Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Page 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992.
Afrnæli
Sigfús Sigurðsson
Sigfús Sigurðsson, Silfurgötu 6,
Stykkishólmi, verður sjötugur á
morgun.
Starfsferill
Sigfús fæddist á Hofstöðum í
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi en
ólst upp í Dal og í Hrísdal. Hann
stundaði nám við íþróttaskóla Sig-
urðar Greipssonar í Haukadal
1940-41 og Héraðsskólann á Laugar-
vatni1941-42.
Sigfús varð afgreiðslumaður hjá
Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi
1942, deildarstjóri þar 1947, inn-
kaupastjóri 1960 og kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Stykkishólms 1971-77.
Hann var gjaldkeri St. Francisk-
usspítalans í Stykkishólmi til 1990
og hefur verið flugvallarstjóri í
Stykkishólmi frá 1978.
Sigfús var snemma þekktur
íþróttamaður, keppti á íþróttamót-
um í tuttugu og átta ár, m.a. á sjö
landsmótum UMFÍ, vann til fjölda
verðlauna, keppti í kúluvarpi á
ólympíuleikunum i London 1948,
komst í aðalkeppnina og varð tólfti.
Sigfús var formaður Ungmennafé-
lags Selfoss í nokkur ár, var einn
stofnanda Bridgefélags Selfoss og
Lionsklúbbs Selfoss 1965.
Fjölskylda
Kona Sigfúsar er Ragnheiður
Esther Einarsdóttir, húsmóðir og
hárgreiðslumeistari. Hún er dóttir
Einars Þórðarsonar, afgreiðslu-
manns í Reykjavík, og Guðríöar Ei-
ríksdóttur húsmóður.
Böm Sigfúsar og Ragnheiðar Esth-
erar eru: Guðríður, f. 1943, listfræð-
ingur í Gól í Noregi, gift Thormod
Haugen og eiga þau þrjú böm;
Margrét, f. 1947, hússtjórnarkennari
í Reykjavík, gift Sigurði Petersen
stýrimanni og eiga þau tvö böm;
Einar, f. 1948, framkvæmdastjóri,
kvæntur Önnu Sigþórsdóttur og
eiga þau einn son; Dómhildur, hús-
stjómarkennari í Reykjavik; María,
starfsstúlka í Stykkishólmi og á hún
eina dóttur; Sigurður, f. 1955, við-
skiptafræðingur og markaðsfulltrúi
hjá SÍF, búsettur í Mílanó á Ítalíu,
kvæntur Sjöfn Bjömsdóttur versl-
unarstjóra og eiga þau þrjú börn.
Systkini Sigfúsar: Hjörleifur, f.
1919, d. 1989, vegaverkstjóri í Ólafs-
vík; Kristján Erlendur, f. 1920, d.
1987, b. í Hrísdal; Kristjana Elisa-
bet, f. 1924, húsfreyja í Hlíðarholti í
Staðarsveit; Áslaug, f. 1926, húsmóð-
ir í Reykjavík; Valdimar, f. 1928, lög-
regluflokksstjóri í Reykjavík; Elín
Guðrún, f. 1930, ljósmóðir í Stykkis-
hólmi; Olga, 1932, fyrrv. veitinga-
kona í Hreðavatnsskála; Magdalena
Margrét, f. 1934, skrifstofumaður á
ísafirði; Anna, f. 1938, húsfreyja að
Brekku í Norðurárdal; Ásdís, f. 1941,
húsmóðir í Reykjavík.
Foreldarar Sigfúsar voru Sigurður
Kristjánsson, f. 5.10.1888, d. 18.9.
1969, b. í Hrísdal í Miklaholts-
hreppi, og kona hans, Margrét Hjör-
leifsdóttir, f. 26.9.1899, d. 9.8.1985,
húsfreyja.
Ætt
Sigurður var bróðir Guðbjarts,
hreppstjóra á Hjarðarfelli, foður
Gunnars, framkvæmdastjóra Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins, og Stef-
áns, föður Alexanders, fyrrv. ráð-
herra. Sigurður var sonur Krist-
jáns, b. í Straumfjarðartungu, Guð-
mundssonar, b. í Gröf, Þórðarsonar,
b. á Hjarðarfelli, ættföður Hjarðar-
fellsættarinnar, Jónssonar.
