Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Síða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1992.
Útlönd___________________
Skandiatryggir
bíiaáGrænlandi
Sænski tryggingarisinn Skand-
ia hefur keypt grænlenska trygg-
ingafélagið Grenlands Fartejsfor-
sikring af landsstjóminni. Salan
er liöur í einkavæðingu trygginga
á Grænlandi en steíha lands-
stjórnarinnar er að draga sig út
úr atvinnurekstri eins og frekast
er unnt
Opinberlega er það þó ekki
Skandia sem á tryggingafélagið
heldur tryggingafélagið KalaaUit.
Það er dótturfyrirtæki dótturfyr-
irtækis Skandia í Danmörku.
Fréttastofan
Tass verður Rita
Ríkisstjóm Rússlands hefur
ákveðið að gefa hinni gamal-
kunnu fréttastofu Tass nýtt naíh,
Hér eftir heitir hún Rita á er-
iendri grund en heima verður
gamla nafnið notaö fyrst um sinn.
Tass var stofnuð árið 1925 og
var opinber fréttastofa Sovétríkj-
anna þar til á síðasta hausti að
Rússar lögöu hana undir sig í
kjölfar valdaránstilraunarhmar í
ágúst. Rita heyrir beint undir rík-
isstjórn Rússlands og gegnir svip-
uðu hlutverki og Tass áöur.
Sjöárafangelsi
fyrir að smita
tveggjabarna
móðurafeydni
Svíi á fertugsaldri var dæmdur
í sjö ára fangelsi og háar sektir
fyrir aö nauöga tveggja barná
móður og misþyrma henni. Mað-
urinn er smitaður af eyðní og
smitaðist konan einnig við
nauögunioa.
Konan fylgdi manninum til
íbúðar hans júníkvöld nokkurt
árið 1990. Þegar heim kom læsti
hann íbúöinni og spurði konuna
hvort hún gerði sér grein fyrir
þeim mistökum að fara heim með
eyðnismituðum manni. Því næst
dró hann konuna inn í svefhher-
bergið og nauðgaði henni þar
nokkrum sinnum.
Fyrir réttinum þótti sannað að
maðurinn hefði smitað konuna
visvitandL Var maðurinn þvi
ekki aðeins dæmdur fyrir nauðg-
un heldur og að hafa valdiö kon-
unni óbætanlegu heilsutjóni.
nemendasem
skrópaítímum
Lögreglan í Napólí á Ítaiíu hef-
ur ákveðið að gera sérstaka leit
að skólanemendum sem ekki
mæta regtulega í tima. Talið er
að í sumum menntaskólumborg-
arinnar vanti allt að 30% skráöra
nemenda að staðaldri. Þetta eru
um 40 þúsund ungmenni.
Heista áhyggjueftúð er þó ekki
aö unglingamir læri ekki þaö
sem þeim er ætlaö heldur leikur
grunur á að þeir hafi ofan af sér
með eituriyfjasölu á götum úti í
stað þess að liggja yfir bókunum.
Fáfjölskylduna
Yfirvöld á Indlandi hafa fundið
það þjóðráð til að halda mönnum
innan veggja fangelsa að heimila
fóngum að hafa fjölskylduna með
sér. Þetta hefur gefið það góða
raim aö fjölskyldufangelsin eru
opin og hinir dæmdu geta sótt
vinnu, bara ef þeir skila sér heim
að kvöldi.
Að sögn keraur sjaldan fyrir að
fangar strjúki úr opnu fangelsun-
um sem nú eru 26 í iandinu öllu.
„Clinton lýgur,“ sagði Gennifer Flowers á blaðamannafundi í gær þar sem hún svaraði forsetaefninu fullum
hálsi. „Þetta er alveg ný hlið á Clinton. Ég þekki hann ekki fyrir sama mann og áður,“ sagði Gennifer og bætti við
að hún hefði hvort eð er ekki átt von á aö hann segði sannleikann. Hún heldur fast við fyrri sögu um að hafa haldið
Við Clinton í tólf ár. Simamynd Reuter
William Clinton, eitt af forsetaefnum bandarískra demókrata:
Fylgið hrynur við
sögur um bólfarir
- pólitískir andstæðingar kalla hann „Silki Villa“
Bandarískir demókratar kinka
kolli þegar þeir heyra Bills Clinton,
ríkisstjóra í Arkansas, getið. Gæti
hann orðið næsti forseti Bandaríkj-
anna? Jú, hann er „frambærilegur,"
er sagt og þó viðurkenna allir að
hann er enginn skörungur.
