélag Hafn- arfjarðar vígði nýtt félagsheimili sitt af Flatahrauni 29. Líklega hafa mætt um 150-160 manns til að samfagna félaginu. „Þetta félagsheimili breytir öllu fyrir félagið og héma geta komið saman miklu fleiri veiðimenn en áð- ur,“ sagði Siguröur Bergsson, for- maður Stangaveiðifélags Hafnar- flarðar, í samtali við DV. „Þaö hafa margir hjálpað okkur og bæjarstjórn Hafnarflarðar hefur ver- ið sérstaklega rausnarleg. Hún gaf okkur eina milljón þegar við byrjuð- um héma og Ingvar Viktorsson færði okkur flögur hundruð þúsund í við- bót rétt áðan. Þetta hjálpar okkur mikið,“ sagði Sigurður. Þeir sem mættu vom, meðal ann- arra: Alexander Gujónsson, fyrsti formaður félagsins, Grettir Gunn- laugsson, Jón G. Baldvinsson, Daði Harðarson, Stefán Hjaltested, Sig- urður Siguijónsson, Guðmundur Jónsson, Haraldur Stefánsson, Sveinn.Sæmundsson, Bjöm Ólafs- son, Ámi Reykdal, Þórður Þórðar- son, Soffía Stefánsdóttir og Hjörleif- ur Gunnarsson, svo að fáir séu taldir. Stangaveiðifélagið gat fagnað tvennu á þessum laugardegi því að í desember varð félagið 40 ára. -G.Bender Viðtalið Nafn: Siguröur Ingi Skarp- héöinsson. Starf: Gatnamálastjórinn i Reykjavik. Aldur: 43 ára. „Það verða sjálfsagt áherslu- breytingar hér þegar fram líða stundir. Menn hafa kannski ein- blínt um of á götuna sjálfa en lát- ið næsta nágrenni hennar eiga sig. Ég hef mikinn áhuga á að hraða gerð göngustíga og gang- stétta og eins að ganga betur frá í kringum þær götur sem viö er- um að gera,“ segir Sigurður Ingi Skarphéðinsson, nýráðinn gatna- málastjóri í Reykjavik. „Það þarf að rækta upp fyrr og ganga betur frá hliðarmannvirkj- um. Mér hefur stundum fundist mishrestur á þessu og vil gjaman bæta úr því.“ Sigurður Ingi tók við starfinu um áramót af Inga Ú. Magnús- syni og hefur áður gegnt starfi aðstoðargatnamálasflóra frá ár- inu 1987. Hjá embætti gatnamála- sflóra vinna samtals yfir 200 manns. Sigurður er borinn og bam- fæddur á Akureyri og gekk þar í menntaskóla. Hann útskrifaðist sem byggjngarverkfræöingur frá Tækniháskólanum í Þrándheimi árið 1974. Skörotnu síðar hóf hann störf hjá embætti gatnamála- sflóra og hefur starfað þar óslitið síðan. Foreldrar Siguröar eru'látnir. Eiginkona hans er Emilía Mart- insdóttir efnaverkfræöingur og starfar hún hjá Rannsóknastofn- un fiskiðnaðarins. Þau hjón eiga tvær dætur, 14 ára og 5 ára, og einn son, 9 ára gamlan. Les Laxness aftur og aftur Frístundimar notar Sigurður helst tíl gönguferöa og til aö fara í sund. „Flesta daga förum við í laugamarsegir hann. „Eg hef mjög gaman af músík og hlusta mikið á hana. Ég er alæta á tóniist ef svo má segja en smekkurinn er að færast meira yfir í klassík frá þvi sem var. Ég les nokkuð, of Utiö á íslensku kannski. En uppáhaldsrithöfund- urinn er Laxness, hann ies ég aftur og aftur. Ég hlusta mikið á fréttir, bæðí innlendar og erlendar. Maður tekur auðvitað mark af því starfi sem maður gegnir þannig að ég sperri eyrun þegar ég heyri talaö um gatnakerfið, srflóhreinsun og hálkueyðingu, sem er nu vinsælt umræðuefni þessa dagana.“ Gatnamálastjórinn nýi ekur um á Saab bifreið, árgerð 1987, og að sjálfsögðu ekki á nagla- dekkjum. Hann skellir upp úr þegar hann er beðinn að lýsa sjálfum sér og harðneitar. Það stendur þó ekki á svörunum þeg- ar hann er beöinn að segja frá þvi sem honum þykir eftirsóknar- verðast í lifinu: „Ég held að það sé mikilvægast aö vera heilbrigð- ur, eiga góða flölskyldu og vera ánægður með það sem maður er að gera, bæði í vinnunni og í Uf- inuutanhennar.“ -VD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.