Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1992, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1992.
Afmæli
Stefán Kristjánsson
Stefán Kristjánsson, fyrrv. vagn-
stjóri hjá SVR, til heimilis aö Ás-
garöi 103, Reykjavík, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Stefán fæddist á Sauöárkróki og
ólst þar upp til þrettán ára aldurs
er hann flutti til Reykjavíkur. Hann
var vinnumaður á Korpúlfsstöðum
á árunum 1950-55 og stundaöi síöan
ýmis störf á árunum 1956-63. Þá hóf
hann störf hjá SVR og var þar vagn-
stj óri þar til í fyrra er hann hætti
störfum vegna veikinda.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 6.5.1972 Hafdísi
B. Hannesdóttur, f. 12.7.1943, hús-
móður. Hún er dóttir Hannesar G.
Pálssonar og Sigríðar Hannesdóttur
sembæðierulátin.
Börn Stefáns og Hafdísar eru Ingi-
mar Bragi Stefánsson, f. 12.1.1971,
starfsmaður hjá Reykjavíkurborg;
Hanna S. Stefánsdóttir, f. 15.10.1973,
verslunarmaður í Reykjavík og Inga
H. Stefánsdóttir, f. 15.10.1973, versl-
unarmaöur í Reykjavík.
Systkini Stefáns: Gísli S. Kristj-
ánsson, f. 4.5.1919, nú látinn, b. í
Réttarholti í Skagafirði, var kvænt-
ur Jóhönnu Jónsdóttur og eignuð-
ust þau þijú börn; Þuríður J. Kristj-
ánsdóttir, dó í barnæsku; Geirþrúð-
ur Kristjánsdóttir, f. 23.10.1916, d.
1933; Vagn Kristjánsson, f. 4.11.1921,
kvæntur Svönu Björnsdóttur og
eiga þau sex börn; Geirþrúður K.
Kristjánsdóttir, f. 16.11.1933, gift
Ólafi Bjamasyni og eiga þau tvær
dætur.
Foreldrar Stefáns: Kristján R.
Gíslason, f. 27.4.1887, d. 14.3.1958,
b. að Minni-Ökrum í Skagafirði og
síðar á Sauðárkróki, og kona hans,
Aðalbjörg Vagnsdóttir, f. 14.2.1893,
d. 16.8.1951, húsmóðir.
Ætt
Kristján var sonur Gísla, b. í
Grundarkoti, Gíslasonar, b. í Litla-
Bæ, Bjömssonar, b. í Litladalskoti í
Tungusveit, Lúðvíkssonar, b. í
Stekkjarhúsum, Þórarinssonar.
Móðir Gísla í Grundarkoti var
Ragnheiður Gísladóttir, b. á Starra-
stöðum og Ytri-Gmnd, Jónssonar,
og Guðrúnar, systur Gunnlaugs
Oddssonar, dómkirkjuprests í
Reykjavík. Guðrún var dóttir Odds,
hreppstjóra í Geldingaholti, Odds-
sonar.
Móöir Kristjáns á Minni-Ökrum
var Kristín Jónsdóttir, b. á Saurbæ
og á Frostastöðum, Pálssonar,
hreppstjóra í Viðvík, Jónssonar.
Móöir Jóns var Kristín Þórðardótt-
ir. Móðir Kristínar Jónsdóttur var
Guðrún Helgadóttir, b. í Keflavík í
Hegranesi, Amasonar, stórb. á
Fjalli í Sæmundarhlíð, Helgasonar.
Móðir Guðrúnar var Helga Jóns-
dóttir.
Aðalbjörg var dóttir Vagns, b. í
Miðhúsum, Eiríkssonar, hrepp-
stjóra í Djúpadal í Skagafirði, bróð-
ur Jóns, prests á Undirfelli, afa Jóns
Þorlákssonar forsætisráðherra og
langafa Sigurðar Nordal og Jóns
Eyþórssonar veðurfræðings. Eirík-
ur var sonur Eiríks, prests á Staðar-
bakka, Bjamasonar, b. í Djúpadal,
Eiríkssonar. Móðir Eiríks á Staðar-
bakka var Sigríður Jónsdóttir,
prests í Saurbæ í Eyjafirði, Sigfús-
sonar. Móðir Vagns var Hólmfríður
Jónsdóttir, Einarssonar, en bróðir
Einars var Páll, faðir Sveins, læknis
og náttúrufræðings. Móðir Jóns
Einarssonar var Hólmfríður en hún
og Jón Steinggrímsson eldprestur
vom systkinabörn.
Móðir Aðalbjargar var Þrúður,
systir Aðalbjargar, móður Magnús-
ar Jochumssonar póstmeistara.