Og svo kann líka að reynast að
hann hafi verið frambærilegur því
nú er frambjóðandinn væntanlegi
flæktur í hneykslismál vegna konu
sem eitt sinn söng í næturklúbbi en
er nú ríkisstarfsmaður í Arkansas,
heimaríki Clintons.
Þegar eftir að sagan komst í há-
mæh voru vinsældir Chntons kann-
aðar í New Hampshire. Þar verða
fyrstu forkosnignamar við val á
frambjóðendum flokkanna og úrslit
þar eru almennt talin gefa góða vís-
bendingu um möguleika þeirra.
Clinton reyndist vera með 27% fylgi
en hafði 39% áður en söngkonan kom
til sögunnar.
Hittust á hóteli sem ekki var til
Söngkonan heitir Gennifer Flow-
ers. Hún þykir að vísu ekki sérlega
trúverðug og tímaritið Newsweek
hefur birt hsta yfir missagnir í fram-
burði hennar. Þar á meðai sagði
Gennifer að hún hefði hitt Clinton á
tilteknu hóteli árið 1979. Umrætt hót-
el var ekki til þá og fleiri atriði í frá-
sögn hennar eru af sama toga.
Fyrir forsetaframbjóðanda er engu
að síður háskalegt að lenda í sögu-
buröi um lauslæti, jafnvel þótt ó-
sannur sé. Umtaliö beinist þá allt að
kynferðismálum sem eru viðkvæm-
ari en öll önnur mál í Bandaríkjun-
um. Menn minnast þess að Garry
Hart varð á sínum tíma að hætta við
William Clinton eða „Silki Villi“ er
helsta von demókrata um að koma
George Bush úr forsetastóli. Clinton
á þó eftir að ganga i gegnum mikinn
hreinsunareld áður en hann fær
aö kljást við Bush. Teikning Lurie
framboð vegna kvennamála.
Reyndar er Gennifer ekki ein um
að reyna að gera Clinton lífið leitt.
Sagt er að henni hafi verið borgað
ríkulega fyrir að segja sögu sína og
því hafi hún krítað liðugt til að slúð-
urtímaritin fengju eitthvað fyrir sinn
snúð. Clinton segist hafa þekkt kon-
una og talað við hana í síma en lengra
hafi samband þeirra ekki náð.
Maður nokkur að nafni Larry Nic-
hols gekk enn lengra þegar hann
sagði frá fimm ástarævintýrum sem
Clinton átti í. Síðar kom í ljós að
Clinton hafði rekið Nichols úr vinnu
hjá Arkansas-ríki. Nichols viður-
kenndi að hafa spunnið sögumar
upp til að hefna fyrir brottrekstur-
inn.
Eiginkonan er ekki húsmóðir
En þótt Clinton takist að standa af
sér allan söguburð gætu kvennamál-
in samt reynst honum erfið. Hann
er kvæntur lögfræðingnum Hillary
Clinton og hún fellur ekki að hug-
myndum manna um forsetafrú. Hún
er áköf kvenréttindakona og að
sumra sögn er þaö hún sem ræður
ferðinni í pólitísku brölti manns síns.
Bandaríkjamenn vilja hafa hús-
móður í Hvíta húsinu og því hlut-
verki skilar Barbara Bush með sóma
en Hillary er kona á framabraut og
líkleg til að stjóma manni sínum með
harðri hendi jafnt í Hvíta húsinu sem
á heimili þeirra í Arkansas.
Bill Clinton, sem raunar heitir
William J. Blythe IV, er frá smábæn-
um Hope í Arkansas. Faðirinn var
sölumaður en fórst í slysi þremur
mánuðum áður en sonurinn fæddist.