Margrét var systir Jóhanns, föður
Sigurðar vegamálastjóra. Hún var
dóttir Hjörleifs, b. á Hofstöðum,
Bjömssonar (Bóka-Bjöms), b. á
Breiðahólsstöðum á Álftanesi,
Bjömssonar. Móðir Bjöms var Elli-
sifísleifsdóttir, b. á Englandi í Lund-
arreykjadal, ísleifssonar, og Ingi-
bjargar Ámadóttur. Móðir Ingi-
bjargar var Ellisif Hansdóttir Kling-
enberg, b. á Krossá á Akranesi, ætt-
föður Klingenbergættarinnar. Móð-
ir Hjörleifs var Oddný, systir Petr-
ínu, ömmu Kristjáns Eldjárn for-
seta. Oddný var dóttir Hjörleifs,
Pétur G. Óskarsson
Pétur Guðbjöm Óskarsson húsa-
smíðameistari, Egilsbraut 9, Nes-
kaupstað, er fertugur í dag.
Starfsferill
Pétur er fæddur í Neskaupstað og
hefur búið þar alla tíð. Hann lauk
landsprófi frá Miðskóla 1968 og
stundaði síðan nám í húsasmíði hjá
Jóni Einarssyni, húsasmíðameist-
ara í Neskaupstað. Pétur var í Iðn-
skóla Austurlands í Neskaupstað
1968-71 og tók sveinspróf 1972 og
fékk meistararéttindi þremur árum
síðar.
Pétur hefur starfað sjálfstætt síð-
an 1973 og rekið eigið fyrirtæki frá
1976 en það stofnaði hann ásamt
bræðrum sínum og vinum. Hann
hefur starfað við alla almenna tré-
og húsasmíði, bæði við viðgerðir
gamaUa húsa, svo og nýbyggingar.
Pétur hefur tekið töluverðan þátt
í félagsstarfi. Hann starfaði með
Þrótti í Neskaupstað, knattspymu-
deild, 1966-74, og hefur síðan sinnt
dómarastörfum. Pétur hefur dæmt
knattspymuleiki af til frá 1973.
Pétur stóð fyrir framboði til bæj-
arstjórnar 1974 og leiddi flokkslista
ungra kjósenda. Samhliða framboö-
inu ritstýrði hann blaðinu „Flí-
sinni“ sem kom út í nokkrum ein-
tökum fyrir kosningarnar.
Pétur er varamaður sjálfstæðis-
manna í byggingamefnd Neskaup-
staðar.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 26.12.1977 Kristínu
Brynjarsdóttur, f. 11.11.1957, féhirði
Landsbanka íslands í Neskaupstaö.
Foreldrar hennar: Brynjar Júlíus-
son og Fríður Bjömsdóttir, en þau
reka bókabúð Brynjars Júlíussonar
í Neskaupstað, Brynjar var áöur
umboðsmaður Shell í Neskaupstað
umlangtskeið.
Börn Péturs og Kristínar: Þórey
Kristín, f. 13.1.1974, nemi í Verk-
menntaskóla Austurlands í Nes-
kaupstað; Brynjar Júlíus, f. 12.11.
1977; Pétur, f. 5.12.1978. Þau eru öll
búsett í foreldrahúsum.
Systkini Péturs: Haraldur, f. 20.9.
1950, kennari, maki Hlíf Kjartans-
dóttir, þau em búsett í Borgarnesi,
Haraldur á eina kjördóttir, Hlíf átti
áður fjögur björn; Birgir Már, f. 30.1.
1955, byggingatæknifræöingur,
maki Elín Erlingsdóttir nemi, þau
slitu samvistum, þau em bæði bú-
sett í Svíþjóð og eiga fjögur böm,
Erling Hilmar, Óskar Má, Birgittu
og Jóhann Frey; Helgi, f. 14.7.1957,
verkamaður, maki Thelma Stefáns-
dóttir verkakona, þau em búsett í
Neskaupstað og eiga einn son, Atla
Bjöm; Oskar Þór, f. 10.5.1968, verka-
maður, búsettur í Neskaupstaö.
Foreldrar Péturs era Óskar
Bjömsson, f. 12.3.1924, húsvörður
Nesskóla í Neskaupstað, og Brigitte
Czubaiko Bjömsson, f. 5.11.1928,
sjúkraliði, en þau eru búsett á Nes-
götu 13 í Neskaupstað.