Þrúður var dóttir Jóns, b. í Miðhús-
Stefán Kristjánsson.
um í Skagafirði, Björnssonar, b. í
Glæsibæ í Skagafirði, Hafliðasonar.
Móðir Björns var Herdís Gísladóttir,
b. í Ásgeirsbrekku í Skagafirði, Þor-
lákssonar, b. í Ásgeirsbrekku, Jóns-
sonar, ættfóður Ásgeirsbrekkuætt-
arinnar, fóður Halldóm, langömmu
Hallgríms, langafa Guðjóns B. Ól-
afssonar, forstjóra SÍS. Móöir Þrúð-
ar var Þrúður Jónsdóttir, b. á Haf-
grímsstöðum, Guðmundssonar, b. í
Tungukoti, Rafnssonar.
Stefán er að heiman á afmælisdag-
inn.
Aðalsteinn Jónsson
Aðalsteinn Jónsson forstjóri,
Bakkastíg 2, Eskifirði, verður sjö-
tugur nk. fimmtudag.
Starfsferill
Aðalsteinn er fæddur að Eski-
fjarðar-Seli og ólst upp á þeim slóð-
um. Hann stundaði bamaskólanám
á Eskifirði í nokkra vetur.
Aðalsteinn vann alla almenna
vinnu sem til féll, bæði í landi og á
sjó. Hann fór að stunda útgerð 1946
og eignaðist % hlut í fiskibáti og
vann að útgerðarmálum upp frá
því. Síðar gerðist hann verkstjóri
hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf.
Aðalsteinn rak um árabÚ síldarsölt-
unarstöðvar á Eskifirði, Vopnafirði
og á Ólafsfirði. Hann eignaðist
meirihluta í Hraðfrystihúsi Eski-
fjarðar, ásamt Kristni bróður sín-
um, 1960 og hefur frá þeim tíma
gegnt starfi forstjóra þess. í dag er
það langstærsta atvinnufyrirtækið
á Eskifirði og með stærri sjávarút-
vegsfyrirtækjum landsins. Aðal-
steinn er jafnframt framkvæmda-
stjóri útgerðarfyrirtækjanna Hólma
hf. og Hólmaborgar hf. á Eskifirði.
Aðalsteinn sat um árahil í stjórn
Skreiðarsamlagsins og í mörg ár í
stjóm FSNA (Félag síldarsaltenda á
Norður- og Austurlandi) en hann sat
einnig fyrir hönd síðamefnda fé-
lagsins í Verðlagsráði sjávarútvegs-
ins. Hann hefur átt sæti í stjóm
Sölumiðstöð hraðfrystistöðvanna sl.
tvö ár og er stjómarformaður í
Pöntunarfélagi Eskfirðinga hf.
Aðalsteinn var sæmdur riddara-
krossi 1988 fyrir störf að atvinnu-
málum.
Fjölskylda
Aðalsteinnkvæntist26.6.1948
Guðlaugu Kristbjörgu Stefánsdótt-
ur, f. 4.11.1923. Foreldrar hennar
vom Stefán Hafliði Steingrímsson,
f. 9.5.-1892, d. 19.2.1972, verkamaður
á Ólafsfirði, og kona hans, Jónína
Kristín Gísladóttir, f. 24.8.1895, d.
3.12.1979.
Böm Aðalsteins og Guðlaugar:
Eiríka Elfa, f. 11.3.1948, búsett í for-
eldrahúsum; Björk, f. 26.5.1952, hús-
móðir á Eskifirði, maki Þorsteinn
Kristjánsson, skipstjóri og fram-
kvæmdastjóri, þau eiga þrjú börn,
Daða, Emu og Aðalstein; Kristinn,
f. 20.6.1956, framkvæmdastjóri á
Eskifirði, maki Alda Ólöf Vern-
harðsdóttir, þau eiga tvær dætur,
Guðlaugu Kristbjörgu og Láru
Kristínu. Kjörsonur Aðalsteins og
og Guðlaugar, sonur Bjarkar: Elvar
Aðalsteins, f. 1.6.1971, nemi í VÍ,
maki Margrét Stefánsdóttir.
Systkini Aðalsteins: Sigurþór,
fyrrv. kaupmaður á Eskifirði, maki
Ellen Klausen; Kristinn, látinn,
framkvæmdastjóri á Eskifirði,
fyrsta kona hans var Gunnþóra
Bjömsdóttir, þau skildu, önnur
kona hans var Ingibjörg Hermanns-
dóttir, þau skildu, þriðja kona hans
var Oddný Gísladóttir; Anna, hús-
móðir á Eskifirði, hennar maöur var
Ólafur Pálsson, látinn; Kristmann,
framkvæmdastjóri á Eskifirði, maíd
Amheiður Klausen; Sigurveig, hús-
Aðalsteinn Jónsson.
móðir á Eskifirði, hennar maður var
Bjöm Kristjánsson, látinn. Hálf-
systkini Aðalsteins, samfeðra, böm
Jóns og fyrri konu hans, Önnu Jóns-
dóttur: Ragnar, látinn; Óli ísfeld,
veitingamaður í Vestmannaeyjum;
Kjartan, látinn, verkamaður á Eski-
firði; Oddný, látin, húsmóðir í
Reykjavík, hennar maður var Stef-
án Thorarensen, lögregluþjónn, lát-
inn.