Móðir hans heitir Virgima. Hún er
hjúkmnarkona sem giftist Roger
nokkmm Clinton, fiórum árum eftir
að hún missti fyrri manninn.
Roger var aikóhólisti og barði konu
sína þegar illa stóð á heima. Einu
sinni skaut hann af byssu á Virginíu
en hún segir nú að maður sinn hafi
ekki ætlaö að drepa sig.
Þannig getur Bill Clinton státað af
harðræði í uppvextinum. Banda-
ríkjamenn kunna vel að meta fram-
gjama menn sem hafa brotist tíl
frama af eigin rammleik - eða er það
Hillary sem beitir honum fyrir sig?
um sig úfi
ígeimnum
Þýski geimfarinn Ulf Merbold,
sem nú er um borð í bandarísku
geimskutlunni Discovery á
hringsóli umhverfis jörðina, var
gripinn með ailt niður um sig i
beinni sjónvarpsútsendingu til
jarðar í síðustu viku.
Merbold vissi greinilega ekki
að sjónvarpsmyndavélar í geim-
skutlunni voru í beinu samhandi
við stjómstöðina á jörðu niðri
þegar hann fór að hátta sig og
sveif um geimfarið á nærfótunum
einum saman.
Framvegis verða geimfarar
spurðir leyfis þegar stjórnstöðin
ætlar sér að kveikja á fiarstýrðu
myndavélunum.
Samræðiðstað-
festásérstöku
eyðublaði
Ef frygðin grípur menn svona
fyrirvaralaust getur verið gott að
hafa eyðublað upp á vasann tíl
að firra sig óþægindum á borð við
þau sem William Kennedy Smith
lenti í í fyrra.
Ðeborah Gallo, 37 ára kona í
Kanada, hefur hafið sölu á sér-
stökum eyöublööum þar sem
tveir einstakiingar lýsi yfir gagn-
kvæmum áhuga til samfara. Þeir
sem undirrita plaggið geta einnig
skráð stund og stað, hvort getn-
aðarvamir hafi verið notaðar og
hvort annað var undir áhrifum
áfengis eða lyfia.
„Karlmenn era orðnir hræddir
við að reyna við konur á al-
mannafæri. Þeir fara bara heim
og leika sér við kisu og hreinsa
fuglabúrið,“ sagði Deborah.
Englandsdrottn-
ing greiði skatta
einsogalliraðrir
Miklar umræður fara nú fram
um það í Bretlandi hvort drottn-
ingin og fiöiskylda hennar eigi
að borga skatta af tekjum sínum
og munu þær sefia svip sinn á
hátíðahöldin í tilefhi þess að 40
ár era liðin írá því Elísabet sett-
ist í hásætið.
Sextíu prósent Breta telja að
landið yrði verr á vegi statt ef
konungdæmi yrði lagt niður en
meira en sjötiu og fimm prósent
teija aö drottningin eigi að greiða
tekjuskatt. Þetta kom fram í
skoöanakönnun í blaðinu Daily
Express í gær.
Tímaritið Economist sagði um
helgina að drottning væri ekki
jafhrík og af væri látið þar sem
hún hefði þurft að grípa til eigin
peninga til að hjálpa fiölskyld-
unnL Telur ritið persónuleg
auðæfi hennar vera metin á um
fimm milljarða króna.
Engumflug-
skeytumbeint
aðHvítahúsinu
Bandarískstjórnvöld fógnuðu í
gær þeirri ákvörðun Borísar
Jeltsins Rússlandsforseta að
beina kjamaflaugum sínum ekki
lengur að bandarískum borgum.
Bandaríkjamenn segjast þó ekki
ætia að gera neinar hemaðarleg-
ar breytingar fyrr en þeir hafi
fufivissu fyrir því að ákvörðun
Jeltsíns hefði verið hrundið í
framkvæmd.
Jeltsín sagði í bandarísku sjón-
varpi á sunnudag að þeim flaug-
um, sem enn væri beint að
Bandaríkjunum, yrði snúið frá.
Áætlaö er að nítján þúsund
kjarnaoddar séu á rússnesku
landsvæði. Reuter