Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1992. DV Sviðsljós Menningarveisla á Hótel Holti: Sjö listgrein- ar heiðraöar Árlega veitir DV menningarverö- laun í sjö listgreinum og fer aíhend- ing fram í hádegisverðarboði í veislusalnum Þingholti á Hótel Holti. Glæsilegir gripir biðu listamann- anna sem fengu þá afhenta úr hendi dómnefndarmanna. Ræður voru haldnar og menn lyftu glösum fyrir listum yfir einstökum gæðamáls- verði þar sem voru matreiddir sjáv- arréttir sem aldrei áður hafa sést á borðum íslensks veitingahúss. Var um að ræða ígulker, búra og gulllax, framreitt á glæsilegan máta af lista- kokkum á Hótel Holti. Myndimar hér á síðunni vora teknar í Þingholti fyrir og meðan á málsverði stóð. Verk Þrastar Magnússonar hönnuðar skoðuð en hann fékk menningarverö- laun fyrir hönnun á frímerkjum. Talið frá vinstri, Þórdís Zoega húsgagna- arkitekt, Bjarni Daníelsson, skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla íslands, og Þröstur Magnússon. DV-myndir GVA Skipst á orðum um listir. Talið frá vinstri. Gísli Sigurðsson bókmenntafræð- ingur, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Hjálmar H. Ragnarsson tón- skáld og Hafliði Arngrímsson leikiistarráðunautur. Hér ræðast þeir við Sveinn R. Eyjólfsson, stjórnarformaður Frjálsrar fjölm- iðlunar, Hörður Einarsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar og Ell- ert B. Schram, ritstjóri DV. I bakgrunninum eru Sigurður A. Magnússon rithöfundur og Torfi Jónsson hönnuður. 11 í MARGAR GERÐIR BÍLA VERÐ FRÁ KR. 1.366.- BílavörubúÓin Þau Ása Gissurardóttir og Guð- mundur Guðjónsson voru fljót út á gólfið þegarfélagsvistinni var lokið. Félag eldri borgara: Félagsvist ogdans Innan Félags eldri borgára í Kópavogi er starfandi skemmti- nefnd sem verið hefur mjög virk og staðið fyrir aUs kyns uppá- komum undanfarin ár. Það er t.d. orðinn fastur punkt- ur í tilveru bæjarbúa að á vegum eldri borgara sé spiluð félagsvist í húsi Lionsmanna í Auðbrekku 25. Mikill áhugi er á spilamennsk- unni og stundum þröng á þingi. Þegar félagsvistinni er lokið er brugðið á leik og dansað í allt aötvotímaáeftir. Hér spila eldri borgarar í Kópavogi félagsvist af mikilli innlifun. DV-myndir S p 048 Fjöldi bílasala, bíla- umboða og einstaklinga auglýsa fjölbreytt úrval bíla af öllum geröum og í öllum verðflokkum meó góðum árangri í DV-BÍLAR á laugardögum. Athugið að auglýsingar í DV-BÍLAR þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum. Smáauglýsingadeildin er hins vegar opin alla daga frá kl. 09.00 til 22.00 nema laugardaga frá kl. 09.00 til 18.00 og sunnudaga frá kl. 18.00 til 22.00. Smáauglýsing í HELGARBLAÐ verðurað berast fyrirkl. 17.00 á föstudögum. Auglýsingadeild 632700

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.