Ætl
Foreldrar Aðalsteins: Jón Kj'art-
ansson, f. 12.11.1873, d. 12.4.1928,
bóndi og verkamaður, og seinni
kona hans, Eiríka Guörún Þorkels-
dóttir, f. 14.7.1888, d. 3.12.1970.
Aðalsteinn tekur á móti gestum á
afmæhsdaginn í félagsheimilinu
Valhöll á Eskifirði, frá kl. 20.
Sesselja Gunnlaugsdóttir,
Höfðabraut 23, Hvammstanga.
m
•5
Egilsseli, Fellahreppi.
Hanneraðheiman.
Kristj án Þór Þórisson,
Miðleiti 4, Reykjavik.
Sveinn Eiðsson,
Þórólfsgötu lOa, Borgarnesi.
Pétur Jónsson,
Austurbergi38, Reykjavík.
Sigrid Dagný Kristjónsdóttir,
Torfufelh 6, Reykjavík.
Guðrún Bjömsdóttir,
Ingunnarstöðum, Kjósarhreppi.
Erla Salvör Jensdóttir,
Ferjubakka 10, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum á heimili
sinu nk. sunnudag (2.2.) eftir kl. 16.
Elías Guðmundsson,
Suðurgarði 1, Keflavík.
Hanneraðheiman.
Þórunn Sveinsdóttir,
Miðstræti 10, Reykjavík.
Guðmundur Rafn Gunnarsson,
Herjólfsgötu 2, Vestmannaeyjum.
Eriingur Ingvarsson,
Grashaga 3a, Selfossi.
Izabela Wachulec,
Hafnarbraut 22, Hólmavik.
Guðný Bjarnadóttir,
Laugalæk 18,Reykjavík.
Merming
Háskólabíó - Brellubrögð 2: ★
Fata morgana
F/X var ágætismynd um tæknibrellukarl sem fiækt-
ist í vond mál er hann féllst á að setja á svið morð
með brellubrögðum. Nú hefur Rohie Tyler (Bryan
Brown) snúið aftur og í upphafi F/X2 er hann hættur
að gera bíómyndabrehur og hefur snúið sér að leik-
fangagerð. Hann er líka kominn í betra húsnæði og á
nýjan bh sem er ekki nema von því í lok fyrstu mynd-
arinnar var hann nokkrum mihjónum dohara ríkari.
Það hður ekki á löngu þangaö th að hann flækist í
meiri vond mál (annars yrði nú ekki mikh mynd) sem
tengjast einhverju óheiðarlegu í löggunni áður en það
verður að einu fjarstæðukenndasta glæpamáh sem
hefur sést í bíói. Lögguvinur hans McCarthy (Brian
Dennehy, syfjulegur), sem hefur misst vinnuna eftir
síðustu' myndina, er kominn í einkageirann og birtist
þegar neyðin er stærst. Hvemig málin þróast eftir það
er tæpast nóg th að halda athyghnni og það eina sem
er vert að taka eftir eru einstaka atriði þar sem brehu-
smiðurinn hefur betur með aðstoð ýmissa tóla og
tækja, þar á meðal ansi skemmthegs trúðs í fuhri
stærð. Sagan sjálf er hlægheg og hrútleiðinleg og virð-
ist hugmyndahugi hafa verið ahýst vegna veðurs.
Kvikmyndagerðarmennirnir hafa ekki gert neitt
nýtt með persónurnar og hinni ágætu Rachel Ticotin
(Total Recah) er sóaö í kærustuhlutverki. Þetta er iðn-
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
aðarframleiðsla af verstu gerö og mun aðeins skemmta
þeim sem gera litlar sem engar kröfur th afþreyingar-
efnis.
F/X2: The Deadly Art of lllusion. (Band - 1991) 109 min.
Leikstjóri: Richard Franklin (Link, Psycho 2).
Leikarar: Bryan Brown (Coctail), Brian Dennehy (Cocoon),
Rachel Ticotin (One Good Cop), Joanna Gleason, Philip
Bosco.
Bryan Brown og Brian Dennehy snúa aftur í hlutverkum brellumeistar-
ans og lögreglumannsins I FX2.