Ætt
Brigitte er fædd í Köningsberg í
Prússlandi en flutti til íslands eftir
stríð, fyrst til Reykjavíkur og síðar
til Neskaupstaðar. Foreldrar henn-
ar eru María Elisabeth Kirch, bú-
sett í Cuxhaven í Þýskalandi, og
Wilhelm A. Czubaiko, sem nú er
látinn. Brigitte á eina systur, bú-
settaíÞýskalandi.
Óskar er sonur Bjöms Emils, bak-
ara í Neskaupstað, Bjamasonar, b.
á Ormsstöðum, Skálateigi og Hofi á
Norðfirði, Péturssonar, b. á Hofi,
Bjamasonar, b. á Kirkjubóli í Reyð-
arfirði, Jónssonar, b. á Stóra-
Breiðuvík í Reyðarfirði, Ásmunds-
sonar.
Móðir Bjöms Emils var Guðrún
Marteinsdóttir, b. á Sandvikurparti,
Magnússonar, b. þar, Marteinsson-
ar, b. í Skuggahlíð á Norðfirði, Jóns-
Pétur Guðbjörn Óskarsson.
sonar. Móðir Guðrúnar var Guðrún
Jónsdóttir, b. á Múla og síðan á
Sandfelli í Álftafirði, Eyjólfssonar,
prests á Hofi í Álftafirði, Teitssonar,
b. á Höföa í Biskupstungum, Lofts-
sonar, b. á Sóleyjarbakka, Loftsson-
ar. Móðir Guðrúnar var Guðrún
Jónsdóttir, prests á Kálfafelli, Jóns-
sonar, lrm. á Höföabrekku, Runólfs-
sonar. Móðir Guðrúnar var Guðný
Jónsdóttir, eldprests á Prestbakka á
Síðu, Steingrímssonar.
Móðir Óskars, sjómanns í Nes-
kaupstað, var Guðbjörg Bjamadótt-
ir, húsmanns á Reykjum á Reykja-
strönd, Narfasonar, b. í Traðakoti á
Vatnsleysuströnd, Magnússonar, b.
á Sveinavatni í Grímsnesi, Bjarna-
sonar, b. á Grafarhóli í Grímsnesi,
Narfasonar.
Ámi E. Valdimarsson
Ami Eyþórs Valdimarsson, fyrrver-
andi skipherra og deildarstjóri Sjó-
mælinga íslands, Hringbraut 100,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Árni er fæddur í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk prófi frá Gagn-
fræðaskóla Reykvikinga og tók síð-
ar farmannapróf frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík, eða 1946.
Seinna lauk hann skipstjóraprófi úr
varðskipadeild sama skóla. Ami
kynnti sér starfsaðferðir og starfst-
ilhögun við sjókortagerð hjá Danska
sjókortasafninu (Det Kongelige
Danske Sokortarkiv) í Kaupmanna-
höfnáriðl968.
Ami fór fyrst á sjóinn 1939 og var
háseti á vs. Ægi fram á áriö 1946 en
leysti þar af og á vs. Óðni sem 2. og
3. stýrimaður eftir að hann lauk far-
mannaprófi þá um vorið. Síðan var
hann háseti á ms. Foldinni 1947 og
fram á árið 1948. Ami var stýrimað-
ur á varðskipum ríkisins og leigu-
skipum Landhelgisgæslunnar í
nokkur ár þar á eftir og leysti þá
einnig af sem stýrimaður á strand-
ferðaskipum ríkisins. Hann var síð-
an ýmist stýrimaður eða skipsfjóri
á varðskipum ríkisins og á flugvél-
um Landhelgisgæslunnar og í mörg
ár með sjómælingabátinn Tý.
1956 sótti Ámi björgunarbátinn
Gísla J. Johnsen til Gautaborgar
fyrir Slysavamafélag íslands. Árið
eftir gerðist hann starfsmaður ís-
lensku sjómælinganna (nú Sjómæl-
ingar íslands) sem þá vora á vegum
Vita- og hafnamálastofnunar. Aðal-
starf hans var sjómælingar, hafna-
mælingar og sjókortagerð. Auk þess
sá hann um vitaskrár, tilkynningar
til sjófarenda o.fl. Þegar Sjómæling-
ar íslands og Landhelgisgæslan
vora settar undir sameiginlega
stjóm varð Ámi deildarstjóri Sjó-
mælinganna þar til hann lét af störf-
uml983.
