Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1992.
3
Fréttir
Dráttarvaxtagreiöslur Ríkisspítalanna:
Hneyksli að
fjármunum sé
eytt á þennan hátt
- segirframkvæmdastjóriBorgarspítalans
„Það er hneyksli að það skuli vera
farið með fjármuni á þennan hátt.
Þegar menn eyða ríflega tvö hundruð
milljónum að núvirði í dráttarvexti,
og það á einungis þremur árum, er
eitthvað að,“ segir Jóhannes Pálma-
son, framkvæmdastjóri Borgarspít-
alans.
Eins og DV hefur greint frá þá
greiddu Ríkisspítalarnir um 207
milljónir í dráttarvexti að núvirði á
árunum 1989 til 1991. Á sama tíma
greiddu aðrar stofnanir ríkisins ein-
ungis samtala um 65 milljónir í drátt-
arvexti. Þess má geta í þessu sam-
bandi að í ár stendur til að spara 311
milljónir í rekstri Ríkisspítalanna,
meðal annars með því að segja um
50 manns upp störfum.
Að sögn Jóhannesar hefur Borgar-
spítalinn ekki þurft að greiða neina
dráttarvexti á undanfórnum árum
vegna vanskila. Þvert á móti hafi
spítalinn fengið umtalsverðar vaxta-
tekjur. Árið 1988 voru vaxtatekjurn-
ar 4,4 milljónir, árið 1989 um 6,6 millj-
ónir og árið 1990 um 3,3 milljónir. Á
núvirði eru vaxtatekjur þessara
þriggja ára tæpar 20 milljónir.
Til samanburðar má geta þess að á
árinu 1989 greiddu Ríkisspítalarnir
ríflega 79 milljónir í dráttarvexti, ríf-
lega 100 milljónir árið 1990 og ríílega
57 milljónir í fyrra. Á núvirði eru
þessar dráttarvaxtagreiðslur sam-
tals um 207 milljónir, eins og áður
segir.
-kaa
Krakkarmr i Breiðholtinu þurfa ekki að fara langt til þess að komast í góða
skíðabrekku. DV-mynd Brynjar Gauti
Matthías Bjamason um ástandið í þingflokknum:
„Þungur sjór og þrútið loft“
- dauðsé eftir að hafa farið í ffamboð núna
Matthías Bjarnason alþingismað-
ur gefur ófagra lýsingu á ástandinu
í þingflokki Sjálfstæðisflokksins og
raunar flokknum líka í viðtah við
tímaritið Heimsmynd. Hann notar
orð úr ljóðlínu úr kvæðinu um Egg-
ert Ólafsson þegar hann lýsir ástand-
inu í þingflokknum. „Þungur sjó og
þrútið loft.“
Hann segir ungu mennina í Sjálf-
stæðisflokknum kalla sig sósíalista,
„okkur mennina sem höfum unnið
frá blautu barnsbeini í atvinnulífinu
og erum nú óðum að hverfa af sjón-
arsviðinu. Þessir ungu menn i
flokknum segja okkur annaðhvort
sósíalista eða framsóknarmenn og
nota það sem skammaryrði þar sem
við viljum verja hag lítilmagnans og
landsbyggðarinnar. Mér flnnst þetta
köld kveðja eftir áratugastarf í
flokknum," segir Matthías.
í viðtalinu er fariö í stórum drátt-
um yfir stjórnmálaferil Matthíasar.
Þar hælir hann hinum gömlu foringj-
um Sjálfstæðisflokksins en er þeim
mun þungorðari um þá sem nú ráða
ferðinni. Á einum stað segist hann
raunar sjá eftir því að hafa farið í
framboð nú síðast.
Hann er mjög óánægður með nið-
urskurðinn í ellilífeyrismálunum og
vinnubrögð Sighvats Björgvinsson-
ar. Hann segir Sjálfstæðisflokkinn
nú vera allt aiman Sjálfstæðisflokk
en hann gekk í á sínum tíma.
Hann segist hafa stutt Þorstein
Pálsson í formannsslagnum á síðasta
flokksþingi vegna þess að hann vilji
ekki ráðast gegn sitjandi formanni
flokksins. Hann segir hins vegar að
frjálshyggjuhðið hafi kom inn með
Þorsteini þegar hann var fyrst kjör-
inn formaöur. Það hafl síðan náö tök-
um á flokknum. Hann segir sig hrylla
við því liði. Hann segist ekki vilja
nefna nein nöfn í því sambandi.
„Þetta afl hefur skemmt flokkinn
og gert hann miklu þrengri. Þessir
Heimdallarstrákar sem skhja ekki
út á hvað lífsbarátta fólksins í land-
inu gengur," segir Matthías.
Um Jón Baldvin utanríkisráðherra
segir Matthías.
„Það er margt gott í honum Jóni
en helvítis hrokinn er að fara með
hann. Þeir eru nokkrir sem hafa ekki
þolað að verða ráðherrar eða hljóta
aðrar vegtyllur innan þingsins. Sum-
ir eru æði fljótir að gleyma uppruna
sínum. Menntahroki er einnig áber-
andi í fari sumra langskólagenginna
þingmanna og það er hroki í fari
Davíðs Oddssonar. Mér fannst hann
til dæmis mjög hrokafullur þegar
okkur lenti saman síðastliðið sumar
vegna byggðamála."
Matthías segist líta niður á þá
menn sem tilheyra svonefndum kol-
krabba en kenna í bijósti um þá um
leið. Nefnir hann í því sambandi
Aðalverktakahneykslið á dögunum
eins og hann nefnir það. Hann segir
það hlutverk Sjálfstæðisflokksins að
auka fylgi flokksins en ekki að faha
í faðm kolkrabbans.
Loks er hann spurður hvaða
stjórnmálamenn hann sjái til að leiða
þjóðina út úr þeim ógöngum sem við
erum í. Og svar hans er einfalt:
„í hjartans einlægni. Það sorglega
erað égséþá ekki.“ -S.dór
Aðalfundur
1992
Aðalfundur Skeljungs hf.
verður haldinn föstudaginn
20. mars 1992 í Átthagasal
Hótel Sögu, Reykjavík, og
hefst fundurinn kl. 14:00.
Skeljungur hf.
Einkaumboð fyrir Shell-vörurá íslandi
Dagskrá:
1. Venjuleg aðaifundarstörf skv.
16. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa.
3. Tillaga um breytingu á 4. gr.
samþykkta félagsins.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur
og reikningar félagsins munu
liggja frammi á aðalskrifétofu
félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn
verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins Suðurlandsbraut 4,
6. hæð, frá og með 13. mars
til hádegis á fundardag, en
eftir það á fundarstað.
r
I
Fyrst og frmst
á farmabraut \
Safnsendingar í flugi
- ódýrari frakt..
O Alfi c
waco
FLUTNINGSMIÐLUNIN HF
TRYGGVAGÚTU 26 - REYKJAVÍK - S: 29111 Fax 25590