Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992. 5 Piltarnir sem björguðust úr bílnum. Talið frá vinstri: Magnús örn Gylfason, ísleifur B. Þórhallsson, Björgvin Skúli Sigurðsson og Benedikt Gíslason. DV-myndir Jón Þórðarson Verslunarskólanemar í bílslysi: Beltin björguðu Jón Þórðaisan, DV, Rangárþingi Bíl var ekið út af veginum við Rauðalæk í Holtum kl. 13 á laugardag og hafnaöi á hvolfi í læknum fyrir neðan brú. Fjórir piltar voru í bíln- um, skólafélagar í Verslunarskólan- rnn, og höfðu nóttina áður gist á Hellu, þar sem einn þeirra býr. Þeir voru á leið til Reykjavíkur þegar óhappið varð. Þeir sluppu nær ómeiddir. „Við mættum traktor rétt áður en viö komum að brúnni, bíllinn lenti í slabbi og fór afturábak útaf. Lenti á hitaveituröri sem liggur með brúnni og snerist viö það. Það að bíllinn lenti í rörinu virðist einhvem veginn hafa fleytt bílnum yfir mesta strauminn í læknum," sögðu piltamir eftir slysið. Bíllinn, nýlegur Subara, lenti að mestum hluta uppi á is rétt við þyngsta strauminn í læknum. „Vatnið byijaði strax að fljóta inn í bílinn og við vorum hræddir um að geta ekki losað okkur úr beltun- um. Það reyndist þó ekkert vanda- mál þegar til kom.“ Einum piltanna tókst að komast út um afturgluggann og hann gat rifið upp bústjórahurð- ina þar sem félagar hans skriðu út. Piltarnir vora á einu máli um það að bílbeltin hefðu forðað þeim frá alvarlegum meiðslum eða einhveiju þaðan af verra, en þeir vora allir í beltum þegar slysiö varð. Bíllinn á hvolfi í læknum. Egiil Egilsson. Eyjólfur Kjalar Guðmundur Andri Ingibjörg Sólrún Jón Haliur Emilsson. Thorsson. Gísladóttir. Stefánsson. Menningarverölaun DV: Tilnef ningar í bókmenntum Það styttist í að afhent verði Menn- ingarverðlaun DV fyrir 1991 en þau verða afhent í hádegisverðarboði í veislusalnum Þingholti fimmtudag- inn 27. febrúar. Við höfum þegar birt tilnefningar til verðlauna fyrir tónlist, myndlist og byggingarlist. Nú er röðin komin að bókmenntum. í bókmenntanefnd eiga sæti Gísli Sigurðsson, bók- menntafræöingur og gagnrýnandi á DV, Sigurður A. Magnússon rithöf- undur og Friðrik Rafnsson dagskrár- gerðarmaður. Hér á eftir birtist greinargerð nefndarinnar og fimm tilnefningar til menningarverðlauna í bókmenntum fyrir árið 1991: „Bókmenntanefnd Menningar- verðlauna DV hefur tilnefnt fimm verk til verðlaunanna að þessu sinni um leið og hún óskar Guðbergi Bergssyni, handhafa menningar- verðlauna blaðsins, til hamingju með velgengni skáldsögunnar Svansins sem hlaut Islensku bókmenntaverð- launin á dögunum. Verkin era: Skáldsagan Spillvirkjar efdr Egil Egilsson sem skrifuð er á þróttmiklu alþýðumáli og geymir ákaflega sterka og djúphugsaða lýsingu á að- alpersónu sögunnar sem er alls stað- ar varpað á dyr vegna synda ann- arra. Þýðing Eyjólfs Kjalars Emilssonar á Ríkinu eftir Platón sem skilar á skýran og látlausan hátt bæði hugs- un og frásagnarlist eins grundvaUar- rits vestrænnar menningar, hvort sem er á sviði heimspeki eða bók- mennta. Skáldsaga Guömundar Andra Thorssonar, íslenski draumurinn, sem lýsir vináttu tveggja manna í ljósi sögu þriggja kynslóða lýðveldis- íslendinga og tengist íslenskri bók- menntahefð í miklum stílgaldri. Sjálfsævisaga Sigurveigar Guð- mundsdóttur, Þegar sálin fer á kreik, sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skráði og dregur glæsilega fram leiftrandi frásagnargleði Sigurveig- ar, næmt auga hennar fyrir sam- ferðafólki sínu um leið og lesandinn kynnist mikilli trúarreynslu og lífs- baráttu sem endurspeglar sögu ald- arinnar. Þýðing Jóns Halls Stefánssonar á Skáldi í New York eftir Federico Garcia Lorca sem tekst að skapa sjálfstætt íslenskt listaverk úr þess- um höfuðljóðabálki okkar aldar þar sem mætast í skáldlegri upphafningu blóðheitur, suðrænn menningarbak- grunnur skáldsins og höfuðvígi vest- ræns fjármálaheims í New York.“ Hver það verður sem fær Menning- arverðlaun DV í ár verður ljóst fimmtudaginn 27. febrúar. -HK fort/o K ISLENSKIR TONAR Vr Í30ÁR 1950-1980 22. febr.og 7. mars. Páll Óskar Hjálmtýsson Daníel Ágúst Haraldss. Móeiður Júníusdóttir Pétur Kristjánsson Berglind Björk Jónasd. Sigrún Eva Ármannsd. FÖSTUDAGINN 28. FEBRÚAR OG LAUGARDAGIN N 29. FEBRÚAR. Fyrsta lag hljómsveitarinnar, Mr. Tambourine Man eftir Dylan, sló í gegn og seldist á nokkrum vikum í meira en 2 milljónum eintaka. Síðan kom bvert lagið af öðru: Turn Turn Turn, Eight Miles High, So You Want to Be a Rock'n Roll Star, Lady Friend, lagið úr Easy Rider og Jesus It's Just All Right with Me, svo að fáein séu nefnd. 13. OG 14. MARS, 20. OG 21. MARS, 27. OG 28. MARSy 3. OG 4. APRÍL. THE PLATTERS Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að sjá og heyra í hinum stór- kostlegu The Platters. Hver man ekki eftir lögum eins og The Great Pre- tender, Only You, Smoke Gets in Your Eyes, The Magic Touch, Harbor Lights Enchanted, My Prayer, Twilight Time, You'll never Know, Red Sails in the Sunset, Remember when, o.fl. DR. HOOK Ein alvinsælasta hljómsveit sem til landsins hefur komið Hver man ekki eftir: Sylvia's Mother, The Cover of the Rolling Stones, Only Sixteen, Walk Right in, Sharing the Night together, When You’re in Love with a Beautiful Woman, Sexy Eyes, Sweetest of All, o.fl. o.fl. 10. og 11. apríl. STJÓRNIN Stjórnin leikur laugardagskvöld fyrir dansi til kl. 03. Sýningar á heimsmælikvarða á Hótel íslandi Staður með stíl Miðasala og borðapantanir í síma 687111

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.