Ámi hefur tekið töluverðan þátt í
félagsstarfi. Hann gekk í Skipstjóra-
félag íslands 1957 og var fulltrúi
þess á þingi Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands 1963 en
Ámi var ennfremur ritari í stjórn
FFSÍ1963-65. Ámi hefur verið próf-
dómari við Stýrimannaskólann í
Reykjavík frá 1959 og var prófdóm-
ari við Stýrimannaskólann í Vest-
mannaeyjum 1964-69.
Fjölskylda
Árni kvæntist 21.11.1948 Þóra
Gyðu Gunnlaugsdóttur, f. 1.7.1928,
húsmóður. Foreldrar hennar voru
hjónin Gunnlaugur J. Guðmunds-
son, f. 28.8.1890, d. 30.11.1950, skó-
smíðameistari, fæddur í Reykjavík,
og Karlína G. Stefánsdóttir, f. 5.4.
1891, d. 22.8.1973, húsfreyja, fædd á
Fáskrúðsfirði.
Dóttir Áma og Þóra er Guðrún
Gyða, f. 8.6.1971, launafulltrúi á
launadeild Borgarspítalans, hún er
búsett í foreldrahúsum.
Systkini Áma: Kristinn Sigurgeir
Angantýr, f. 24.12.1918, d. 31.10.1938;
Gunnar Héðinn, f. 5.10.1920, flugvél-
stjóri, maki Þorgerður Bjamadóttir,
sjúkraliði og húsmóðir, þau era bú-
sett í Reykjavík og eiga dmm börn.
Hálfsystir Áma, sammæðra: Ásta
Ámý Guðmundsdóttir, f. 30.6.1910,
d. 9.3.1973, húsmóðir, hennar maö-
ur var Jón J. Brynjólfsson, sútunar-
meistari, látinn, þau bjuggu í
Árni Eyþórs Valdimarsson.
Reykjavík, þau eignuðust þrjú böm.
Hálfbróðir Áma, samfeðra: Hörður
Láras, f. 17.1.1914, látinn, pípulagn-
ingarmaður, hann var búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Áma voru Valdimar
Kristinn Ámason, f. 1.11.1888, d.
4.7.1967, pípulagningarmeistari, og
Guðrún Amadóttir, f. 22.9.1883, d.
24.12.1960, húsmóðir, en þau bjuggu
íReykjavík.
Sigfús Sigurðsson.
prests á Völlum í Svarfaðardal,
Guttormssonar.
Móðir Margrétar var Kristjana,
systir Sólveigar, konu Sigfúsar Ey-
mundssonar ljósmyndara, og systur
Guðrúnar, konu Guðmundar
Bjömssonar landlæknis. Kristjana
var dóttir Sigurðar, b. í Klettakoti
við Reykjavík, Bjömssonar og
Margrétar, systur Sigríðar,
langömmu Guðlaugs Þorvaldssonar
ríkissáttasemjara. Margrét var dótt-
ir Bjama, b. í Híðarhúsum í Reykja-
vík, Hannessonar, spítalahaldara í
Kaldaðarnesi, Jónssonar. Móðir
Margrétar var Malen Jóhannesdótt-
ir Zoéga, tukthúsmeistara í Reykja-
vík.
90 ára
Jensina Óladóttir,
Bæ, Árneshreppi.
75 ára______________
Haukur Ólafsson,
Mýrargötu 2, Neskaupstað.
70 ára
Lilja Valdimarsdóttir,
Dalseli 33, Reykjavík.
Ottó Geir Þorvaldsson,
Viðvík, Viðvíkurhreppi.
Guðrún Eggertsdóttir,
Gnoöarvogi32, Reykjavík.
60 ára
örn Geirsson,
Álfhólsvegi 117, Kópavogi.
*
50 ára
Inga Anna Gunnarsdóttir,
Túngötu 25, Siglufirði.
Jóna Jóhannsdóttir,
Ásholti 4b, Arnarneshreppi.
40 ára
Jón Sigurðsson,
Árbraut 16, Blönduósi.
Ragna Gimnarsdóttir,
Tröð, Grímsey.
Börkur Vifill Bergmann,
Granaskjóli 22, Reykjavík.
Áslaug Kolbrún Jónsdóttir,
Skólagerði 29, Kópavogi.
Jón E. Bernódusson,
Höföavegi 34, Vestmannaeyjum.
Endurski
í skam